Morgunblaðið - 11.04.1996, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 1996 11
Friðjóns
Skarphéð-
inssonar
minnst
FRIÐJÓNS Skarphéðinssonar
fyrrverandi ráðherra og yfir-
borgarfógeta var minnst á Alþingi
í gær en Friðjón lést 31. mars á
87.^ aldursári.
Ólafur G. Einarsson forseti Al-
þingis minntist Friðjóns við upphaf
þingfundar í gær og sagði að hann
hefði verið reglumaður í embætti,
starfsamur og réttlátur og haldið
uppi góðum anda í fjölmennu
starfsliði.
Friðjón fylgdi Alþýðuflokknum
að málum en Óiafur sagði að á
vettvangi stjórnmála hefði Friðjón
notið mannkosta sinna, verið vel
metinn af samheijum sínum og
fylgismönnum annarra stjórn-
málaflokka.
„I umræðum var hann hógvær
og gerði málefnum góð skil án
málalenginga. A Alþingi var hann
tíðum í forsetastól og honum lét
vel að stjórna fundum. Hann var
bókamaður, fékkst nokkuð við rit-
störf, einkum um lögfræðirit frá
liðnum öldum, gerði það skilmerki-
lega eins og annað sem hann hug-
aði að,“ sagði Ólafur.
Málflutnings-
réttindi í
Bandaríkjunum
•ÍSLENSKUR lögfræðingur,
Jón Ögmundsson, hefur fengið
málflutningsréttindi í Flórídafylki.
Lögmannsréttindi
í Bandaríkjunum
veita rétt til að
flytja mál fyrir
fylkisdómstólum í
Flórída og aðgang
til að stunda lög-
mannsstörf fyrir
alríkisdómstólum
Bandaríkjanna.
I fréttatilkynningu segir að Jón
sé einnig að sækja um máflutn-
ingsréttindi fyrir alríkisdómstólum
í Washington D.C. og að hann sé
fyrstur íslendinga sem lýkur fullu
námi í Bandarískum lögum. Hann
brautskráðist með Jurist Doctor-
gráðu frá Háskólanum í Miami í
desember 1994. Meðal sérgreina
Jóns voru vinnuréttur, alþjóða við-
skiptaréttur og háfréttur. Lokarit-
gerð Jóns var í Evrópurétti og
fjallaði um verndunarþátt sjávar-
útvegsstefnu Evrópubandalagsins.
Jón útskrifaðist sem lögfræð-
ingur frá Háskóla Islands árið
1985 og starfaði í mörg hjá al-
þjóðahreyfingunni Junior Cham-
ber International í Coral Gables,
Flórída.
Foreldrar Jóns eru Ögmundur
Kristgeirsson, rafverktaki í Kópa-
vogi, og kona hans, Sesselja G.
Jónsdóttir. Jón starfar á lög-
mannsstofu Harold Braxton, P.A.
í Suður-Miami. Hann býr jafn-
framt á Miami ásamt eiginkonu
sinni, Alba Maffessanti.
JfL
FLÍSASKERAR
OG FLÍSASAGIR
T ÍT in
i
Stórhöfða 17, við Gullinbrú,
sími 567 4844
FRETTIR
Frederico Mayor til Islands í boði Björns Bjarnasonar menntamálaráðherra
Yfirmaður UNESCO
í opinbera heimsókn
AÐALFRAMKVÆMDASTJÓRI
Menningarmálastofnunar Samein-
uðu þjóðanna, UNESCO, Federico
Mayor, kemur í opinbera heimsókn
til íslands dagana 11.-14. apríl
nk. í boði menntamálaráðherra. í
fylgd með Mayor er eiginkona
hans, Maria Angeles Mayor, og
Horst Dödicke, deildarstjóri hjá
UNESCO.
Dagskrá heimsóknarinnar er í
stórum dráttum sem hér segir
samkvæmt fréttatilkynningu
menntamálaráðuneytisins. Föstu-
daginn 12. apríl mun aðalfram-
kvæmdastjórinn ávarpa málþing
sem haldið verður í Viðeyjarstofu
kl. 10-15 um sáttmála UNESCO
um verndun menningar- og nátt-
úruminja heims. ísland gerðist
aðili að sáttmálanum í desember
1995. Á málþinginu verður sátt-
málinn kynntur og fulltrúi frá
„World Heritage Centre" hjá
UNESCO í París og frá „Nordic
World Heritage Centre“ í Osló
munu segja frá starfsemi þessara
miðstöðva. Að loknum hádegis-
verðarboði forseta íslands að
Bessastöðum heimsækir aðalfram-
kvæmdastjórinn Háskóla íslands
þar sem hann heldur fyrirlestur
um Hlutverk háskóla í nútímasam-
félagi. Fyrirlesturinn, sem er öllum
opinn, verður í stofu 101 í Odda
og hefst kl. 15.30.
Kl. 16.15 verður blaðamanna-
fundur í Odda en síðan mun hr.
Mayor og fylgdarlið heimsækja
Þjóðarbókhlöðuna.
Laugardaginn 13. apríl verður
heimsókn í Árnastofnun en síðan
verður farið í skoðunarferð til
Nesjavalla og Þingvalla. Á Þing-
völlum mun prófessor Sigurður
Líndal segja gestum frá sögu
staðarins en Þingvellir er einn
þeirra staða sem væntanlega
verður óskað eftir að komist á
heimsminjaskrá UNESCO um
merka menningar- og náttúru-
minjastaði. Hinir erlendu gestir
munu þennan dag snæða hádegis-
verð í Þingvallabænum í boði for-
sætisráðherra.
Einnig bjóöum viö önnur bandarísk toppmerki á borö við GARY FISHER
fjallahjól frá sjálfum „fööur fjallahjólanna", GREG LEMOND sporthjól frá
margföldum heimsmeistara og sigurvegara í Tour De France og síöast
en ekki síst aðalmerkið í hátæknihjólum úr áli: KLEIN fjallahjól.
Gary Fisher, Greg LeMond og Gary Klein eru allir lifandi goösagnir og fylla hóp
fremstu reiðhjólahönnuða í dag. Þaö er því sama hvaða hjól þú kaupir hjá okkur,
þú færð aðeins það besta fyrir peningana.
þjónusta.
al fylgihlu
tEBBIÍr
Opið laugardaga kl. 10- H
RAÐGREfÐSLUfí
R e / ð h / ó / a verslunin
iðSÁ m fBB BSL R5 i&Œk jajmMBMB
i 11, sími 588 9890 Verkstæði, sími 588 9891
TREí Iusa gary fisher ^KLGIN ueivioimd CíUP SHIFH------- CATEYE® VistaLite
ImIMMMÍíMhM*