Morgunblaðið - 11.04.1996, Síða 12
12 FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 1996
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Landsvirkjun hefur hækkað gjaldskrá sína um 3%
Rafmagnsverð mun þó
ekki hækka á Akureyri
SVAVAR Ottesen, formaður
stjómar veitustofnana, segir að
rafmagnsverð hjá Rafveitu Akur-
eyrar muni ekki hækka, þrátt fyr-
ir að Landsvirkjun hafí nýlega
hækkað útsöluverðið um 3%.
Svanberg Sigurðsson, rafveitu-
stjóri segir að það þýði aukin út-
gjöld Rafveitunnar upp á 8,5 millj-
ónir króna á ársgrundvelli. Svavar
segir að til að mæta þeirri út-
gjaldaaukningu verði dregið úr
framkvæmdum við endurnýjun á
dreifíkerfi bæjarins.
Ekki tilefni til hækkunar
Veitustjórn ræddi hækkun
Landsvirkjunar á fundi sínum ný-
lega og þar kom fram að veitu-
stjóm sér engar forsendur sem
gefa tilefni til hækkunar hjá
Landsvirkjun, svo sem vegna
gengismála, verðlagsbreytinga
eða hækkunar annars rekstrar-
kostnaður, eins og segir í bókun
veitustjórnar. „Hins vegar ættu
aðstæður til stöðugs verðlags eða
lækkunar á sölu rafmagns Lands-
virkjunar til viðskiptavina sinna
að vera til staðar eftir nýgerða
samninga við álfyrirtækið í
Straumsvík,“ segir ennfremur í
bókuninni.
Einnig kemur fram að RA hefur
undanfarin ár unnið að veigamik-
illi endurnýjun á veitubúnaði og
notendakerfi ásamt Hagræðingu
sem hefur gefíð fyrirheit til við-
skiptavina hennar um lækkun raf-
magnsverðs næstu 10-15 árin og
byggt það á stöðugleika í verðlags-
málun.
Fyrsti áfangi þessarar lækkun-
ar kom til framkvæmda um síð-
ustu áramót en þá lækkaði raf-
magnsverðið um 3%.
Svavar segir að Landsvirkjun
hafí bent á að þar á bæ hafí raf-
magnsverð ekki verið hækkað frá
árinu 1994. „Við höfum heldur
ekki hækkað frá árinu ’94 og
bæði rafmagn og heitt vatn var
lækkað um síðustu áramót. Við
hefðum þurft að vita af fyrirhug-
aðri hækkun strax í haust, á með-
an vinna við fjárhagsáætlun stóð
yfír,“ segir Svavar.
Hita- og vatnsveita Akureyrar
kaupir rafmagn af RARIK fyrir
tugi milljóna króna á ári fyrir
vatnsdælur bæði á Þelamörk og
inni í Eyjafirði. RARIK hefur
ákveðið að hækka sína gjaldskrá
og segir Svavar að það þýði aukin
útgjöld Hita- og vatnsveitu um 1
milljón króna á ári.
Morgunblaðið/Kristján
Er vorið komið?
FLESTIR Eyfirðingar eru þess
fullvissir að vorið sé komið,
enda bæði aðalfundur KEA og
páskarnir að baki. Veturinn í
ár var því frekar stuttur og
góður, ekki síst ef miðað er við
síðasta vetur. Bíleigendur er
farnir að skipta yfir á sumar-
dekk og hann Andri Sverrisson,
fjögurra ára snáði, var að skoða
úrvalið af fótboltum í göngugöt-
unni á Akureyri er ljósmyndari
Morgunblaðsins rakst á hann í
gær.
Flugfrakt í
miðbæinn
AFGREIÐSLA fyrir flugfrakt
Flugleiða og Flugfélags Norður-
lands hefur verið opnuð í húsakynn-
um TVG að Hjalteyrargötu 10 á
Akureyri. Jafnframt hefur opnað
þar Vörudreifíngarmiðstöð TVG,
sem býður landflutninga til og frá
Akureyri og um allt land.
Afgreiðslan er vel staðsett í mið-
bænum og markmiðið með flutn-
ingi hennar er að færa þjónustuna
nær viðskiptavinum. Móttaka hrað-
sendinga verður eftir sem áður á
Akureyrarflugvelli. Sérútbúinn
fraktbíll verður á ferð til og frá
flugvelli, allt að sex ferðir á dag.
Bíll frá TVG mun einnig sinna
heimsendingu og móttöku fraktar
og er það nýjung í þjónustu við
viðskiptavini.
Flutningur flugafgreiðslunnar
frá flugvellinum og á Hjalteyrar-
götu opnar viðskiptavinum nýja
möguleika þar sem flutningar
verða samtengdir hvort sem er á
landi éða í lofti. Möguleikar á fram-
haldsflutningum munu stóraukast
þar sem flutninganet Vörudreif-
ingarmiðstöðvar TVG á Norður-
landi nær frá Brú í Hrútafirði til
Vopnafjarðar. Einnig mun þetta
auka öryggi flutninganna þar sem
einn aðili tekur að sér flutning fyr-
ir annan t.d. ef ófærð hamlar flutn-
ingum eða ferð fellur niður.
Viðtakendur erlendrar fraktar
geta nú látið gera tollskýrslur á
Hjalteyrargötu og gengið þannig
alveg frá afgreiðslu vöru sinnar um
leið og hún er sótt.
MÖRKINNI 3 - SlMI 588 0640
Morgunblaðið/Kristján
Þorskurinn heldur fyrr á ferðinni
TRILLUKARLAR á Akureyri
hafa aðeins orðið varir við
þann gula innarlega í Eyja-
firðinum en á svipuðum tíma
í fyrra hafði nánast ekkert af
þorski komið inn í fjörðinn,
að sögn Jóns Halldórssonar á
Sæborgu EA. Hann segir að
þorskurinn sé heldur fyrr á
ferðinni en í fyrra þótt ekki
hafi verið um neina mokveiði
að ræða til þessa í þorskanet-
in.
Svokallað hrygningastopp
hefst 14. apríl og stendur til
29. apríl. Jón vonast til að eft-
ir stoppið verði þorskurinn
kominn inn í fjörðinn og að
þá fari veiðin að glæðast en
eftir stoppið í fyrra voru afla-
brögð mjög góð í Eyjafirðin-
um. Á myndinni er Jón í bát
sínum við bryggju í Sandgerð
isbót.
Listasafnið
Kvenlíkam-
inn í aðal-
hlutverki
TVÆR sýningar verða opnað-
ar í Listasafninu Á Akureyri
á laugardag, 13. apríl. Þær
eru ólíkar að hugsun og tján-
ingu en myndefnið er það
sama, kvenlíkaminn.
I austur- og miðsal safnsins
verða sýndar á ijórða tug
módelmynda eftir Gunnlaug
Blöndal. „Modelmyndir Gunn-
laugs eru einstakar í íslenskri
listasögu þar sem má segja
að hann hafi opinberað kon-
una og nekt hennar af sér-
stakri munúð og listrænu inn-
sæi,“ segir í tilkynningu um
sýninguna.
í vestursal sýnir bandaríski
ljósmyndarinn Bill Dobbins en
hann hefur hlotið heimsat-
hygli fyrir ljósmyndir af vaxt-
arræktarkonum. Sýningin ber
yfirskriftina „Stálkonan“.
Bill Dobbins kemur til
landsins í fylgd tveggja „stál-
kvenna“ og eru þau í boði lík-
amsræktarstöðvarinnar Gym
80. Sýningin er sett upp með
aðstoð og í samvinnu við
Hannes Sigurðsson listfræð-
ing.
Elías I. Eiíasson iætur af störfum
Björn Jósef í emb-
ætti sýslumanns
BJÖRN Jósef Arnviðarson, lög-
maður, tók í gær við embætti
sýslumannsins á Akureyri af El-
íasi I. Elíassyni, sem starfað hefur
við embættið frá árinu 1980. EJías
lætur af störfum fyrir aldurs sakir
en hann varð sjötugur í gær.
Sigurður Tómas Magnússon,
skrifstofustjóri í dómsmálaráðu-
neytinu var mættur norður í gær-
morgun og hann afhenti Birni Jó-
sef skipunarbréf Forseta íslands
og lykla að húsnæði embættisins.
Sigurður Tómas sagði m.a. við það
tækifæri að embætti sýslumanns
væri gamalgróið og viðamikið
embætti og því fylgdu fleiri titlar.
Nefndi hann í því sambandi titil
lögreglustjóra, tollstjóra, þinglýs-
ingarstjóra óg uppboðshaldara.
Sigurður Tómas sagði jafnframt
að Björn Jósef tæki við góðu og
vel reknu búi af forvera sínum.
Starfsfólk embættisins bauð
nýjan sýslumann velkominn til
starfa og færði honum blómakörfu
að gjöf. Fyrsta embættisverk
Björns Jósefs var svo að funda
með skrifstofustjóra dómsmála-
ráðuneytisins, Daníel Guðjónssyni,
yfirlögregluþjóni, Ólafi Ásgeirs-
syni, aðstoðaryfirlögregluþjóni, og
Guðjóni Bjömssyni fulltrúa sýslu-
manns.
Bjöm Jósef hefur rekið lög-
mannsstofu og fasteignasölu frá
Morgunblaðið/Kristján
SIGURÐUR Tómas Magnússon, skrifstofustjóri i dómsmála-
ráðuneytinu, afhendir nýjum sýslumanni, Birni Jósef Arnvið-
arsyni, skipunarbréf Forseta íslands og lykla að húsnæði
embættisins í gær.
árinu 1979 og auk þess setið í og mun auk þess segja af sér trún-
bæjarstjórn fyrir Sjálfstæðisflokk- aðarstörfum á pólitískum vett-
inn. Hann hefur hætt þeim rekstri vangi.