Morgunblaðið - 11.04.1996, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ
F'IMMTUDAGUR 11. APRÍL 1996 13
LANDIÐ
Ráðsfundur ITC
á Húsavík
Laxamýri - Fundur II. ráðs ITC var
haldinn á Húsavík á dögunum.
Mætt var frá öllum deildum innan
ráðsins en það voru félagar Yrpu
og Kvists í Reykjavík, írisar í Hafn-
arfirði, Hnotu á Þórshöfn og Flugu
í S-Þingeyjarsýslu.
Auk venjulegra fundarstarfa var
haldin ræðukeppni en sigurvegari
hennar var Guðbjörg Jóna Magnús-
dóttir frá ITC-Yrpu. í öðru sæti
varð Guðrún Sigurðardóttir frá
ITC-Flugu, en hún hafði áður unnið
ræðukeppni innan sinnar deildar.
Þá hélt Anna María Vilhjálmsdótt-
ir, forseti ITC-írisar, fræðslu um
sjálfsmat og Sara Hólm fræddi um
ilmvötn í aldanna rás, uppruna
þeirra og stöðu sem gjaldmiðils.
Farið var í skoðunarferðir í
sveitasafnið á Mánárbakka og
Safnahús Þingeyinga. Fyrirtækið
Stöplafiskur bauð félögum upp á
harðfisk og grillaða loðnu, einnig
var basar Kvenfélags Tjörness
heimsóttur í félagsheimilinu Sól-
vangi. Umsjónarmaður ráðsfundar-
ins var Ása Kristín Jónsdóttir.
Morgunblaðið/At!i Vigfússon
FRÁ ráðsfundi II. ráðs ITC á Húsavík. F.v. Kristín Kristjánsdótt-
ir, ritari II. ráðs, Kristin Dagbjartsdóttir þingskapaleiðari, Guð-
mundur H. Magnússon, 1. varaforseti, Kristín Arinbjarnardótt-
ir, 2. varaforseti, og Sigurlaug Þórðardóttir gjaldkeri.
Héraðsskjalasafn A-Húnavatnssýslu
Bókaskápar fyrir fé
frá Islandsbanka
Blönduósi - Menningarsjóður ís-
landsbanka afhenti á dögunum
Héraðsskjalasafni A-Húnavatns-
sýslu 250.000 kr að gjöf til minn-
ingar um Pétur Sæmundssen
bankastjóra. Það var Valur Valsson
bankastjóri sem fyrir hönd menn-
ingarsjóðsins afhennti Jóni ísberg
formanni stjórnar safnsins gjöfina.
Að sögn Jón Isbergs þá verður
þessi peningagjöf notuð til að kaupa
bókaskápa sem eru sérhannaðir til
að nýta vel húsrými. Ekkja Péturs
Sæmundssen, Guðrún Sæmundssen
flutti ávarp og þakkaði þann sóma
sem minningu manns hennar var
sýndur.
Safnið sem nú er liðlega þrítugt
er til húsa í kjallara Sýsluskrifstof-
unar. Auk skjala opinberra aðila
eru á safninu merk einkaskjalasöfn.
Má þar nefna safn handrita Magn-
úsar Bjömssonar frá Syðra - Hóli,
Bjarna Jónssonar frá Blöndudals-
hólum og bréfasafn Halldóru
Bjarnadóttur. Skjalavörður héraðs-
skjalasafns Austur - Húnavatns-
sýslu er Þórhildur ísberg
„ , Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
I APOTEKI Suðurnesja. Frá vinstr: Una Kristin Stefánsdóttir afgreiðslumaður, Þorvaldur Árnason
lyfjafræðingur, Hildur Thorarensen lyfjafræðingur, Sigrún Ólafsdóttir hjúkrunarfræðingur og
Þuríður Árnadóttir afgreiðslumaður.
Apótek Suðurnesja
Fyrsta apótekið
eftir gildistöku
nýrra lyfsölulaga
Of hraður
akstur
Hvammstanga - Harður
árekstur þriggja bifreiða varð
við vegamót Norðurlandsvegar
og Hvammstangabrautar síð-
degis á skírdag. Tvær fólksbif-
reiðir komu að sunnan og ætl-
aði ökumaður þeirrar fyrri að
beygja inn á Hvammstanga-
brautina. Jeppabifreið kom hins
vegar að norðan og hægði öku-
maðurinn því mjög ferðina. Aft-
ari fólksbifreiðin lenti aftan á
þeirri fyrri og hratt henni í veg
fyrir jeppann. Hann fór út af
veginum og vait að minnsta
kosti tvær veltur.
Mikil mildi þykir að fólk í
þessum bifreiðum skyldi sleppa
með smávægileg meiðsl. Ung-
barn var í öryggisstól í aftur-
sæti jeppans og virðist alheilt
þrátt fyrir flugferðina. Lög-
reglumaður í Húnavatnssýslu,
Sigurður Sigurðsson, segir að
akstursskilyrði hafi verið góð,
hálkulaust og bjart veður. Því
sé ekki öðru til að dreifá en of
hröðum akstri.
Keflavík - Apótek Suðurnesja,
nýtt og glæsilegt apótek, var opn-
að í Keflavík á laugardag og er
það fyrsta apótekið sem tekur til
starfa eftir gildistöku nýrra lyf-
sölulaga þann 15. mars s.l. Stofn-
endur apóteksins eru Þorvaldur
Árnason lyfjafræðingur og Auður
Harðardóttir.
Þorvaldur Árnason starfaði áð-
ur hjá Apóteki Keflavíkur í 15 ár
og hefur hann mesta starfsreynslu
starfandi lyfjafræðinga á Suður-
nesjum. Hann sagði að áhersla
yrði lögð á að veita viðskiptavinum
góða lyfjafræðilega þjónustu og
ráðgjöf, um lyf og hjúkrunarvör-
ur, bæði hjá lyfja- og hjúkrunar-
fræðingi sem starfa við apótekið.
Undirbúningur að stofnun hins
nýja apóteks, sem stendur við
Hringbraut 99 í Keflavík, hefur
staðið frá því í desember og eru
starfsmenn fjórir auk Þorvaldar
Árnasonar lyfjafræðings.
TJAKKAR
Bílavörubúðin
FJÖDRIN.
Skeifunni 2 — Sími 588 2550
S"**® * . pvotca^ ®,k®á9-9°°
fis.'cob-r.. -5
LMJGAVEGI 172
05 REYKJAVIK
SÍMl 569 5773