Morgunblaðið - 11.04.1996, Page 16
I
KATEL
nijfniir, inttrömmufl
u
BÍÓ-SELEM UMB, SÍMI557 6610
[x. 568 0969]
Gallerí "
í. SS3 2336
16 FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 1996
URVERINU
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
URTE PENSIL
Sólarhattur-Propolis
Steinefnaríkar jurtir
sem auka úthald
og vellíðan.
BIO-SILICA
fyrir hárið,
neglumar,
húðina, bandvefi
og beinin.
SKALLIN PLUS
vinur magans,
hreinsandi
og grennandi.
Veturinn erfiður
rússneskum
drykkjumönnum
LISTHUS
tAUGARDAL
Opið laugard. kl. 10-16,
virka daga kl. 10-18.
s. 568 3750
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
ANTARES siglir fánum prýtt inn á höfnina í Eyjum.
Moskvu. The Daily Telegraph.
VIÐ einn innganginn að neðan-
jarðarlestinni í Moskvu liggur
maður í krapaelgnum og bærir
ekki á sér. Vegfarandi gýtur til
hans augunum og ber síðan aðra
hönd upp að hálsi og smellir sam-
an fingrunum. I Rússlandi táknar
það „drukkinn". Flestir gefa
manninum engan gaum enda er
farið að vora í Moskvu og líklega
tekst honum að brölta á fætur og
koma sér heim.
Á þessum vetri hafa 600
Moskvubúar sofnað svefninum
langa úti undir berum himni og
þar af 120 konur. Yfirvöldin segja,
að allt hafi fólkið verið drukkið
og yfirleitt oltið út af í einhveijum
snjóskaflinum. Er mannfallið
meira nú en áður enda hefur vetur-
inn í Moskvu og í Evrópu almennt
verið sá harðasti um áratugaskeið.
Húsnæðislausum
fjölgar
Það bætir heldur ekki úr skák,
að þeim, sem hvergi eiga höfði
sínu að halla, hefur stórijölgað en
í þessari 10 milljón manna borg
er aðeins að finna eitt einasta at-
hvarf fyrir húsnæðislaust fólk.
Dr. Jevgení Tolkatsjov, sérfræð-
ingur í áfengissýki, segir, að fiest-
ir þeirra, sem urðu úti í vetur,
hafi samt ekki verið flækingar eða
forfallnir drykkjumenn. „Alkóhó-
listarnir eru harðir af sér og hafa
langa reynslu af því að bjarga
sér. Hins yegar er oft um að ræða
fólk sem er tiltölulega nýlega lagst
í drykkjuskap og má þá rekja
ógæfu þess til þeirra erfiðleika
sem við er að etja í Rússlandi. Það
eru erfiðir tímar. Gleggsta dæmið
um það er sú mikla fjölgun sem
orðið hefur í röðum ofdrykkju-
manna á undanförnum árum.“
Sagt hefur verið að áfengissýk-
in sé þjóðarsjúkdómur í Rússlandi
og margir eiga í erfiðleikum með
að gæta hófs enda getur það
reynst erfitt í landi þar sem það
er talin hrein móðgun að skála
ekki margsinnis í vodka við gest-
gjafann í kvöldverðarboðum.
Mislukkuð herferð
Samkvæmt opinberum tölum er
tíundi hver Rússi alkóhólisti. Þrátt
fyrir að stjórnvöld hafi ákaft reynt
að draga úr drykkjunni er engin
þjóð sem misnotar áfengi jafn
herfilega og Rússar. Fyrir um tíu
árum reyndi Míkhaíl Gorbatsjov,
þáverandi leiðtogi Kommúnista-
flokks Sovétríkjanna, að fáþjóðina
ofan af þessum ósköpum með mik-
illi herferð gegn áfengisneyslu.
Áróðursvél Kommúnistaflokksins
var sett í gang og alþýðan vöruð
við „Djöflavodka". Settar voru
skorður við framleiðslu og sölu
áfengis og vakti það litla hrifn-
ingu. Áætlun Gorbatsjovs varð að
engu er alþýða manna tók að
drekka „samogon", heimabrugg-
aðan landa, sem getur reynst stór-
hættulegur.
Allt drukkið
Á sjúkrahdúsi númer 17 í
Moskvu segja ofdrykkjumenn sem
leitað hafa sér aðstoðar að auð-
velt sé að komast í vímu þó svo
að vodkað sé ekki fáanlegt. Þessir
menn hafa drukkið allt sem flýt-
ur; allt frá frostlegi til skóáburðar
og ilmefna.
Hins vegar er það svo að stund-
um breytir engu hvort menn eru
drykkjusjúkir eða fordæma með
öllu neyslu áfengis. Enginn er al-
gjöriega öruggur í vetrarríkinu í
Moskvu. Á þessum vetri hafa
grýlukerti banað tveimur mönnum
og slasað 56.
RÚSSNESK kona dregur útúrdrukkinn eiginmann sinn heim
á vagni í þorpinu Semíjonkovo um 30 km. frá Moskvu. Hún
heldur á gervifæti hans, sem hann hefur misst undan sér.
Áfengissýkin er talin þjóðarböl Rússa.
í. 553 1580
BRETTALYFTUR
ÓTRÚLEGT VERÐ!
Fermingargjafir
Afmælisgjafir
Brúðkaupsgjafir
CML brettalyftur
eru úrvalsvara
á flnu verði.
Þær eru á einföldum
eða tvöföldum
mjúkum hjólum,
sem ekki skaða gólf.
Verð m/vsk frá
kr. 35.990 stgr.
Hringás ehf.
Langholtsvegi 84, Rvk. S. 533 1330
Antares VE18 komið
tíl heimahafnar í Ejrjiun
Vestmannaeyjum. Morgnnblaðið.
NYTT_ skip, Antares VE 18 sem er
í eigu Isfélagsins, bættist í flota Eyja-
manna um páskana er það kom til
heimahafnar i Eyjum eftir siglingu
frá Hjaltlandi. Antares var byggt í
Noregi árið 1980. Skipið er 9 metra
breitt og 58 metra langt og lestar-
rými er 1070 tonn þar af er 930
tonna rými í kælitönkum. í skipinu
er 2600 hestafla Alpha vél sem var
sett ný í skipið fyrir tæpu ári.
Grímur Jón Grímsson, skipstjóri,
sagði í samtali við Verið að hann
væri mjög ánægður með skipið. Það
væri ágætlega búið tækjum og bún-
aði og geysilega vel hefði verið geng-
ið um það alla tíð. Skipið hefur lengst
af verið í eigu sömu aðilanna og var
gert út frá Leirvík. Grímur sagði að
þeir hefðu fengið bræiu á heimsigl-
ingunni og hefði skipið í alla staði
reynst mjög vel..
Búið til veiða í troll og nót
Floti Isfélags
Vestmannaeyja
stækkar
stór og öflug spil, 25 tonn hvert, og
hægt er að vera með tvær nætur
og flottroll um borð í einu og lítið
mál er að skipta á milli veiarfær-
anna að sögn Gríms.
Antares mun halda til síldveiða
þegar veiðar hefjast í maí. 15 manna
áhöfn á skipinu og verður Viðar
Hjálmarsson yfirstýri'maður og Jón
Þór Geirsson yfirvélstjóri.
Skærasta stjarnan í
sporðdrekamerkinu
Nafn skipsins Antares er sama
nafn og var á skipinu áður en Isfé-
lagið keypti það. Antares er nafn á
skærustu stjörnunni í sporðdreka-
merkinu og sagði Grímur að skipinu
hefði fylgt gæfa með þessu nafni
og því hefði ekki þótt ástæða til
annars en að láta það halda óbreyttu
nafni enda þó mörgum fyndist nafn-
ið skrýtið væri það jafn íslenskt og
nöfnin Júplter og Mars. Grímur
sagði að það hefði gefist vel hjá ísfé-
laginu að láta þau skip sem það
hefur keypt halda nafninu, til dæm-
is hefðu Guðmundur og Gígja haldið
nöfnunum eftir að ísfélagið hefði
keypt þau og hefði gengið mjög vel
hjá þeim skipum í eigu Isfélagsins.
Sigurður Einarsson, fram-
kvæmdastjóri ísfélagsins, sagði í
samtali _við Verið að Antares kæmi
í flota ísfélagsins í stað Bergeyjar
VE sem seld yrði úr landi en auk
þess ætti ísfélagið einhveija úreld-
ingu sem dygði með úreldingunni
af Bergey fyrir Antares.
Antares er búið bæði til troll og
nótaveiða. Skipið hefur nær ein-
göngu stundað tveggja báta flott-
rollsveiðar síðustu árin og var því
afstöðu á spilbúnaði breytt áður en
skipið kom heim þannig að það get-
ur nú bæði stundað flottrollsveiðar
eitt eða með öðru skipi á svoköliuðu
tveggja báta trolli. í skipinu eru sex
Frekari samdráttur
boðaður í
Helsinki. Morgunblaðið.
SAULI Niinistö, hægrimaður og
nýskipaður fjármálaráðherra Finna,
boðar frekari niðurskurð í ríkisfjár-
málum verði hagvöxtur á þessu ári
ekki samkvæmt bjartsýnustu spám.
Kom þetta fram í viðtali hans við
Helsingin Sanomat, stærsta dagblað
Finna.
Þykir stefnumörkun fjármálaráð-
herra boða versnandi tíma í þjóðar-
búskapnum. Opinberlega hafði verið
verið spáð að hagvöxturinn yrði 3,8
prósent á þessu ári og að atvinnu-
leysi minnkaði í 16 prósent. Raunin
hefur verið önnur og telja menn
Finnland
ekki ólíklegt að hagvöxturinn ver-ði
um einu prósentustigi lakari en spáð
var. Atvinnuleysið mun varla
minnka á þeim hraða sem gert var
ráð fyrir.
Á meðan fjármálaráðherra var
önnum kafinn í viðtalinu frestuðu
embættismenn fjármálaráðuneytis-
ins enn einu sinni útgáfu á nýjustu
hagspá ríkisins. Hún var væntanleg
i síðasta lagi um páskana en nú er
helst talað um Jónsmessuna. Seink-
unin er talin benda til þess að tölurn-
ar séu verri en stjórnmálamenn hafa
þorað að viðurkenna.
SIGURÐUR Einarsson, út-
gerðarmaður og Grímur Jón
Grímsson, skipstjóri. Með
þeim á myndinni er Kristín
Alda, dóttir Gríms Jóns.