Morgunblaðið - 11.04.1996, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 1996 23
Morgunblaðið/Egill Egilsson
FYRIR framan netið standa f.v. Gunnar Jónsson, Jóhann Hj.
Emilsson, Þorsteinn Arnberg Jónsson.
Myndlistarsýning
á Flateyri
Flateyri. Morgunblaðið.
FLATEYRINGAR létu ekki sitt
eftir liggja um páskahelgina og
héldu áfram sínu striki á mynd-
listarsviðinu.
Heilmikil myndlistarsýning
var haldin í Vagninum þar sem
boðið var upp á bæði myndlist
og skúlptúra, ljóðalestur og söng.
Góð aðsókn var að sýningunni.
Sérstaka athygli vakti net sem
var búið að strengja yfir Vagninn
að utan. Sýnendur voru á öllum
aldri, allt frá grunnskólanem-
anda upp í eldri menn og konur.
Hamagangur
í Hollywood
KVIKMYNPIR
Laugarásbló
NÁIÐ ÞEIM STUTTA
„GETSHORTY" ★ ★ ★
Leiksljóri: Barry Sonnenfeld. Hand-
rit: Scott Frank. Aðalhlutverk: John
Travolta, Gene Hackman, Rene
Russo, Danny DeVito, Dennis Fárina.
MGM. 1995.
KVIKMYNDAFÓLKIÐ í Holly-
wood liggur vel við höggi ef menn
vilja grínast með útblásin egó og
hégómagirnd. Glæpasagnahöfund-
urinn Elmore Leonard gerði það með
góðum árangri í bókinni Náið þeim
stutta og leikstjóranum Barry Sonn-
enfeld og handritshöfundinum Scott
Frank, ásamt einvalaliði leikara með
John Travolta í fararbroddi, hefur
tekist að ná anda bókarinnar í sam-
nefndri kvikmynd sem frumsýnd
hefur verið í Laugarásbíói. Myndin
er fyrst og fremst grimmilega háðs-
leg lýsing á því hvernig bíómynd
verður til í Hollywood með hjálp
dugandi og ákveðins utanbæjar-
manns en inní það ferli dragast hin
mestu ólíkindatól og undirheimalýð-
ur. Náið þeim stutta er helíumlétt
gamanmynd með glæpsamlegu ívafi
og hin besta skemmtun fyrir þá sem
hafa gaman af safaríkum Holly-
woodsögum. Víða má finna skírskot-
anir í aðrar bíómyndir; takið eftir
Moe Green í nuddi.
Leikaraliðið stendur sig allt með
sóma. Travolta er eilíft svalur sem
utanbæjarmaðurinn Chili Palmer er
kemur til Hollywood að rukka skuld
fyrir mafíuna en fær áhuga á að
framleiða bíómynd byggða á verk-
efni hans í kvikmyndaborginni.
Hann er dugandi rukkari og þeir
hæfileikar nýtast honum einkar vel;
enginn sleppur frá honum án þess
að borga eitthvað. Það er Gene
Hackman sem stelur senunni í hlut-
verki B-mynda framleiðanda sem er
jafn heimskur og kvikmyndirnar sem
hann býr til eru heimskulegar. Slím-
verurnar III er ein þeirra. Hackman
nýtur sín svo augljóslega í hlutverk-
inu að maður glottir að honum allan
tímann og hans fáguðu smásál. Atr-
iðið þegar hann er búinn að tileinka
sér stælana í rukkaranum og kallar
yfir sig mafíuna með einu fíflalegu
símtali er óborganleg kómedía. Rene
Russo er líka góð sem B-mynda leik-
kona, hverrar hæfileikar liggja í
góðu öskri. Hún sér auðveldlega í
gegnum Hollywoodglamúrinn enda
áður gift stórstjörnu. Hennar fyrr-
verandi eiginmaður er Danny De
Vito og „sá stutti“ í sögunni, smá-
vaxna stórstjarnan sem allir verða
að skríða fyrir en auðvelt er að
hanka með auvirðilegu skjalli. Loks
er það gráðugi mafíósinn sem hefur
sérstaka unun af skepnuskap og
Dennis Farina leikur með ágætum.
Fleiri skrautlegir aðilar koma við
sögu en skipta minna máli.
Sonnenfeld stýrir þessu liði af
kunnáttusemi og list þess sem þekk-
ir kvikmyndaborgina nógu vel til að
geta hitt í mark. Náið þeim stutta
er besta myndin sem gerð hefur
verið eftir sögum Elmores Leonards.
Það er engin spurning.
Arnaldur Indriðason
VERK eftir Erlu.
„Yetrar-
lok - vor-
koma“
ERLA Sigurðardóttir opnar mynd-
listarsýningu í Listasetrinu Kirkju-
hvoli, Akranesi laugardaginn 13.
apn'l kl. 14.
Á sýningunni verða 29 vatnslita-
myndir og er yfirskrift „vetrarlok -
vorkoma".
Að auki sýnir Erla 28 frummyndir
úr barnabókinni „Veislan í barna-
vagninum" eftir Herdísi Egilsdóttur
en þær Erla hlutu íslensku barna-
bókaverðlaunin 1995 fyrir þá bók.
Erla er fædd á Akranesi 1939,
hún lauk námi frá Myndlista- og
handíðaskóla Islands 1988 úr mál-
aradeild. Hún var við nám í Trier í
Þýskalandi sumarið 1991 og hefur
haldið einkasýningar hér heima og
erlendis, auk þess að hafa tekið þátt
í samsýningum.
Frá 1991 hefur hún myndskreytt
barnabækur, einnig starfar bún sem
kennari við Myndlistaskóla Kópa-
vogs.
Sýningunni lýkur 27. apríl og er
Listasetrið opið virka daga frá kl.
16-18 og um helgar frá kl. 15-18.
I LÍFEYRISSJOÐUR VERZLUNARMANNA 40)
HEFUR ÞÚ FENGIÐ IÐGJALDAYFIRLITIÐ?
Lífeyrissjóður verzlunarmanna hefur sent sjóðfélögum yfirlit yfir móttekin iðgjöld á tíma-
bilinu 1. september 1995 til 29. febrúar 1996. Ekki er óeðlilegt að greiðslur fyrir mánuðina
desember 1995 til febrúar 1996 vanti á yfirlitið.
Hafir þú ekki fengið yfirlit, en dregið hafi verið af launum þínum í Lífeyrissjóð verzlunar-
manna, eða ef launaseðlum ber ekki saman við yfirlitið, þá vinsamlegast hafið samband við
innheimtudeild sjóðsins hið allra fyrsta og eigi síðar en 1. maí nk.
Verði vanskil á greiðslum iðgjalda í lífeyrissjóð geta dýrmæt réttindi glatast:
ELLILÍFEYRIR - ÖRORKULÍFEYRIR - MAKALÍFEYRIR - BARNALÍFEYRIR
GÆTTU RÉTTAR ÞÍNS!
í lögum um ábyrgðarsjóð launa segir meðal annars:
Til þess að iðgjöld launþega njóti ábyrgðar ábyrgðarsjóðs launa vegna gjaldþrota skulu
launþegar innan 60 daga frá dagsetningu yfirlits ganga úr skugga um skil vinnuveitenda
til viðkomandi lífeyrissjóðs. Séu vanskil á iðgjöldum skal launþegi innan sömu tíma-
marka leggja lífeyrissjóði til afrit launaseðla fyrir það tímabil sem er í vanskilum. Komi
athugasemd ekki fram frá launþega er viðkomandi lífeyrissjóður einungis ábyrgur fyrir
réttindum á grundvelli iðgjalda þessara að því marki sem þau fást greidd, enda hafi
lífeyrissjóðnum ekki verið kunnugt um iðgjaldakröfuna.
SKRIFSTOFA SJÓÐSINS ER OPIN FRÁ KL. 9.00 - 17.00.
HÚSI VERSLUNARINNAR, 4. HÆÐ, 103 REYKJAVÍK,
SÍMI 581 4033, FAX 568 5092.
HEIMASÍÐA: HTTP://WWW.SKIMA.IS/LIFVER.
Hitachi
Kraftur
öiyggi