Morgunblaðið - 11.04.1996, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
FIMMTUDAGUR 11. APRÍL1996 37
Jón var einstaklega gáfaður og
skemmtilegur maður, sem hafði
góða frásagnargáfu og það var
sama um hvað var rætt, aldrei var
komið að tómum kofunum hjá hon-
um. Matar- og kaffipásur voru
afskaplega líflegar og skemmtileg-
ar þegar Jón var nálægur, hann
hafði sínar skoðanir á hlutunum
og var ófeiminn við að láta þær í
ljós, en hann bar líka virðingu fyr-
ir skoðunum annarra og var góður
hlustandi.
Það sem mér finnst minnisstæð-
ast við Jón er að ólíkt svo mörgum
öðrum sem þarna störfuðu reyndi
hann aldrei að vera neitt annað
en hann sjálfur. Hann tók ekki
þátt í „leikritinu“, sem þarna fór
fram, með aðeins eitt hlutverk fyr-
ir alla, skrifað af „leikstjóranum“
sjálfum. Skömmu áður en ég hætti
störfum á Vogi fór Jón til starfa
að Staðarfelli í Dölum. Matar- og
kaffipásumar voru tómlegar á
Vogi án hans, en það var líka glatt
á hjalla þegar hann kom í heim-
sókn á Vog í fríunum sínum.
í síðastliðnum mánuðum hitti
ég Jón nokkrum sinnum á núver-
andi vinnustað mínum, þar sem
hann átti í fasteignaviðskiptum.
Síðast hitti ég hann u.þ.b. hálfum
mánuði áður en hann dó og þá
sagði hann mér að hann væri ekki
lengur í starfi hjá SÁÁ, hann væri
að fara á sjóinn. „Við sjáumst“
sagði ég þegar við kvöddumst. Ég
frétti að hann hefði aldrei farið á
sjóinn, hann var skyndilega kallað-
ur til starfa á æðri stað. Kæri vin-
ur, við sjáumst síðar.
Aðstandendum og vinum Jóns
votta ég mína dýpstu samúð. Megi
minningin um góðan dreng lifa í
hjarta ykkar og vera ykkur huggun
í sorginni.
Jónína Þrastardóttir.
Elskulegur vinur og fyrrum
starfsfélagi er látinn langt um ald-
ur fram. Það var sannkallað reiðar-
slag þegar okkur bárust þau
hörmulegu tíðindi að Jón, eða
Nonni eins og við kölluðum hann,
hefði orðið bráðkvaddur þar sem
hann var við vinnu sína í Slippstöð-
inni á Akureyri.
Okkur langar með þessum fá-
tæklegu orðum að þakka honum
þá vináttu og aðstoð á vinnustað
sem hann veitti okkur.
Við minnumst ótal stunda sem
við áttum saman ýmist heima hjá
Nonna eða á ónefndum kaffi- og
pizzahúsum borgarinnar þar sem
mikið var hlegið og rökrætt.
Við lítum á það sem mikil for-
réttindi að hafa kynnst Nonna því
það sem helst einkenndi hans per-
sónu var trygglyndi og greiðvikni
sem hann veitti svo ríkulega.
Ometanlegt í minningunni er
kveðjustund sem við áttum heima
hjá honum kvöldið áður en hann
fór norður til að takast á við nýtt
starf sem vélstjóri á rækjubát.
Sátum við þar í góðu yfirlæti og
gæddum okkur á uppáhalds bakk-
elsi Nonna sem við færðum hon-
um.
Það lýsir e.t.v. Nonna best að
daginn áður en hann lést hringdi
hann í okkur til að láta vita að
hann væri búinn að leggja peninga
inn á heftin okkar fyrir páskaeggj-
um til að gæða okkur á.
Um leið og við flytjum Nonna
þakkir fyrir samskipti okkar á liðn-
um árum viljum við senda fjöl-
skyldu og vinum einlægar samúð-
arkveðjur og biðjum þeim blessun-
ar Guðs.
Heimsins vegur hulinn er
huga manns og vilja,
enginn þarf að ætla sér
örlög sín að skilja.
Trúin hrein og hugsun djörf
hjálpa mest í raunum,
þakkir fyrir fögur störf
flyt ég þér að launum.
(Sveinbjörn Beinteinsson.)
Hvíl í friði, kæri vinur.
Þuríður Aradóttir
og Ásthildur Pétursdóttir.
+
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
KAMILLA ÞORSTEINSDÓTTIR,
Víðilundi 20,
Akureyri,
sem lést 31. mars, verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju föstudag-
inn 12. apríl kl. 13.30.
Þeir, sem vildu minnast hinnar látnu, vinsamlegast láti styrktar-
sjóð Kristnesspítala eða önnur líknarfélög njóta þess.
Edda Eiriksdóttir,
Auður Eiríksdóttir, Jóhann Halldórsson,
Þorsteinn Eiríksson, Arndís Baldvinsdóttir,
Guðríður Eiríksdóttir, Gunnar Ragnars,
Hafsteinn Andrésson,
barnabörn og langömmubörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
JAKOB SIGMARSSON
lögregluvarðstjóri,
Miðvangi 35,
Hafnarfirði,
er lést á páskadag, 7. apríl, verður jarð-
sunginn frá Víðistaðakirkju föstudaginn
12. apríl kl. 15.00.
Sóley Marvinsdóttir,
Kristjana Jakobsdóttir, Páll Sigurðsson,
Maria Jakobsdóttir, Bjarni Magnússon,
Stefán Ómar Jakobsson, Hanna María Ólafsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
EINAR ÁSGEIRSSON
fyrrverandi verkstjóri hjá Vatnsveitu
Reykjavíkur,
vistheimilinu Seljahlfð,
(áður Eskihlíð 12A),
lést í Landspítalanum fimmtudaginn 4.
apríl.
Útförin verður frá Fríkirkjunni Reykjavík
föstudaginn 12. apríl kl. 13.30.
Margrét Þórðardóttir,
Eysteinn Einarsson, Sigriður Sigurðardóttir,
Ásgeir Einarsson, Björg Sigurðardóttir,
Ingibjörg Einarsdóttir, Jóhann G. Guðjónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengda-
móðir, amma og langamma,
GUÐRÚN REBEKKA
SIGURÐARDÓTTIR,
lést í Landspítalanum fimmtudaginn 4.
apríl.
Útförin fer fram frá Vídalínskirkju í
Garðabæ.í dag, fimmtudaginn 11. apríl
kl. 15.00.
Þeim, sem vildu minnast hennar, er
bent á Krabbameinsfélagið.
Ólafur J. Einarsson,
Sjöfn Ólafsdóttir, Eyjólfur Sigurðsson,
Einar S. Ólafsson, Inga Jóna Andrésdóttir,
barnabörn og langömmubörn.
Foreldrar okkar, tengdaforeldrar, afi, amma, langafi og langamma,
ÓLAFUR ÞÓRIR JÓNSSON
og
ÁSA SIGURBJORG ASGEIRSDÓTTIR,
Grettisgötu 75,
verða jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 12. apríl kl. 13.30.
Þeim, sem vildu minnast þeirra, er bent á Barnaspítala Hríngsins.
Fyrir hönd tengdabarna, annarra barnabarna, barnabarnabarna
og annarra vandamanna,
Jóhanna Ólafsdóttir,
Hrefna Maren Ólafsdóttir,
Ásgeir Þór Ólafsson,
Jón Kristinn Bragason.
+
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og
amma,
SIGNHILD KONRÁÐSSON,
Hagaflöt 5,
Garðabæ,
sem lést f Vífilsstaðaspftala 3. apríl,
verður jarðsungin frá Garðakirkju föstu-
daginn 12. apríl kl. 13.30.
Ragnheiður Björnsdóttir,
Borgþór Björnsson,
Grétar Karlsson,
Signhild B. Borgþórsdóttir, Stefán Halldórsson
og aðrir ástvinir.
+
Elskulegur ástvinur minn og faðir okkar,
SVEINN BJÖRNSSON
stórkaupmaður,
lést að morgni páskadags.
Útför hans fer fram frá Dómkirkjunni í
Reykjavík föstudaginn 12. apríl kl. 13.30.
Blóm og kransar vinsamlega afþökkuð,
en þeim, sem vildu minnast hins látna,
er bent á Sjúkrahús Akraness.
Rannveig Böðvarsson,
Kristfn Sveinsdóttir, Björn Sveinsson,
Guðbjörg Sveinsdóttir, Ólafía Sveinsdóttir,
Ingvar Sveinsson,
tengdabörn og barnabörn.
+
Elskulegur eiginmaður minn og faðir,
ÞÓRARINN
ALEXANDERSSON,
Stigahlfð 20,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Háteigskirkju
föstudaginn 12. apríl kl. 13.30.
Sigríður María Sigurðardóttir,
Hanna Þórarinsdóttir.
+
Elskuleg amma okkar, langamma og
tengdamóðir,
JÓNA GUÐMUNDSDÓTTIR,
Vitastíg 4,
Hafnarfirði,
sem andaðist 30. mars, verður jarð-
sungin frá Hafnarfjarðarkirkju föstudag-
inn 12. apríl kl. 13.30.
Jón Gestur Armannsson, Ásta Birna Ingólfsdóttir,
Steinunn Eir Ármannsdóttir,
Hermann Ármannsson,
Ármann Eiríksson
og barnabarnabörn.
+
Alúðar þakkir sendum við öllum þeim
sem sýndu okkur samúð og vináttu
vegna andláts og útfarar
ÞURIÐAR DALRÓSAR
HALLBJÖRNSDÓTTUR.
Sérstakar þakkirtil starfsíólks Hrafnistu
í Reykjavík fyrir góða umönnun.
Guðmundur Jóhannsson, Elísabet Vigfúsdóttir,
Ingvar Jóhannsson, Halla Einarsdóttir,
Ásthildur Jóhannsdóttir, Helga Jóhannsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
móðir okkar,
Ástkær eiginkona mín,
tengdamóðir og amma,
KRISTÍN GUÐRÚN GÍSLADÓTTIR,
Arnarhrauni 30,
Hafnarfirði,
andaðist á heimili sínu 9. þ.m.
Viihjálmur G. Skúlason,
Karólína M. Vilhjálmsdóttir, Steinar Gíslason,
Gísli Eiríksson, Inga Rósa Guðjónsdóttir
og barnabörn.