Morgunblaðið - 11.04.1996, Qupperneq 40
40 FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 1996
MORGUNBLAÐIÐ
BRIPS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
íslandsmótið í
tvímenningi
SKRÁNING er hafinn í íslands-
mótið í tvímenningi sem verður spil-
að 25. til 28. apríl. Undankeppnin
hefst fimmtudaginn 25. kl. 13 en
önnur lota byijar kl. 19 sama dag
og þriðja lota hefst síðan kl. 13 á
föstudeginum 26. apríl.
Spilaður verður hipp hopp tví-
menningur og slönguraðað í riðla
eftir styrkleika og riðlamir spila
hver við annan þannig að sömu pör-
in mætast aldrei tvisvar.
Efstu 23 pörin úr undankeppninni
komast síðan í úrslit auk svæða-
meistaranna 8 og íslandsmeisturun-
um fyrra árs (Helgi Sigurðsson —
ísak Örn Sigurðsson). Urslitin eru
spiluð í beinu framhaldi laugardag-
inn 27. og 28. apríl og byijar spila-
mennska kl. 11 báða dagana.
Keppnisgjaldtð er 6.600 kr. á parið
og er spilað um gullstig í hverri lotu
undankeppninnar.
Skráning er á skrifstofu BSÍ og
eru væntanlegir þátttakendur beðnir
að gefa upp kennitölu. Skráning er
frá 1-4 í síma 587-9360 og verður
skráð til mánudagsins 22. apríl en
betra er að skrá sig snemma því ef
húsið fyllist ræður skráningarröð.
Föstudagsbrids BSÍ
Föstudaginn 22. mars var spilaður
eins kvölds tölvureiknaður Mitchell
tvímenningur. 26 pör spiluðu 10
umferðir með 3 spilum á milli para.
Það eru engin ellimörk að sjá á þeim
bræðrum Vilhjálmi og Þráni sem
unnu N/S riðiíinn af öryggi en lo-
kastaðan varð þessi:
Vilhjálmur Sigurðsson - Þráinn Sigurðsson 334
Robert Winn - Rúnar Einarsson 314
Maria Ásmundsdóttir - Steindór Ingimundars. 306
AV
JacquiMcGreal-JakobKristinsson 356
AparHansson-KjartanBragason 313
Pétur Matthíasson - Grimur Guðmundsson 298
Meðalskor 270
Föstudaginn 29. mars var spilaður
eins kvölds Monrad-Barómeter. 26
pör spiluðu 7 umferðir með 4 spilum
á milli para. Efstu pör voru:
Jón Stefánsson - Sveinn Sigurgeirsson +84
BjömÞorláksson-ÓlafurOddsson +52
GuðbrandurGuðjohnsen - MagnúsÞorkelsson +42
HelgiBogason-HjálmarS.Pálsson +41
Þorsteinn Kristmundsson - Guðni Ingvarsson +35
Jón V. Jónmundsson - Agnar Kristinsson +35
Föstudagsbrids BSÍ er spilaður
öll föstudagskvöld í húsnæði BSÍ í
Þönglabakka 1. Spilamennskabyijar
kl. 19 og eru allir spilarar velkomnir.
Dagskrá næstu föstudaga verður
þannig:
Fös. 12. apríl Mitchell tvímenningur.
Fös. 19. apríl Monrad-Barómeter.
Fös. 26. apríl Mitchell tvímenningur.
Fös. 3. maí Monrad-Barómeter.
RAÐAUGIYSINGAR
FUNDIR - MANNFAGNAÐUR
Aðalfundur
Aðalfundur Ijósmæðrafélags íslands verður
haldinn laugardaginn 4. maí nk. kl. 13.30 í
húsi BSRB, Grettisgötu 89, Reykjavík.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
Samtök
psoriasis og
exemsjúklinga
Aðalfundur
SPOEX 1996 verður haldinn í dag, fimmtu-
daginn 11. apríl, að Hótel Lind, Rauðarárstíg
18, kl. 20.30.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Önnur mál.
Stjórnin.
SKAGSTRENPINGUR hf.
Aðalfundur
Skagstrendings hf.
verður haldinn föstudaginn 19. apríl nk. í
Fellsborg, Skagaströnd og hefst kl. 14.00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 11.gr. sam-
þykkta félagsins.
2. Tillaga um 20% hækkun hlutafjár með
útgáfu jöfnunarhlutabréfa.
3. Tillaga um heimild til aukningar hlutafjár.
4. Önnur mál, löglega upp borin.
Tillögur frá hluthöfum sem bera á fram á
aðalfundi, skulu vera komnar í hendur stjórn-
arinnar eigi síðar en 7 dögum fyrir aðalfund.
Dagskrá og reikningar félagsins munu liggja
frammi á skrifstofu félagsins 7 dögum fyrir
aðalfund.
Stjórn Skagstrendings hf.
1
SPOEX
Fundarboð
Aðalfundur Sparisjóðs vélstjóra verður hald-
inn laugardaginn 27. apríl nk. kl. 15.00 í
Þingsölum, Hótel Loftleiðum.
Dagskrá:
• Skýrsla stjórnar um starfsemi sparisjóðs-
ins síðastliðið starfsár.
• Lagðir fram endurskoðaðir reikningar fyrir
síðastliðið reikningsár.
• Tillaga um greiðslu arðs af stofnbréfum.
• Kosning löggilts endurskoðanda eða end-
urskoðunarskrifstofu.
• Tillaga um þóknun til stjórnarmanna.
• Önnur mál.
Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir
stofnfjáreigendum eða umboðsmönnum
þeirra (umboðsmaður skal vera úr hópi
stofnfjáreigenda) í afgreiðslu sparisjóðsins í
Borgartúni 18, föstudaginn 26. apríl á af-
greiðslutíma sparisjóðsins svo og við inn-
ganginn.
Stjórnin.
Knattspyrnufélag
Reykjavíkur
Aðalfundur
félagsins verður haldinn í Félagsmiðstöðinni
Frostaskjóli fimmtudaginn 18. apríl kl. 20.30.
Dagskfá: Venjuleg aðalfundarstörf sam-
kvæmt lögum félagsins.
Aðalstjórn.
Aðalfundur
Sláturfélag
Suðurlands svf.
Aðalfundur Sláturfélags Suðurlands svf.
verður haldinn í félagsheimilinu á Laugalandi
í Holtum föstudaginn 12. apríl og hefst
kl. 14.00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 24. gr. sam-
þykkta félagsins
2. Tillaga um breytingar á samþykktum
félagsins.
3. Tillaga um útboð B-deildarhlutabréfa.
4. Önnur mál, löglega upp borin.
Stjórn Sláturfélags Suðurlands svf.
Opið hús
Rækjubátar
óskast f viðskipti
Upplýsingar í síma 438 6720, Sigurður.
Soffanías Cecilsson hf.,
Borgarbraut 1, 350 Grundarfirði.
TILKYNNINGAR
Sumarbúðir
- sumardvalarheimili
Samkvæmt reglugerð nr. 160/1993 um sum-
ardvalarheimili barna og sumarbúðir skulu
þeir sem hyggjast reka slíka starfsemi sækja
um rekstrarleyfi til Barnaverndarstofu.
Sumardvalarheimili telst hvert það heimili
þar sem fram fer skipulagt tómstundastarf
með börnum gegn gjaldi og 6 börn eða fleiri
dvelja í senn (börn starfsmanna innan 12
ára aldurs sem hjá þeim dvelja, teljast með).
Umsóknareyðublöð liggja frammi á Barna-
verndarstofu, Suðurgötu 22, 101 Reykjavík.
Umsóknir skulu hafa borist stofunni fyrir 1. maí.
Útboð nr. 1164/96
Skipatækni ehf. óskar eftir tilboðum í breyt-
ingar á m/s Sigurvon Ýr BA 257, sem í aðal-
atriðum felst í niðursetningu á frystibúnaði,
einangrun á lest o.fl. Útboðsgögn liggja
frammi á skrifstofu okkar og eru seld á kr.
3.000,-. Tilboðin verða opnuð á sama stað
18. apríl nk. kl. 16.00.
Stangaveiðifélag Reykjavíkur helduropið hús
föstudaginn 12. apríl, kl. 20.30 í sal félagsins
á Hálaeitisbraut 68.
Dagskrá:
1. Leiðsögn frá Norðurá II um Stekkinn og
Munaðarnessvæðið. Umsjón: Jón G.
Baldvinsson og Leifur Magnússon.
2. „Strippsjó". Kanntu að strippa? Er hægt
að veiða á flugu hvar sem er?
Umsjón, hann sjálfur: Bjarni Júlíusson.
3. Nú er frábært tækifæri! Sérstök veiðileið-
sögn um Hlíðarvatn, eina bestu vatna-
perlu á suðvesturhorninu. Umsjón: Ár-
mann Sigurðsson, leiðsögumeistari.
4. Glæsilegt happdrætti og eflaust margt
fleira að venju.
Fluguráðgjafinn verður á staðnum með græj-
urnar. -
Góðir félagar, sumarið er að koma og rétt
að fara að hita upp í veiðieðlinu. Sjáumst hress
á föstudaginn og allir gestir velkomnir.
Kveðja.
Nefndin.
Er traust þjóðargersemi?
Já, vantraust veldur hruni.
Sannanleg atvik og gegnsæjar aðferðir skapa
traust.
Bókin Skýrsla um samfélag upplýsir um
leyndarbréf Hæstaréttar og leyndarsambönd
æðstu embættismanna. Utg.
Skipatækni ehf.,
Grensásvegi 13, 108 Reykjavík.
Húsavík breiðbandsvæð-
ing - forval
Póstur og sími óskar eftir verktökum til að
taka þátt í lokuðu útboði vegna breiðbands-
væðingar og endurnýjunar símakerfis á
Húsavik. Verkið felst í lagningu síma-, Ijós-
leiðara- og kóaxstrengja á Húsavík.
Leitað er að verktökum sem geta tekið að
sér að grafa skurði, plægja strengi, ganga
frá yfirborði, leggja strengi í skurði, leggja
rör í skurði, uppsetningu á tengiskápum,
draga strengi í rör o.fl.
Forvalsgögn verða afhent á skrifstofu fjar-
skiptasviðs, Landssímahúsinu við Austurvöll
og skal umbeðnum gögnum skilað á sama
stað eigi síðar en 3. maí 1996 kl. 14.00.
ATVINNUHÚ5NÆÐI
Skrifstofuhúsnæði við
Skólavörðustíg
Til leigu er frá 1. maí nk. 1. hæð húseignar-
innar á Skólavörðustíg 28, Reykjavík. Hæðin
sem er um 110m2 að flatarmáli, auk hlut-
deildar í sameign, skiptist í 5 herbergi, kaffi-
stofu og salerni. Húsnæðið hefur að undan-
förnu verið nýtt sem arkitektastofa.
Nánari upplýsingar í síma 562 1018 á
skrifstofutíma.