Morgunblaðið - 11.04.1996, Side 56
&
<Q>
AS/400 er...
...með PowerPC
64 bita örgjörva
og stýrikerfi
OPIN KERFIHF.
Simi: 56" 1000
^pVectr*
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMJ 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.IS / AKUREYRl: UAFNARSTRÆTl 85
FIMMTUDAGUR 11. APRIL1996
VERÐ I LAUSASOLU 125 KR. MEÐ VSK
Bjargað út
ábrún
FILTI var bjargað út á þakbrún,
þegar eldur kom upp í risherbergi
húss við Melhaga um kl. 15 í gær.
Pilturinn króaðist inni í herbergi
sínu, þar sem gangur fyrir framan
það var fullur af reyk. Samkvæmt
heimildum Morgunbiaðsins var
yngri bróðir piltsins með logandi
kerti í herbergi sínu, en eldur
varð laus og breiddist hratt út.
Yngri bróðirinn náði að fara niður
á neðri hæð, en sá eldri króaðist
inni í herbergi sínu. Þegar neyðar-
bíll slökkviliðsins kom á vettvang
fóru slökkviliðsmenn út á svalir á
annarri hæð og þaðan upp á þak-
brúnina, opnuðu risglugga og
náðu piltinum út. Hann var þrek-
aður eftir að anda að sér reyk og
var gefið súrefni. Eldurinn var
fljótslökktur og urðu ekki miklar
skemmdir á íbúðinni.
Sérfræðinganefnd Evrópuráðsins gagnrýnir íslenzka vinnulöggjöf
Réttur til að standa utan
félags ekki tryggður
SÉRFRÆÐINGANEFND Evrópuráðsins, sem
sinnir eftirliti með framkvæmd félagsmálasátt-
mála Evrópu, gerir athugasemd við að réttur
launþega til að standa utan stéttarfélaga sé
ekki tryggður í íslenzku vinnulöggjöfinni.
Nefndin átelur einnig að verkfallsrétti opin-
berra starfsmanna séu settar þrengri skorður
hér á landi en félagsmálasáttmálinn leyfi. Þá
gagnrýnir hún að stéttarfélögum sé fenginn
einkaréttur til að boða til verkfalls.
Mannréttindadómstóll Evrópu, sem starfar á
vegum Evrópuráðsins, hefur áður úrskurðað að
mannréttindasáttmáli Evrópu tryggi svokallað
neikvætt félagafrelsi, þ.e. réttinn til að ganga
úr félagi eða standa utan félaga.
Neikvætt félagafrelsi ekki tryggt í
vinnumálafrumvarpi
Við undirbúning lagafrumvarps um stéttarfé-
lög og vinnudeilur, sem Páll Pétursson félags-
málaráðherra hefur lagt fyrir Alþingi, var rætt
um hvort setja bæri í frumvarpið ákvæði um
rétt til að standa utan stéttarfélags. Frá því var
hins vegar fallið.
Páll Pétursson segir í samtali við Morgunblað-
ið að ástæða þessa sé sú að í lögum sé ekkert,
sem banni mönnum að standa utan stéttarfélaga.
„Það er því óþarfi fyrir okkur að blanda okk-
ur inn í það. Forgangsréttar- eða skylduákvæði
eru öll tilkomin í kjarasamningum og menn geta
bara samið sig frá þeim ef þeim sýnist. Ekkert
neyðir atvinnurekendur til að samþykkja skyldu-
aðild eða forgangsrétt,“ segir félagsmálaráð-
herra.
■ Skylduaðild og einkaréttur/6
Morgunblaðið/Jón Stefánsson
Forsætisráðherra ítrekar yfirlýsingar um lífeyrisréttindi kennara
KI endurmetur af-
stöðu til grunnskóla
Nefnd til
Kína vegna
álvers
ÍSLENSK sendinefnd fulltrúa
frá markaðsskrifstofu iðn-
aðarráðuneytisins og Lands-
virkjun verður í Kína 22.-29.
apríl vegna hugsanlegrar
byggingar 40.000 tonna kín-
versks álvers hér á landi.
Finnur Ingólfsson iðnaðar-
og viðskiptaráðherra átti fund
með fyrsta varaforseta kín-
verska þingsins, Tian Jiyun,
og föruneyti í gær. Finnur
sagði að hlutverk sendinefnd-
arinnar yrði að kynna sér þá
tækni sem starfsemi 40.000
tonna álvers byggðist á og
hvort hún samrýmdist kröfum
íslendinga í umhverfismálum.
■ Kínveijar áhugasamir/29
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra
segir að við breytingar á lögum um
Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins
verði að búa svo um hnútana að
réttindi, sem opinberir starfsmenn
hafa væntingar um, samkvæmt
núverandi reglum, verði ekki skert.
Eiríkur Jónsspn, formaður Kenn-
arasambands íslands, fagnar þess-
ari yfirlýsingu og segir að stjórn
KI verði boðuð til fundar í næstu
viku til að endurmeta fyrri afstöðu
til flutnings grunnskólans.
A fundi forystumanna launþega-
hreyfingarinnar með forsætisráð-
herra, fjármálaráðherra og félags-
málaráðherra í gær var m.a. rætt
um lífeyrismál opinberra starfs-
manna. Davíð Oddsson sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að hann teldi
enga ástæðu til annars en að kenn-
arar kæmu á ný að vinnu við flutn-
ing grunnskólans. „Ég ítrekaði á
fundinum við formann KÍ, að það
stæði ekki til að gera breytingar í
lífeyrismálum sem væru í ósátt við
þá, sem myndi leiða til þess að
núverandi starfsmenn væru sviptir
áunnum réttindum eða réttindum,
sem þeir mættu hafa væntingar
um,“ sagði Davíð.
Eiríkur sagðist fagna mjög þess-
ari yfirlýsingu. „Þarna er fólki lofað
því að það haldi öllum sínum rétt-
indum og að áunnin réttindi verði
ekki skert í framtíðinni. Hingað til
hafa menn ekki viljað vinna eftir
þessu í samráðsnefndinni um lífeyr-
ismál. Á fundi í lífeyrismálanefnd-
inni nk. þriðjudag mun ég taka
þetta mál upp undir þessum for-
merkjum og mun væntanlega boða
stjórnarfund í KÍ á miðvikudaginn.
Ef menn eru tilbúnir að vinna eftir
þessum leikreglum metum við okk-
ar stöðu upp á nýtt.“
■ Ákvæði laga/4
Seðlabanki
lækkar vexti
um0,75%
SKÖRP vaxtalækkun varð á verð-
bréfamarkaði í gær í kjölfar þess
að Seðlabankinn lækkaði vexti á
ríkisvíxlum um 0,75%. Að sögn
Birgis ísleifs Gunnarssonar seðla-
bankastjóra er hér um óvenju mikla
lækkun af hálfu bankans að ræða.
Hann segir að lækkunina megi
rekja til þróunarinnar á gjaldeyris-
og peningamörkuðum að undan-
förnu, sem hafi m.a. leitt til bættr-
ar gjaldeyrisstöðu bankans.
Vaxtalækkun Seðlabankans
leiddi til nokkurrar lækkunar á
ávöxtunarkröfu húsbréfa og spari-
skírteina. Sögðust viðmælendur
Morgunblaðsins á verðbréfamark-
aði jafnvel reikna með frekari lækk-
unum á næstu dögum. Bankarnir
héldu þó að sér höndum í gær og
sögðu talsmenn þeirra að vaxtamál-
in yrðu skoðuð á næstu dögum.
■ Skörp lækkun/Bl
-----» » ♦----
Plastprent hf.
Hlutabréf
seldust upp á
einum degi
HLUTABRÉF Plastprents hf. seld-
ust upp í útboði félagsins strax á
fyrsta degi í gær. Boðin voru út
bréf að nafnvirði 29,2 milljónir
króna á genginu 3,25 þannig að
söluandvirði þeirra var alls um 95
milljónir.
Að sögn Jóhanns Ivarssonar, for-
stöðumanns hjá Kaupþingi, seldist
upp sá hluti útboðsins sem ætlaður
var stofnanafjárfestum strax að
loknum kynningarfundi hjá fyrir-
tækinu í hádeginu gær. Smærri
pantanir bárust jafnt og þétt yfir
daginn og sá hluti útboðsins seldist
einnig upp skömmu fyrir lokun.
„Þetta er talsvert betri árangur
en við bjuggumst við. Það vinnur
með Plastprenti að fyriitækið er
fyrst til að ráðast í hlutafjárútboð
á þessu ári fyrir utan Þormóð
ramma. Þetta er góðs viti fyrir fyrir-
tæki sem eru að velta fyrir sér að
fara á hlutabréfamarkað.“
■ Plastprentsbréfin/B2