Morgunblaðið - 20.04.1996, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 20.04.1996, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. APRÍL 1996 15 LANDIÐ HLUTI stofnfélaga Kveðanda - vísnafélagi Þingeyinga. 8 Vísnafélag Þingeyinga stofnað Húsavik - Nokkrir þingeyskir hagyrðingar og vísnavinir komu saman í Arnesi í Aðaldal fyrir nokkru og ákváðu að kanna stofnun félags þingeyskra hag- yrðinga og vísnavina. Boðað var til stofnfundar á Húsavík 12. þessa mánaðar og hófst fundur- inn með ávarpj Jóhönnu A. Stein- grímsdóttur, Árnesi, sem sagði að lengi hefði sú hugmynd verið meðal manna i sýslunni að stofna slíkt félag. Hreiðar Karlsson tók svo við stjórn fundarins. Þorfinnur Jónsson, Ingveldar- stöðum, hafði framsögu fyrir hönd fundarboðenda og taldi hann aukinn áhuga vera meðal Þingeyinga að viðhalda stökunni. Og ekkert taldi hann betra til viðhalds íslenskri tungu en stakan og kveðskapur. Mál sitt fléttaði hann mörgum snjöllum stökum og endaði með þessari: Hér þarf vilja og hug að sýna, halda vökunni. Efla skal en ekki týna Islands stökunni. Síðan var málið mikið rætt og gengið frá formlegum samþykkt- um fyrir félagið og því valið nafnið Kveðandi - vísnafélag Þingeyinga. Kosin var stjórn sem skipuð er: Hreiðari Karlssyni, Húsavík, Jóhönnu Á. Steingríms- dóttur, Árnesi, og Þorfinni Jóns- syni, Ingveldarstöðum. Að loknum fundarstörfum var kastað fram nokkrum vísum sem urðu til á fundinum, þar á meðal þessari eftir Kristján Jónsson frá Hlíðargerði: Berst um landið bragamál, bætir óðinn slingra. Víst mun göfga og verma sál, vísur Þingeyinga. Þeir sem hafa samband við stjórn Kveðanda geta gerst stofnfélagar til næsta fundar. Verkalýðsfélagið Baldur 80 ára VERKALÝÐSFÉLAGIÐ Baldur á ísafirði var stofnað 1. apríl 1916 af 40 verkamönnum, sem þar með tóku upp þráðinn frá stofnun verka- lýðsfélags á ísafirði 7. maí 1906. Er því um þessar mundir bæði um 80 ára og 90 ára sögu réttindabar- áttu verkafólks á ísafirði að ræða. Á afmælisdaginn 1. apríl var opnuð myndlistarsýning í húsa- kynnum félagsins í Pólgötu og á baráttudegi verkafólks 1. maí nk. verður efnt til hátíðarfundar í íþróttahúsinu á Torfnesi þar sem öllu verkafólki verður boðið til há- tíðardagskrár og veitinga á vegum félagsins. Listasafn alþýðu hafði veg og vanda af myndlitarsýningunni, um er að ræða grafíkmyndasýningu sem nýlega er komin heim eftir hringferð um höfuðborgir á vestur- löndum. Myndlistarsýningin var upphaf afmælisársins en á eftir henni og hátíðarfundinum 1. maí nk. munu fylgja fleiri afmælisatburðira. I fréttailkynningu frá Baldri seg- ir m.a., að félagið hafi gengið í Alþýðusamband Islands strax 1917 og teljist því eitt af stofnfélögum þess. Þá hafí það beitt sér fyrir stofnun verkalýðsfélaga í Súðavík, Bolungarvík, Súgandafirði, í Sléttu- hreppi og á Patreksfirði og Alþýðu- samband Vestfjarða var stofnað að Morgunblaðið/Egill Egilsson frumkvæði Baldurs. Einnig hefur Verkalýðsfélagið Baldur tekið þátt í stofnun ýmissa fyrirtækja. Fimm menn hafa gegnt forseta- störfum ASV og allir komið úr for- ustu Baldurs. Tveir formenn Bald- urs hafa orðið ráðherrar, Finnur Jónsson og Hannibal Valdimarsson. Tveir orðið forsetar ASÍ, Helgi Hannesson og Hannibal Valdimars- son. Núverandi Stjórn Baldurs skipa: Formaður Pétur Sigurðsson; vara- formaður Aðalheiður Steinsdóttir; ritari Ásdís Hansdóttir; gjaldkeri Kristjana Ósk Hauksdóttir; með- stjórnandi Gísli Indriðason; vara- stjórn: Þorbjörg Ingadóttir, Óðinn Baldursson, Brynja Helgadóttir. Fjórðungsþing Vestfirðinga Stofnun skólaskrif- stofu rædd ísafirði - 41. Fjórðungsþing Vestfirðinga verður sett í Stjórnsýsluhúsinu á Jsafirði sumardaginn fyrsta. Á þing- inu, sem stendur í tvo daga, verður m.a. rætt um stofnun skólaskrifstofu Vestfjarða, þróunarstörf í atvinnumálum og tillögur til breytinga á lög- um og samþykktum sam- bandsins auk þess sem reikna má með að hagsmunamál sveitarfélaganna á Vestfjörð- um verði rædd. Á þinginu flytur Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á ísafirði, framsöguerindi um störf grunnskólanefndar sam- bandsins, Helgi Jónasson, fræðslustjóri og formaður nefndar um fagleg málefni við flutnings grunnskólans, fjallar um mál því tengd og Garðar Jónsson, viðskiptafræðingur Sambands íslenskra sveitarfé- laga, um störf kostnaðar- nefndar og hlutverk jöfnunar- sjóðs. Einar Kr. Guðfínssson, al- þingismaður, fjallar um stuðn- ing Byggðastofnunar við at- vinnuþróunarstörf, Elsa Guð- mundsdóttir, atvinnuráðgjafí Ijallar um slíkt þróunarstarf, Kristján Jóakimsson, sjávarút- vegsfræðingur, um þróunar- störf í útvegi og Brynjólfur Gíslason, sveitarstjóri, um til- lögur um atvinnuþróunarfélag. Skipum og húsum fjölgar á Flateyri Flateyri - Upp á síðkastið hafa þrjú skip landað afla sínum í Flateyrarhöfn. Fyrir eru fjögur skip sem hafa fastapláss sitt í höfninni. Þessi þrjú aðkomuskip landa afla á Flateyri til að sjiara sér lengri siglingu á Isafjarð- arhöfn. Reykjafoss, skip Eim- skipafélagsins, kom á dög- unum með þrjá sumarbú- stað, sem Flateyrarhreppur hefur keypt til að selja upp fyrir íbúa hreppsins. Tölu- verður skortur er á húsnæði enn um sinn, þannig að hér var um þægilega viðbót að ræða. Þriðja safnið flytur í Safnahúsið á Egilsstöðum Skjalasafn í nýtt húsnæði VATNASKÓGUR Sumarbúðir KFUM Egilsstöðum - Héraðsskjalasafn Austfirðinga hefur flutt í nýtt húsnæði á Egilsstöðum. Það er þriðja safnið sem flytur í Safna- húsið á Egilsstöðum en nýflutt í húsið eru Bókasafn Héraðsbúa og Minjasafn Austurlands. Einnig hefur Safnastofnun Austurlands aðsetur í húsinu. í eigið húsnæði eftir 20 ár Þetta er í fyrsta skipti sem Héraðsskjalasafnið fer í eigið hús- næði, en liðin eru 20 ár frá stofn- un þess. Rúmast nú skjöl og bæk- ur safnsins vel, en hluti safnsins var geymdur í kössum og kyrnum þar sem erfitt reyndist að nálgast upplýsingar ef á þurfti. að halda. Stærstur hluti bóka safnsins er gjöf sem gefin var af þeim hjónum Halldóri Ásgrímssyni og konu hans Önnu Guðnýju Guðmunds- dóttur. Bréfin bætast í safnið Á opnunarhátíðinni í þessu nýja húsnæði tók m.a. barnabarn Hall- dórs og Önnu til máls, Katrín Ásgrímsdóttir, og sagði frá bréfa- safni sem hefði verið í eigu þeirra hjóna. Verið væri að fara í gegnum bréfin og flokka þau og sagði Katrín að því verki loknu munu bréfin koma í Héraðsskjalasafnið til varðveislu. Fleiri tóku tii máls og færðu safninu gjafir. Vilhjálmur Hjálm- arsson færði safninu örnefnaskrá frá Mjóafirði, en skráin hefur ekki verið gefin út. Jón Kristjánsson alþingismaður tók til máls og - fagnaði því að þetta lifandi safn væri komið í svo glæsilegt hús- næði. Jón sagðist ánægður með þá þróun sem orðið hefði í starf- semi safnsins en hann sat í fyrstu stjórn þess. Hann sagði safnið hafa byggst upp vegna þess að nokkrir einstaklingar lögðu gríðar- lega vinnu í uppbyggingu þess. Skjalavörður safnsins frá 1985 hefur verið Sigurður Óskar Páls- son en hann mun láta af því starfi 1. júní og við því tekur Hrafnkell A. Jónsson. Skráning í sumarbúðimar í Vatnaskógi hefst mánudaginn 22. apríl kl. 8:00 í húsi KFUM og KFUK við Holtaveg. Einnig er tekið við skráningum í símum 588-8899 og 588-1999- Flokkaskrá sumarsins verður birt í sunnudags- blaði Morgunblaðsins og er einnig á bls 618 í textavarpi sjónvarpsins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.