Morgunblaðið - 20.04.1996, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 20.04.1996, Blaðsíða 48
48 LAUGARDAGUR 20. APRÍL 1996 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens HV/ENÆR UÆRiST íME-R AÐ ) KLIFRA EKKJ UPP í TR6 ? S BREF TIL BLAÐSINS Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329 • Netfang: lauga@mbl.is Hvað varð um kærleika Krists? Frá Bryndísi Símonardóttur: í DJÚPRI örvæntingu minni græt ég vegna þess hvemig komið er fyr- ir kirkjustofnun Krists. Dögum og vikum saman hafíð þið forystumenn kirkjunnar verið í fjöimiðlum með vamir, dóma og hroka, en engan ykkar hef ég enn heyrt tjá sig í kærleika. Ályktanir og yfirlýsingar hafa steymt af munni ykkar, en allt- af fullar af fordómum og hroka. Lærðuð þið ekkert af Kristi? Hefur ykkur láðst að spyija hann hvað hann hefði gert í vandasamri stöðu sem þessari? Óll ykkar viðbörgð hafa verið af mjög veraldlegum toga, þið eruð móðgaðir, lítið á vandann sem árás á stétt ykkar og stöðu og eruð mjög uppteknir af sjálfum ykk- ur, völdum ykkar og starfsheiðri. Ef ykkur tækist að stíga örlítið út fyrir sjálfa ykkur mynduð þið auðveldlega sjá að þið standið frammi fyrir mikilli lexíu. Nú tyftar Guð ykkur, nú reynir hann ykkur. Nú ríður á að þið sjáið að þau vandamál sem að kirkjunni steðja snúast ekki um sekt eða sak- leysi eins eða neins því hvorugt verð- ur með neinum hætti sannað. Við höfum engin þau verkfæri í höndum þessa samfélags að neinn sé þess umkominn að- sanna eitt eða neitt. Hættið að berja höfðinu við steininn, enginn verður til saka dreginn í máli sem þessu. Hið eina verkfæri sen nothæft er, er kærleikurinn. Hann einn getur læknað þau sár sem okkur svíður öll undan. Hann einn getur haldið uppi reisn kirkjunnar sem fulltrúa Krists. í ályktun ykkar prófasta frá 7. mars. keyrði um þverbak þegar þið sýnduð þjóðinni allri þvílíkan hroka að fá- dæma er. Hvernig getið þið leyft ykkur að setja ykkur í dómarasæti og ákveða að ásakanir á hendur biskupi séu ósannar? Hver hefur gefið ykkur þetta vald? í sömu ályktun segið þið orðrétt að nauðsynlegt sé að brugðist verði við af festu og ábyrgð. í þessum orðum fínnst mér liggja að þær skuli ■ nú aldeilis fá að standa fyrir máli sínu, þessar kvensur. Hvernig stóð á því að ykkur datt ekki í huga að spyija Krist ráða? Hann setti sig aldrei í dómarasæti í vonlausu máli, eins og þið gerið nú, vegna þess að hann hafði kær- leika. Ég sé hann fyrir mér horfa yfir söfnuð sinn með kærleika, gefa Guði föðurnum dómaravald, en sína báð- um deiluaðilum ást og hlýju vegna þess að hann hefði skilið að báðir aðilar þjást. Hann hefði skilið að biskupinn þjáist, vegna sektar sinnar eða sakleysis. Hann hefði líka skilið að konurnar þrjár þjást vegna þess sem biskup hefur gert þeim eða vegna þess að þær ljúga. Að auki hefði hann skilið að þjóð- in þjáist vegna þess að hana vantaði hirði sinn, sem getur vísað henni veg kærleikans, svo hún þurfi ekki að taka afstöðu þar sem enga niður- stöðu er að fá. Ég vil ekki við ykkur kannast meðan þið gangið þennan veraldar veg. Ég finn mig knúna til þess að segja mig úr þjóðkirkjunni meðan hún ekki stendur undir nafni sem fulltrúi Krists. Þið megnið ekki að hafa áhrif á ást mína á Jesús Krist; ég mun hér eftir sem hingað til kannast við hann hvar og hvenær sem er. BRYNDÍS SÍMONARDÓTTIR, Háuborg, Eyjaijarðarsveit. Tvö bréf Ferdinand ^WRENJOT NERV005 A0OUT PANGIN6, ARE YOU? >• StepL forward — Step ball/of L Stept R /J| side 0*í— f Close R foot • toL •V-l 9 Kalli! Þú hér! Emelía. Það gleður mig mjög Kvíðirðu nokkuð fyrir því að dansa? að þú komst. Hver, ég? Vinstri fót fram - til hægfri o.s.frv. Það var fallegt af þér að bjóða mér... Frá Auðuni Braga Sveinssyni: ÉG HEF nokkrum sinnum í bréfum til Morgunblaðsins bent á ofnotkun persónufomafnsins það. Væntanlega hafa einhveijir lesið þessa pistla, en allt of margir ofnota þetta ágæta fomafn, bæði í ræðu og riti. Heyram við ekki oft tekið til orða í útvarpinu eitthvað á þessa leið: Hann sagði, að það væri ekki hægt að gera þetta. Hvers vegna ekki að segja: Hann sagði, að ekki væri hægt að gera þetta. Annað dæmi um þessa leiðu málnotkun: Það er ekki hægt að segja, að það hafí rignt í lengri tíma. Betra: Ekki er hægt að segja, að lengi hafi rignt. Ekki veitti af, að Mjólkursamsalan tæki þetta atriði málnotkunar til umfjöllunar á fem- um sínum. Mér geðjast vel að ábend- ingum Mjólkursamsölunnar um vandað mál, og safna þeim, klippi þær út úr fernum að notkun iokinni. Ættu fleiri að gera slíkt hið sama. Og mér finnst ástæða til, að lesend- ur taki sig til og yfirfari dagblöðin, hvað þessa málnotkun varðar, því að þar úir og grúir af þessu ágæta fornafni, til leiðinda og að óþörfu. Hafi Mjólkusamsalan kærar þakkir fyrir frumkvæði sitt. Ég hlakka til að sjá dæmi á mjólkur- fernunum um þetta, sem ég hef reynt að ámálga hér. Málfræðinga eigum við marga og vel menntaða, sem hljóta að geta komið þessu vel fyrir, svo að til varnaðar og leiðbein- inga verði. Málið, sem við tölum og ritum, er hinn mesti dýrgripur. Við eigum og þurfum þess vegna að gæta þess vel. Hér eru að lokum stuttar glefsur úr hugsuðu bréfi. í öðru er fornafnið það ofnotað, en hitt gætir meira hófs hvað notkun þess varðar. „Kæri vinur. Það er nú orðið langt síðan að ég hef skrifað þér. Það er nú ekki mikið að segja, því að það skeður sjaldan mikið hér úti á lands- byggðinni. En það skeður víst meira í henni Reykjavík, að maður heyrir í útvarpi og sjónvarpi. Bless Jón Jónsson." Kæri vinur. Langt er liðið frá því, að ég skrifaði þér seinast. Ekki er margt að segja, því að sjaldan gerist mikið hér úti á landi. Meira gerist í Reykjavík, að því er ljósvakamiðlam- ir segja okkur. Lifðu heill. Þinn Jón Jónsson." Með þökk fyrir væntanlega birt- ingu. ^ AUÐUNN BRAGI SVEINSSON, Hjarðarhaga 28, Reykjavík. Allt efni sem birtist ! Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það- an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.