Morgunblaðið - 20.04.1996, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 20.04.1996, Blaðsíða 24
MORGUNBLAÐIÐ TVEIR ÍSLENDI NGAR ÚTSKRI FAST pf MEÐ LIÐSFORINGJATIGN 24 LAUGARDAGUR 20. APRÍL1996 Pað eru til íslenskir hermenn. Síðastir til að bætast í þann hóp voru Garðar Forberg og Hörður Ingi Hermannsson, en þeir út- skrifuðust í fyrrahaust með liðsforingjatign úr þýska hernum. Pétur Blöndal mælti sér mót við Garðar og spurði hann út í her- mannslífíð. VOPNIN þarf að hreinsa minnst þrisvar á dag meðan á æfingum stendur. — — — VIÐ fórum í þýska herinn á þeim forsendum að við vær- um sendir frá íslandi," segir Garðar. „Við fengum einkennisbún- ingana með þeim skilaboðum að taka af þeim þýsku fánana og sauma íslenska á í staðinn. Félagar okkar í herdeildinni komu okkur til hjálpar enda var þetta ærið verk því búningarnir voru margir. í sömu mund kom liðsforinginn inn í salinn og leist ekki á blikuna. Þarna stóð hann herdeildina að verki við að rífa og tæta fánana af búningunum. Hann hélt að þetta væri uppreisn - og það á fyrsta degi.“ Foreldrarnir efíns í fyrstu Hugmyndin að því að skrá sig í hermennsku kviknaði hjá Garðari árið 1991 þegar hann sótti fallhlífa- námskeið í bandaríska hernum á vegum Flugbjörgunarsveitar Reykjavíkur. Hörður deildi þessum áhuga Garðars og þeir lögðu því leið sína í varnarmálaskrifstofu utanrík- isráðuneytisins. Þar voru menn mjög fúsir að leggja þeim lið. Þegar það kom upp úr dúrnum að þeir töluðu þýsku reiprennandi eftir að hafa verið aldir upp í Lúxemborg var afráðið að þeir sæktu um í þýska hemum. Garðar segir að málið hafi verið tvö ár í vinnslu og það hafi að stórum hluta verið Guðna Braga- syni, sendiráðsfulltrúa, að þakka að það komst í höfn. „Það var ansi erfitt að útskýra fyrir fólki hér heima að maður væri að fara í herinn,“ segir Garðar. „Pabbi hafði vissan skilning á því enda hafði hann verið í bandaríska hernum, en mamma og foreldrar Harðar voru mjög efins í fyrstu. Flestir tengja hermennskuna við útlendingahersveitina, en það er stór munur á því og liðsforingja- skóla. Annars er svolítið til í því að við höfðum í raun enga hugmynd um hvað við vorum að fara út í. Við höfðum alltaf gert okkur í hugarlund að þýski herinn væri mjög strangur og minntumst þess með skelfingu að hafa heyrt talað um prússneskan aga. Við vorum því með hjartað í buxunum þegar við mættum til heimanerdeildarinnar okkar árið 1993. Þá kom í Ijós að þetta voru aðeins gróusögur. Þjóð- verjar trúa t.d. ekki á líkamlegar refs- ingar heldur er allt lagt upp úr sam- vinnu og liðsheild.“ Fyrstu sex mánuð- ina fór fram grunn- þjálfun þar sem þeir fengu að kynnast hermennsku, þ.e. heilsa, standa rétt, marsera, æfa vopna- burð og búa um rúmið á réttan hátt. „Þótt við værum liðsforingjaefni HÖRÐUR blæs á kertin á 25 ára afmælisdegi sínum, en hann fékk kökur og kampavín frá félögum sínum í tilefni dagsins. fórum við ekki í sérskóla eins og hefði verið gert í breska og banda- ríska hernum,“ segir Garðar. I hlutverki leyni- skyttu „Við fengum því eins meðferð og aðrir hermenn, sem er mikilvæg forsenda fyrir velgengni þýska hersins. Þá vita foringjarnir hvernig er að vera neðstur í goggunarröð- inni, en í breska og bandaríska hernum er ansi hætt við því að foringjarnir missi tengslin við undirmenn sína því þeir hafa aldrei staðið í þeirra sporum.“ í hópnum hafði hver hermaður sitt hlutverk. Einn var á vélbyss- unni, annar í fjarskiptum og Garðar og Hörður voru leyniskyttur. „Leyniskyttur eru eitt áhrifamesta vopnið í hernaði," segir Garðar. „í þýska hemum eru tvær leyniskytt- ur á hverja fjörutíu hermenn. Þær hafa það hlutverk að fylgjast með óvininum og finna gott skotmark, t.d. era þær þjálfaðar í að miða út þá sem era í forystuhlutverki." Að lokinni grunnþjálfun tók við nám í liðþjálfaskóla sem stóð í eitt ár. Þar var Garðari og Herði kennt GARÐAR sýnir þunga vélbyssu MG-3 á opnum degi hjá hernum. að stjóma tíu manna hóp og lauk náminu á því að þeir fóru aftur í grunnþjálfunina, en að þessu sinni sem liðþjálfar. Að stjúrna þúsund manna her „Megináhersla er lögð á að ná að stjórna án þess að vera óvinsæll,“ segir Garðar. „Maður þarf að byggja upp gagnkvæmt traust og sú umsögn sem maður fær skiptir sköpum. Það gerði okkur léttara fyrir að hóparnir sem við vorum með vora yfir sig ánægðir með að hafa íslenska stjórnendur." Að þessu loknu gengu Garðar og Hörður í gegnum námskeið sem nefnist „Einzelkampfer“. Markmið- ið með því námskeiði er að reyna á þolrifin í hermönnunum svo þeir finni fyrir ýtrastu þreytumörkum. Þar voru þeir meðal annars sveltir í nokkra daga til þess að þeir kynnt- ust hungurtilfinningunni. Síðan fengu þeir kanínu sem þeir vora látnir strjúka í smátíma, en svo þurftu þeir að slátra henni í matinn. „Okkur var kennt að gera það á sem fljótlegastan og kvalaminnstan hátt,“ segir Garðar. „Námskeiðið er vandlega uppbyggt þannig að her- mennirnir finni til hungurs og þreytu. Síðasta verkefnið var t.d. að ganga 100 kílómetra upp og niður fjalllendi með fullan búnað.“ Lokaprófið þreyttu Garðar og Hörður í Liðsforingjaskólanum í Hannover. „Þar var bóklegt nám alla daga,“ segir Garðar. „Þar var okkur m.a. kennt að stjórna þúsund manna herdeild á pappírnum frá birgðaútreikningum til orrustu." ÞEGAR Listi Schindlers var tekin til sýninga í Þýskalandi kom eínna best í ljós hvað þýski herinn legg- ur mikla áherslu á að sagan endur- taki sig ekki. Þá kom skipun frá æðstu stöðum um að allur skólinn ætti að sjá sýninguna. Aðspurður um stemmninguna í salnum segir Garðar: „Hún var eins og við mátti búast, - þögn.“ Hann segir að sér finnist þýski herinn stundum ganga of langt hvað þetta varðar. Öll hefð sé að mestu Ieyti bæld niður, t.d. megi þýskur her ekki syngja í fylkingu þegar gengið sé í gegnum borgir og bæi. Það þyki minna um of á gömlu tímana. „Ef Þjóðverjar væru með dæmigerðá íslenska þjóðerniskennd yrði tekið hart á því í þýska hernum." •~»V. Skildir eftir með MIKIÐ er lagt upp úr liðsheildinni í þýska hernum. Til marks um það er lögð rík áhersla á að bjarga þeim sem særast. „Þannig hefur þetta lengi verið í þýska hernum," segir Garðar. „Það eru til dæmi um það úr síðari heimsstyrjöldiuni að allt að tíu hermenn hafi misst lífið við að þjarga einum. Á móti kcmur að það heldur góðum anda í hernum. Hermennirnir vita að þeir eru ekki einir á báti.“ I tengslum við þetta segir Garðar sögu af hermanni frá Suður-Kóreu sem hafi verið með honum í hóp. „Þar er öðruvísi hugarfar," segir hann. „Við vorum látnir bera félaga okkar tíu kílómetra til að undirstrika að menn yrðu aldrei skildir einir eftir. Hermaðurinn frá Suður-Kóreu sagði að þetta myndi aldrei tíðkast, í heiijpdandi sínu. Sá særði myndi heldur aldrei leggja þetta á félaga sína. Hann var því bölvandi allan tímann og sagði að í Suður-Kóreu væru slasaðir menn skildir eftir með byssu og látnir sjá um sig sjálfir." 1971 Fæddur 6. ágúst í Reykja- vík. 1975 Flyst til Lúxemborgar. 1976-1983 Stundar nám í Ecole Primaire Junglinster. 1983-1986 Stundar nám í Lycee Classique d’Echternach. 1986 Flyst til íslands og hefur nám í Verzlunarskóla íslands. 1988 Lýkur verslunarprófí. 1988 Byrjar í Flugbjörgunar- sveit Reykjavíkur. 1990 Klárar stúdentspróf úr hagfræðideild Verzlunarskóla ' íslands. 1990-1993 Markaðsfulltrúi hjá . Megahf. 1990 Sækir námskeið í fallhlífa- stökki og útskrifast sem stökk- stjóri frá United States Infantry School Fort Benning, Georgia. 1993 Hefur liðsforingjanám í þýska hemum. 1993 Grunn- og sérþjálfun frá 1. júlí til 31 desember. 1994 Hefur ársnám í liðþjálfa- skóla foringjanámsins 1. mars. Verkleg liðþjálfamenntun sem felst í umsjón með hóp í grunn- þjálfun 1. júlí til 31. september. Sérsveitarþjálfun. Skotkennara- námskeið. 1995 Utskrifast sem sveitar- stjóri 1. mars og hópstjóri 1. júlí. Lýkur foringjaskóla þýska hersins (Offízierschule des Heeres Hannover) Námið skipt- ist í herkænskufræði, stjórnmálafræði með aðal- áherslu á uppbyggingu NATO, Vesturevrópusambandið og Sameinuðu þjóðirnar, réttar- fræði, þýskan rétt, alþjóða- sáttmála t.a.m. Genfar- sáttmálann, mannleg sam- skipti og mannskynssögu seinni tíma með áherslu á hersögu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.