Morgunblaðið - 20.04.1996, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 20.04.1996, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. APRÍL 1996 19 ERLENT Skipulega unnið að því að hindra hjálparstarf? Týrus, Jerúsalem. Reuter. FRIÐARGÆSLUSVEITIR Samein- uðu þjóðanna (SÞ) í Líbanon greindu frá því í gær að ísraelar ynnu skipu- lega að því að koma í veg fyrir að þær gætu unnið hjálparstarf. Miklar umræður eru nú um árás ísraelshers á bækistöðvar SÞ í Qana skammt frá Týrus þar sem 101 líbanskur borgari lét lífið. Herinn segir að árás- in beri ekki dómgreindarleysi vitni, en margir spyija sig hvemig þraut- þjálfaður her, sem búinn er bestu og fullkomnustu vopnum sem völ er á, geti látið þetta henda. Hernaðarsérfræðingar sögðu að blóðbaðið í Qana vekti margar spurningar og Israelsher, sem hefur gert mikið úr nákvæmni stórskota- liðs síns, þyrfti að taka frammistöðu sína til gagngerrar endurskoðunar. Ekki slys, heldur stórslys „Þetta var ekki slys, þetta var stórslys," sagði Rafi Noy, fyrrver- andi herforingi, í samtali við ísra- elska útvarpið. „Her á borð við ísra- elsher getur ekki bara heldur verður að koma í veg fyrir slík stórslys því að hlutir af þessu tagi draga meira en nokkuð annað úr möguleikum okkar á að ná þeim markmiðum, sem við hugðumst ná með aðgerðinni." Amnon Shahak, yfirmaður ísra- elshers, sagði að herinn hefði verið að skjóta á þann stað, sem skærulið- ar Hizbollah skutu skeytum sínum frá nokkrum mínútum fyrr. „Skilningur minn á fyrirliggjandi upplýsingum er þannig að ég sé ekki að um dómgreindarleysi hafi verið að ræða,“ sagði Shahak á fimmtudag. „Við beijumst þama við Hizbollah og þegar þeir skjóta á okkur skjótum við á þá til að veija okkur.“ I daglegu sambandi við ísraela ísraelar hafa gefið í skyn að skæruliðar úr Hizbollah-hreyfing- unni skjóti skeytum sínum í grennd við búðir Sameinuðu þjóðanna í þeirri trú að þá þori ísraelar ekki að svara fýrir sig. Timur Goksel, talsmaður bráða- birgðasveita SÞ í Líbanon (UNIFIL), hafnaði þessu í gær og sagði að sveitimar væm í daglegu sambandi við ísraela. Friðargæsluliðar hafi iðu- lega skorist í leikinn til að koma í veg fyrir að Hizbollah beitti Katjúsha-sprengjuvörpum í grennd við bækistöðvar þeirrá og ekki alltaf sloppið heilir á húfi. Goksel sagði greinilegt að eitthvað hefði farið úrskeiðis, án þess að hann vildi væna ísraela um að hafa skotið viljandi á búðimar. í dagblaðinu Jerusalem Post í gær var fréttaskýring um árásina á for- síðu. Þar er harmað að árásin hafi grafið undan tilraun ísraels til að uppræta Hizbollah með því að beita háþróuðum vopnum. „Sprengjuárásarinnar á saklausa flóttamenn verður minnst í sögunni sem vatnaskilanna í aðgerðum ísra- ela í Líbanon," sagði í blaðinu. Um 6.000 flóttamenn em í stöðv- um SÞ í Líbanon, en friðargæslulið- ar segja að ísraelar geri þeim erfitt að athafna sig. Starfsmaður UNIFIL sagði í gær að frá 12. apríl hafi komið upp 228 tilvik þar sem stórskotaliðs- eða loftárás var gerð á eða við stöð SÞ eða nærri flutningalest á vegum SÞ. Reuter hafði eftir Eamonn Smith majór að í hvert skipti, sem farið væri í hjálparferð, væri látið vita í höfuðstöðvum UNIFIL og þar væm Israelar beðnir um leyfí, „í hvert einasta skipti, sem ísra- elar hafa hafið skothríð eða varpað sprengjum á lestir okkar, höfðum við fyrirfram fengið leyfi frá þeim til að leggja í förina," sagði Smith. Verinu í Tsjerno- byl lokað árið 2000 Moskvu. Reuter. LEIÐTOGAR sjö helstu iðn- ríkja heims hófu í gær tveggja daga fund sinn í Moskvu um kjarnorkuöryggi, en átökin í Líbanon settu þó mark sitt á störf leiðtoganna á fyrri fundardegi. Leiðtogafundurinn er hald- inn áratug frá því sprenging og eldsvoði varð í Tsjernobyl- verinu, sem er mesta kjarn- orkuslys sögunnar. Munu leiðtogarnir sam- þykkja áætlun, sem gerir ráð fyrir því að verinu verði lokað að fullu árið 2000, en vegna þess verkefnis hafa iðnríkin heitið aðstoð að jafnvirði þriggja milljarða dollara, sem svarar 200 milljörðum króna. Illa úr garði gerð Ennfremur munu þeir ganga frá samkomulagi um aðgerðir sem ætlað er að koma í veg fyrir smygl með geislavirk efni. Loks munu þeir semja um margs konar samstarf sem miðar að því að auka öryggi kjarnorkuvera og draga úr hættu á kjarn- orkuslysum. Leoníd Kútsjma Ukraínu- forseti viðurkenndi í gær í fyrsta sinn opinberlega, að kjarnorkuver frá sovét- tímanum væru illa úr garði gerð og hét því að loka þeim svo fremi sem alþjóðleg að- stoð bærist. Kútsjma hefur verið boðið að vera viðstaddur leiðtoga- fundinn í dag er fjallað verður um áætlunina um lokun Tsjernobyl-versins. Lítill árangur? Umhverfisvemdarsinnar, evrópskir stjórnmálamenn og nokkrir vísindamenn hafa haldið því fram, að raunveru- legur árangur af leiðtoga- fundinum verði lítill. Borís Jeltsín Rússlandsfor- seti vonast til þess að fundur- inn verði lyftistöng fyrir hann í kosningabaráttunni vegna forsetakosninganna í júní. í gær hét hann Ryutaro Hashi- moto forsætisráðherra Jap- ans því, að Rússar myndu undirrita alþjóðasamkomulag um bann við losun kjamorku- úrgangs á höfum úti. Ryðfrítt gæðastál frá Damstahl! Fiskislóð 139 b • Po.Box: 1612 • 121 Reykjavík Sími 511 5400 • Fax: 511 5405 OI Damstahl Gengi fyrirtækja í samkeppni byggist oft á samstarfsaðilum. begar ryðfrítt stál er notað til framleiðslu eða viðhalds skiptir öllu máli að gæði, vöruval og þjónusta sé fyrsta flokks. Metnaður Damstahl á íslandi er að tryggja íslenskum fyrirtækjum sömu þjónustu og Damstahl veitir öðrum fyrirtækjum í Evrópu. Damstahl er sérhæft fyrirtæki í ryðfríu stáli og hefur nú starfað á íslenskum markaði í 15 ár. En þrátt fyrir gott samstarf kalla nýir tímar á breytingar og í byrjun þessa árs hóf Damstahl að þjónusta íslenska viðskiptavini beint og kemur þannig til móts við auknar kröfur um mikil gæði, góða þjónustu og lágt verð. Ryðfrítt stál fyrir íslenskan iðnað!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.