Morgunblaðið - 20.04.1996, Blaðsíða 18
18 LAUGARDAGUR 20. APRÍL 1996
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Hizbollah-hreyfingin í Suður-Líbanon runnin undan rótum íranskra klerka
LEIÐTOGAR og stuðningsmenn Hizbollah-hreyfingarinnar. Myndin var tekin á
útifundi í suðurhverfum Beirút-borgar er þess var minnst að 1300 ára voru frá
andláti Husseins, sonarsonar Múhameðs spámanns.
Eyðing Israels-
ríkis lieilagt
lokamarkmíð
Hizbollah er hreyfmg íslamskra bókstafstrúar-
manna, sem aldrei munu viðurkenna tilverurétt
ísraels skrifar Snorri G. Bergsson.
ARATUGUM saman hefur geisað
borgarastyijöld í Líbanon milli
múslimskra og kristinna íbúa
landsins. Árið 1970 blönduðu Pal-
estínumenn sér í leikinn við hlið múslima
og 1976 bættust Sýrlendingar í hópinn.
Þjóðarbrot í Líbanon , einkum shítar, drús-
ar, Palestínumenn og kristnir maronítar
hafa síðan þá borist á banaspjót og notað
allar fáanlegar gerðir vopna til að drepa
hvern annan.
Líbanon var lengi kallað „perla Mið-
austurlanda" og ekki að ástæðulausu. Þar
blómstruðu viðskipti menning og menntun
umfram það sem gerðist í öðrum arabalönd-
um, þótt ekki væri þar að finna dropa af olíu.
Spenna í landinu kom einkum til vegna
umsvifa liðsmanna Frelsishreyfingar Palest-
ínu (PLO), sem nýttu sér sterka stöðu í
suðurhluta landsins til að gera árásir á ísra-
el, jafnframt því að etja öðrum þjóðarbrotum
saman til að tryggja eigin völd í Líbanon.
Á árunum 1970-1982 gerðu þeir hundruð
árása á Israel sem drógu Israelsher inn í
þessa endalausu baráttu um yfirráð í land-
inu. ísraelar gerðu nokkrar minniháttar inn-
rásir í Líbanon á áttunda áratugnum til að
hrekja skæruliða PLO frá suðurhluta lands-
ins en án árangurs.
Alvarleg mistök
Árið 1982 hófst síðan „Galíleu-aðgerðin“
með allsheijar innrás ísraela inn í Líbanon.
Þótt ísraelski herinn hafi náð að gjörsigra
sýrlenska herinn og palestínska skæruliða
reyndist þessi herför stærstu mistök ísrael-
skra ráðamanna. Þrátt fyrir að PLO hafi
verið rutt úr vegi, komu aðrir skæruliðahóp-
ar og sýnu erfiðari viðureignar, til sögunnar.
Árið 1985 dró ísraelsher sig til baka frá
Líbanon enda höfðu sjálfsmorðsárásir shíta
þá hoggið stór skörð í raðir ísraelska hers-
ins og erlendra friðargæsluliða. Þar fór
fremstur í flokki nýlega stofnaður skæru-
liðahópur, Hizbollah (eða Hizballah), sem
starfaði með stuðningi íran, Líbýu og Sýr-
lands.
Hizbollah-hreyfingin er að mestu runnin
undan rótum íranskra klerka sem sendu
erindreka sína til Líbanons í því skyni að
flytja út íslömsku byltinguna. Hizbollah var
þó aðeins nýtt líf á gömlum belgjum þar
sem líbanskir shítar höfðu í um tvo áratugi
verið áhrifamiklir í stjórnmálalífi Líbanons.
Árið 1959 hafði ungur klerkur, Sheik Musa
al-Sadr, flúið til Líbanons undan ofríki ír-
anska keisarans og hafist handa við að
umbreyta friðsömum hálf-vestrænum shít-
um landsins í pólitíska þrýstihópa. Árið
1967 stofnaði hann Æðstaráð shíta í Líban-
on (SISM), sem þróaðist út í fyrstu stjórn-
málahreyfíngu shíta, Harakat al-Mahrumin,
sem árið 1974 myndaði hemaðarvæng sinn
Afwaj al-Mugawama al-Lubnaniyya eða
AMAL eins og hreyfmg þessi er yfirleitt
kölluð. Árið 1978 þegar Sadr hvarf á dular-
fullan hátt klofnaði AMAL í veraldlegan og
hálf-sósíalískan arm undir forystu Nabib
Beri og bókstafstrúarvænginn al-Amal al-
Islami undir stjóm Hussein al-Musawi. Út
úr þeim síðarnefnda spratt svo Hizbollah
árið 1980.
Kóraninn er stjórnarskrá
Eins og gildir um aðra bókstarfstrúar-
hópa innan íslams er hugmyndafræði Hiz-
bollah mjög einföld:Stjórnarskrá okkar er
Kóraninn. Þannig er t.d. félagslegum
ákvæðum hinnar helgu bókar múslima fylgt
eftir eins og um ríki væri að ræða. En ólíkt
hefðbundnu ríkisvaldi innheimtir hreyfingin
litla skatta en borgar frekar með sér því
ekki skortir fjárstreymi frá íranska ríkis-
kassanum til þessarar einu áhrifamiklu
hreyfingar shíta múslima utan írans.
Meginstefnu Hizbollah á hinu pólitíska
sviði má draga saman í fjögur samverk-
andi atriði:
Hizbollah stefnir að því að umbreyta ríkj-
andi félags- og stjórnmálaskipulagi í Líban-
on. Áhrifum kristinna manna ber að eyða
og koma á íslömsku ríki á í landinu þar
sem íslömskum lögum (sharia) skal fylgt
út í ystu æsar.
Beijast skal með öllum vopnum gegn
þjóðernishyggju, heimsvaldastefnu og vest-
rænni menningu.
Sameina skal alla múslima undir eina
reglu með það að markmiði að breiða íslam
út um allan heim og leggja Vesturlönd og
önnur ríki undir íslamska stjórn.
Eyða ber Ísraelsríki og frelsa skal Palest-
ínu undan yfirráðum Gyðinga.
Deilan stendur því ekki um yfirráð ísra-
ela yfir „öryggissvæðinu" heldur tilveru
gyðingaríkis á íslömsku landsvæði.
„Litli og stóri Satan“
í skrifum leiðtoga og annarra hug-
myndafræðinga Hizbollah kemur skýrt
fram að Israel sé skilgetið afkvæmi vest-
rænnar hugmyndafræði, einkum heims-
valdastefnu. Því er Israel skilgreint sem
höfuðóvinur, þar sem tilvera þess sé tákn-
ræn fyrir yfirráð hins vestræna heims sem
hafi stöðvað íslamska útþenslustefnu í að
ná markmiðum sínum. Bandaríkin, sem
kölluð eru „Hinn mikli Satan“ hafi því get-
ið af sér „lítinn Satan“, ísrael, sem komist
hafi yfir heilagt íslamskt landsvæði. Því
er Israel Hizbshaytan (flokkur satans),
öfugt við flokk Allah, Hizballah, sem breiða
muni út eitur sitt til íslamskra landa verði
gyðingum leyft að lifa í friði í Palest-
ínu/ísrael.
Af þessum og öðrum sökum hafnar Hiz-
bollah öllum friðarsamningum við ísraela.
Því er ástæðulaust að ætla að friðartilraun-
ir Bandaríkjamanna og Frakka muni skila
nokkrum varanlegum árangri. Nær er að
ætla að barátta Hizbollah, Hamas og ísl-
amska Jihad muni halda áfram eins lengi
og tilvera Israels varir.
Höfundur er sagnfræðingur og hefur
starfað sem fréttaritari Morgunblaðsins
í Jerúsalem.
Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra
Á ekki að veikja
Mannréttinda-
dómstólinn
HALLDÓR Ágrímsson utanríkis-
ráðherra segist ekki telja ástæðu
til breytinga á Mannréttindadóm-
■stóli Evrópu og að ekki megi veikja
dómstólinn. Brezka ríkisstjórnin,
sem hefur á undanförnum misser-
um tapað þremur málum fyrir dóm-
stólnum, hefur lagt til að völd hans
verði takmörk-
uð.
Malcolm Rif-
kind, utanríkis-
ráðherra Bret-
lands, ritaði í síð-
asta mánuði öll-
um aðildarríkj-
um Evrópuráðs-
ins bréf, þar sem hann lagði annars
vegar til að ríki, sem tilnefni nýjan
dómara í dómstólinn, verði að hafa
um það samráð við hin aðildarríkin,
og hins vegar að dómstóllinn geri
aðildarríki, sem er varnaraðili í
dómsmáli, grein fyrir því hvaða
þættir málsins honum þyki ámælis-
verðastir, til þess að ríkið geti
brugðizt við þessu í málflutningi
sínum.
Höfum sætt niðurstöðu
dómstólsins
„Við íslendingar höfum orðið að
þola niðurstöðu þessa dómstóls og
sætt því. Ég tel að Bretar verði að
gera það líka,“
segir Halldór Ás-
grímsson. „Ég sé
ekki neina ástæðu
til breytinga á
Mannréttinda-
dómstólnum og tel
hættulegt að
veikja hann.“
Mannréttindadómstóllinn hefur
dæmt íslenzka ríkinu í óhag í einu
máli sem sneri að tjáningarfrelsi og
öðru, sem fjallaði um skylduaðild
að stéttarfélagi. Þá var ráðizt í að-
skilnað dómsvalds og umboðsvalds
hér á landi vegna málarekstrar fyrir
Mannréttindanefnd Evrópu og
Mannréttindadómstólnum.
Reuter
Sjávarútvegs-
stefnu ESB
mótmælt
RÚMLEGA þúsund breskir sjó-
menn komu saman í Lundúnum í
gær til að mótmæla sjávarútvegs-
stefnu Evrópusambandsins
(ESB). Þess var krafist að breska
stjórnin hafnaði henni.
Breskir sjómenn eru andvígir
þeirri stefnu að skip annarra að-
ildarríkja eigi jafnan rétt á veið-
um í breskri landhelgi og saka
Spánverja um rányrkju.
í bæklingi er dreift var á fund-
inum sagði m.a.: „Brussel segir
að ekki megi auka heildarveiðar.
Það getur einungis þýtt að bresk-
ir sjómenn fái að veiða minna og
að þeir verði reknir af miðum
sínum til að rýma fyrir hinum
ofbeldishneigðu spænsku
skemmdarvörgum, sem eru hat-
aðir um allan heim.“
Úrsögn er tálsýn
í yfirlýsingu frá framkvæmda-
sljórninni sagði að svarið væri
öflugri sameiginleg sjávarútvegs-
stefna en ekki úrsögn úr henni,
sem væri hvort sem er tálsýn.
Myndin var tekin þegar sjó-
menn sigldu bátum upp Thames-
ána til að taka þátt i mótmælun-
um. Tower-brúnni var lyft upp
til að bátarnir kæmust undir
hana.