Morgunblaðið - 20.04.1996, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ
NEYTENDUR
LAUGARDAGUR 20. APRÍL 1996 21
„KARTÖFLURÆKTENDUR
þurfa að gæta sín á því hvað keypt
er sem útsæði. Við erum með regl-
ur hér þar sem segir að einungis
megi taka til dreifíngar útsæði frá
ræktendum sem eru með svoköll-
uð útsæðisleyfí,“ segir Sigurgeir
Olafsson hjá Rannsóknastofnun
landbúnaðarins.
„Það sem liggur til grundvallar
þessum útsæðisleyfum er að
spoma við því að kartöflurnar séu
með sjúkdóminn hringrot eða
kartöfluhnúðorm. “
Sigurgeir segir að þeir sem selji
útsæði eigi að tryggja að allt út-
sæði sem þeir selji komi frá út-
sæðisleyfíshöfum. „Það á að
merkja allt útsæði með nafni
framleiðanda þannig að neytendur
geti alltaf séð frá hvaða ræktanda
þeir eru að kaupa.“
Hvað snertir erlent útsæði seg-
ir Sigurgeir að það komi
til landsins með framleið- 'V /
andanúmer og þar sem /iV,
kartöflurnar komi oft
stórum sekkjum sé
þeim skipt niður og
pokarnir eigi þá að
vera merktir með
afbrigðaheiti og
nafni þess sem
umpakkar.
Kartöflurækt
Skíptír máli að kaupa
útsæði frá viður-
kenndum ræktendum
Ekki setja niður
matarkartöflur
„Ég vil eindreg-
ið vara við því að
kartöfluræktend-
ur séu að taka
einhveijar og ein-
hveijar kartöflur
og setja niður hjá
sér. Þeir ættu alls ekki að
taka matarkartöflur og setja niður
vegna þess að hætta er á því að
ýmsir sjúkdómar og skaðvaldar
komi með þeim.“
Hann segir að í sumum garð-
löndum sé allt morandi í kartöflu-
hnúðormum og því borgi sig ein-
göngu að nota viðurkennt útsæði.
- Nú er um ýmsar tegundir að
ræða af útsæði. í hveiju liggur
munurinn?
„Hann getur verið mikill og
liggur í mismunandi útliti, bragð-
gæðum og ýmsum öðrum eigin-
leikum. Almennt eru afbrigði
eins og Gullauga, Helga
(rautt Gullauga) og
rauðar íslenskar það
sem gefur bestu mat-
arkartöflurnar.
% Rauðar íslenskar
eru seinni til og
verða því oft smáar
fyrir bragðið en
vöxtinn er hægt
t að örva að ein-
hveiju leyti
með plast-, eða
’i'jj f»i ítjj.c - akrýldúk."
flJPP
erlendum
Sumar tegundirnar gefa betri
uppskeru en þær íslensku og kart-
öflurnar verða oft til muna stærri
líka. „Margir hafa notað Premi-
ere- eða Bintje-afbrigðin til að fá
með bökunarkartöflur. í köldu
sumri er einnig oft hægt að fá
Sigurgeir
segir að urm-
ull sé til að
afbrigðum.
Útsæðisleyfi til að
hindra að kartöfl-
urnar séu með
hringrot eða kart-
öfiuhnúðorm.
betri uppskeru af Premiere en
öðrum afbrigðum en þurrefn-
ismagn og bragðgæði eru lakari.“
Spíra í fjórar til sex vikur
- Hvað tekur svo við þegar
búið er að kaupa útsæði?
„Það þarf að setja kartöflurnar
í kassa eða búa um þær þannig
að birta komist að þeim. Síðan
eru þær látnar standa til spírunar
í góðri birtu í fjórar til sex vikur.
Þetta fer eftir hitastigi líka og
miðað er við fiórar til sex vikur í
15°C.
- Hvað með spírun í sólskála?
„Líklega er það nú í lagi, þó
hætta sé á að það geti orðið of
heitt þar. Kosturinn er að þar er
birtan mikil. Það er að minnsta
kosti ráðlegt að venja þær við
kaldara hitastig í nokkra sólar-
hringa áður en þær eru settar
niður.“ Sigurgeir segir ástæð-
una fyrir því að kartöflurnar séu
látnar spíra í góðri birtu þá að
spírurnar verði þá stuttar, grænar
og kröftugar. „Ef þær spíra við
lélega birtu verða spírurnar lang-
ar, veikbyggðar og fölar og því
meiri hætta á að þær skaddist
þegar þær eru settar niður.“
Blandaður garðáburður og
fosfat í nýja garða
Ef fólk er með litla
^ garða við heima-
hús og sér-
stak-
lega ef þeir eru nýir
er ráðlegt að gefa aukaskammt
af fosfóráburði (þrífosfati) sem
stungið er þá saman við mold-
ina,“ segir Bjarni Helgason hjá
Rannsóknastofnun landbúnaðar-
ins. „Gallinn við búfjáráburð er
að honum fylgir mikill arfí, en
hann er hinsvegar mjóg góður
fyrir sprettuna, ef hófs er gætt.
Sé notað of mikið má búast við
miklum yfírvexti en lítilli upp-
skeru.“
Bjarni segist mæla með 1,2 og
allt að 2 kg af blönduðum garð-
áburði í 10 fermetra garð. „Ef
moldin er þétt er gott að blanda
hana með hrossataði því hann los-
ar moldina en er hinsvegar nær-
ingarsnauður. Næringarríkasti
búfjáráburðurinn er líklega venju-
legur kúamykja og kindatað. Hafí
einhveijir aðgang að bæði kúa-
mykju og hrossataði er það góð
blanda."
Moldarsýni úr garðinum
Bjarni segir að kartöflugarðeig-
endur verði að passa sig á kalki,
skeljasandi og hænsnaskít. „Fólk
hefur mikið notað þessi efni í
garðana sína en það er mjög óráð-
legt nema í sérstökum tilfellum
og þá að undangenginni mælingu
á sýrustigi. Ein tegund kartöflu-
kláða fylgir sýrustigi og magnast
upp í kalkríkri mold. Kláðinn hef-
ur ekki áhrif á bragðgæðin en
kartöflurnar verða ljótar
útlits. Jarðvegurinn
þarf að vera hæfilega
súr og við getum í
vafatilfellum að-
stoðað fólk ef það
kemur til okkar
með moldarsýni úr
garðinum hjá sér,“
segir hann.
Þá segir Bjami að
mjög óráðlegt sé að setja
kartöflur niður í blauta og
kalda jörð. „Það margborgar
sig að bíða uns jörð hlýnar með
að setja útsæðið niður vegna þess
að kartöflurnar sem upp koma
verða venjulega fallegri útlits.“
KAFFIBRENNSLA Akur-
eyrar er að kynna sérstakt
Rubin-sælkerakaffi en það er
bæði Kenýa- og Eþíópíu-kaffi
og verður það selt í 250
gramma pakkningum þegar
það kemur í verslanir á næst-
unni. Þá er Kaffibrennsla
Akureyrar einnig að kynna
kaffi i skanimtapakkningum
fyrir hótel og mötuneyti.
KJÖTUMBOÐIÐ og þeir slát-
urleyfishafar sem að því standa
hafa í samstarfi sett á markað
nýtt merki; EKTA. Vöruflokk-
amir undir þessu merki eru um
40 talsins, lqjöt, pasta, salöt og
fleira. „Þessi lína okkar er eink-
um ætluð ungu fólki sem hefur
lítinn tima aflögu til matargerð-
ar,“ segir Páll G. Arnar fram-
leiðslustjóri Kjötumboðsins.
Umræddar EKTA-vörur verða
komnar í verslanir eftir helgi
og innan skamms verður aukið
við vöruval.
Morgunblaðið/Sverrir
I GÆR var búið að velja athyglisverðustu nýungina í fagkeppni
kjötiðnaðarmanna sem nefnist „íslenskir kjötdagar". Það var
Kristján Arnarson hjá KÞ á Húsavík sem hlaut verðlaunin fyr-
ir smalahráskinku.