Morgunblaðið - 20.04.1996, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 20. APRÍL 1996 27
AÐSENPAR GREINAR
Sanngjamara húsbréfakerfi
HÚSBRÉFAKERFI Húsnæðis-
stofnunar ríkisins hefur marga
góða kosti. Það hefur stuðlað að
því að fjöldi fólks hefur getað eign-
ast sína fyrstu íbúð og öðlast um
leið það sjálfstæði sem því fylgir.
Hins vegar er einn sá galli á kerf-
inu að fólk sem hefur lítil fjárráð
á erfitt með að fá greiðslumat sem
gerir því kleift að eignast íbúð.
Arið 1989, þegar húsbréfakerfinu
var komið á fót, mátti fólk nýta
20% af sínum heildartekjum til
afborgana af lánum. Þetta hlutfall
hefur, í nokkrum áföngum, minnk-
að. Nú er svo komið að einungis
18% af heildartekjum fólks má
nýta í afborganir af lánum. Ef við
berum þetta saman við félagslega
kerfíð er þessi tala um 60% hærri
eða 30%.
Leiga og kaup
Ég þekki mörg dæmi þess að
fólk sé að leigja íbúð fyrir mun
hærri upphæð en sem næmi meðal-
greiðslubyrði af nýrri íbúð. Tökum
kjarni malsins!
Það er borðleggjandi að einstæða
móðirin í dæminu hér á undan
væri mun betur sett með því að
kaupa sér nýja íbúð en að leigja
fyrir 45 þúsund krónur á mánuði.
í hennar tilviki hefði þurft að meta
dæmið út frá því að hún væri í
raun að minnka greiðslubyrði sína
og þar af leiðandi væri það fjár-
hagslega hagkvæmt fýrir hana að
hætta að leigja og kaupa þess í stað.
Forréttindi eða
mannréttindi?
Húsbréfakerfið má ekki verða
þannig að það verði forréttindi að
eignast íbúð en ekki sjálfsögð
Húsbréfakerfið má
ekki verða þannig, segir
Björn Víglundsson,
að það verði forréttindi
en ekki mannréttindi
að eignast íbúð.
mannréttindi eins og íslendingum
hefur þótt hingað til. Fólk sem
telur sig hafa góða vinnu með
traustar tekjur og fulifært um að
fjárfesta í íbúð finnst það fá kalda
vatnsgusu framan í sig þegar það
sér greiðslumatið sitt. Ekki nóg
með að það sjái ekki fram á að
hafa efni á eigin íbúð, heldur er
það langt frá því markmiði og því
vart um annað að ræða en að vera
á leigumarkaðnum til frambúðar.
Um leið og fólk byrjar að leigja
minnkar geta þess verulega til
þess að spara og þá strax minnka
möguleikar þess á að geta ein-
hvern tíma keypt eigin íbúð.
Rýmra greiðslumat
Það fer vitaskuld eftir ýmsu
hvað fólk getur séð af miklum
hluta tekna sinna í húsnæðiskostn-
að, hvort sem það er í leiguhús-
næði eða eigin íbúð. Einstæða
móðirin í dæminu hér að framan
hefur til dæmis sýnt að hún getur
staðið undir því að veija 38% af
mánaðartekjum sínum í húsaleigu.
Eflaust er hún ekki ein um það
að vera í þessari stöðu. Að mínu
mati er nauðsynlegt að hækka
leyfilegt hámark á greiðslubyrði
úr 18% í 25 til 30% af heildartekj-
um fólks. Það myndi gera mun
fleirum kleift að kasta af sér leigu-
fjötrunum og fjárfesta í eigin íbúð
þar sem þeir geta greitt sjálfum
sér mánaðarlega í stað þess að sjá
á eftir sömu, eða hærri, upphæð í
húsaleigu.
Höfundur starfar hjá Ármanns-
felli hf.
Björn Víglundsson
dæmi: Einstæð móðir greiðir 45
þúsund krónur í húsaleigu. Ef hún
keypti sér nýja 3ja herbergja íbúð
þyrfti hún að greiða um 36 þúsund
krónur á mánuði, eða tæpum 10
þúsund krónum minna en hún
greiðir nú í húsaleigu. Þessi kona
hefur safnað sér nægilegu sparifé
til að geta greitt 30% af íbúðar-
verðinu, en hefur hins vegar ekki
nema 120 þúsund krónur í mánað-
artekjur sem þýðir að samkvæmt
reglum Húsnæðisstofnunar ríkis-
ins getur hún staðið undir greiðslu-
byrði upp á 21.500 krónur. Hún á
sem sagt ekki að geta borgað 36
þúsund krónur á mánuði í hús-
næðiskostnað, þótt hún nái því ein-
hvern veginn að skrapa saman 45
þúsund krónur fyrir húsaleigunni
um hver mánaðamót.
Of mikil varkárni?
Auðvitað er alveg ljóst að Hús-
næðisstofnun ríkisins er með regl-
um sínum að tryggja að fólk sníði
sér stakk eftir vexti og komi sér
ekki í stórfelld greiðsluvandræði.
Húsnæðisstofnun hefur brennt sig
á því og þurft að veita greiðslu-
erfiðleikalán til einstaklinga sem
ekki hafa reiknað dæmið til enda,
Þess ber hins vegar að gæta að
Húsnæðisstofnun leggur minnst
allra lánastofnana inn á afskrifta-
reikning. Húsnæðisstofnun þarf að
sjálfsögðu að vernda sína fjárfest-
ingu en útlánastarfssemi fylgir
áhætta og hjá því verður ekki kom-
ist. Hægt væri að setja reglur sem
tryggja það að Húsnæðisstofnun
tapaði engum útlánum, en þær
reglur myndu um leið hafa það í
för með sér að engin ný lán yrðu
veitt.
Kahrs
Parqucl&Inspiration
ISAGA hf
-er styrktaraðili að tónleikum
Martin Bagge.
DAGSKRA 20. APRIL
I KRINGLUNNI
KYNNING OG SALA
Á SÆNSKUM VÖRUM
13.00-16.00
Lögreglan íReykjavík og LÚLLl
LÖGGUBANGSI fræöa börnin um
umferðarreglurnar og verða með
lögreglubíl og mótorhjól ó svæðinu.
13.00 LÍNA LANGSOKKUR lætur sjó sig.
Barnadagskró sem Elísabet Brekkan sér um
13.30 KAFFIHÚSID í KRINGLUNNI.
Bellmansöngvarinn MARTIN BAGGE
og ENSEMBLE GINESTRA.
14.00 TÍSKUSÝNING.
14.30 Kynnist SAMALANDI með LAILU SPIK.
IKEA - HOLTAGÖRÐUM
14.30 LÍNA LANGSOKKUR
kemur í heimsókn í Boltaland.
PRIPPS
SINDRA AliSTALHF
TISKUSYNING
í KRINGLUNNI
Polarn&Pyret
( . . borás
NORRÆNA HUSIÐ
16.00
Rithöfundurinn JAN GUILLOU
flytur fyrirlestur: „Spionramen
som politik och samhöllshistoria.
17.00
Sýning á kvikmynd JAN
GUILLOUS: VENDETTA.
Skandia
SAMSKIP