Morgunblaðið - 20.04.1996, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
LAUGARDAGUR 20. APRÍL 1996 29
Bjarnargreiði í atvinnumálum
Á DÖGUNUM lagði Gísli S.
Einarsson, þingmaður Alþýðu-
flokksins, fram lagafrumvarp á
Alþingi um lögbindingu 80 þúsund
króna lágmarkslauna í landinu.
Gísli vill greinilega koma þeim til
hjálpar sem minnst hafa og því
ber að fagna. Flest bendir þó til
þess að fleiri myndu bíða skaða
af slíku lagaákvæði en þeir sem
það aðstoðaði.
Lágmarkslaun auka
atvinnuleysi
80 þúsund króna lágmarkslaun
myndu tryggja að þeir sem hafa
atvinnu færu aldrei neðar í laun-
um. Þau störf sem greitt var innan
við 80 þúsund fyrir mundu hins
vegar mörg hver leggjast af og
Orri Hauksson
atvinnuleysi þannig aukast.
Ástæðan er sú að verðmætin sem
slík störf skapa eru oft innan við
80 þúsund króna laun og launa-
tengdan kostnað. Gera má ráð
fyrir að þeir sem þiggja lægri laun
en 80 þúsund yrðu ósáttir við að
störf þeirra yrðu lögð niður. Flest-
um þykir betra að hafa starf, þótt
lágt launað sé, heldur en að ganga
atvinnulaus.
Verst fyrir ungt fólk og lítt
menntaða
Lágmarkslaun koma því verst
niður á þeim sem veikastir eru
fyrir. Gera má ráð fyrir að ungt
fólk með litla reynslu yrði illa úti
vegna ákvæðisins, enda byijar
slíkt fólk oft á lágum launum
meðan starfsþjálfun og önnur að-
lögun fer fram. Einstaklingar með
litla menntun myndu einnig líða
fyrir lágmarkslaun. Þeim sem ekki
hafa hlotið mikla menntun standa
yfirleitt færri atvinnutækifæri til
boða en langskólagengnu fólki,
lágmarkslaun myndu fækka tæki-
færum þeirra enn meira.
Reynslan frá Evrópu og
Bandar íkj unum
I Evrópusambandinu er at-
vinnuleysi um 11% að meðaltali,
en er yfir 20% hjá fólki innan 25
ára aldurs. Þessi vandi hefur vax-
ið með miklum þuiiga undanfarin
15 ár. í Bandaríkjunum er einnig
nokkuð um fólk án vinnu, um 5%
íbúa. Það hlutfall hefur þó staðið
Fylgstu meb í
Kaupmannahöfn
Morgunblabib
fæst á Kastrupflugvelli
og Rábhústorginu
-kjarni málsins!
í stað síðustu 15 ár og að auki
er óalgengt að fólk sé árum saman
án atvinnu vestan hafs, eins og
er títt í Evrópu. Þess ber að geta
að lágmarkslaun tíðkast í Evrópu
og eru sums staðar mjög há. Einn-
ig eru ýmsar aðrar skorður settar
á atvinnulíf í Evrópu, s.s. að erfitt
er að segja upp fólki.
Það ákvæði hefur fælt fyrirtæki
frá því að ráða fólk af ótta við
að sitja uppi með það út starfsævi
þess. Eins hafa háir skattar verið
þung byrði á atvinnulífinu. Afleið-
ingarnar eru þær að fjöldi starfa
í einkafyrirtækjum hefur staðið í
Af þessu má því draga
þá ályktun, segir Orri
Hauksson, að lág-
markslaun myndu valda
mun meiri mannlegum
harmleik í samfélaginu
en þau kæmu í veg fyrir.
stað í Evrópu síðustu tvo áratugi,
en störfum hefur fjölgað í opin-
bera geiranum. Þessu er öfugt
farið í Bandaríkjunum. Þar hefur
störfum fjölgað um 8,4 milljónir
undanfarin 3 ár á meðan engin
fjölgun hefur orðið í Evrópu.
Umræðan í Evrópu er enda heldur
sú að draga eigi úr skorðum á
atvinnulífinu frekar en auka, lág-
markslaun eru þar með talin.
Aukin verðmætasköpun -
aukin atvinna - hærri laun
Löggjafarvaldið getur notað
ákvæði um lágmarkslaun til að
hækka lægstu laun í landinu, en
leið fækk'ar það þeim sem þiggja
laun. Það hlýtur að vera heppilegra
að tryggja varanlega, raunverulega
launahækkun og næga atvinnu.
Það gerist ekki nema með því að
auka verðmætasköpun í landinu -
að tryggja atvinnulífínu fijálslegt
lagaumhverfí til að fyrirtæki verði
rekin á sem arðsamastan hátt. Með
aukinni verðmætasköpun fjölgar
atvinnutækifærum. Og með fjölgun
starfa þrýstast laun upp, því um-
sækjendur geta gert hærri launa-
kröfur þegar minni samkeppni er
um störfín. Af þessu má því draga
þá ályktun að lágmarkslaun myndu
valda mun meiri mannlegum harm-
leik í samfélaginu en þau kæmu í
veg fyrir.
Höfundur á sæti ístjórn
Heimdallar.
VISSIR ÞU ÞETTA UM AGÆTI
OG McDONALD'S Á ÍSLANDI?
Starfsmenn Ágætis að Faxafeni 12
byrja daginn á því að saxa niður
salat og lauk fyrir McDonald’s. Það
er gert á hverjum degi, jafnvel líka
á sunnudögum þegar þörf er á.
Grænmetið er skorið i sérstökum
vélum, því skurðurinn þarf alltaf að
vera eins til að fullnægja kröfum
McDonald’s. Svo er salatið sett í
skilvindu og þvegið vandlega með
tæru, íslensku vatni til að hreinsa
það. Vatnið er allt sem þarf -
engum aukaefnum er bætt út í til
að lengja líftima salatsins - það er
alltaf nýtt og ferskt.
McDonald’s gerir ákveðnar kröfur
um tegund, ferskleika, stœrð og
jafnvel þroskastig grœnmetis á
hamborgarana og notar alltaf
íslenska tómata þegar þeir eru á
boðstólum.
Ágæti hf. tók upp GÁMES,
alþjóðlegt gæðaeftirlitskerfi, á síð-
asta ári. Matthías Guðmundsson,
framkvæmdastjóri fyrirtækisins
segir að það hafi þegar skilað
umtalsverðum árangri, bæði í
eftirliti með framleiðslunni og
stjórnun. „Vid vinnum grænmeti
fyrir fjölmörg veitingahús og verslanir
auk McDonald’s og hreinlæti og
réttar umgengnisreglur skipta gifur-
legu máli."
Matthías: „Gœðaeftirlitsfólkið frá
McDonald's heimsækir okkur reglu-
lega til að fylgjast með framleiðsl-
unni. Okkur fannst i fyrstu mjög
óvenjulegt hve víðtækar kröfur þeirra
voru en eftir á að hyggja eru þær
mjög eðlilegar. Jafnvel límbandið sem
lokar plastpokunum, sem salatinu er
pakkað í, þarf að vera í ákveðnum
sterkum lit til að aldrei sé hægt að
ruglast á þvi og salatsstrimlunum.
Það er verið að passa upp á það að
neytandinn fái það sem hann á að fá
en aldrei eitthvað annað með. Við
höfum lært margt af þessu samstarfi
og það hefur komið öllum okkar
viðskiptavinum tilgóða."
Sigrún Halla, 10 ára, teiknaði myndina
ÁS&ía &
LYST
ÍÉS§
Alltaf gæði • Alltaf góður matur • Alltaf góð kaup
LYST ehf., er leyfisha.fi McDotiald's á Islandi. Ef frekari upplýsinga er óskad,
skrifið þá góðfúslega til: LYST ehf. Pósthólf 52, 121 Reykjavík,
eða: Ágæti hf, Faxafeni 12, 128 Reykjavík.