Morgunblaðið - 20.04.1996, Síða 31
30 LAUGARDAGUR 20. APRÍL1996
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 20. APRÍL 1996 31
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI
FRAMKVÆMDASTJÓRI
RITSTJÓRAR
Árvakur hf., Reykjávík.
Hallgrímur B. Geirsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
MANNDRAP I
SKJÓLI HUGSJÓNA
RÚMLEGA hundrað manns, flestir óbreyttir borgarar, konur
og börn í meirihluta, féllu er stórskotalið Israela gerði
sprengjuárás á bækistöð friðargæsluliða Sameinuðu þjóðanna í
Líbanon á fimmtudag. Nokkrum mínútum áður höfðu skærulið-
ar Hizbollah skotið flugskeytum á ísrael í nokkur hundruð
metra fjarlægð frá flóttamannabúðunum. Fyrr um daginn féllu
níu Líbanir, þar af sex börn, er ísraelar gerðu loftárás á þús í
bænum Nabatiyet af-Fawqa. ísráelar sögðu Hizbollah-skæru-
liða, er skotið höfðu flugskeytum, hafa leitað skjóls í húsinu.
Talsmaður Sameinuðu þjóðanna segir það dæmigerða bar-
dagaaðferð skæruliða að skýla sér á bak við óbreytta borgara.
Rifja má upp áþekk dæmi úr Persaflóastríðinu er óbreyttir borg-
arar féllu er fjölþjóðaherinn gerði sprengjuárásir á meint hernað-
armannvirki í Bagdad.
Israelar vetja árásir sínar á Líbanon með því að þeir séu að
svara árásum Hizbollah og tryggja öryggi íbúa í norðurhluta
ísrael. Þeir mega hins vegar ekki grípa til sömu aðferða og
samviskulausir heittrúarmenn. Framferði Hizbollah sýnir að liðs-
menn hreyfingarinnar skeyta engu um hvort landsmenn þeirra
falla í gagnárásum ísraela. Vopnlausar konur og börn eru talin
fullgildir stríðsmenn í hinu heilaga stríði gegn Israelum.
Vestræn riki hafa lengi stutt tilvistarbaráttu Ísraelsríkis gegn
óvinveittum arabaþjóðum. Sá stuðningur getur hins vegar aldr-
ei orðið óskilyrtur. Vinaþjóðir ísraels gera þá kröfu til ísraela
að þeir sýni nágrannaþjóðum sínum þá virðingu er þeir fara
sjálfir fram á. Það er erfitt að réttlæta árásir er verða hundruð-
um óbreyttra borgara að bana og virðast fyrst og fremst þjóna
pólitískum tilgangi.
Israelar munu aldrei knésetja Hizbollah með sprengjuárásum.
Það sem öðru fremur virðist vaka fyrir Shimon Peres, handhafa
friðarverðlauna Nóbels, er að tryggja endurkjör sitt í þingkosn-
ingum í næsta mánuði og þrýsta á Sýrlendinga vegna friðarvið-
ræðna ríkjanna.
Með árásunum er hann hins vegar einnig að leggja stein í
götu frekari friðarviðræðna. Víg saklauss fólks, er leitað hefur
skjóls í flóttamannabúðum á vegum SÞ, veikja ekki einungis
siðferðilega stöðu Israela. Þau eru einnig til þess fallin að ala
á því hatri og þeirri heift í garð ísraela sem hefur verið drif-
kraftur öfgahreyfinganna er barist hafa hvað hatrammast gegn
tilvist ísraels. Eftir því sem fleiri falla í valinn fjölgar jafnframt
þeim sem reiðubúnir eru að helga líf sitt baráttunni gegn ríki
gyðinga. Árásirnar veikja því ekki Hizbollah, Hamas og Jihad,
heldur styrkja.
Enginn málstaður réttlætir dráp á börnum og öðrum friðsöm-
um borgurum. Það á ekki síður við um nágrannaþjóðir ísraela
en annað fólk í heiminum. Auk þess eiga menn að gæta þess
vandlega, þegar þeir eiga í höggi við grimma ofstækismenn,
að taka ekki á sig þeirra eigin mynd og nota sömu aðferðir. Það
er vísasti vegurinn til að glata sjálfsvirðingu sinni og samúð
annarra.
GJALDTAKA AF VIÐ-
BÓTARKVÓTA
Athyglisverðri hugmynd um upptöku veiðileyfagjalds var
hreyft á ráðstefnu Samtaka iðnaðarins í fyrradag. Hún
felst í því, að fyrsta skrefið í þá átt verði gjaldtaka af þeim
viðbótarkvóta, sem væntanlega verður úthlutað til kvótahafa í
haust. Þetta fyrsta skref getur orðið áfangi á þeirri leið, að
almennt veiðileyfagjald verði tekið upp í fyllingu tímans. Þann-
ig mun eigandi auðlindarinnar, íslenzka þjóðin, fá beinan arð
af henni.
Hugmyndinni var varpað fram af Sveini Hannessyni, fram-
kvæmdastjóra Samtaka iðnaðarins. Tilefni þess, að hann tók
málið upp á ráðstefnu um framtíð iðnaðarins er það, að veruleg
tekjuaukning sjávarútvegsins í kjölfar kvótaaukningar muni
hækka raungengi krónunnar, sem bitni á samkeppnisstöðu iðn-
aðarins og ferðaþjónustunnar. Sveinn Hannesson sagði m.a.:
„Það veldur áhyggjum, að eins og sakir standa er ekkert sem
tryggir að stöðugleikinn haldist þegar næsta uppsveifla byrjar
í sjávarútvegi. Verði ekkert að gert þá hækkar raungengi með
gamla laginu með auknum afla og hærra verði á sjávarafurð-
um. Það, sem áunnizt hefur í útflutningsiðnaði, samkeppnisiðn-
aði og ferðaþjónustu, rennur þá fljótt út í sandinn."
Áratuga reynzla okkar íslendinga af efnahagssveiflum vegna
stöðu sjávarútvegsins er hörmuleg, gengisfellingar, efnahagsað-
gerðir, verkföll og verðbólga. Þess vegna verður að leggja höfuð-
áherzlu á að varðveita efnahagsstöðugleikann og koma í veg
fyrir nýtt verðbólguskrið í kjölfar kvótaaukningar. Ríkisstjórn-
inni er þetta Ijóst, því forsætisráðherra hefur sagt af tilefni
kvótaaukningar, að „sígandi lukka er bezt“.
Skýrsla fjármálaráðuneytisins um afskriftir skattaskulda
Áætlað að 1,5% álagðra
gjalda séu afskrifuð
Fj ármálaráðuneytið hefur svarað fyrirspurn
þingmanna stjórnarandstöðunnar um afskrif-
aðar skattaskuldir hins opinbera. Þar kemur
m.a. fram að á undanförnum 10 árum hafí
þessar afskriftir numið um 30 milljörðum,
að dráttarvöxtum meðtöldum. Þorsteinn
Víglundsson leit í skýrslu ráðuneytisins.
Innheimta oa afskriftir samtals,1985-1994
eftir skattaflokkum Kröfur Milijónir kr. Afskriftir Milljónir kr. Afskriftir Hlutfall
Beinir skaflar einstaklinga 195.310 6.157 3,14%
Beinir skattar lögaðila 50.427 4.855 9,63%
Tryggingagjald og launask. 57.121 953 1,67%
Skattar á vöru og þjónustu 305.787 6.699 2,19%
Bifreiðagjald og þungask. 10.604 395 3,73%
SAMTALS: 619.749 19.059 3,08%*
* Líklegt er aö atskrittir raunhætra kratna, og þar meö tekjutap rikissjóös vegna vanskila, séu um 30-40% atskriftanna, eöa um 1-1,5% atkrötum en ekki um 3% eins ag ætla má at tötunni.
Afskrifaðar I samkvæmt álagningu árið 1993 Innheimtuembætti kröfur vegna opinberra gjalda
LÖ GAÐILA R EINSTAKLINGAR
Afskrifuð álagning samtals árið 1993, milljónir króna Hlutfall afskr. af álagningu skv. áætl. al heildar- afskriltum Hlutfall afskr. af álagningu skv. framt. af heildar- alskriftum Afskrifuð álagning samtals árið 1993, milljónir króna Hlutfall afskr. af álagningu skv. áætl. af heildar- afskriftum Hlutfall afskr. af álagningu skv. framt. af heildar- afskriftum
Gjaldh. 1 Reykjavik 168,590 91,65% 8,35% 23,530 89,95% 10,05%
Sýslum. i Kópavogi 8,998 90,91% 9,09% 8,358 94,75% 5,25%
Gjaldh. á Seltjamam. 2,410 99,99% 0,01% 0,003 0 100%
Gjaldh. í Garðabæ 2,167 82,83% 17,17% 5,928 78,23% 21,77%
Sýslum. í Hatnartirði 11,876 96,43% 3,57% 7,769 74,23% 25,77%
Gjaldh. i Moslellsbæ 1,413 99,99% 0,01% 5,327 91,54% 8,46%
Sýslum. í Keflavík 17,320 90,78% 9,22% 11,154 85,61% 14,39%
Sýslum. á Akranesi 0,074 99,95% 0,05% 0,002 0 100%
Sýslum. í Borgarnesi 0,066 99,47% 0,53% 0,516 89,77% 10,23%
Sýslum. í Stykkishólmi 0,307 99,74% 0,26% 3,236 96,33% 3,67%
Sýslum. í Búðardal 0,561 99,97% 0,03% 0,519 0 100%
Sýslum. á ísalirði 3,118 64,35% 35,65% 3,747 55,03% 44,97%
Sýslum. I Bolungarvík 0,526 100% 0 0,018 98,64% 1,36%
Sýslum. á Patrekslirði 1,182 75,75% 24,25% 0,182 0 100%
Sýslum. á Hólmavik 0,665 95,34% 4,66% 0,130 0 100%
Sýslum. á Siglulirði 0,451 99,99% 0,01% 0,171 91,52% 8,48%
Sýslum. á Sauðárkróki 0,049 98,95% 1,05% 0,286 99,22% 0,78%
Sýslum. á Blönduósi 8,242 98,88% 1,12% 0,521 98,50% 1,50%
Sýslum. áAkureyri 18,801 93,27% 6,73% 7,859 91,36% 8,64%
Sýslum. á Húsavík 1,187 99,99% 0,01% 0,008 0 100%
Sýslum. á Úlafsfirði 0,141 99,99% 0,01% 0,038 0 100%
Sýslum. á Seyðislirði 2,362 99,99% 0,01% 0,354 52,99% 47,01%
Sýslum. á Neskaupst. 1,771 99,81% 0,19% 0,208 75,52% 24,48%
Sýslum. á Eskilirði 2,053 98,71% 1,29% 0,194 0 100%
Sýslum. á Höln 1,004 76,03% 23,97% 2,082 98,36% 1,64%
Sýslum. íVestm.eyjum 0,275 85,75% 14,25% 4,664 51,40% 48,60%
Sýslum. á Sellossi 5,419 99,94% 0,06% 3,891 86,89% 13,11%
Sýslum. í Vík 0,629 98,09% 1,91% 0,001 Ö 100%
Sýslum. á Hvolsvelli 0,291 99.77% 0,23% 0,273 47,38% 52,62%
SAMTALS: 261,951 92,21% 7,79% 90,970 83,55% 16,45%
Morgunblaðið/Þorkell
FEDERICO Mayor, framkvæmdastjóri UNESCO: Sameiginleg
framtíð okkar er eina sameignin, sem mannkynið á ósnortna.
Lýðræðisríkin
verða stöðugt
að bæta sig
Federico Mayor, framkvæmdastjóri UNESCO,
segir að lýðræðisríkin þurfi ekki síður að hafa
sig við en þróunarríkin að viðhalda lýðræði
---------------------------->--------
og mannréttindum. I viðtali við Olaf Þ.
Stephensen ræðir hann meðal annars um
breytingamar á UNESCO, framtíð mannkyns,
skjástýrt fólk og hvalveiðar íslendinga.
RÍKISSJÓÐUR þurfti alls að
afskrifa rúma 19 milljarða
króna á árunum 1985-
1994, vegna skattaskulda
sem var talið að ekki myndu nokkurn
tíma innheimtast. Að auki þurfti rík-
ið að afskrifa tæpa 12 milljarða króna
vegna áfallinna dráttarvaxta á þessar
skuldir. Afskrifaðar skattaskuldir
áranna 1990-1994 nema aftur á
móti 28 milljörðum króna, reiknaðar
á verðlagi ársins 1994. Þetta kemur
fram í skýrslu fjármálaráðuneytisins,
sem 9 þingmenn stjórnarandstöðunn-
ar, þeirra á meðal forsvarsmenn allra
stjórnarandstöðuflokkanna, óskuðu
eftir.
í skýrslunni kemur ennfremur
fram að þessar afskriftir svari til um
3% af álögðum gjöldum á þessu tíma-
bili. Hins vegar megi ætla að raun-
verulegt tekjutap ríkissjóðs sé ein-
ungis um 30-40% þessarar fjárhæð-
ar, eða sem nemur 1-1,5%. Þetta stafi
af því að stærstur hluti þessara
skattaskulda sé tilkominn vegna
álagningar opinberra gjalda. Hins
vegar bendi ýmislegt til þess að ein-
ungis 20-40% áætlana séu raunhæfar
og vegná veltu eða tekna sem bera
hafí átt skatt.
Munurinn þama á milli stafi m.a,
af því að haldið sé áfram að áætla
opinber gjöld á þrotabú þar til skipt-
um þeirra sé iokið, þó svo að starf-
semi liggi að hluta eða öliu leyti niðri.
Því sé fyrirsjáanlegt að þar verði aldr-
ei um neinar tekjur fyrir ríkissjóð að
ræða.
í meðfylgjandi töflum má sjá skipt-
ingu afskriftanna á milli einstakra
skatttegunda, sem og hvernig þær
hafa skiptst á milli einstaklinga og
lögaðila, þ.e. hlutafélaga og annarra
fyrirtækja, í einstökum sveitarfélög-
um. Um 83% afskrifaðra krafna á
hendur einstaklinga koma til vegna
áætlunar, og í tilfelli lögaðila er hlut-
fallið enn hærra eða rúm 92%.
Breyta þarf reikningsskilum
ríkissjóðs
í skýrslunni er þetta háa hlutfall
áætlana í afskrifuðum skattaskuld-
um gert að umræðuefni, m.a. í ljósi
þess að það kunni að skekkja nokkuð
niðurstöðu ríkisreiknings. Því sé
spurning hvort ástæða sé til að tekju-
færa þann hluta áætlana sem Ijóst
þyki að grundvöllur sé ekki fyrir.
Miðað við niðurstöður skýrslunnar
geti það ofmetið tekjur og gjöld ríkis-
sjóðs um 2-4%.
Því sé rétt að athuga hvort ekki
sé rétt að breyta núverandi fyrir-
komulagi við tekjufærslu í ríkisreikn-
ingi og færa einungis til tekna þann
hluta áætlana sem nokkuð góð vissa
sé fyrir að séu raunhæfar. Þá sé einn-
ig þörf á því að endurskoða verklag
skattstjóra við áætlanir, þannig að
tryggt sé að við gerð þeirra sé gætt
hófs án þess þó að það dragi úr virkni
áætlana við að knýja fram skattskil.
Takmörkun atvinnuleyfis vegna
gjaldþrots eða vanskila
athugandi
Meðal þess sem óskað var svara
við, var hvort ráðherra hyggðist beita
sér fyrir hertum lögum, svo sem at-
vinnuleyfissviptingu, til þess að koma
í veg fyrir að lögaðilar sem sett hafa
fyrirtæki í þrot vegna vanskila á
sköttum, stofni til sams konar rekstr-
ar undir nýju kenniheiti.
í skýrslunni kemur fram að það
sé ekki óþekkt fyrirbæri hér á landi
að eigendur og forráðamenn hlutafé-
laga láti taka félagið til gjaldþrota-
skipta, eftir að hafa tæmt það af
eignum, en stofna síðan nýtt hlutafé-
lag til að halda áfram rekstri hins
fyrra. Hins vegar snerti sá vandi mun
fleiri aðila en ríkissjóð einungis, og
því sé rétt að skoða þessi mál út frá
víðara sjónarhorni en hagsmunum
ríkissjóðs eins.
Bent er á að í hlutafélagalögum
sé að finna ákvæði þess efnis að
hægt sé að gera framkvæmdastjóra
og stjórnarmenn hlutafélaga ábyrga
fyrir skuldum þess, ef sannað þyki
að þeir beri sök á því hvernig komið
sé og hafí vanrækt skyldur sínar,
m.a. með því að óska ekki eftir gjald-
þrotaskiptum þegar ljóst sé að skuld-
ir félagsins séu umfram eignir þess.
Þessi ákvæði laganna h'afí hins vegar
verið nánast óvirk til þessa.
í skýrslunni segir að til álita hafí
komið við setningu hlutafélagalaga á
sínum tíma að setja þar inn ákvæði
þess efnis að stjórn og framkvæmda-
stjóri fyrirtækis sem gert hafí verið
gjaldþrota, megi ekki gegna sams
konar hlutverki hjá öðru hlutafélagi
í tiltekinn árafjölda á eftir. Slík
ákvæði sé t.d. að finna í Noregi.
Hins vegar hafí ekki orðið af slíkri
lagasetningu hér, m.a. þar sem erfitt
væri talið að framfylgja slíkum lög-
um, hætta yrði á því að leppar yrðu
fengnir til þess að standa formlega
fyrir félögunum og ennfremur væri
hætta á því að svört atvinnustarfsemi
myndi aukast.
Hins vegar séu engar fyrirætlanir
uppi í ráðuneytinu um breytingar í
þessum efnum hér á landi, en þó
verði mögulegar leiðir í þessu máli
athugaðar í tengslum við hugsanleg-
ar breytingar á innheimtumálum hins
opinbera. Meðal annars sé ástæða til
að láta reyna frekar á ábyrgð stjórn-
enda fyrirtækja í þessum efnum, auk
þess sem ástæða sé til að styrkja
skil á sköttum og draga úr hættu á
misferli með einhvers konar tak-
mörkunum á atvinnuumsvifum vegna
vanskila á sköttum.
Fjármálaráðuneytið hafnar
yfirleitt nauðasamningum
í svari við þeirri spurningu hvort
nauðasamningar hafí verið reyndir
áður en skattaskuldir séu afskrifað-
ar, kemur fram að sú sé sjaldnast
raunin. Stefna ráðuneytisins sé sú
að hafna nauðasamningum þegar
leitað sé eftir þeim. Þessi afstaða
byggi á því að heimildir til þess að
afskrifa skattaskuldir séu mjög tak-
markaðar, auk þess sem engar laga-
heimildir séu fyrir þátttöku í slíkum
samningum. í einstökum tilfellum
hafí vægi krafna ríkissjóðs þó ekki
dugað til að fella nauðasamningana
og því hafí ríkissjóður verið skuld-
bundinn af ákvæðum þeirra, líkt og
aðrir kröfuhafar.
Þá kemur ennfremur fram í
skýrslu ráðuneytisins að um 90-95%
afskrifaðra skattaskulda vegna at-
vinnurekstrar komi í kjölfar gjald-
þrotaskipta, enda sé sé árangurslaust
fjárnám ekki talið nægjanleg for-
senda afskrifta. í þeim tilfellum þeg-
ar einstaklingar eigi í hlut, sé hins
vegar heimild fyrir því að afskrifa
skuldir að loknu árangurslausu
fjárnámi, en hins vegar hafi þeirri
Ieið ekki verið beitt mikið til þessa.
Hins vegar hafi fjármálaráðherra
lagt fram frumvarp til laga um breyt-
ingar á gildandi lögum um tekju-
skatt og eignarskatt, sem heimili rík-
issjóði að samþykkja nauðasamninga,
að uppfylltum ákveðnum skilyrðum,
og megi þvi reikna með því að sú
leið verði farin í auknum mæli í fram-
tíðínni.
Ýmsar þeirra skattaskulda sem nú
eru til innheimtu féllu til áður en
staðgreiðsla skatta var tekin upp,
alls um 600 milljónir króna að frá-
töldum dráttarvöxtum. Eru þær að
mestu á hendur einstaklingum. í
skýrslunni segir að til greina komi
að bjóða þeim sem hér eigi í hlut að
gera þessar skuldir upp með sérstök-
um samningum. Meðal annars þurfi
að huga sérstaklega að áföllnum
dráttarvöxtum, sem um tíma hafi
verið mun hærri að raungildi en nú
sé.
Stóraukin útgjöld ríkisins
vegna búskipta
í skýrslunni kemur fram að kostn-
aður ríkisins vegna gjaldþrotaskipta
hafi stóraukist á undanförnum árum,
í kjölfar þess að skiptabeiðanda var
gert skylt að reiða af hendi 150 þús-
und króna tryggingu.
Kostnaður vegna þessa árið 1992
hafi verið rúmar 5 milljónir króna,
en tæpar 39 milljónir á síðasta ári,
og stafi af því að innheimtumenn
ríkissjóðs séu í langflestum tilfellum
skiptabeiðendur. Hins vegar er
skiptakostnaður greiddur af gjald-
heimtum ekki talinn þar með og er
í skýrslunni áætlað að heildar-
kostnaður ríkisins vegna gjaldþrota-
mála sé því nálægt 45 milljónum
króna.
Nokkrar leiðir eru ræddar til úr-
bóta í þessu efni. Meðal annars er
bent á að ef ofangreint frumvarp
um heimild ríkissjóðs til að taka
þátt í nauðasamningum nái í gegn
muni gjaldþrotamálum fækka tals-
vert í kjölfarið. Einnig sé nauðsyn-
legt að finna aðrar leiðir til að sann-
reyna eignaleysi en þær að krefjast
gjaldþrotaskipta til þess að draga
úr íjölda þeirra tilfella, þar sem sú
leið sé farin.
Einnig sé unnt að ná fram ein-
hvetjum sparnaði með því að fela
sýslumönnum í vissum tilfellum að
fara með búskipti, í stað þess að
skipa lögmenn sem bústjóra eins og
nú er gert. Þetta eigi sérstaklega við
í þeim tilfellum þar sem Ijóst sé að
viðkomandi bú er eignalaus.
Þá er í skýrslunni lagt til að inn-
heimtukerfi hins opinbera verði tekið
til endurskoðunar, með það að leiðar-
ljósi að ná þar fram hagræðingu með
fækkun innheimtuembætta. Færri og
stærri umdæmi, ásamt því að einung-
is einn innheimtuaðili væri á hveiju
svæði, hefði talsvert hagræði í för
með sér.
EDERICO Mayor, aðalfram-
kvæmdastjóri Menningar-
málastofnunar Sameinuðu
þjóðanna (UNESCO),
heimsótti Island í síðustu viku. May-
or er doktor í lyfjafræði og hefur
starfað sem prófessor, háskólarektor,
þingmaður og menntamálaráðherra
á Spáni, en hann er fæddur í Katalón-
íu. Mayor kom hingað til lands til
að kynna alþjóðasáttmálann um
verndun menningar- og náttúru-
minja, auk þess sem hann hélt fyrir-
lestur við Háskóla íslands um hlut-
verk háskóla í nútímasamfélagi.
Morgunblaðið ræddi við fram-
kvæmdastjórann um þessi efni, starf-
semi UNESCO og fleira.
Mayor er fyrst spurður hvert hann
telji vera hlutverk Menningarstofn-
unar Sameinuðu þjóðanna. „Árið
1945 skilgreindu stofnendur
UNESCO hlutverk stofnunarinnar
þannig að hún ætti að styrkja undir-
stöður friðarins. Hún átti að vera
stofnun menntamanna í kerfi Sam-
einuðu þjóðanna. Höfuðmarkmið
stofnunarinnar er skýrt; fyrir tilstuðl-
an menntunar, vísinda og menningar
eigum við að miðla og styrkja við-
horf umburðarlyndis, samræðna og
friðsemdar.
Nú, meira en hálfri öld síðar, er
meiri þörf en nokkru sinni fyrr á að
koma þessum boðskap á framfæri.
Birtingarmyndir stríðsrekstrar eru
rangsnúnari en nokkurn tímann
áður. Ég sagði frá því í fyrirlestri
mínum í Háskólanum að ég hefði séð
hinar hræðilegu afleiðingar stríðs á
ferðum mínum um þróunarlöndin.
Eftir að hafa heimsótt Rúanda og
Búrúndí verð ég að grátbæna fólk
um allan heim að stöðva ofbeldið og
hjálpa okkur að hrinda ætlunarverki
UNESCO í framkvæmd. Það þarf
umbreytingu frá röksemdum valdsins
til valds röksemdanna, og úr stríðs-
menningu yfir í friðarmenningu."
Mikilvægar umbætur
innan UNESCO
Á síðasta áratug, í framkvæmda-
stjóratíð hins umdeilda Senegala
Amadou-Mahtar M’Bows, var
UNESCO harðlega gagnrýnd af
stjórnvöldum ýmissa vestrænna ríkja
fyrir spillingu, bruðl og óráðsíu emb-
ættismanna stofnunarinnar og sum
ríki sögðust ekki vilja ijármagna
stofnun, sem notaði peningana í and-
vestrænan áróður. Bandaríkin sögðu
sig úr UNESCO 1984 og árið eftir
sigldu Bretland og Singapúr í kjölfar-
ið. Með þessum ríkjum hvarf u.þ.b.
þriðjungur af ijárveitingum stofnun-
arinnar. Mayor tók við embætti árið
1987 og mál flestra, sem til þekkja,
er að honum hafi tekizt að efla stofn-
unina í áliti, þótt hann sé einnig
gagnrýndur fyrir óstjórn í peninga-
málum hennar. En telur hann að
nógu vel hafi tekizt til og að stofnun-
in njóti trausts á nýjan leik?
„Það verður að hafa í huga að
aðeins þijú ríki gengu út, en 160
urðu eftir. Við megum ekki taka þetta
of alvarlega. Ég held að það sé ljóst
að Reagan-stjómin var ekki aðeins
að gagnrýna UNESCO, heldur Sam-
einuðu þjóðirnar sem heild. Banda-
ríkjamenn héldu að vegna þess að
UNESCO væri stofnun mennta-
manna, væri hún um leið veikust fýr-
ir. Þeir höfðu rangt fyrir sér, því að
UNESCO er ekki sjóður eða tæknileg
stofnun; hún er stofnun, sem byggir
á ákveðnu siðferði. Það er ekki hægt
að drepa hugmynd eða draum.
Niðurstaðan er mjög skýr.
UNESCO hefur framkvæmt mikil-
vægar umbætur. Við höfum fækkað
starfsfólki okkar um 30% og höfum
nú yfir meira fé að ráða en nokkurn
tímann áður, vegna þess að mörg
ríki hafa trú á stofnuninni. Við höfum
þannig bætt upp með aukafjárveit-
ingum það, sem tapaðist við brott-
hvarf Bandaríkjanna og Bretlands.
Hins vegar hef ég þær góðu frétt-
ir að færa að Clinton-stjórnin hefur
breytt algerlega um stefnu. Ríkisend-
urskoðun Bandaríkjaþings hefur
komizt að þeirri niðurstöðu að
UNESCO sé ekki aðeins vel stjórnað
heldur að við vitum hvert við stefn-
um. Sumar stofnanir hafa allt til alls,
en vita ekki hver stefnan á að vera.
Clinton forseti skrifaði mér í nóv-
ember síðastliðnum í tilefni 50 ára
afmælis stofnunarinnar, og sagði að
við gegndum mikilvægu hlutverki í
friðar- og öryggismálum heimsins og
að stjórn hans hefði ofarlega á
stefnuskrá sinni að ganga í UNESCO
á nýjan leik.
í Bretlandi hafa verið samþykktar
þingsályktanir um að ríkisstjórnin
ætti að stefna að aðild að UNESCO
á ný, en forsætisráðherrann hefur
ekki látið sína skoðun jafnskýrt í ljós
og forseti Bandaríkjanna."
Fólk verður skjástýrt
Margir hafa þá mynd af störfum
UNESCO að stofnunin starfi aðal-
lega að málefnum þriðja heimsins,
til dæmis í baráttunni gegn fátækt,
ólæsi og mannréttindabrotum. Hvað
getur stofnunin gert fyrir þróað lýð-
ræðisríki á borð við ísland?
„í fyrsta lagi er það ekki bara í
þróunarríkjunum, sem er ólæsi eða
vandamál varðandi mannréttindi. í
öllum löndum, jafnvel þeim valda-
mestu í heiminum, er fólk sem er
fáfrótt, hefur gleymt mörgu því, sem
það hefur lært, og les aldrei neitt.
Margir eru aðgerðalausir við skjáina,
sjónvarpsskjáinn, leikjaskjáinn og
tölvuskjáinn. Þetta fólk verður skjá-
stýrt; það hefur engan tíma til að
þróa eigin persónuleika og vilja og
missir tökin á lífi sínu.
Það er af þessum sökum, sem þau
grundvallargildi lýðræðisins, sem
UNESCO hefur verið treyst til að
breiða út, eiga við í öllum ríkjum.
Jafnvel rótgrónustu lýðræðisríkin
verða dag hvern að leitast við að
bæta sig og gera að raunveruleika
það markmið UNESCO að andleg
og siðferðileg samstaða ríki með
mannkyninu.
í þessum heimi, þar sem allt er í
ójafnvægi, þar sem 20% mannkyns
ráða 80% auðlindanna, getum við
ekki sagt að markmið UNESCO eigi
aðeins við um þróunarlöndin; þau
eiga við um öll ríki. Grundvallaratriði
Iýðræðisins, eins og þau eru skráð í
stofnsáttmála UNESCO, eru réttlæti
- ekki aðeins í okkar landi, heldur
um allan heim, frelsi, jafnrétti og
samstaða. Ég tel að þetta eigi að
gilda í öllum ríkjum.
Sum ríki, sem virða mannréttindi
á yfirborðinu, umbera þvott á illa
fengnu fé. Ríki, sem gagnrýna t.d.
meðferð á konum i þriðja heiminum,
líða um leið að kynlífsferðamennska
sé auglýst. Það þarf að minna öll
ríki heims á að vernd mannréttinda
er ekki á ábyrgð UNESCO eða ann-
arra stofnana, heldur á ábyrgð allra
ríkja, sem tilheyra Sameinuðu þjóð-
unum. Við verðum að breyta heimin-
um með daglegri hegðun okkar.“
Verndun framtíðarinnar
Mayor kynnti í heimsókn sinni til
íslands sáttmála UNESCO um vernd-
un menningar- og náttúruminja
heims. Hvernig telur framkvæmda-
stjórinn að íslendingar geti bezt varð-
veitt og nýtt hinn einstaka menning-
ararf sinn? Telur hann að það gerist'
með einangrun frá umheiminum eða
í alþjóðlegu samstarfí?
„Mín reynsla af íslendingum er
að þeir séu í stöðugu samstarfi við
hin Norðurlöndin og að á vettvangi
UNESCO leggi þeir fram heildstæðar
og framsýnar tillögur. Þið hneigist
ekki til einangrunar, heldur eruð
opin, einkum gagnvart Norðurlönd-
unum, en einnig gagnvart öðrum ríkj-
um og þannig getið þið betur deilt
skoðunum ykkar, heimssýn og lífs-
stíl með öðrum. ísland hefur undirrit-
að sáttmálann um varðveizlu nát.U
úru- og menningarverðmæta og nú
er komið að ykkur að ákveða hvaða
minjar eigi að setja á heimslistann.
Ég hef séð hin aðdáunarverðu fornu
handrit og þið eigið ríkulegan arf,
þar sem fornsögurnar eru.
Öll lönd verða að geta varðveitt
fortíð sína, en um leið horft til fram-
tíðar. Ég hef skrifað bók, sem er
kölluð Minning framtíðarinnar (e.
Memory of the Future) um þetta
efni. Eg vil ekki að UNESCO sé
stofnun, sem einbeitir sér aðeins að
varðveizlu fortíðarinnar. Ég tel að
það, sem skiptir raunverulegu máli,
sé að vernda framtíðina. Ef við skrif-
um upp í skyndi eignir mannkynsins,
áttum við okkur fljótlega á að það'
er aðeins ein sameign, sem við eigum
ósnortna. Það er hin sameiginlega
framtíð okkar.
Við verðum að reyna að dvelja
stöðugt við hugsanir okkar um fram-
tíðina. Þetta er eitthvert mikilvæg-
asta viðhorfið, sem við getum tileink-
að okkur nú í lok þessarar aldar.
Við höfum unnið marga sigra í tækni
og vísindum; fjarskiptum, bólusetn-
ingum o.s.frv., en okkur hefur ekki
gengið mjög vel með mannlega þátt-
inn. Við höfum borizt á banaspjótuin
og sá sterkasti hefur ráðið. Nú er
kominn tími til að breyta þessu.
Stjórnmál eru yfirleitt afl hversdags-
ins. Þau endurspegla það, sem fólki
þykir mikilvægt frá degi til dags.
En stjórnmálamenn eiga þess sjaldan
kost að horfa lengra fram í tímann.
Þess vegna er þeim aðgerðum, sem
nauðsynlegt er að grípa til, t.d. í
umhverfis- og félagsmálum ekki
hrint í framkvæmd.
Af þessum sökum tel ég afar mikil-
vægt að háskólar beiti sér fyrir rót-
tækum breytingum; að þeir verði
varðturnar menntamanna, sem geta
gefið ákvarðanatakendum ráð, sem
þeir sem sitja í ríkisstjórnum fá ekki
í dag.“
Vísindi ráði nýtingu hvala,
ekki tilfinningar
Meðan á heimsókn hans á íslandi
stóð, hitti Mayor meðal annarra Þor-
stein Pálsson sjávarútvegsráðherra
að máli og ræddu þeir meðal annars
um hvalveiðar. Hver er skoðun May-
ors á því viðkvæma deilumáli?
„Afstaða okkar til hvalanna, rétt
eins og allra annarra viðkvæmra teg-
unda, til dæmis krókódílanna í Amaz-
on og fílanna í Afríku, er einfaldlega
sú að nýting þessara tegunda eigi
að byggjast á vandlegri vísindalegri
athugun, en ekki á tilfínningum.
Flest þessara dýra eru hluti af vist-
kerfinu og við megum ekki raska
hinni eðlilegu hringrás þess.
Tökum dæmi af fílunum í Afríku.
Nú eru of margir fílar í sumum lönd-
um og þeir eyðileggja býli og akra.
Þegar allt kemur til ails er aðeins
ein dýrategund, sem þarf að vernda
hvað sem það kostar og það er
maðurinn. Állar hinar eru í öðru
sæti. Stundum eru teknar ákvarð-
anir í Moskvu, París, London eða
New York, til dæmis um að vernda
einhveija baneitraða slöngutegund.
Það er auðvelt að ákveða slíkt ef
maður býr ekki í sama landi og
slangan_
Það sama á við um hvali og allai
aðrar skepnur. Við viljum auðvitað
ekki að þeim sé útrýmt, en við viljum
ekki heldur að aðrar mikilvægar auð-
lindir hafsins rýrni, sérstaklega þeg-
ar þessar auðlindir eru notaðar ti
að fæða heimsbyggðina."