Morgunblaðið - 20.04.1996, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 20.04.1996, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ I I I ) ) ) í i I J i J 1 í I I I í t 4 ____________________________________LAUGARDAGUR 20. APRÍL 1996 35 AÐSENDAR GREINAR Rannsóknír og stjórn fiskveiða í UMRÆÐUM á Alþingi 15. apríl sl. um þorskkvótann vakti ég athygli á hættunni sem fylgir nánum tengslum á milli rannsókna og pólitísks valds. Hér skulu leidd frekari rök að því að tímabært sé að endurskoða ríkjandi skipan rannsókna, ráð- gjafar og ákvarðana við stjórn fiskveiða. Fyrirkomulag rannsókna Starfsemi Hafrann- sóknastofnunar mark- ast að mínu viti um of af því að stofnunin lýtur yfirstjórn sjávarútvegsráðuneytis og hags- munaaðila í sjávarútvegi. Starfsfólk hennar kemur gjarna fram sem ein rödd með samræmda túlkun á ástandi lífríkisins og ekki er tekið faglega á efasemdum og gagnrýnis- röddum úr hópi fræðimanna utan stofnunarinnar. Oft er bent á að óvissan í lífríkinu sé mun meiri en ráðgjöf stofnunarinnar gerir ráð fyrir og skekkjumörk t.d. við áætl- anir stofnstærðar eru lítið rædd. Sama má segja um vísindalegan grundvöll aflareglu ríkisstjórnar- innar. Rannsóknir á þessu sviði sem öðrum verða best stundaðar þar sem svigrúm gefst fyrir gagnrýnin efnistök og frjáls og óheft skoðana- skipti. Hér er ekki við starfsfólk Hafrannsóknastofnunar að sakast; stofnunin hefur á að skipa vel menntuðu, hæfu og samviskusömu starfs- fólki sem nýtur virðing- ar fyrir störf sín. Skipu- laginu sem það býr við er hins vegar að ýmsu leyti ábótavant. Skilvirk stefna í fiskveiðimálum hlýtur að sýna staðfestu og ábyrgð, með sjálfbæra þróun og langtíma hagsmuni þjóðarinnar í huga. En um leið verður hún að geta brugðist skjótt við mik- ilvægum tíðindum um lífríki hafsins, hvort sem um langlífa eða skammlífa stofna er að ræða. Þó að Hafrannsóknastofnun hafi lagt áherslu á aukin samskipti við sjó- menn undanfarin ár, m.a. í formi togara- og netaralls, heyrast enn háværar raddir sjómanna um að ekki sé nægilega hugað að reynslu þeirra og þekkingu. Miklu máli skiptir að haft sé náið samráð við það fólk sem dregur aflann á land vegna rannsókna, ráðgjafar og út- færslu á fiskveiðistjórnuninni. Fordæmið frá Nýfundnalandi í umræðum um stjórnun fisk- veiða ber Nýfundnaland gjarnan á góma - og ekki að ástæðulausu. Helstu nytjastofnar hafa nánast hrunið. Oft eru hins vegar dregnar afar villandi, jafnvel alrangar, ályktanir af fordæminu frá Ný- Mikilvægt er, segir Guðný Guðbjörns- dóttir, að efla rann- sóknir á lífríkinu við strendur landsins. fundnalandi. Ágúst Einarsson lét þau orð falla í áðurnefndri umræðu á Alþingi að hann væri „stundum leiður á því að búa í landi með 260 þús. fiskifræðingum... Þorsk- stofninum var útrýmt við Nýfundnaland ... m.a. vegna þess að ekki var farið að ráðlegging- um“. Kristján Ragnarsson tók í sama streng í umræðum í Ríkisút- varpinu 16. apríl. Hér er hins vegar um alvarlegan misskilning að ræða, sem mikilvægt er að leiðrétta. í athyglisverðri bók, Fishing for Truth, sem gefin er út af Memorial Háskóla á Nýfundnalandi (1994), rekur Finlayson sögu fiskveiða við Nýfundnaland. Hann bendir á að í svonefndri Kirby-skýrslu frá 1982 hafi því verið haldið fram, á grund- velli ráðlegginga kanadískra fiski- fræðinga, að þorskstofninn væri sterkur og óhætt væri að auka veið- ar (s.7). Sóknin var aukin og afli jókst fram undir 1985, en um leið kom fram vaxandi gagnrýni í hópi strandveiðimanna vegna minnkandi veiða á grunnslóð. Onnur skýrsla, Alverson-skýrslan, var þá samin og hún ítrekaði (1987) að þorskstofn- Guðný Guðbjörnsdóttir inn væri vaxandi og óhætt væri að auka sóknina (s.9). Loks (1989) urðu ráðamenn að játa að þorsk- stofninn væri hruninn og hann hefði verið stórkostlega ofmetinn. í The Sunday Express var komist svo að orði 25. febr. 1990 að „ráðherrar hefðu að ráði... vísindamanna veitt... heimild til að auka jafnt og þétt þorskaflann við strendur Nýfundnalands þar til... stjórn- völd í Ottawa áttuðu sig að lokum á því að kreppa var skollin á“. Menn greinir á um hvað valdið hafi hruni þorskstofnsins við Nýfundna- land. Hitt sýnist ljóst að ráðlegging- um fiskifræðinga um aukna sókn var fylgt í trássi við viðvaranir sjó- manna. Þó að aðstæður séu um margt öðruvísi hér (Hafrannsókna- stofnun þykir frekar varkár en hitt), er ljóst að stjórnunarlega er sam- band hafrannsókna og sjávarút- vegsráðuneytis Kanada (DFO) með sama hætti og hér tíðkast. Kvótinn, vísindin og ráðgjöfin Afstaða stórútgerðinnar í umræð- unni um þorskkvótann að und- anfömu kann m.a. að helgast af því að aukning aflaheimilda að svo stöddu hefði í för með sér verðlækk- un á aflakvótum. Hitt skiptir einnig máli, að opinber stuðningur útgerð- armanna við fískveiðiráðgjöf Haf- rannsóknastofnunar hefur verið nauðsynlegur til að festa kvótakerf- ið í sessi sem „vísindalegt" stjóm- kerfí - og um leið til að tryggja þá eignatilfærslu sem það felur í sér. Átök við fískifræðinga gætu kostað útgerðina andvirði kvótans - sem vel á minnst er í eigu þjóðarinnar - og það em ekki lítil verðmæti. Það er fróðlegt að skoða yfirlýs- ingu sjávarútvegsráðherra (DV, 14.4.) um að vísindin skuli ráða því hvort þorskkvótinn verði aukinn og ummæli forstjóra Hafrannsókna- stofnunar (Tíminn, 16.4.) þar sem hann sver af sér allan pólitískan þrýsting, í ljósi ummæla Finlayson um vandann í samskiptum ríkis- valds og rannsóknastofnana sem nátengdar eru hinu pólitíska valdi: „Fiskveiðistjórnunin öðlast viður- kenningu með því að vera nátengd visindunum, en vísindin eru ekki trúverðug nema þau séu aðskilin frá valdinu" (151). Þótt fullkomin aðgreining stjórnmála og rann- sókna sé óraunsætt markmið, eru margskonar leiðir færar til að koma i veg fyrir þær hættur sem fylgja. of nánum tengslum. Ein er sú sem gert var ráð fyrir í þingsályktunar- tillögu Kvennalistans árið 1988, en þar var lagt til að starfsemi Haf- rannsóknastofnunar yrði sett undir ráðuneyti umhverfismála. Önnur leið væri að gera stofnunina að sjálfstæðri rannsóknastofnun á vegum Háskóla íslands. Óháð staðsetningu Hafrann- sóknastofnunar í stjórnkerfinu er nauðsynlegt að breyta ráðgjafar- ferlinu að loknum rannsóknum þannig að mun fleiri aðilar komi að. Einnig má spyija hvort eðlilegt sé að færa einum ráðherra fram- kvæmdavaldsins það vald sem hann hefur til að ákveða heildaraflamark ár hvert; ráðherrann er ekki kjörinn af þjóðinni, en hann hefur fjöregg hennar alfarið í höndum sér. Mikilvægt er að efla rannsóknir á lífríkinu við strendur landsins, en um leið ber að leita að nýjum sam- starfsformum sem í senn nýti betur þá rannsóknarkrafta sem fyrir eru og bjóði upp á opinská skoðana- skipti sem stuðli að sveigjanlegri - ráðgjöf og ábyrgri fiskveiðistjórn- un. Á þetta hefur Kvennalistinn löngum lagt áherslu með hugmynd- um sínum um vísindalega ráðgjöf, samstarfsnefndir og valddreifíngu í sjávarútvegi. Höfundur situr á Alþingi fyrir Kvennalistann, er áheyrnaraðili að sjávarútvegsnefnd og situr í ^ úthafsveiðinefnd. Líkamsþjálfun er eins og góð fjárfesting: Þú eyðir orku og færð að launum enn meiri orku, segir sjúkraþjálfarinn, Guðlaug Sveinbjamardóttir, úr faghópi sjúkraþjálfara um endurhæfíngu sjúklinga með heila- ogtaugasjúkdóma. Sjúkra- þjálfarinn segir. . . Parkin- sonsveiki og líkams- þjálfan PARKINSONSVEIKI er einn þeirra langvinnu sjúkdóma sem við tengjum ellinni. Eftir 65 ára aldur fær einn af hverjum 100 mönnum sjúkdóminn og með hækkandi aldri eyksttíðnin. Það kemur þó fyrir að ungt fólk fær veikina. Þau einkenni sem flestir kannast við og tengja Parkinsonsjúkdómnum eru skjálfti í höndum, en hann er aðeins eitt margra ein- kenna og ekki það sem veldur mestum óþægindum. Algengt er að þeir sem hafa Parkinsons sjúkdóm nefni að fyrstu einkennin hafí ver- ið skjálfti í hendi, stirðleiki í öxl eða að styrkur raddarinnar hafi dvínað. Það er þó sennilega stífleiki í vöðvum ásamt því að hreyfíngar verða hægar sem veldur mestri hömlun. Stundum festast sjúklingarnir um stund í ákveðinni stöðu. Það veldur oft jafn- vægistruflun, þannig að þessu fólki er hætt við byltum. Það einkennir Parkinsonssjúkl- inga, að þeir eiga oft mun auðveldara með að ganga þar sem óslétt er utanhúss eða upp tröppur en á sléttu gólfi. Þróun sjúk- dómsins tekur oftast langan tíma og þau lyf sem eru tiltæk hjálpa til við að halda einkennunum í skefjum. Við langvarandi notkun Parkinsonslyfja geta þó komið fram ýmis óæskileg einkenni eins og miklar ósjálfráðar hreyfíngar sem geta valdið sjúklingum erfiðleikum í daglegu lífi. Þess vegna er mjög mikilvægt að fylgst sé vel með að lyfjagjöf sé hæfileg. Því meira sem maður reynir, þeim mun meira getur maður gert Einkenni veikinnar koma fram í versn- andi hreyfifærni og við athafnir sem við framkvæmum venjulega án þess að hugsa um þær, eins og að ganga, snúa sér í rúmi, klæða sig, þvo sér og matast verða með tímanum oft fyrirhafnarmiklar athafnir og ganga hægt fyrir sig. Því er mikil hætta á að virkni þeirra sem fá sjúkdóminn minnki og það stuðlar að því að hreyfifærni hrakar hraðar en ella. Samúðarfullir ættingjar og vinir eru einnig oft fljótir að koma til aðstoð- ar svo Parkinsonsjúklingurinn þurfi sem minnst að hafa fyrir lífinu, en um leið er stuðlað að því að auka fötlun og hjálpar- leysi. Það er ákaflega mikilvægt að gæta þess að vera virkur og halda áfram að gera hlutina þótt þeir taki lengri tíma og kosti meiri fyrirhöfn en fyrr. Vöðvastífleikinn veldur því oft að líkams- staðan verður hokin og hreyfíferlar tak- markaðir. Hætta er á því að hryggurinn stífni og axlir og ýmis önnur liðamót stirðni. Það er mikilvægara fyrir Parkinsonsjúkl- inga en flesta aðra að hreyfa sig mikið og afla sér góðrar þekkingar á hvað þeir þurfa að gera til að viðhalda hreyfígetu sinni. Oft má sjá ótrúlega góðan árangur af góð- um og markvissum æfíngum hjá Parkin- sonssjúklingum. Það er aldrei of seint að byija að hreyfa sig. Parkinsonsveiki veldur fólki oft erfiðri fötlun. Margir eiga þó langa, starfsama og gefandi ævi eftir að sjúkdóm- urinn hefur verið greindur. Með því að vera virkur í daglegu lífi, hreyfa sig eins og tök eru á og stunda markvissa þjálfun, sem vinnur gegn þeirri hreyfískerðingu sem er oftast fylgifiskur veikinnar, geta sjúklingar aukið lífsgæði sín og verið sjálfbjarga leng- ur en ella. Höfundur er sjúkraþjálfari þjá Styrktarfé- higi lamaðra og fatlaðra.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.