Morgunblaðið - 20.04.1996, Qupperneq 38
38 LAUGARDAGUR 20. APRÍL 1996
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
+ Helgi Steinarr
Kjartansson
fæddist á Akureyri
25. júlí ;973. Hann
lést á ísafirði 12.
apríl síðastliðinn.
Helgi var sonur
Kjartans Júlíus-
sonar, f. 6.7. 1950,
d. 12.1. 1984, og
Gunnhildar Elías-
dóttur, f. 5.6. 1948.
Hann átti eina
systur, Katrínu, f.
11.3. 1977.
Eftir grunn-
skólaporóf fór
Helgi á Bændaskólann á Hvan-
neyri og lauk þaðan prófi árið
1991. Hann fór síðar í fram-
haldsnám til Danmerkur.
Helgi var virkur félagi í skáta-
félagi og björgunarsveit á
ísafirði.
Útför Helga fer fram frá
Isafjarðarkirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 14.
Sennilega vorum við Helgi Stein-
' arr á fjórða ári er við kynntumst.
Hann varð vinur minn, bekkjar-
bróðir og skátafélagi. Foreidrar okk-
ar unnu náið saman í skátafélögun-
um Einheijum og Valkyrjunni á
ísafirði og vegna samgangs fjöl-
skyldnanna, vorum við orðnir bestu
mátar áður en við settumst á skóla-
bekk. Við sátum hlið við hiið í bekkn-
um til sextán ára aldurs, en þá skildi
leiðir. Helgi fór á Bændaskólann á
Hvanneyri og síðan til Danmerkur
í framhaldsnám, en ég í mennta-
*.skóla. Þegar Helgi kom aftur að
utan var hann búmannslegri en
nokkurn tímann, hann var ánægður
og hugði á frekara nám erlendis síð-
ar. Ég á margar skemmtilegar minn-
ingar um samverustundir okkar
Helga í skóla- og skátastarfinu.
Hann var driffjöðrin í útilegum á
unglingsárunum og hjálparsveitin
naut krafta hans í ríkum mæli. Mér
er sérstaklega minnisstæð fyrsta
útilegan semr við ætluðum í, en þá
vorum við sjö ára. Við ætluðum {
tjaldútilegu inn í Tunguskóg í
marga, marga daga, a.m.k. í eina
nótt! Ákvörðunin var tekin snemma
vetrar og brottför áætluð um miðjan
júlí. Helga fannst við hæfi að undir-
búningurinn tæki um hálft ár. Við
hlupum upp í Mjallargötu og hóf-
umst handa við að skrifa lista yfir
það sem taka ætti í ferðina. Listinn
varð langur, á honum var allt frá
saumnál og vasaljósi, upp í tjald og
svefnpoka. Helgi var harðákveðinn
í að gera ferðaáætlunina sem ná-
kvæmasta og auk þess að skrifa
dagskrá hvers dags, giskuðum við á
hvað ferðin myndi kosta og skrifuð-
um það á aukablað. Ég áttaði mig
á því mörgum árum síðar að þetta
var í fyrsta og líklega eina skiptið,
enn sem komið er, sem ég hef form-
lega samið fjárhagsáætlun.
Við höfðum hljótt um undirbún-
inginn, Helgi talaði um að við skyld-
um sýna öllum (þ.e. foreldrum okk-
ar) að við gætum skipulagt þetta
sjálfir. Spenningurinn var mikill og
allan veturinn ræddum við þau ævin-
týri sem biðu okkar í sumarútileg-
unni. En svo þegar átti að láta til
skarar skríða, kom í ljós að foreldrar
okkar voru alls ekki hrifnir af því
að við færum einir okkar liðs í viku-
útilegu inn í Skóg! Þetta varð okkur
hið mesta áfall og neyddumst við til
að fresta ferðinni um a.m.k. eitt ár.
Þrátt fyrir að við færum saman
í fjölmargar útilegur síðar, sem og
á skátamót, var skógarferðin góða
aldrei farin. En ferðaáætlunina á ég
enn og hún er ein af mínum dýrmæt-
ustu minningum um Helga Steinarr.
Inni í mér varð myrkur og tóma-
rúm þegar mér bárust fréttimar að
Helgi Steinarr væri látinn. Reynsla
fjölskyldunnar er erfið, faðir Helga,
Kjartan Júlíusson, lést úr sama sjúk-
dómi fyrir tólf árum. Ljóst var að
Helgi bar einnig sjúkdóminn en samt
var aldrei bilbug á hon-
,um að finna, hann ark-
aði gegnum lífið og
naut þess með fjöl-
skyldu sinni og vinum.
Á öðrum degi eftir and-
lát Helga var þó sem
einhverskonar fargi
væri af mér létt. Eg
áttaði mig allt í einu á
því að úr því sem kom-
ið var, var þetta það
sem Helgi hefði kosið.
Hann leið miklar kvalir
og hefði ekki valið að
lifa lífinu tengdur við
tól og tæki. Það er sárt
að hann skuli kveðja
svo ungur, hann átti svo margt
ógert. Allir dást að styrk þeirra
mæðgna, Katrínar og Gunnhildar.
Meira er vart hægt að leggja á tvær
manneskjur. Ég veit líka að harmur
Haraldar frænda hans og annarra
ástvina er sár. Hugur minn er hjá
þeim öllum. Helgi minn, með þökk
kveð ég þig að sinni og hver veit
nema við eigum eftir að fara í Skóg-
arútileguna okkar á öðru tilverustigi.
Svo er því farið:
Sá er eftir lifir
deyr þeim sem deyr
en hinn dáni lifir
í hjarta og minni
manna er hans sakna.
Þeir eru himnamir
honum yfir.
(Hannes Pétursson.)
Þinn vinur,
Hermann Þór.
Tendraðu lítið skátaljós
láttu það lýsa þér,
láttu það efla andans eld
og allt sem göfugt er.
Þá verður litla ljósið þitt
ljómandi stjama skær,
lýsir lýs, alla tíð
nær og Qær.
(Hrefna Tynes.)
Skátaljósið hans Helga Steinarrs
mun lýsa við minninguna um hann
og við hlið þess ljómar annað skáta-
ljós og varðveitir minninguna um
föður hans, Kjartan Júlíusson, sem
kvaddi okkur fyrir 12 árum.
Hann skartaði sínu fegursta fjörð-
urinn okkar föstudaginn 12. apríl
síðastliðinn. Heiðskír himinn, glamp-
andi sól og Pollurinn spegilsléttur.
Ljúfur fuglasöngur boðaði okkur
vorkomu. Þennan morgun lauk erf-
iðu veikindastríði ungs manns,
Helga Steinarrs Kjartanssonar, og
fegurð og friður náttúrunnar auð-
veldaði manni á einhvern hátt að
skynja, að nú hefði hann öðlazt frið
og væri orðinn hluti af „Guði í al-
heims geimi, Guði í sjálfum sér“.
Minningarnar hrannast upp,
minning um lítinn dreng, kappsfull-
an og ákafan, sem alltaf þurfti að
hafa nóg fyrir stafni. Ótal stundir
saman í skátahópi, þar sem börn og
fullorðnir voru þátttakendur í leik
og starfi.
Minningar um unga piltinn sem
undi sér svo vel í sveitinni í Vatns-
dalnum og var harðákveðinn í því
að verða bóndi. Leiðin lá í bænda-
skólann á Hvanneyri, síðar til fram-
haldsnáms í Danmörku og hugurinn
stefndi lengra. Þá tók lífið aðra
stefnu og af heilsufarsástæðum
breyttust framtíðaráformin.
Enginn veit um þá baráttu sem
Helgi Steinarr þurfti að heyja innra
með sér við þessa stefnubreytingu,
en víst er að hann ætlaði ekki að
gefast upp. Hann gerðist starfsmað-
ur Pósts og síma á ísafirði og þar
eins og annars staðar kappkostaði
hann að leysa störf sín vel af hendi
og varð hvers manns hugljúfi.
Áhugamáli sínu, starfmu í Hjálpar-
sveit skáta á ísafirði og í skátafélag-
inu sinnti hann af lífi og sái þó ekki
gæti hann sem fyrr verið uppi um
fjöll og firnindi. Er hörmungarnar
dundu yfir í Súðavík á síðasta ári,
vék Helgi Steinarr ekki af vaktinni
í stjórnstöð Hjálparsveitarinnar á
ísafirði þó enginn efaðist um að
hann hefði heldur viljað vera með
féiögum sínum á vettvangi við hjálp-
arstörfin.
Stórt áhugamál varð líka tölvan
hans og allur sá töfraheimur er þar
birtist. Náði hann góðu valdi á þeirri
tækni og nutu ættingjar og vinir oft
góðs af.
Helgi Steinarr stóð ekki einn í
erfiðleikum sínum. Fjölskyldan stóð
saman og reyndi á alla lund að
gera honum lífið auðveldara, amma
Katrín, Haraldur föðurbróðir hans
og allir hinir ástvinirnir vöktu yfir
honum. Mestu og bestu stoðina átti
hann í mömmu sinni, henni Gunn-
hildi og i Katrínu systur sinni, þau
þijú hafa verið einstaklega sam-
rýnd.
Á kveðjustundinni vottum við
þeim og ástvinum öllum innilega
samúð og biðjum þann sem öllu
ræður að veita þeim styrk og frið.
Fjölskyldan í Silfurgötunni,
„svannakerlurnar" og samstarfs-
fólkið hjá Pósti og síma þakka
Helga Steinarri ljúfa samfylgd.
Minningin um góðan dreng mun
lifa.
Auður og Snorri.
Nú ert þú, elsku frændi, búinn
að fá þína hinstu hvíld eftir erfið
veikindi. Það er erfitt að sætta sig
við það að þú ert ekki lengur hérna
hjá okkur. Það var sama hvar þú
varst, þú varst alltaf hrókur alls
fagnaðar. Við minnumst þín sem
stóra frænda sem alltaf var svo já-
kvæður og hress og kunnir svör við
flestum okkar vandamálum. Við
munum alltaf muna þegar þú komst
á Skagann á haustin, eftir sumar-
langa dvöl á Hnjúki þar sem þú
eyddir mörgum sumrum í góðu yfir-
læti. Þá gátum við öll setið klukku-
stundum saman og hlustað á þig
segja frá ýmsum atvikum úr sveit-
inni, á þinn einstaka og skemmti-
lega hátt.
Þær voru ótal margar ánægju-
stundirnar sem við frændsystkinin
áttum saman og uppátækin voru
oft ótrúleg þegar við hittumst. Þar
áttir þú oftast stærstan þátt í að
gera þau skemmtileg, enda varst
þú leiðtoginn í hópnum og sá sem
allir litu upp til.
Nú er stórt skarð komið í litiu
fjölskylduna okkar en þó við sökn-
um þín sárt, elsku frændi, huggum
við okkur við það að vita að tekið
verður vel á móti þér í Guðs ríki.
Guð geymi þig, elsku Helgi Stein-
arr, og gefi mömmu þinni og systur
styrk hér eftir sem hingað til.
Þín frændsystkini,
Sigríður Ásta, Eyrún
og Elías Jón.
Okkur langar með fáeinum orð-
um að kveðja fjölskylduvin okkar,
Helga Steinarr. Sjúkdómur, sem
greinst hefur í nokkrum ættum á
Islandi, hefur nú Iagt að velli ungan
og tápmikinn mann, tuttugu og
tveggja ára gamlan. Faðir hans lést
úr sama sjúkdómi fyrir tólf árum á
besta aldri. Læknavísindi og tækni
nútímans eru ráðþrota gagnvart
sjúkdóminum en rannsóknum miðar
áfram. „Heilavernd", félag stofnað
af aðstandendum þeirra sem sýkst
hafa, styrkja rannsóknirnar fjár-
hagslega.
Við kynntumst foreldrum Helga
Steinarrs fyrir tuttugu árum og
eftir því sem börnin úr báðum fjöl-
skyldum uxu úr grasi efldist vinátt-
an. Tilfinningar bærast sem erfitt
er að koma í orð en minningarnar
ylja. Barnaafmælin, heimboðin, úti-
legurnar, laufabrauðsbaksturinn
o.fl. o.fl. Eiginleikar Helga Stein-
arrs komu fram í öllu sem hann
aðhafðist. Hann var vinur vina
sinna, hress, iðinn, ákafur, hjálpleg-
ur en alltaf stutt í grallaraskapinn.
Kínverskt spakmæli segir:
„Fylgdu vini þúsund mílna leið, en
á endanum þarftu þó að kveðja.“
Elsku Gunnhildur og Katrín,
margar minningar lifa um góðan
dreng. Guð styrki ykkur, ömmurnar
og aðra vandamenn.
Legg þú á djúpið, þú, sem enn ert ungur,
og æðrast ei, þótt straumur lífs sé þungur,
en set þér snemma háleitt mark og mið,
hef Guðs orð fyrir leiðarstein í stafni
og stýrðu síðan beint í Jesú nafni
á himins hlið.
(Matth. Jochumsson.)
Bryndís og Guðmundur.
Nú þegar við kveðjum Helga
Steinarr reikar hugurinn til Dan-
merkur. Helgi Steinarr kom 6 mán-
aða með Gunnhildi til Árósa þar sem
Kjartan var við nám í Tækniskólan-
um á árunum 1973 til 1975. Á þess-
um árum tengdumst við vináttu-
böndum sem haldist hafa æ síðan.
Margar ljúfar minningar eigum við
frá þeim tíma.
Aðeins 10 ára gamall missti Helgi
Steinarr pabba sinn. Hann var þá
mömmu sinni og systur mikill styrk-
ur. Hann varð „húsbóndinn" á heim-
ilinu og leysti það verkefni vel af
hendi.
Fyrir tveimur árum fór fyrst að
bera á veikindum Helga Steinarrs.
Hann tók því með ótrúlegu æðru-
leysi. Uppgjöf var ekki til í hans
huga. Alla tíð var hann staðráðinn
í því að hafa betur. Þrátt fyrir mót-
lætið gerði hann að gamni sínu og
oft var stutt í stríðnina.
Það var alltaf jafn gaman að fá
Helga Steinarr í heimsókn þegar
hann átti leið um Kópavoginn. Fyrir
þær og aðrar ánægjustundir erum
við þakklát. Minningin um góðan
dreng er huggun í sorginni.
Við vottum Gunnhildi og Katrínu,
báðum ömmum og öðrum aðstand-
endum innilega samúð.
Sigurður og Kristín
í Kópavogi.
Það var failegur vordagur, 11.
maí 1991. Þá útskrifuðust 29 bú-
fræðingar frá bændadeild Bænda-
skólans á Hvanneyri eftir skemmti-
lega námsdvöl, sem við munum allt-
af geyma í huga okkar. Helgi Stein-
arr var einn af búfræðingunum og
er einn þeirra nemenda sem standa
upp úr í minningunni frá árunum á
Hvanneyri. Hann var hress, traust-
ur, góður námsmaður og hafði húm-
orinn í lagi. Það var alltaf hægt að
leita til Helga ef eitthvað bjátaði á,
sérstaklega þegar um tölvur var að
ræða en hann var snillingurinn á
heimavistinni í þeim málum. Einnig
fékk hann það vandasama hlutverk
að vera sjoppustjóri en hann leysti
það verkefni vel úr hendi því sjoppan
skilaði góðum hagnaði í skólalok.
Heigi Steinarr átti það til að taka
hressilega í nefið enda stundaði ann-
ar hver maður þessa iðju í skólanum
á þessum tíma. Einnig hafði hann
gaman af söng og tók virkan þátt
í öllu félagslífi. Það er sárt að þurfa
að sjá eftir ungum manni sem átti
framtíðina fyrir sér en Helgi Stein-
arr var búinn að glíma við erfið veik-
indi. Við trúum því að Helga líði vel
í dag og við munum alltaf minnast
hans sem góðs drengs þegar við
skólafélagarnir eigum eftir að hitt-
ast og rifja upp skólaárin á Hvann-
eyri. Fjölskyldu Helga Steinarrs
vottum við okkar dýpstu samúð og
biðjum góðan guð að styrkja þau í
þessari miklu sorg.
Búfræðingar frá
Bændaskólanum á
Hvanneyri vorið 1991.
Ég vil með orðum þessum minn-
ast kærs æskuvinar míns, Helga
Steinarrs, sem lést eftir harða bar-
áttu við erfiðan sjúkdóm. Við kynnt-
umst fyrst sem smástrákar á
ísafirði. Ég bjó í Pólgötunni er Helgi
flutti ásamt fjölskyldu sinni í Mjall-
argötuna, næstu götu við mig og
tókst með okkur strax mjög góður
vinskapur. Er við byijuðum í skóla
lentum við í sama bekk og vorum
bekkjarbræður þar til í síðasta bekk
í Gaggó.
Á æskuárunum gerðum við okkur
margt til skemmtunar og er mér
eftirminnilegast litli kofinn sem
pabbi hans smíðaði fyrir hann bak
við hús og var okkar aðal athvarf
fyrir hin ýmsu uppátæki.
Pabbi Helga var mikill skáti og
fylgdi Helgi í fótspor hans i skáta-
hreyfinguna og fylgdi ég á eftir. Þar
vorum við nokkur ár saman í skáta-
flokki og var Helgi fljótt mikill
HELGISTEINARR
KJARTANSSON
ábyrgðarmaður í flokknum okkar,
Björnunum.
Er ég var átta ára gamall flutti
ég ásamt fjölskyldu minni inn í fjörð
og var þá orðið ansi langt á milli
okkar. Skömmu síðar flutti Helgi
og hans fjölskylda einnig inn í fjörð
og svo skemmtilega vildi til að þau
fluttu á ný í næstu götu við okkur.
Þá vorum við komnir inn í sveit því
húsin okkar stóðu við Góustaðatún-
ið, þar sem Siggi Sveins var með
kindurnar sínar. Þar má segja að
Helgi hafi komist í návist við það
sem síðar meir var honum mjög
kært, sveitina og dýrin. Á hveiju
sumri og hausti vorum við mættir
galvaskir að hjálpa Sigga Sveins við
sauðburð, heyskap og göngur. Þar
mátti glöggt sjá hversu mikill áhuga-
maður Helgi var um sveitina því
hann lagði sig allan fram í þetta
sjálfboðaliðastarf svo aðdáunarvert
var.
Mér er mjög eftirminnilegur dag-
ur einn í janúar ’84. Við vorum þá
tíu ára gamlir að leik heima hjá
frænku hans. Þá var mér skyndilega
sagt að ég yrði að fara heim og
vorum við báðir mjög ósáttir við það
en mér var svo sagt að pabbi hans
væri dáinn. Það hefur eflaust verið
þung raun fyrir svo ungan dreng
að missa föður sinn svo snemma.
Hvern hefði þá grunað að „maðurinn
með ljáinn" mundi knýja á dyr svo
fljótt aftur hjá sömu fjölskyldunni
eins og raunin er í dag.
Helgi var mjög þroskaður ein-
staklingur og snemma fullorðinn,
eiginlega mjög stutt táningur. Hann
var mjög duglegur, ósérhlífínn og
hjálpsamur. Besta dæmið um það
er að foreldrar mínir voru með kart-
öflugarð og í hvert sinn sem þau
byijuðu að taka upp var Helgi mætt-
ur, uppfullur af orku og byijaði óbeð-
inn að taka upp. Hann var óstöðv-
andi og hætti helst ekki fyrr en
hver einasta kartafla var komin úr
jörðu. Þá stóð hann upp sæll og
sveittur og ljómaði af gleði yfir að
hafa fengið að nota orku sína í að
hjálpa til.
Eftir að við lukum gaggó fór
Helgi í Bændaskólann og síðar meir
til Danmerkur og dvaldi þar um
tíma. Fundum okkar bar síðast sam-
an síðasta sumar. Þá hittumst við
hressir og kátir hjá vini okkar og
var það mjög ánægjuleg stund. Mig
óraði ekki fyrir því þá að það yrði
okkar síðasti samfundur. Ég fékk
svo þær fréttir að Helgi væri orðinn
mjög veikur á ný.
Elsku mæðgur, Gunnhildur og
Katrín. Megi Guð gefa ykkur styrk
til að standast mótlætið sem á ykkur
hefur dunið.
Kæri vinur, ég og fjölskylda mín
kveðjum þig nú með þessum orðum
og geymum minninguna um þig eins
og þú varst áður, fullur af orku og
fjöri. Ég treysti mér ekki til að koma
til þín því ég þorði ekki að horfast
í augu við sársaukafullar staðreynd-
ir lífsins. Þú varst mér ávallt sannur
vinur.
Þinn vinur,
Sigþór Sig.
Að morgni 12. apríl barst okkur
sú harmafregn að félagi okkar Helgi
Steinarr væri látinn. Að lokum varð
hann að láta undan síga eftir mikla
baráttu við erfiðan sjúkdóm. Það er
sárt til þess að hugsa að eiga ekki
eftir að hitta þennan glaðværa dreng
í húsi okkar á Hjallaveginum fram-
ar, því þær voru svo margar góðu
stundirnar sem við áttum þar saman.
Þegar Helgi Steinarr lauk drótt-
skátastarfi í skátafélaginu Einheij-
ar-Valkyijan, gekk hann til liðs við
Hjálparsveit skáta, ísafirði. Féll
hann strax vel inn í hópinn, og allt
það sem hann tók að sér fyrir sveit-
ina leysti hann vel af hendi. Við
minnumst þín sem góðs félaga og
gleðjumst í huga okkar er við lítum
til baka til þeirra stunda er við áttum
saman. Við viljum votta aðstandend-
um Helga Steinarrs okkar dýpstu
samúð og megi Guð styrkja ykkur í
sorginni.
Félagar í Hjálparsveit skáta,
Isafirði.
Nú er horfinn okkur sjónum góð-
ur vinur og félagi, Helgi Steinarr. Á