Morgunblaðið - 21.04.1996, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 21.04.1996, Qupperneq 10
10 B SUNNUDAGUR 21. APRÍL 1996 MORGUNBLAÐIÐ KVIKMYNDIR Hvemig hefur adsóknin verid síöustu tíu árin? Aðsókrt í áratug ALLS sóttu 1.208.812 mar.RS kvikmyndahúsin í Reykja- vík á síðasta ári samkvæmt óbirtum tölum Hagstofu Is- lands og er það nokkur fækkun frá árinu 1994 þegar 1.242.009 manns sóttu bíóin. Aðsóknin hefur farið minnk- andi frá árinu 1991 þegar kvikmyndahúsin seldu 1.337.158 miða en fram að þeim tíma hafði hún aukist jafnt og þétt frá lakasta aðsóknarárinu á síðustu tíu árum, 1988, þegar aðeins seldust 1.094.185 miðar. Bíóaðsókn í Reykjavík, 1985-95 1,4 milljónir bíógesta - 1.418.000 1.337.000 1.208.000 1.094.000 Hver íslendingur fór 4,6 sinnum í bíó í Reykjavík 1995 1,0 '85 '86 '87 '88 '89 '90 '91 '92 '93 '94 '95 Frumsýndar kvikmyndir, 1985-95 '85 ’i i.....t....t.....t- '87 '88 '89 '90 '91 '92 '93 '94 '95 Ef litið er á heildarað- sóknina í Reykjavík frá 1985 til 1995 sést að hún náði hámarki aftur árið 1991 eftir metárið 1985 en hefur dal- að síðan og er enn á niðurleið. Árið 1985 sóttu 1.418.158 manns bíóin. Síðan minnk- aði aðsóknin jafnt og þétt. Árið 1986 var talan strax komin niður í rúm 1.276.000, enn minnkaði hún 1987 í rúm 1.257.000 og botninum var náð árið 1988 þegar aðeins tæpir 1.100.000 miðar seldust. Eftir það tók Eyjólfur að hressast nokkuð og aðsókn- in jókst um tæp 250.000 manns fram til ársins 1991. Síðan þá hefur hún minnk- að aftur og er enn að minnka samkvæmt nýjustu tölum Hagstofunnar. Seld- um miðum fækkaði um rúm 100.000 á milli áranna 1991 og 1993 þegar rúm 1.236.000 fóru í bíó í Reykjavík. Árið 1994 jókst aðsóknin aftur lítillega í 1.242.009 eins og áður sagði en í fyrra lækkaði hún aftur niður í 1.208.812 miða. Nokkur fylgni er á milli flölda frumsýndra bíómynda og aðsóknar. Metárið 1985 voru frumsýndar 234 bíó- myndir í Reykjavík. Botnár- ið 1988 voru frumsýndar 188 bíómyndir. Þegar frum- sýningum fjölgaði aftur jókst aðsóknin að vissu marki að því undanteknu að árið 1989 voru aðeins 157 myndir frumsýndar en aðsóknin jókst verulega frá árinu á undan. Árið 1995 fækkaði frumsýningum nið- ur í 189 myndir og aðsóknin minnkaði frá árinu á undan og hefur ekki verið minni síðan 1989. Þegar litið er yfir tölur Hagstofunnar yfir kvik- myndasýningar árið 1995 kemur í ljós að líkt og endranær sáu kvikmynda- húsagestir mestmegnis bandarískar bíómyndir. Af þeim 189 myndum sem frumsýndar voru komu 140 þeirra frá Hollywood eða um 73 prósent. Það þýðir að rúmlega fjórðungur myndanna kom frá öðrum löndum, sem vekur nokkra athygli. Virðist sem hlutfall þeirra sé að aukast. Næst- mestur fjöldi kom frá Bret- landi eða 15 talsins og 11 myndir komu frá Frakk- landi. Sjálfir áttum við ís- lendingar fjórða mestan fjölda mynda, sem er tals- vert nýmæli, en alls voru frumsýndar sjö íslenskar bíómyndir í fullri lengd á síðasta ári. Danir áttu þijár myndir, Ástralir, Kínveijar og Norðmenn tvær hver og ein kom frá eftirtöldum löndum: Ítalíu, Þýskalandi, Kúbu, Makedóníu, Nýja- Sjálandi, Spáni og Tævan. Alls voru kvikmyndasýn- ingar í viku hverri að með- altali 665 talsins í 23 sýn- ingarsölum þar sem sæta- úrvalið nemur hvorki fleiri né færri en 5.841 sæti. eftir Arnald Indriðoson 5 ára afmæli Stutt- mynda- daga Kvikmyndahátíð- IN Stuttmyndadag- ar í Reykjavík verður haldin dagana 21. til 23. maí en nú eru fimm ár liðin frá því blásið var til fyrstu Stuttmyndadag- anna. Á undangengnum hátíðum hafa verið sýndar samtals 160 stuttmyndir, haldnir hafa verið um 40 fyrirlestrar um kvik- myndagerð og níu myndir verið verðlaun- aðar að sögn Jó- hanns Sigmars- sonar, eins af upphafs- mönnum Stutt- ENN mynda- Stutt- daga. mynda- Ekki dagar; Jó- hefur ver- hann Sigm- ið ákveðið arsson. hvar dag- arnir verða haldnir í ár en ósk- að er eftir stuttmyndum af öllum stærðum og gerð- um til þátttöku í keppni um fimm bestu stuttmynd- irnar en verðlaun verða veitt fyrir 1., 2. og 3. sæt- ið. Sem fyrr verða haldnir fyrirlestrar um kvik- myndagerð og skyld mál á Stuttmyndadögum í ár. Tekið er á móti mynd- um á VHS-myndbandi hjá Kvikmyndafélagi íslands, Bankastræti 11. Síðasti skiladagur er 5. maí og er öllum heimil þátttaka. LEITIN aö Ríkharöi III; A1 Pacino í konungsklæðum. Pacino leitar Ríkhards BANDARÍSKI leikarinn A1 Pacino gegnir mörgum hlutverkum í nýrri mynd sem hann vinnur að og heitir Leitin að Ríkharði eða „Looking for Richard". Hann fer með aðalhlutverk- ið, skri.far handritið, fram- leiðir og síðast en ekki síst leikstýrir myndinni. Hún segir af leikhópi sem ætlar að kvikmynda verk Shakespears um Ríkharð III. Leikararnir takast á við persónur þess og erfiðleik- ana sem felast í því að færa leikrit í kvikmyndabúning en myndin er með gaman- sömum tón og gerist í New York og á fæðingarstað skáldsins mikla. Með önnur hlutverk fara Alec Baldwin, Winona Ryder og Kevin Spacey, sem nýverið hreppti Óskarinn fyrir best- an leik í aukahlutverki. Pacino átti sjálfur hug- myndina að Leitinni að Rík- harði. Hann hefur ekki áður staðið í sporum kvikmynda- höfundar og bætist nú í hóp kollega eins og Kevin Costners, Jodie Fosters og Mel Gibsons. SÝND á næstunni; White Squall með Jeff Bridges í leikstjórn Ridley Scott 34.000 á Höfuðsyndirnar Alls höfðu um 34.000 manns séð spennu- myndina Höfuðsyndirnar sjö í Laugarásbíó eftir síð- ustu sýningarhelgi. Þá höfðu 10.500 séð Náið þeim stutta, 4000 Vinkonur og 2.500 Nixon. Næstu myndir Laugarás- bíós eru m.a. „Bed of Ro- ses“ með Christian Slater, „Sudden Death“ með Jean- Claude van Damme og „Nick of Time“ með Johnny Depp. Aðrar myndir væntanleg- ar í Laugarásbíó eru „Up Close and Personal". með Michelle Pfeiffer og Robert Redford, „White Squall" með Jeff Bridges í leikstjórn Ridley Scott og „The Thin Line Between Ixive and Hate“. í BÍÓ Nokkurt hlé verður nú á frumsýningum á ís- lenskum bíómyndum eftir metár en ails voru frumsýnd- ar átta íslenskar myndir á einu heilu ári, frá Á köldum klaka til Draumadísa. Næstu myndir verða væntanlega til- búnar í haust en það eru Blossi eftir Júlíus Kemp og Djöflaeyjan eftir Friðrik Þór Friðriksson. Þannig getur ís- lensk kvikmyndagerð af sér mjög svo misjafnlega margar myndir á ári. En íslenskar myndir eru einnig frumsýndar erlendis og er ánægjulegt að sjá hversu vel A köldum klaka hefur verið tekið í Bandaríkj- unum sem fyrstu íslensku myndinni er hlýtur bíódreif- ingu þar í landi. Virðast gagn- rýnendur heillast af vetrar- landslaginu í myndatöku Ara Kristinssonar jafnt sem yrkis- efni og efnistökum Friðriks Þórs. Góð landkynning það og ekki síður góð kynning á íslenskri kvikmyndagerð. MÞað virðist ekki fara Arnold Schwarzeneg- ger sérlega vel að leika í jólamyndum eða hver minnist ekki „Junior“ með hryllingi? Hann gefst þó ekki upp frekar en í sumarmyndunum sínum og leikúr á næst- unni í jólamyndinni „Jingle All the Way“ sem Brian Levant leik- stýrir, sá sami og gerði Steinaldarmennina. Cliris CoIumbuSj jóla- myndamaður af guðs náð, er framleiðandi en myndin segir af föður sem vanrækt hefur son sinn og lofar að gefa honum það í jólagjöf sem hann mest langar í. ■S/dasta mynd Warren Beattys, „Love Affair“, vegnaði sérlega illa í miðasölunni og náði ekki í bíóin hér. Næsta mynd hans verður að líkindum „Tribulations“ sem hann framleiðir, skrifar og fer með aðalhlutverkið í. Hún er um mann sem leiðist svo lífíð að hann biður vin sinn að sjá um að honum verði kálað svo lítið beri á. Vinurinn hef- ur samband við leigu- morðingja en þá er Be- atty orðinn ástfanginn upp fyrir haus, hefur fengið nýja trú á lífíð og allt er í blóma. Nema morðinginn verður ekki stöðvaður. MDisney er ekki eina fyr- irtækið sem framleiðir teiknimyndir. Teikni- myndahöfundurinn Don Bluth og leikarinn Gary Oldman framleiða saman og leikstýra nýrri teikni- mynd í fullri lengd sem heitir Anastasia. Með helstu raddimar fara Meg Ryan, Angela Lans- bury, John Cusack, Martin Short og Kelsey Grammer úr Frasier. MEin besta myndin í kvikmyndahúsunum núna er Á förum frá Vegas með Nicholas Cage og Elisabeth Shue, sem á það til að stela frá honum senunni. Shue leikureitt aðalhlut- verkið í nýrri mynd frá Ambiin Entertainment sem heitir „The Trigger Effect" og David Ko- epp stýrir. Kyle MacLachlan leikur eig- inmann hennar og Der- mot Mulroney vin þeirra, en kvöld eitt fer rafmagnið af í smábæn- um þeirra og sími og sjónvarp dettur einnig út. MEin af myndunum sem Jim Carrey mun leika í á næstunni heitir Lyg- ari, lygari og verður hún tilbúin um jólaleytið. Car- rey leikur föður sem neyðist til að segja sann- leikann í heilan sólar- hring þegar ósk sonar hans verður á dularfullan hátt að veruleika. MLangt er síðan Debbie Reynolds sást síðast á hvíta tjaldinu en Albert Brooks hefur nú fengið hana til að ieika á móti sér í nýjustu gamanmynd hans. Hún heitir Móðir. Rob Morrow leikur einn- ig í myndinni sem segir af harðfullorðnum manni sem flytur aftur heim til möminu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.