Morgunblaðið - 21.04.1996, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 21.04.1996, Blaðsíða 18
18 B SUNNUDAGUR 21. APRÍL 1996 MORGUNBLAÐIÐ ATVINN MMAUGL YSINGAR Hönnuður Hönnunarstofa úti á landi óskar eftir grafísk- um hönnuði, arkitekt eða landslagsarkitekt sem unnið hefur á tölvu við hönnun. Þekking á AutoCad, Corel Draw eða sambærilegum teikniforritum æskileg en þó ekki nauðsyn- leg. Mikil vinna framundan. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Öllum umsóknum svarað. Þeir sem hafa áhuga, vinsamlegast sendi inn umsókn á afgreiðslu Mbl. fyrir 25. apríl 1996 merkt: „Hönnun 2000“. Sölumaður Spor hf. óskar að ráða sölumann. Fyrirtækið er hljómplötuútgáfa sem selur bæði í heild- sölu og smásölu. Leitað er að starfsmanni með frumkvæði, góða framkomu og mikinn metnað. Reynsla og/eða þekking á þessu sviði er skilyrði. Umsóknum með helstu upplýsingum um ald- ur, menntun og fyrri störf skal skila til Spors hf., Nýbýlavegi 4, Kópavogi fyrir 27. apríl 1996. ' Upplýsingar um starfið eru ekki veittar ísíma. Ráðningarþjónustan auglýsir eftir: Tækniteiknara - ritara Fyrirtækið: Tæknideild Mosfellsbæjar. Starfið: Tækniteiknun, ritvinnsla, skjala- varsla og varsla teikninga ásamt aðstoð við embætti byggingafulltrúa. Kröfur: Framtíðarstarf fyrir framsækinn og sjálfstæðan starfskraft sem hefur haldgóða menntun og reynslu við störf tengd tækni- teiknun. Um hálfs dags starf er að ræða. Upplýsingar: Umsóknablöð og frekari upp- lýsingar fást hjá Ráðningarþjónustunni. Umsóknarfrestur er til 26. apríl. RÁÐNINGARÞJÓNUSTAN Jón Baldvlnsson, Háaleitisbraut 58-60 Sími 588 3309. fax 588 3659 Sölumaður BOSCH - TRIDON Sölumaður óskast til að selja BOSCH - bíla- hluti, BOSCH - rafmagnshandverkfæri og TRIDON bílavarahluti. Um er að ræða sölu- starf með heimsóknum og sölu af skrifstofu til umboðsmanna, bifreiðaverkstæða og ann- arra viðskiptamanna. Leitað er að duglegum, sjálfstæðum og samviskusömum manni sem skipuleggur starf sitt vel. Þarf að hafa innsýn í ofangreinda vöruflokka. BOSCH er stærsti sjálfstæði framleiðandi bílavarahluta í heiminum. TRIDON er ein- stakt dreifingarfyrirtæki sem býður vandaða bílavarahluti í flestar gerðir bíla. Bræðurnir Ormsson ehf. er öflugt fyrirtæki með fjöl- breytta starfsemi og hefur m.a. selt BOSCH bílahluti og AEG heimilistæki í áratugi. Starfsmannafjöldi er 45. Upplýsingar um starfið veitir Ásmundur Guðnason deildarstjóri í síma 553 8820 á mánudag og þriðjudag. Skriflegum umsóknum skal skilað á eyðu- blöðum sem fást í BOSCH versluninni, Lág- múla 9 eða á símaskiptiborði í Lágmúla 8, 2. hæð. Lágmúla 9 • Sími: 553 8820 • Fax: 568 8807 BOSCH verslunin, aökeyrsla frá Háaleitisbraut Lágmúla 8, Reykjavík. Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar Síðumúla 39 • Sími: 588 8500 • Bréfasími: 568 6270 Unglingadeild Á vegum Unglingadeildar Félagsmálastofn- unar Reykjavíkurborgar eru starfrækt tvö til- sjónarsambýli, þar sem tvö ungmenni búa á hvorum stað, ásamt umsjónarmanni. Ung- mennin eru á aldrinum 16-18 ára og stunda vinnu eða skóla. Umsjónarmaður, sem einn- ig býr á staðnum, ber ábyrgð á daglegu starfi þess og er til stuðnings og eftirlits þeim unglingum sem þar búa hverju sinni. Unglingadeild sér umsjónarmanni fyrir reglu- bundinni ráðgjöf og handleiðslu. Leitað er að traustum umsjónarmönnum til að starfa á þessum sambýlum. Umsækjendur þurfa að hafa reynslu og þekk- ingu af unglingamálum og vera eldri en 24 ára. Umsjónarmenn geta stundað nám með þessu starfi eða hlutavinnu. Umsóknarfresetur er til 6. maí 1996. Um- sækjendur þurfa að geta hafið störf sem fyrst. Umsóknir berist til Unglingadeildar, Skógar- hlíð 6. Nánari upplýsingar veita Anna jó- hannsdóttir, forstöðumaður og Ragnheiður Sigurjónsdóttir, deildarstjóri í síma 562 5500. Yfirmaður fjöl- skyldudeildar Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar aug- lýsir lausa stöðu yfirmanns fjölskyldudeildar frá 1. júní 1996 til 1. ágúst 1998. Yfirmaður fjölskyldudeildar stjórnar faglegu starfi stofnunarinnar í málefnum barna og fjölskyldna ásamt einstaklinga innan 67 ára aldurs. Hann heyrir beint undir félagsmála- stjóra og er staðgengill hans í málefnum fjöl- skyldudeildar m.a. hvað varðar stefnumótun og áætlanagerð. Krafa er gerð um próf í félagsráðgjöf ásamt framhaldsmenntun á háskólastigi í stjórnun og/eða á sviði félagsþjónustu. Ætlast er til að væntanlegur starfsmaður hafi a.m.k. 5 ára starfsreynslu, haldgóða reynslu af stjórn- un og gott vald á mannlegum samskiptum. Upplýsingar um stöðuna veitir Lára Björns- dóttir, félagsmálastjóri í síma 588 8500. Umsóknum skal skilað á skrifstofu félags- málastjóra, Síðumúla 39, fyrir 5. maí nk. Skattstofa Vestur- landsumdæmis Laust er til umsóknar deildarstjórastarf á skattstofu Vesturlandsumdæmis. Starfið felst í álagningu, eftirliti og annarri fram- kvæmd við virðisaukaskatt. Æskilegt er að umsækjendur hafi lögfræði- eða viðskipta- fræðimenntun (deildarlögfræðingur/-við- skiptafræðingur) eða að minnast kosti reynslu og kunnáttu á sviði skatta fram- kvæmda og að vera færir um að tjá sig skýrt og skipulega í rituðu máli. Laun eru samkvæmt launakerfi opinberra starfsmanna. Umsóknir er greini aldur, menntun og fyrri störf þurfa að hafa borist skattstjóra 6. maí nk. Skattstjórirm í Vesturlandsumdæmi, Stillholti 16-18, 300Akranesi. Múrari Vita- og hafnamálastofnun óskar eftir að ráða múrara til starfa. Starfssvið: 1. Vinna við utanhússviðgerðir á vitum og öðrum fasteignum stofnunarinnar. 2. Stjórnun vinnuflokka. 3. Úttektir og skýrslugerð vegna viðhalds. Við ieitum að múrara sem er vanur að starfa sjálfstætt og getur skipulagt og stjórnað störfum annarra. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Nánari upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson. Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til Ráðningarþjónustu Hagvangs hf. merktar: „Múrari 211“ fyrir 27. apríl nk. Hlutastörf Vegna nýrra verkefna vantar okkar nú þegar fólk til ræstingarstarfa í eftirtalin hverfi: Miðbæ, Vesturbæ, Holt, Voga/Sund og Skeifuna. Vinnutími er frá kl. 17.00, 2,5-4,0 tímar á dag. Einnig vantar fólk til starfa í Kópvogi vinnu- tími frá kl. 17.00-21.00, 3 tímar á dag og í Hafnarfjörð. Vinnutími frá kl. 7.30, 4 tímar á dag. Ef þú ert 20 ára eða eldri, vandvirk(ur) og samviskusöm(samur) þá höfum við starf fyr- ir þig. Ofangreind störf eru til lengri tíma en ekki sumarstörf. Frekari upplýsingar og umsóknareyðublöð fást hjá Guðrúnu Gísladóttur, Síðumúla 23, milli kl. 9 og 11 mánudaga-fimmtudaga. rm SECURITAS milljar6ar kr. i stri6srekst

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.