Morgunblaðið - 24.05.1996, Side 6
6 FÖSTUDAGUR 24. MAÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Búist við votviðri
um hvítasunnuna
FYRSTA ferðahelgi sumarsins er að renna upp og viðbúið að marg-
ir nýti frítímann til ferðalaga. Veðurspáin bendir til votviðris um
mestallt land á sunnudag og mánudag samkvæmt, upplýsingum frá
Veðurstofu. Lögreglan í Árnessýslu verður ekki með sérstakan við-
búnað, að sögn, og er eigendum tjaldstæða í umdæminu í sjálfs-
vald sett hvort þeir hafa opið eða ekki.
Morgunblaðið/Kristinn
FÆREYSKI lögmaðurinn Edmund Joensen, frú Edfríð Joensen,
samgönguráðherrann Sámal Pétur í Grund og fylgdarlið þáðu
hádegisverðarboð forsætisráðherra á Þingvöllum í gær. Heim-
sókn Færeyinganna lauk síðdegis og flugu þeir þá heim.
Morgunblaðið/Sverrir'
FÆREYSKIR fyrirmenn og íslenskir heilsuðu upp á skipveija
af Akraberginu, frystitogaranum sem Samherji á Akureyri á
með Færeyingum. Akrabergið er á karfaveiðum á Reykjanes-
hrygg, en skipveijar ætluðu að skreppa í þrjá daga heim til
Færeyja, fyrir næstu törn.
Færeyskir frændur kvaddir
Samkvæmt spá Veðurstofunnar
er búist við hægri, breytilegri átt
um mestallt land, með smáskúrum
eða dálítilli súld við ströndina, norð-
austan til, á morgun, en léttskýjuðu
í öðrum landshlutum. Er búist við
5-15 stiga hita og að hlýjast verði
í innsveitum suðvestanlands.
Á hvítasunnudag er gert ráð fyr-
ir hægri, breytilegri átt og skúrum
um allt land. Hiti verður 4-14 stig
og hlýjast í innsveitum suðvestan-
lands. Annan dag hvítasunnu verð-
ur austanátt með kalda víðast hvar
en stinningskalda syðst á landinu
og skúrum um allt land. Hiti verður
4-14 stig.
Skemmtanahald um
hvítasunnu
Veitingastaðir með tilskilin leyfí
mega hafa opið á hvítasunnudag
og veita borðvín frá 12-13.30 og
19-21. Verslanir skulu vera lokaðar
á hvítasunnudag og hið sama gildir
um kvikmyndahús. Laugardag fyrir
hvítasunnu er heimilt að hefja kvik-
myndasýningar klukkan 21. Þann
dag er skemmtanahald bannað eftir
klukkan 18 sem og á hvítasunnu-
dag. Skemmtistaði má opna á mið-
nætti, aðfaranótt annars í hvíta-
sunnu, og annan hvítasunnudag
má hafa opið eins og venja er til
og til 3 eftir miðnætti næsta dag.
Sætaferðir
Farmiðasala BSÍ verður opin frá
hálfátta til 22 um helgina og hafði
ekki verið mikið um fyrirspumir eða
pantanir á ferðum í gær samkvæmt
upplýsingum frá ferðaskrifstofu.
Ferðáætlun hjá Helga Péturssyni
til Snæfellsness verður með venju-
bundnum hætti, en SBK fer engar
ferðir á hvítasunnudag. Ekið er eft-
ir áætlun sunnudag og annan í
hvítasunnu.
Sæmundur Sigmundsson fer eina
ferð í Borgames á hvítasunnudag,
klukkan 20, en rútan leggur á stað
til Reykjavíkur klukkan 17. Annan
hvítasunnudag ekur hann sam-
kvæmt sunnudagsáætlun. Ferðir
Norðurleiðar eru eins og venja er
til á hvítasunnudag, að því undan-
skildu að kvöldferð er sleppt. Annan
í hvítasunnu er ekið eins og á
sunnudegi. Austurleið fer engar
ferðir á hvítasunnudag en fyrstu
ferð klukkan 12 á hádegi, annan
dag hvítasunnu. SBS ekur á hvíta-
sunnudegi og annan hvítasunnu-
dag. Þá má geta þess að áætlunar-
bíll fer á unglingaskemmtun í Njáls-
búð í kvöld og leggur af stað klukk-
an 22 ef farþegar verða tuttugu eða
fleiri.
Bensínstöðvar
Lokað er á hvítasunnudag hjá
Skeljungi, Olís og Essó. Annan í
hvítasunnu er opið frá 10-15 eða
16 hjá Skeljungi, 8-16 og 10-15
hjá Essó, og 10-15 eða 16 hjá Olís.
Litla kaffistofan selur eldsneyti,
kaffi og brauð alla helgina frá 8-20.
Heilræði frá Umferðarráði
Umferðarráð hvetur ökumenn til
þess að stilla ökuhraða í hóf og
reyna að aka eins og þeir vilja að
aðrir aki. Einnig vilja starfsmenn
þess minna á bílbeltin og að áfengis-
neysla og akstur fara alls ekki sam-
an. í frétt frá Umferðarráði segir
að lögregla um allt land muni fylgj-
ast með umferð og áhersla er lögð
á að enginn aki að morgni eftir
drykkju, þar sem áfengi getur enn
verið í blóðinu. Þá er ferðalöngum
óskað góðrar ferðar og ánægjulegr-
ar heimkomu.
EDMUND Joensen, lögmaður
Færeyja, hélt heim á Ieið síðdegis
í gær ásamt eiginkonu sinni, Ed-
fríð Joensen, og fylgdarliði. Hann
kom hingað til lands á þriðjudag
og ræddi þá við Davíð Oddsson
forsætisráðherra og Halldór Blön-
dal samgönguráðherra.
Á miðvikudag fór lögmaðurinn
til Vestfjarða í fylgd samgönguráð-
herra og frú Kristrúnar Eymunds-
dóttur og heimsótti m.a. Flateyri
og Súðavík. í gærmorgun var svo
haldið að nýju til Reykjavíkur. Á
Reykjavíkurflugvelli biðu nokkrir
færeyskir sjómenn úr áhöfn frysti-
togarans Akrabergs eftir fari til
Færeyja og lét lögmaðurinn ekki
hjá líða að heilsa upp á landa sína
og slíkt hið sama gerðu samgöngu-
ráðherrarnir Halldór Blöndal og
færeyskur starfsbróðir hans, Sá-
mal Pétur í Grund.
í gær lituðust lögmannshjónin
og fylgdarlið þeirra um á hinum
forna þingstað, Þingvöllum og
þáðu þar hádegisverð í boði for-
sætisráðherra. Þar með lauk
heimsókn fulltrúa frændþjóðar
Islendinga.
Stöð 2 skuld-
ar tveimur
stofnendum
24 milljónir
HÆSTIRÉTTUR staðfesti í gær
dóm Héraðsdóms Reykjavíkur og
dæmdi íslenska útvarpsfélagið til
að greiða rúmlega 24,1 millj. króna
með dráttarvöxtum, vegna starfs-
lokasamninga sem gerðir voru við
tvo af stofnendum fyrirtækisins,
Hans Kr. Árnason og Olaf H. Jóns-
son.
Samningarnir voru gerðir eftir að
Hans og Olafi var sagt upp störfum
hjá Stöð 2 árið 1990. I þeim var
ákvæði um að greiða skyldi hvorum
þeirra 'h af þeim hagnaði af rekstri
félagsins árin 1991 til 1993 sem
yrði umfram 20% arð af framreikn-
uðu viðbótarhlutafé, miðað við
ákveðið hámark.
Þegar samningurinn kom til fram-
kvæmda risu deilur um efndir hans.
Stofnendumir töldu að frá afkomu
fyrirtækisins eins og hún kæmi fram
í endurskoðuðum ársreikningi skyldi
ekki draga uppsafnað tap, sem var
fyrir hendi um áramótin 1990-1991,
áður en ágóðahlutur til þeirra yrði
reiknaður.
Vildu draga frá áhrif
uppsafnaðs taps
Islenska útvarpsfélagið hélt því á
hinn bóginn fram að reikna bæri
fyrirtækinu tekjuskatt án tillits til
áhrifa hins uppsafnaða skattalega
taps sem til var í fyrirtækinu áður
en ágóðahlutdeild til stofnendanna
yrði reiknuð.
Héraðsdómur féllst árið 1994 á
kröfur Hans Kr. og eiginkonu Ólafs,
sem hafði fengið réttindi hans sam-
kvæmt samningnum framseld.
Hæstiréttur staðfesti þá niðurstöðu
í gær og kemur fram í dóminum að
skilningur íslenska útvarpsfélágsins
á samningnum þyki ekki eigá sér
stoð í orðalagi samkomulagsins.
Auk þess að taka kröfurnar til
greina dæmdi Hæstiréttur ÍÚ til að
greiða samtals 1,2 milljómr króna í
málskostnað fyrir héraði og Hæsta-
rétti.
Yfirheyrslur fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í gær vegna snertilendingar á vatni
Sérfræðingar frá
NASA kvaddir til
Öm Johnson fiugmaður sagði fyrir Héraðs-
dómi í gær að snertilending á vatni værí
viðurkennd listflugsgrein í Bandaríkjunum.
Guðjón Guðmundsson fylgdist með
yfírheyrslum og framburði tveggja sérfræði-
vitna, fyrrum starfsmanna NASA, sem
sögðu flug af þessu tagi með öllu hættu-
laust væri rétt að því staðið. Af hálfu Loft-
ferðaeftirlits var því haldið fram að flugregl-
ur hefðu verið gróflega brotnar.
YFIRHEYRSLUR voru I gær
í Héraðsdómi Reykjavíkur í
máli ríkissaksóknara gegn
Erni Johnson og Magnúsi Gríms-
syni einkaflugmönnum sem ákærðir
eru fyrir að hafa brotið flugreglur
þegar þeir létu hjól landflugvéla
snerta vatnsyfirborð. Málið var á
sínum tíma kært til Loftferðaeftir-
litsins. RLR annaðist rannsókn og
þaðan fór það til ríkissaksóknara
sem höfðaði mál. Við yfirheyrslum-
ar voru sérfræðivitni, sem starfað
hafa hjá Geimferðastofnun Banda-
ríkjanna, NASA, kölluð til af veij-
anda flugmannanna.
Við yfírheyrslumar sagði Örn
Johnson að flugmönnum væri náuð-
synlegt að æfa viðbrögð við marg-
víslegum aðstæðum, eins og t.d.
þeim þegar vélarbilun verður í flug-
vél og nauðlenda verður henni. Sá
hafi verið tilgangur þessa flugs.
Hann vildi þjálfa lendingu á vatni
og kömast að því hvemig vélin
brygðist við því. Sér hafi verið kennt
í flugnámi að við vélarbilun yfir
vatni ætti að velja besta svifhraða
og láta vélina ofrísa yfir vatninu á
50 hnúta hraða. Við það missti
vélin flug og stingist á nefið. Örn
sagði að í 30% slíkra tilvika rotist
þeir sem í vélinni eru og leiði aðferð-
in til dauðsfalla meðal farþega og
flugmanna. Hann vildi því kanna
hvort ekki fyndist betri lausn. Hann
hefði haft samráð við aðra flug-
menn sem hefðu reynt það sama
og verkfræðinga og aðila erlendis.
Þeir hefðu talið hugmyndina at-
hyglisverða og ástæðu til þess að
reyna hana.
Á tvöföldum ofrishraða
Við yfirheyrslumar kom fram að
Örn hefur haft einkaflugmannsskír-
teini frá 9. maí 1979 og á 400 flug-
tíma að baki. Fram kom að Jodel
flugvél sú sem Örn flaug í umrætt
skipti er eins hreyfla og vegur 640
kíló óhlaðin en 1.200 kíló fullhlað-
inn. Tveir menn voru í vélinni í
umræddu flugi, Örn og Jón Karl
Snorrason flugmaður hjá Flugleið-
um, sem var farþegi. Eldsneytis-
tankur vélarinnar var hálffullur og
taldi Örn að vélin hefði vegið um
884 kg í umræddu flugi.
Örn sagði að án þess að tillit
væri tekið til lyftikrafts vængja
vélarinnar bæru hjólbarðarnir hana
uppi á yfirborði vatnsflatar á 45
hnúta hraða. í umræddu flugi hafi
flughraðinn þegar hjólin snertu
vatnsflötinn verið 90 hnútar, eða
tvöfaldur ofrishraði. Örn sagði að
hann teldi slíkt flug geta orðið við-
urkennda grein í listflugi og benti
á að í flugklúbbi í Bandaríkjunum
væri slíkt flug einmitt viðurkennd
listflugsgrein á Super Cup flugvél-
um.
Jón Karl Snorrason, farþegi Arn-
ar, kvaðst ekki hafa vitað annað
en að í umræddu flugi stæði til að
taka myndir af sams konar lending-
artilraunum Magnúsar Grímssonar.
Þegar komið var upp fyrir Kjalar-
nes hafi verið ákveðið að reyna slíka
lendingu. Jón Karl kvaðst hafa ver-
ið samþykkur því að tilraunin yrði
gerð og taldi ekki að Örn hefði
stofnað lífi sínu í hættu með tiltæk-
inu.
Flugreglur gróflega brotnar
Jens Bjarnason, framkvæmda-
stjóri Loftferðaeftirlitsins, sagði að
flugmennirnir hefðu brotið flugregl-
ur gróflega með flugi sínu. Sam-
kvæmt þeim væri óheimilt að fljúga
neðar en 500 fet nema við flugtak
og lendingu og eins hreyfils vél
mætti aldrei vera svo fjarri landi
að hún geti ekki svifið til Iands.
Hvort tveggja hefðu ákærðu þó
gert. Hann sagði að athæfi ákærðu
væri vítavert jafnvel þótt hjól vél-
anna hefðu ekki snert vatnsflötinn.
Fram kom að ákærðu hafa ekki
verið sviptir flugréttindum áður en
Magnús Grímsson hefði þrisvar
fengið áminningu fyrir lágflug. Jens
taldi að lendingartilraunir ákærðu
heyrðu hvorki til listflugs né lend-
ingaræfinga. Jens sagði að vélar
ákærðu væru ekki hannaðar fyrir
flug af þessu tagi og ekki fengið
tegundarskírteini til að fljúga við
þessar aðstæður. Hann sagði hætt-
una fólgna í því að menn viti ekki
hvað geti gerst við slíkar aðstæður.
Honum var ekki kunnugt um að
lendingartilraunir af þessu tagi
væru þáttur í listflugi erlendis.
Því næst voru kvödd til sérfræði-
vitni frá bandarísku geimferðar-
stofnuninni, Walter Horn og Thom-
as J. Jaeger, sem nú eru báðir á
eftirlaunum. Steingrímur Gautur
Kristjánsson héraðsdómari sagði
við það tækifæri að óvenjulegt
væri að sérfræðivitni væru kölluð
fyrir í íslensku dómsmáli. Sérgrein
Homs hjá NASA voru rannsóknir
á hjólbörðum á flugvélum og sér-
hæfði hann sig í flugtökum og lend-
ingum þotna á blautum flugbraut-
um þar sem fleyting hjólbarða var
mikið vandamál.
í
I
í
)
\
\
I