Morgunblaðið - 24.05.1996, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 24.05.1996, Blaðsíða 10
10 FÖSTUDAGUR 24. MAÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Hátíðarhöld á 150 ára afmæli MR AFMÆLISHÁTIÐ Mennta- skólans í Reykjavík verður haldin í Laugardalshöll fimmtudaginn 30. maí þegar skólanum verður slitið í 150. sinn og brautskráðir nem- endur. Sunnudaginn 2. júní verður hátíðleg athöfn á lóðinni fram- an við Menntaskólann og menntamálaráðherra opnar sögusýningu sem haldin er í tilefni þess að menntaskóli hefur nú starfað óslitið í Reykjavík í hálfa aðra öld. Sýningin varpar ljósi á sögu skólahússins og flesta þætti skólalífsins fyrr og nú. Þess verður minnst að Alþingi var endurreist í Menntaskólanum sumarið 1845, starfaði þar til ársins 1879 og Þjóðfundurinn, stjómlagaþing íslendinga, var haldinn í hátíðarsal skólans sumarið 1851. Sýningin verð- ur í þremur húsum, Mennta- skólanum sjálfum, Bókhlöð- unni íþöku og Casa nova. Öllum stúdentum frá Menntaskólanum í Reykjavík er boðið að koma til opnunar- hátíðar á skólalóðinni og hefst hún kl. 15. Áður en ráðherra opnar sýninguna mun forseti íslands, frú Vig- dís Finnbogadóttir flytja skól- anum kveðju. Guðrún Helga- dóttir, rithöfundur, fyrrum forseti Alþingis, flytur stutt ávarp. Lúðrasveit leikur og kór Menntaskólans í Reykja- vík syngur. MENNTASKÓLINN í Reykjavík. Meirihluti á móti aug- lýsinga- banni í RÚV MIKILL meirihluti þjóðarinnar er á móti því að banna auglýsingar í Rík- isútvarpinu, samkvæmt skoðana- könnun, sem Félagsvísindastofnun Háskóla íslands hefur gert fyrir RÚV. Þar segjast 89,2% þeirra, sem svara, ekki vilja banna auglýsingar en 10,8% vilja banna þær. Félagsvísindastofnun bendir á að þrátt fyrir þetta sé ekki víst að meirihluti sé sáttur við þá stefnu, sem ríkir í auglýsingamálum RÚV. Spurninging taki til dæmis ekki til þess hvort auglýsingar séu takmark- aðar að einhverju leyti, þ.e. hvort tími þeirra í útsendingu megi ekki fara yfír ákveðin mörk. Könnunin var gerð 11.-18. maí og var úrtakið 1.500 manns. I Norðurmýri — sunnan Flókagötu Gullfalleg 4ra herb. íbúð á 2. hæð í fjórbýli, 110 fm, ásamt 27 fm i bílskúr. 3 svefnherb., öll rúmgóð, ágæt stofa, stórt hol, eldhús | með fallegri, nýrri innréttingu og ágætt baðherb. með glugga. 1 Nýtt gler og glugga póstar. Ibúðin er laus nú þegar. Verð 8,9 millj. Séreign - fasteignasala, Skólavörðustíg 38A, sím Fjarðargata 17 - Hafnarfirði Til leigu Til leigu í þessu fallega húsi tvö verslunarbil á jarð- hæð. Annað bilið er ca 40 fm br. og hitt ca 50 fm br. Alt umhverfi er sérlega glæsilegt í miðbæ Hafnarfjarð- ar, gengt menningarmiðstöðinni Hafnarborg og Þjóð- kirkjunni. Engin sameignarkostnaður. Bilin eru nú þegar laus til afhendingar fullbúin. Nánari upplýsingar hjá Ás fasteignasölu, sími 565 2790 eða 896 3101. EIGISAMIÐIUMNehf * Abyrg þjónusta í áratugi Sími: 588 9090 Síðumúla 21 Sumarbústaður í Borgarfirði er um 50,5 fm að grunnfleti auk svefnlofts. 3 svefn- herb., eldhús og baðherb. með sturtu. Sólverönd allan hringinn. Rafmagn og hiti. Bústaðurinn stendur á fallegum útsýnisstað í kjarrivöxnu landi. 4586. Bústaðurinn verður til sýnis um hvítasunnuna. Allar nánari upplýsingar gefur Ingi í síma 852 9611 eða 567 3508. Vinnudeilufrum- varp til þriðju um- ræðu á Alþingi FRUMVARPI um stéttarfélög og vinnudeilur var í gær vísað til þriðju og síðustu umræðu á Alþingi eftir að frávísunartillaga stjórnarand- stæðinga hafði verið felld með 36 atkvæðum stjórnarliða gegn 24 at- kvæðum stjórnarandstöðunnar. Þingmenn stjórnarandstöðunnar greiddu einnig atkvæði gegn því að frumvarpinu yrði vísað til 3. umræðu en það var samþykkt með 35 at- kvæðum gegn 23. Stjórnarandstæðingar gagnrýndu frumvarpið í atkvæðaskýringum. Rannveig Guðmundsdóttir, Alþýðu- flokki, sagði að þótt frumvarpið hefði gerbreyst í meðförum félags- málanefndar Alþingis, þannig að það væri nú stefnu- og markmiðsiaust plagg, þá höfnuðu þingmenn Al- þýðuflokksins lagasetningunni og þeirri íhlutun í innri málefni stéttar- félaga sem í henni fælist. Svanfríður Jónasdóttir, Þjóðvaka, sagði að ríkisstjómarflokkarnir myndu valda miklu uppnámi í öllum samskiptum aðila á vinnumarkaði því þeir hunsuðu vilja verkalýðs- hreyfingarinnar og daufheyrðust við aðvörunum stjórnarandstöðunnar en styddu sjónarmið atvinnurekenda. Bryndís Hlöðversdóttir, Alþýðu- bandalagi, sagði að ef frumvarpið yrði samþykkt væru það söguleg tíð- indi því þá yrði í fyrsta sinn tekið það skref að setja lög um samskipti aðila vinnumarkaðarins í fullkominni andstöðu við gervalla verkalýðs- hreyfinguna í landinu. Guðný Guðbjörnsdóttir, Kvenna- lista, sagði að þótt frumvarpinu hefði verið breytt vægi það enn að rétti vinnandi fólks. Það væri kald- hæðnislegt að lýðræðislega kjörinn meirihluti á Alþingi vægi að lýðræð- islegum rétti þegnanna til að ráða sjálfir umboði samningamanna sinna og fyrirkomulagi á kjara- samningum. Páll Pétursson, félagsmálaráð- herra, vísaði því á bug að óeðlilega hefði verið staðið að samningu frum- varpsins. Meðferð málsins hefði ver- ið með eðlilegum hætti og reynt að taka tillit til efnislegra athugasemda og um væri að ræða skynsamlegar endurbætur á lögum um stéttarfélög og vinnudeilur. Guðni sat hjá í atkvæðagreiðslu um einstakar frumvarpsgreinar greiddu þingmenn stjórnarflokkanna yfirleitt atkvæði með en stjórnarandstæðingar á móti, utan Kristinn H. Gunnarsson Al- þýðubandalagi, sem sat alltaf hjá. Stjórnarandstæðingar sátu síðan hjá í atkvæðagreiðslum um breytingart- illögur stjórnarmeirihlutans við frumvarpið. Guðni Ágústsson, Framsóknar- flokki, sat hjá þegar greidd voru atkvæði um breytingartillögur um svonefnda þröskulda, eða lágmarks- þátttöku, í atkvæðagreiðslum um kjarasamninga. Guðni sagðist hefðu kosið aðra málsmeðferð en hann teldi að frumvarpið hefði tekið mikl- um breytingum í þinginu, sem allar væru tii bóta. Ekkert væri jafn mikil- vægt og gott samstarf ríkisstjórnar og verkalýðshreyfingar og því bæri báðum aðilum að jafna þann ágrein- ing sem uppi væri og hann tryði því að sá vilji yrði fyrir hendi. Þá sat ísólfur Gylfi Pálmason, Framsóknarflokki, hjá í atkvæða- greiðslu um ákvæði um sameigin- lega atkvæðagreiðslu allra verka- lýðsfélaga sem standa að vinnu- staðasamningum. Guðmundur mætti ekki Sighvatur Björgvinsson Alþýðu- flokki vakti athygli á að eini fulltrú- inn á þingi Alþýðusambands Íslands, sem jafnframt ætti atkvæðisrétt á Alþingi, hefði ekki séð ástæðu til að nota atkvæðisrétt sinn. Þar átti Sighvatur við Guðmund Hallvarð- son, Sjálfstæðisflokki, sem var íjar- staddur, en hann gagnrýndi frum- varpið þegar fyrsta umræða fór fram um það á Alþingi. 80 ára afmælishátíð Alþýðusambands Islands ALÞÝÐUSAMBAND íslands mun minnast 80 ára afmælis sam- bandsins með afmælishátíð í Há- skólabíói laugardaginn 25. maí nk. kl. 13.30. Hátíðin er haldin í beinu framhaldi af ASÍ-þinginu sem staðið hefur yrir þessa viku í Kópavogi, en lýkur á föstudags- kvöld. ASÍ var stofnað 12. mars árið 1916 og var Ottó N. Þorláks- son fyrsti forseti þess, en nú eru 203 félög og deildir í 7 landssam- böndum innan vébanda sam- bandsins með um 67 þúsund fé- lagsmenn. Á afmælishátíðinni í Háskóla- bíói verður fjölbreytt afmælisdag- skrá. Nýkjörinn forseti ASÍ, Grét- ar Þorsteinsson, ávarpar samko- muna en stjórnandi og kynnir verður Flosi Ólafsson. Meðal þeirra sem fram koma eru Lúðra- sveit verkalýðsins, Inga Backman óperusöngkona og Ólafur Vignir Albertsson píanóleikari, tvö ung danspör úr Dansskóla Jóns Péturs og Köru, Reynir Jónasson harm- oníkuleikari, KK og suðræn sving- sveit úr Tónlistarskóla Garðabæj- ar undir stjórn Reynis Sigurðsson- ar. Þá munu Spaugstofufélagar eiga orð við afmælisgesti og loks syngur Kvennakór Reykjavíkur. Heiðursgestur samkomunnar verður forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir._ Félagar í aðild- arfélögum ASÍ og velunnarar verkalýðshreyfingarinnar eru vel- komnir á afmælishátíðina. Að- gangur er ókeypis. Sex landsambönd innan ASÍ standa að hátíðinni með sámband- inu, en þau eru Landssamband íslenzkra verzlunarmanna, Sam- iðn — samband iðnfélaga, Sjó- mannasamband íslands, Verka- mannasamband íslands og Þjón- ustusamband Islands.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.