Morgunblaðið - 24.05.1996, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 24. MAÍ 1996 15
I
|
I
)
)
I
)
i
)
)
>
)
Með því að nota Betra Shell
bensín reglulega nærðu
fram bestu eiginleikum
bílsins þíns. Hann verður
betri í gang, snarpari,
gangurinn þýðari og í
heildina séð allur
. skemmtilegri.
Þær eru sko hressar fyrir
vestan. Þetta sannast á henni
Gróu sem er afgreiðslukona
á Shellstöðinni í Garðabæ.
Hún er ættuð úr ísafjarðar-
djúpinu og þykir alveg
sérstaklega gaman að
syngja í baði.
Björgvin Pétursson er 22
ára afgreiðslumaður á
stöðinni við Suðurfell.
Bjöggi veit bókstaflega allt
um hreinsiefni enda er það
skemmtilegasta sem hann
gerir að þrífa bílinn
sinn ærlega.
Þeir kalla hann
Hansa Blom vinnufélagarnir
við Miklubrautina. Hann er
vaktstjóri. Hann er úr
Mosfellsbænum og hefur
óskaplega gaman af því að
fara í golf. Hansi er með 18 í
forgjöf og ætlar að lækka
. hana í sumar.
Jón Þór Jónsson er 62 ára
afgreiðslumaður við
Miklubrautina. Jón á 4 börn
og 10 barnabörn. Hann reynir
að fara eins oft og hann
getur á skíði, og þá helst upp
í Bláfjöll. Jón er jafnvígur á
göngu- og svigskíði.
Lilja býr í miðbænum en er
afgreiðslustjóri á stöðinni
við Skógarhlíð. Hún er mikil
hestakona og á þrjá hesta
sem allir eru miklir
gæðingar. Síðasta sumarfór
Lilja í 10 daga hestaferð um
hálendið.
Gunnar Már Gunnarsson er
vaktstjóri við Kleppsveginn.
Hann er hestamaður auk
þess að vera mikill
áhugamaður um enskar
bókmenntir. Gunnar er með
B.A. próf í ensku.
Skipperinn vinnur á stöðinni
við Öskjuhlíð og heitir réttu
nafni Þröstur Sigtryggsson.
Hann var skipherra hjá
Landhelgisgæslunni og tók
þátt í öllum
þorskastríðunum. Hann er
óþrjótandi sagnabrunnur.
Hann Sigurjón Þórðar er
stundum kallaður Nonni.
Hann er á kafi í
handboltanum og er í
markinu hjá KR. Nonni er
kassamaður við
Vesturlandsveginn.
Hann er á föstu.
----- Hann Eyþór á
Shellstöðinni við Öskjuhlíð
gerði garðinn frægan með
Haukum í körfunni hér áður
fyrr og veit bókstaflega allt
um körfubolta. Hann hefur
líka þvælst með lest um alla
Evrópu og er að taka
endajaxl.
Bíllinn þinn kann að meta
Betra Shell bensín. Það
inniheldur háþróuð
hreinsandi bætiefni sem
koma í veg fyrir
uppbyggingu skaðlegra
útfellinga og halda vélinni
ótrúlega hreinni.
Geiri Guðmunds er mikill
dansari. Það
skemmtilegasta sem hann
gerir er að stíga gömlu
dansana í Sigtúni. Hann er
búinn að vera hjá Skeljungi
í 7 ár og vinnur á stöðinni
við Suðurströnd.
Brennsla á Betra Shell
bensíni mengar töluvert
minna en brennsla á
venjulegu bensíni. Ekki má
gleyma að í hvert sinn sem
þú kaupir Betra Shell bensín
leggur þú þitt af mörkum til
skógræktar á íslandi.
Með því að nota
Betra Shell bensín
eyðir bíllinn þinn minna
og þannig sparar þú
peninga. Þetta hefur
verið staðfest með
ítarlegum prófunum.
• Afr'
Valdimar Arnfjörð er
karlmaðurinn á
Disuvaktinni við
Dalveginn. Hann er
stundum kallaður Valdís
til þess að falla betur inn í
hópinn. Valdimar hefur
mikinn áhuga
á ættfræði.
v^Hjá okkur færðu
L SíT
— rrr
- m
w m
BETRA3ENSIN
Akstursprófanir hafa sannaö
aö ef þú notar reglulega,
ætti billinn þinn að ganga betur,
menga minna, eyöa minna bensíni
og vera skemmtilegri í akstri.
Shell í næsta nágrermi