Morgunblaðið - 24.05.1996, Síða 15

Morgunblaðið - 24.05.1996, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. MAÍ 1996 15 I | I ) ) I ) i ) ) > ) Með því að nota Betra Shell bensín reglulega nærðu fram bestu eiginleikum bílsins þíns. Hann verður betri í gang, snarpari, gangurinn þýðari og í heildina séð allur . skemmtilegri. Þær eru sko hressar fyrir vestan. Þetta sannast á henni Gróu sem er afgreiðslukona á Shellstöðinni í Garðabæ. Hún er ættuð úr ísafjarðar- djúpinu og þykir alveg sérstaklega gaman að syngja í baði. Björgvin Pétursson er 22 ára afgreiðslumaður á stöðinni við Suðurfell. Bjöggi veit bókstaflega allt um hreinsiefni enda er það skemmtilegasta sem hann gerir að þrífa bílinn sinn ærlega. Þeir kalla hann Hansa Blom vinnufélagarnir við Miklubrautina. Hann er vaktstjóri. Hann er úr Mosfellsbænum og hefur óskaplega gaman af því að fara í golf. Hansi er með 18 í forgjöf og ætlar að lækka . hana í sumar. Jón Þór Jónsson er 62 ára afgreiðslumaður við Miklubrautina. Jón á 4 börn og 10 barnabörn. Hann reynir að fara eins oft og hann getur á skíði, og þá helst upp í Bláfjöll. Jón er jafnvígur á göngu- og svigskíði. Lilja býr í miðbænum en er afgreiðslustjóri á stöðinni við Skógarhlíð. Hún er mikil hestakona og á þrjá hesta sem allir eru miklir gæðingar. Síðasta sumarfór Lilja í 10 daga hestaferð um hálendið. Gunnar Már Gunnarsson er vaktstjóri við Kleppsveginn. Hann er hestamaður auk þess að vera mikill áhugamaður um enskar bókmenntir. Gunnar er með B.A. próf í ensku. Skipperinn vinnur á stöðinni við Öskjuhlíð og heitir réttu nafni Þröstur Sigtryggsson. Hann var skipherra hjá Landhelgisgæslunni og tók þátt í öllum þorskastríðunum. Hann er óþrjótandi sagnabrunnur. Hann Sigurjón Þórðar er stundum kallaður Nonni. Hann er á kafi í handboltanum og er í markinu hjá KR. Nonni er kassamaður við Vesturlandsveginn. Hann er á föstu. ----- Hann Eyþór á Shellstöðinni við Öskjuhlíð gerði garðinn frægan með Haukum í körfunni hér áður fyrr og veit bókstaflega allt um körfubolta. Hann hefur líka þvælst með lest um alla Evrópu og er að taka endajaxl. Bíllinn þinn kann að meta Betra Shell bensín. Það inniheldur háþróuð hreinsandi bætiefni sem koma í veg fyrir uppbyggingu skaðlegra útfellinga og halda vélinni ótrúlega hreinni. Geiri Guðmunds er mikill dansari. Það skemmtilegasta sem hann gerir er að stíga gömlu dansana í Sigtúni. Hann er búinn að vera hjá Skeljungi í 7 ár og vinnur á stöðinni við Suðurströnd. Brennsla á Betra Shell bensíni mengar töluvert minna en brennsla á venjulegu bensíni. Ekki má gleyma að í hvert sinn sem þú kaupir Betra Shell bensín leggur þú þitt af mörkum til skógræktar á íslandi. Með því að nota Betra Shell bensín eyðir bíllinn þinn minna og þannig sparar þú peninga. Þetta hefur verið staðfest með ítarlegum prófunum. • Afr' Valdimar Arnfjörð er karlmaðurinn á Disuvaktinni við Dalveginn. Hann er stundum kallaður Valdís til þess að falla betur inn í hópinn. Valdimar hefur mikinn áhuga á ættfræði. v^Hjá okkur færðu L SíT — rrr - m w m BETRA3ENSIN Akstursprófanir hafa sannaö aö ef þú notar reglulega, ætti billinn þinn að ganga betur, menga minna, eyöa minna bensíni og vera skemmtilegri í akstri. Shell í næsta nágrermi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.