Morgunblaðið - 24.05.1996, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 24. MAÍ1996 49
Ekkertjafntefli
í fyrstu umferð
SKÁK
Fjölbrautaskólinn
í Garðabæ
SKÁKÞING ÍSLANDS
LANDSLIÐSFLOKKUR
22. maí-3. júní. 12 þátttakendur.
Aðgangnr ókeypis.
MIKIL barátta einkenndi skák-
irnar í fyrstu umferð í landsliðs-
flokki á Skákþingi íslands sem tefld
var í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ
á miðvikudagskvöldið. Aðeins einni
skák lauk með jafntefli og aðeins
eftir langa baráttu, en úrslitin urðu
annars þessi:
Hannes H. Stefánss. - Þröstur Þórhallss. 1-0
TorfiLeósson-JóhannHjartarson 0-1
Jón G. Viðarsson - Sævar Bjarnason Vi - Vi
HelgiÓlafsson-MargeirPétursson 1-0
Benedikt Jónasson - Magnús 0. Úlfarsson 0-1
Helgi Ass Grétarss. - Jón V. Gunnarss. 1-0
Mesta athygli í fyrstu umferð
vakti skák Helga Olafssonar og
Margeirs Péturssonar. Helgi beitti
rólegu afbrigði gegn sikileyjarvörn
Margeirs og framan af þræddi
skákin troðnar slóðir. Margeiri
tefldi ónákvæmt og Helgi fann
snjalla leiki, fórnaði tveimur peðum
og blés til sóknar með drottningu
og riddara sem engar varnir voru
við. Hannes Hlífar fékk aðeins betri
stöðu eftir bytjunina gegn Þresti
Þórhallssyni. Hann þrengdi hægt
og sígandi að Þresti og innsiglaði
góðan sigur með skemmtilegri
fléttu þegar tímahrak var komið til
sögunnar.
Torfi Leósson missteig sig eftir
byijunina gegn Jóhanni Hjartarsyni
og sá ekki til sólar eftir það og féll
á tíma eftir rúmlega tuttugu leiki.
Helgi Áss og Jón Viktor tefldu
enskan leik. Svartur átti í erfiðleik-
um við að finna raunhæfa áætlun
eftir byrjunina og stórmeistarinn
vann sannfærandi sigur eftir 38
leiki.
Magnús Örn náði undirtökunum
snemma með svörtu í viðureigninni
við Benedikt Jónasson og tryggði
sigur eftir að tímamörkunum var
náð við fertugasta leik. Jón Garðar
var hársbreidd frá titiláföngum í
vetur en tefldi ekki sannfærandi
gegn Sævari og þeir sömdu um
jafntefli eftir u.þ.b. 60 leiki eftir
að á ýmsu hafði gengið.
Það má gera ráð fyrir skemmti-
legu og spennandi Skákþingi, því á
meðal keppenda eru flestir af stiga-
hæstu skákmönnum þjóðarinnar
auk ungra skákmanna sem nú heyja
frumraun sína í landsliðsflokki.
Meðalstig keppanda á mótinu eru
2.386 ELO-skákstig og aðeins einu
sinni hafa þau verið hærri, það var
árið 1991, en þá fór mótið einnig
fram í Garðabæ. Mótið er í sjöunda
styrkleikaflokki og 7 vinninga þarf
til þess að öðlast alþjóðlegan
áfanga. Jóhann Hjartarson á titil
að vetja en hann vann Hannes Hlíf-
ar Stefánsson í einvígi um titilinn
fyrir ári.
Svart: Þröstur Þórhallsson
Hvítur hefur byggt upp vinnings-
stöðu og fer skemstu leið að settu
marki. 35. Dxb8! - Bd4 36. Dxf8+!
Svartur gafst upp. Hann er mát
eftir 36..Kxf8 37. Bd6+ - Kg8 38.
Hb8+
Hvítt: Helgi Ólafsson
Svart: Margeir Pétursson
Sikileyjarvörn
I. e4 - c5 2. c3 - d5 3. exd5 -
Dxd5 4. d4 - Rf6 5. Rf3 - e6 6.
Bd3 - Rc6 7. 0-0 - Be7 8. Be3 -
cxd4 9. cxd4 - 0-0 10. Rc3 - Dd6
II. a3 - b6 12. De2 - Bb7 13.
Hadl - Hfd8 14. Bg5 - g6 15.
Hfel - He8 16. Bxf6 - Bxf6 17.
Re4 - De7 18. Rxf6 - Dxf6 19.
Be4 16. - Hc8 var eðlilegri leikur,
enda stendur hrókurinn illa á e8.
Næsti leikur bætir ekki úr skák.
19. - He7? 20. Bxc6 - Bxc6 21. d5!
- Bb7 22. Re5 - Bxd5 23. Rg4 -
Dg5 24. f4! - Dxf4 25. g3!
Hvítur hefur byggt upp vinnings-
stöðu. Nú gengur ekki 25. -Dg5
vegna 26. h4!. Svartur hótar 26.
Rf6+ og næst 27. Rxd5. Leikur
svarts er þvingaður. 25. - Dc4 26.
Rf6+ - Kf8 27. De3 - Dc5 28. Hd4
- Kg7 29. De5 - Be4 30. Re8+ -
Kh6 31. Dg7+ - Kg5 32. Df6+ -
Kh6 33. Hexe4 og svartur gafst
upp.
2. umferð á Skákþinginu var
tefld í gærkvöldi en 3. umferð hefst
í dag kl. 17.00 í Fjölbrautaskólanum
við Garðabæ. Þá mætast m.a. Helgi
Olafsson og Jóhann Hjartarson,
Helgi Áss Grétarsson og Margeir
Pétursson, Hannes Hlífar Stefáns-
son og Jón Garðar Viðarsson.
Karl Þorsteins
LLOYII
SKÓR FYRIR KARLMENN!
: - "‘jm -'•■■■* i . “*/* ,
Nám í cranio sacral-
jöfnun
1. hluti af þremur
22.-28. júní.
Kennari: Svarupo
H. Pfaff, löggiltur
„heilpraktikerin"
frá Þýskalandi.
Uppl. og skráning
i síma 564 1803.
Hvttasunnukirkjan
Fíladelfía
Helgina 24. til 27. maí verða
raðsamkomur í Ffladelfíu í til-
efni 60 ára afmælis safnaðarins
og 75 ára afmælis hreyfingar-
innar á íslandi.
í kvöld kl. 20.00 verður fyrsta
samkoman og ræðumaður er
Thomas E. Trask, æðsti yfirmað-
ur Assemblies of God, sem er
stærsta hvítasunnuhreyfingin í
'Síngar
heiminum í dag.
Dagskrá helgarinnar framund-
an:
Laugardagur:
Afmælissamkoma kl. 20.00.
Ræðumaður Thomas E. Trask.
Hvítasunnudagur:
Hátíðarsamkoma kl. 16.30.
Ræðumaðu Thomas E. Trask.
2. í hvftasunnu:
Útvarpsguðsþjónusta kl. 11.00.
Ræðumaður Hafliði Kpistinsson.
Síðasta samkoman í herferðinni
verður mánudagskvöld kl. 20.00.
Lofgjörðarhópur Ffladelfíu,
ásamt einsöngvurum, leiðir
söng alla helgina.
Allir hjartanlega velkomnir
meðan húsrúm leyfir.
FERÐAFÉtAG
§) ÍSIANDS
MÖRKINNI 6 - SlMI 568-2533
Hvítasunnuferðir
Ferðafélagsins:
Látið ykkur ekki leiðast heima
um hvitasunnuna - komið með
í skemmtilegar Ferðafélags-
ferðir.
1) 24.-27. maí: Öræfajökull (4
dagar). Gist að Hofi í Öræfa-
sveit. Brottför frá Umferðarmið-
stöðinni, austanmegin, kl. 20.00
föstudag.
2) 25.-27. maí: Snæfellsnes -
Snæfelljökull. Fjölbreyttar
göngu- og skoðunarferðir, m.a.
á Jökulinn. Gist að Göðrum í
Staðarsveit. Silungaveisla.
Sundlaug í næsta nágrenni.
3) 25.-27. maí: Þórsmörk - til-
valin fjölskylduferð (3 dagar).
4) 25.-27. maí: Fimmvörðuháls
- skemmtileg gönguleið milli
Mýrdalsjökuls og Eyjafallajökuls.
Brottför kl. 08.00 laugardag.
Upplýsingar og farmiðasala á
skrifstofu F.Í., Mörkinni 6.
Dagsferðir
um hvítsunnu:
26. maí kl. 13.00: Helgadalur -
Reykjaborg - Hafravatn.
Verð kr. 800.
27. mai kl. 13.00: 1) Vífilsfell
(656 m), 2) Jósepsdalur, létt
gönguferð. Verð kr. 1.000.
Ferðafélag islands.
RAOAUGi YSINGAR
Frá Langholtskirkjusókn
Aðalfundur í Langholtskirkjusókn, skv. 4. kafla
laga um krikjusóknir, safnaðarfundi o.fl. nr.
25/1985, verður haldinn í safnaðarheimilinu,
Sólheimum 13, nk. þriðjud., 28. maí, kl. 20.30.
Fundarefni:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Athygli skal vakin á því, að aðeins meðlimir
í Langholtskirkjusókn hafa rétt til fundar-
setu.
Sóknarnefnd.
Aðalfundur
Vinnuveitendafélags Suðurnesja
verður haldinn á Glóðinni í Keflavík miðviku-
daginn 29. maí kl. 16.00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri
VSÍ, kemur á fundinn.
Vinnuveitendafélag Suöurnesja.
Málverk
Fyrir viðskiptavin okkar leitum við að góðum
uppstillingum eftir Kristínu Jónsdóttur og Jón
Stefánsson. Höfum einnig hafið móttöku á
verkum fyrir næsta málverkauppboð.
BORG
við Ingólfstorg, sími 552 4211.
Opið virka daga 12-18.