Morgunblaðið - 24.05.1996, Side 12
12 FÖSTUDAGUR 24. MAÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
b
AKUREYRI
Dregið úr starfsemi Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri í sumar
Þremur deildum lokað um hríð
ENDURHÆFINGARDEILD Fjórðungssjúkra-
hússins á Akureyri á Kristnesspítala verður lokuð
í fímm vikur í sumar, frá 21. júlí til 24. ágúst og
á sama tíma verður rúmum á öldrunarlækninga-
deild spítalans lokað. Ráðgert er að starfsemi
lyflækningadeildar liggi niðri í júlímánuði. Á
ýmsum deildum verður þjónustan skert og ein-
ungis bráðaþjónusta veitt á tímabili í sumar á
öðrum deildum.
Aðhald og sparnaður hefur einkennt rekstur
sjúkrahússins á undanförnum árum að sögn
Halldórs Jónssonar framkvæmdastjóra sem
kveður að starfsfólk hvergi nærri sátt við þann
sífellda slag sem væri um hverja krónu, en
með samstilltu átaki hefði náðst að reka sjúkra-
húsið á þeim fjárveitingum sem því væri
skammtað. Fjárveitingar í ár nema rúmlega
1,3 milljarði króna, eru 2,67% hærri en á liðnu
ári og sagði Halldór ljóst að halda þurfi vel á
spöðunum til að endar nái saman. „Okkar
markmið er að skerða þjónustu sem allra
minnst, en hjá því verður ekki komist að draga
úr starfsemi einstakra deilda yfir sumarmánuð-
ina,“ sagði hann.
Samkvæmt áætlun um starfsemina verður
tveimur deildum á Kristnesspítala lokað um mitt
sumar sem og einnig annarri lyflækningadeild-
inni á FSA. Bráðastarfsemi verður yfir sumar-
mánuðina á augnlækningadeild og kvensjúk-
dómadeild. Á ýmsum deildum verður um skerta
þjónustu að ræða, t.d. verða tvær skurðstofur
mannaðar yfir sumarmánuðina þijá. Rúmum
verður fækkað á nokkrum deildum og þá verður
reynt að draga úr mannahaldi á flestum deildum
sjúkrahússins. Þá verður leikskóli sjúkrahússins,
Stekkur, lokaður í fjórar vikur í .sumar.
Leikfélag Akureyrar sýnir 6 leikverk á afmælisári
Vefarinn
mikli frá
Kasmír
NÆSTA leikár Leikfélags Akur-
eyrar einkennist af 80 ára afmæli
félagsins 19. apríl 1997 og þá verða
90 ár liðin í janúar á næsta ári frá
því Samkomuhúsið var vígt. Auk
þessara tímamóta eiga tveir aðalleik-
arar félagsins, Sunna Borg og Þrá-
inn Karlsson leikafmæli, Sunna 30
ára og Þráinn 40 ára.
Einleikurinn, Sigrún Ástrós verð-
ur fyrsta frumsýning leikársins, 20.
september og fer Sunna Borg með
hlutverk hennar. Þráinn Karlsson
leikstýrir. Þá setur LA upp Dýrin í
Hálsaskógi eftir Thorbjorn Egner í
leikstjóm Ingunnar Jensdóttur.
Jólaverkefnið verður nýlegt verk
eftir bandarískan Bosníumann,
Steve Tesich sem á frummálinu heit-
ir On the Open Road en vinnutitill
þess er Á berangri. Leikstjóri verður
Eyvindur Erlendsson en Hallgrímur
Helgi Helgason þýðir.
Morgunblaðið/Kristján
YERKEFNI Leikfélags Akureyrar á næsta leikári voru kynnt í gær og ekki annað að sjá en Ing-
vari Björnssyni Ijósamanni, Önnu Pálu Kristjánsdóttur sýningarstjóra, Trausta Ólafssyni leikstjóra,
og leikurunum Aðalsteini Bergdal og Þráni Karlssyni lítist vel á afmælisleikárið sem framundan er.
Ástin á sviði Samkomuhússins
í tilefni þess að 90 ár verða lið-
in frá vígslu Samkomuhússins
frumsýnir leikfélagið ásamt Leik-
húskórnum kabarett sem hlotið
hefur yfirskriftina Ástin á sviði
Samkomuhússins. Sýningin er ofin
saman úr söngvum og stuttum
leiknum atriðum þar sem saga LA
er rifjuð upp. Roar Kvam útsetur
og stjórnar tónlistinni en Sunna
Borg leikstýrir.
Afmælisverkefni Leikfélags Ak-
ureyrar í tilefni 80 ára afmælis fé-
lagsins verður leikgerð Halldórs E.
Laxness og Trausta Ólafssonar eft-
ir skáldsögu Halldórs Laxness Vef-
arinn mikli frá Kasmír. Á næsta
ári verða 70 ár liðin frá útkomu
bókarinnar og ætla Leikfélagið og
bókaforlagið Vaka-Helgafell af því
tilefni af efna til ritgerðarsam-
keppni meðal framhaldsskólanema
um þessa nafntoguðu bók Nóbels-
skáldsins. Marta Nordal og Þor-
steinn Bachmann fara með hlutverk
Diljár og Steins Elliða. Verkið verð-
ur frumsýnt 21. mars en sérstök
hátíðarsýning verður á afmælisdag-
inn, 19. apríl.
Framlag LA til Kirkjulistaviku
Akureyrarkirkju verður flutningur
Markúsarguðspjalls á sviði Sam-
komuhússins. Aðalsteinn Bergdal
flytur guðspjallið en Trausti Ólafs-
son leikstýrir.
SKAGSTRENDINGUR HF.
SKAGASTRÖND
Almennt hlutafjárútboð
Útgefandi:
Sölutímabil:
Forkaupsréttur:
Skagstrendingur hf.
24. maí 1996 - 24. nóvember 1996.
Hluthafar hafa forkaupsrétt að hlutabréfum félagsins á tímahilinu 24. maí - 8. júní
1996. Þau hlutabréf, sem óseld kunna að verða að loknu forkaupsréttartímabili, mun
félagið selja á almennutn markaði eftir þann tíma.
Nafnverð hlutabréfanna:
Sölugengi:
50.000.000 kr.
5,0 á forkaupsréttartímabili og 5,6 á fyrsta degi almennrar sölu. Gengiö getur breyst á
sölutímabilinu verði breytingar á markaðsaðstæðum.
Söluaðilar:
Kaupþing Norðurlands hf., Kaupþing hf., Landsbréf hf., Fjárfestingarfélagiö Skandia
hf., Handsal hf., Verðbréfamarkaður íslandsbanka hf. og afgreiðslur sparisjóðanna.
Skráning:
Umsjónaraðili útboðs:
Óskað er skráningar hins nýja hlutafjár á Verðbréfaþingi íslands.
Kaupþing Norðurlands hf.
Útboös- og skráningarlýsing liggur frammi hjá söluaðilum og útgefanda.
44 KAUPÞING
NORDURLANDS HF
löggilt verðbréfafyrirtœki
Kaupvangsstrœti 4, 600 Akureyri - Sími 462-4700, fax 461-1235
Vinnslubúnað-
ur í Eyborgu
SLIPPSTÖÐIN hf. hefur gert samn-
ing við útgerð Eyborgar EA um smíði
og niðursetningu á vinnslubúnaði í
skipið. Eyborgin er þessa dagana í
umfangsmikilli breytingu í Noregi,
þar sem skipið verður m.a. lengt um
19 metra.
Ingi Bjömsson, framkvæmdastjóri
Slippstöðvarinnar segir að hér sé um
nokkuð stórt verk að ræða. Slippstöð-
in er þessa dagana að vinna við stór
verkefni í togurunum Cuxhaven, sem
er í eigu Deutsche Fishfang Union,
dótturfyrirtækis Samheija hf. og
Frosta ÞH á Grenivík.
Verkefnastaða fyrirtækisins hefur
verið með besta móti og í byijun maí
komu 10 pólskir járniðnaðarmenn til
starfa hjá stöðinni. Tveir þeirra fóru
heim um miðjan mánuðinn en Ingi
gerir ráð fyrir að hinir átta starfi
áfram fram í júní eða þar til fram-
kvæmdúm við Cuxhaven lýkur.
*
Astarsaga
úr fjöllunum
MÖGULEIKHÚ SIÐ sýnir
barnaleikritið Ástarsögu úr fjöll-
unum í félagsmiðstöðinni Dyn-
heimum á Akureyri á morgun,
laugardag, kl. 14.
Leikritið er byggt á sam-
nefndri sögu Guðrúnar Helga-
dóttur og hefur á undanfömum
misserum verið sýnt í leikskólum
og víðar við góðar undirtektir,
en sýningar eru orðnar yfír 100.
í sögunni segir frá tröllskess-
unni Flumbru, strákunum henn-
ar átta og ástinni í fjöllunum,
en öðrum þræði er þetta líka
saga um landið okkar og þá
leyndardóma sem það býr yfir,
lífíð sem kann að leynast í hveij-
um kletti og hól.
Leikstjóri er Stefán Sturla
Siguijónsson, leikmynd gerði
Hlín Gunnarsdóttir, tónlist er
eftir Björn Heimi Viðarsson og
söngtextar eftir Pétur Eggerz.
Leikarar em Alda Amardóttir
og Pétur Eggerz.
Hönnun og
handverk
á Punktinum
SÝNINGIN Hönnun og hand-
verk verður opnuð á tómstund-
amiðstöðinni Punktinum á
Gleráreyrum næstkomandi
laugardag, 25. maí kl. 16.
Á sýningunni verður sýnd
samvinna hönnuða og tveggja
handverkshópa á Vesturlandi,
annars vegar Védís og Hnokki
og hins vegar Ásdís og Ullar-
selið. Védís Jónsdóttir hönnuð-
ur sýnir árangur samstarfs
hennar og handverkshópsins
Hnokka sem starfar í Borgar-
firði og á Snæfellsnesi og Ásdís
Birgisdóttir hönnuður sýnir
peysur sem hún hefur hannað
úr handspunninni fiðu og ull frá
Ullarselinu á Hvanneyri. Kuð-
ungahnappar og horntölur em
einnig hráefni sem hún notar.
Sýningin stendur yfír frá
laugardeginum 25. maí og til
6. júní og er opin á sama tíma
og Punkturinn og einnig um
helgar frá kl. 13 til 16., en lok-
að er á hvítasunnudag.
Sýningu að
ljúka
SÝNINGU á málverkum Gunn-
ars J. Straumlands og högg-
myndum Sólveigar Baldurs-
dóttur í Listasafninu á Ak-
ureyri lýkur annan hvítasunnu-
dag, 27. maí næstkomandi.
Safnið er opið alla daga frá 14
til 18 nema mánudag, en þó
verður opið annan í hvítasunnu
Síðasta sýn-
ingarhelgi
SYNINGU Gunnars J. Straum-
lands í Gallerí+, Brekkugötu 35
lýkur á 26. maí. Opið er frá kl.14
til 18. Á sýningunni era vegg-
málning, málverk og innsetning
með krossum og plúsum.
BIFREIÐASTÆÐASJOÐUR
AKUREYRARBÆJAR
Frá og með 23. maí 1996 mun sá afsláttur sem veittur er af
álögðum aukastöðugjöldum sem greidd eru innan þriggja virka
daga lækka úr 550 kr. í 350 kr.
Upphæð aukastööugjalds er eftir sem áður óbreytt eða 850 kr. en
með afslæti 500 kr.
Bæjarverkfræðingurinn á Akureyri.
I
I
»
\
»
X
\