Morgunblaðið - 24.05.1996, Side 14
14 FÖSTUDAGUR 24. MAÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
LAIMDIÐ
Norræn ung-
bændaráð-
stefna á
Höfðabrekku
Fagradal - Ráðstefna um ferða-
þjónustu og landnýtingu ferða-
mennskunnar var haldin að
Höfðabrekku í Mýrdal en það
voru ungir bændur frá öllum
Norðurlöndunum sem voru á ráð-
stefnunni.
Að ráðstefnunni stóðu Ung-
mennafélag íslands og Ung-
mennasamband Vestur-Skafta-
fellsýslu. Ráðstefnan stóð í þrjá
daga og fór tíminn bæði í fyrir-
lestra og ýmiss konar afþreyingu
s.s. keppni í dráttarvélarakstri,
fiskveiðum og eggjatínslu. Einn-
ig var plantað 100 plöntum og
reistur minnisvarði um ráðstefn-
una á Höfðabrekku. Að sögn ráð-
stefnuhaldara tókst ráðstefnan í
alla staði mjög vel.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
MINNISVARÐI var reistur um ráðstefnuna í Höfðabrekku og var myndin tekin við afhjúpun hans.
Vortónleik-
ar í Mý-
vatnssveit
Mývatnssveit. Morgunblaðið.
VORTÓNLEIKAR Tónlistar-
skóla Mývatnssveitar voru
haldnir í Barnaskólanum í
Reykjahlíð 21. maí. Þar
sungu og léku nemendur á
ýmis hljóðfæri, s.s. píanó,
fiðlur, blokkflautur og þver-
flautur bæði einleik og við
undirleik kennara. Yfirleitt
gerðu nemendur verkefnum
sínum góð skil og höfðu við-
staddir ánægju af að hlýða.
Síðast sungu eldri nemendur
skólans einsöng og dúett með
undirleik kennaranna. í vetur
voru kennarar skólans Sigríð-
ur Einarsdóttir og Wolfgang
Tretzsch. Kynnir á tónleikun-
um var Hólmfríður Guð-
mundsdóttir skólastjóri.
Bókun í bæjarstjórn Bolungarvíkur
Oeðlilegt að fé af vegaaætl-
un fari til reksturs bílferju
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
ALLIR vildu fá að halda á lömbunum og klappa þeim.
Lambaferð leikskólabarna
ísafirði - Bæjarstjórn Bolungar-
víkur samþykkti á síðasta fundi
sínum bókun vegna stefnumótun-
ar í vegamálum þar sem m.a. er
fagnað áunnum stóráföngum í
samgöngumálum á Vestfjörðum
og því lýst yfír að tímabært sé að
hefja nú þegar umræðu um nýja
langtímaáætlun sem og að marka
heilsteypta stefnu í uppbyggingu
vegakerfisins innan fjórðungsins.
I bókuninni, sem send hefur
verið Halldóri Blöndal samgöngu-
ráðherra og þingmönnum kjör-
dæmisins, segir m.a.:
„Bæjarstjóm er ljóst að for-
senda byggðaþróunar á Vestfjörð-
um er öruggar heilsársamgöngur.
Ljúka þarf hið
fyrsta við endur-
bætur á Djúpvegi
Ljúka þarf hið fyrsta við endur-
bætur á Djúpvegi og telur bæjar-
stjórn Bolungarvíkur það fljótvirk-
ustu leiðina til að ná þeim árangri
að tengjast aðalvegakerfí landsins
árið um kring.
Bæjarstjórn telur í alla staði
óeðlilegt að fjármunum af vega-
áætlun verði varið til að reka bíl-
feiju og byggja feijubryggjur við
ísafjarðardjúp. Stofnkostnaður og
rekstur slíkra samgangna verði
frekar á hendi félagasamtaka eða
einkaaðila án stuðnings ríkissjóðs.
Þjónusta við eyjar í ísafjarðardjúpi
verði þó með stuðningi ríkissjóðs.“
Þá segir í bókuninni að bæjar-
stjórn lýsi yfir skilningi á undir-
búningi að framkvæmd heilsárs-
vegatengingar milli byggðakjarna
á sunnan- og norðanverðum Vest-
ijörðum, samhliða byggingu heils-
ársvegar út úr kjördæminu um
Vestfjarðaveg frá Vatnsfirði að
Gilsfirði enda hljóti slík fram-
kvæmd að koma næst á eftir áður
samþykktum áætlunum í vega-
málum á Vestfjörðum.
Vestmannaeyjum - Börn af leik-
skólanum Kirkjugerði í Eyjum
fóru í svokallaða Lambaferð í
góðviðrinu nýlega. Farið var suð-
ur á Breiðabakka þar sem frí-
stundabændur í Eyjum eru með
kindur sínar til að kíkja á lömbin
og gefa kindunum brauð.
Farið var með rútu frá leikskól-
anum og var mikil eftirvænting
hjá börnunum. Þegar komið var
að girðingu kindanna röðuðu
börnin sér með brauð við hana
og voru kindurnar fljótar að
koma og gæða sér á því. Börnin
fengu síðan að fara inn fyrir girð-
inguna til að halda á lömbunum,
klappa þeim og kyssa þau og voru
þau ekkert hrædd og allir vildu
fá að halda á lömbunum.
Morgunblaðið/Eyjólfur M. Guömundsson
JÓNAS Pétursson við uppsetningu muna í safninu.
Laxfiskasafn opnar
við Seltjöm
Mjólkursamlagið í Búðardal
Borgarnes-skyr
frá Búðardal
stenst samanburð
Bifreiða- og
vélaverk-
stæði opnað
Þórshöfn - Nýtt bifreiða- og véla-
verkstæði var opnað formlega fyrir
skömmu og voru Þórshafnarbúar og
nærsveitungar velkomnir í nýja fyr-
irtækið, sem hlaut nafnið Þistill. Þar
vinna sjö menn auk skrifstofumanns.
Það er ungur Reykvíkingur, Kári
Pálsson, sem er rekur Þistil en fleiri
eiga þar eignaraðild. Kári er Iærður
stálsmíðameistari. Öll almenn bif-
reiðaþjónusta verður veitt hjá Þistli
- hjólbarðaþjónusta, smurstöð og
sprautun. Járn- og rennismíði er
einnig á boðstólum og þjónusta við
báta og markmiðið er að geta veitt
flotanum góða þjónustu.
Aðspurð sögðu hjónin Kári Páls-
son og Guðrún Olafsdóttir að þeim
litist vel á staðinn og fólkið.
-----------*--*—*----
Námsstefna
RKÍ á Flateyri
Flateyri - Nýlega var haldin í
mötuneyti Kambs á Flateyri náms-
stefna á vegum Rauða Kross ís-
lands. Þetta var námsstefna fyrir
flokkstjóra í fjöldahjálp. Námskeið-
ið sóttu 11 manns víðsvegar að frá
nærliggjandi fjörðum.
Þetta er 3. námskeiðið sem hald-
ið er á einu ári. Námskeiðið fjallaði
um skipulagningu og uppsetningu
fjöldahjálparstöðvar sjálfboðaliða
Rauða Krossins.
Vogum - Laxfiskasafn á veiði- og
útivistarsvæðinu Seltjörn við
Grindavíkurveg opnar laugar-
daginn 25. maí. Safnið er í
rústum gamla íshússins sem var
byggt 1941.
Að sögn Jónasar Péturssonar
gefur á safninu að líta ýmsan
fróðleik tengdan lax- og silungs-
veiði og lifsmunstri laxfiska. All-
ir íslenskir laxfiskar eru saman-
komnir á einum stað í sérútbún-
um sýningartönkum. Það eru
atlanthafslax, bleikja, urriði, sjó-
birtingur og regnbogasilungur.
Þá er sýnt stórt safn gamalla
stangveiðimuna, þar má nefna
Hardy-hjól sem er það elsta hér
á íslandi, frá því árið 1890.
Safnið er opið á sama tíma og
veiði- og útivistarsvæðið eða frá
kl. 10 til 22 alla daga vikunnar.
SKYR frá Mjólkursamlaginu í Búð-
ardal stenst fyllilega samanburð
við svokallað Borgarnesskyr frá
Mjólkursamlaginu á ísafirði. Hins
vegar er bragðið ekki alveg hið
sama enda er skyrbragð alltaf svo-
lítið breytilegt á milli mjólkursam-
laga að sögn Sigurðar Rúnars Frið-
jónssonar mjólkursamlagsstjóra í
Búðardal.
Greint hefur verið frá því að
bragð Borgarnesskyrsins hafí ekki
haldist óbreytt eftir að framleiðsl-
an hafi verið flutt frá Borgarnesi
til Búðardals í nóvember sl.
Mjólkurfræðingur frá Borgarnesi
hafi því verið beðinn um að fram-
leiða skyrið í nuverandi heimkynn-
um sínum á Isafirði. Borgarnes-
skyr frá ísafirði væri því til sölu í
Borgarnesi.
Sama aðferð notuð
Sigurður Rúnar viðurkenndi að
eftir ágæta byijun hefði framleiðsl-
an farið að ganga verr seinnihluta
mars og í byrjun apríl. „Við höldum
að ástæðan hafi verið að eftir að
farið var að framleiða skyrið dag-
lega hafi geijunin orðið hraðari en
áður. í framhaldi af því breyttum
við framleiðsluaðferðinni og tækn-
inni í kringum skyrframleiðsluna
aðeins og teljum okkur nú vera
komna með mjög gott skyr,“ sagði
Sigurður Rúnar.
Sigurður Rúnar sagðist hafa
smakkað skyrið frá Isafirði og
hann þyrði að fullyrði að skyrið frá
Búðardal stæðist fyllilega saman-
burð við það. Hins vegar væri
bragðið ekki alveg hið sama enda
væri skyrbragð alltaf svolítið
breytilegt á milli mjólkursamlaga.
„Sama aðferð er notuð en munur-
inn getur falist í því hvaða gerlar
eru notaðir og hvaða hitastig og
aðferð við upphitun. Síðan getur
verið mismunandi hvernig skyrið
er kælt,“ sagði hann.
Hann tók fram að skyr væri
holl og þjóðleg afurð sem ástæða
væri til að halda í. Skyrneysla
væri líka töluverð, t.d. hefði skyr-
neysla verið 4,9 kg á íbúa á síð-
asta ári. Skyrið er fitulaust og
kalkríkt.