Morgunblaðið - 16.06.1996, Blaðsíða 12
ftí ■ >*!■! HJl -i' JI JOA M 01( HOM
12 D SUNNUDAGUR 16. JLINÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ
SUMARFRÍ Á ÍSLAIMDI
Morgunblaðið/Sverrir
ISAFJORÐUR en vinalegur bær, þar sem ferðalangar geta haft það náðugt,
en að sama skapi er næg afþreying, óski fólk hennar.
Morgunblaðið/Þórdís HAdda
VIGUR i ísafjarðardjúpi hlaut umhverfisverðlaun
Ferðamálaráðs á síðasta ári.
Stórbrotin nóttúra,
gott mannlíf og að
auki næg af þreying
„ÍSLENDINGAR virðast margir
fara vítt og breitt um landið, sérstak-
lega eftir hringveginum, áður en
þeir koma til Vestfjarða, en það
verður enginn svikinn af heimsókn
hingað. Sú skoðun virðist ríkjandi,
að langt og erfítt sé að ferðast til
Vestfjarða, en ég bendi fólki til
dæmis á að flugið milli Reykjavíkur
og ísafjarðar tekur aðeins 40 mín-
útur og er þar með næst stysta flug-
leið á áfangastaði Flugleiða. Vegir
hér fara líka batnandi, en aðall okk-
ar í ferðaþjónustunni eru alls konar
gönguferðir og bátsferðir."
Þetta segir Þórunn Gestsdóttir,
upplýsinga- og ferðamálafulltrúi
ísafjarðarbæjar. Þegar Þórunn segir
að enginn verði svikinn af heimsókn
vestur hefur hún örugglega margt
til síns máls, enda hljóta allir að
geta fundið eitthvað við sitt hæfi í
hennar umdæmi, sem nær allt frá
Langanesi í Amarfirði og austur á
Strandir.
Þórunn viðurkennir fúslega að
ekki séu allir vegir vestur malbikað-
ar hraðbrautir, en segir þó ástæðu-
laust að láta vegakerfið fæla sig frá
Vestfjarðaheimsókn. „Ég ók sjálf
Djúpveginn fyrir skömmu og hann
er ágætur. Náttúrufegurðin við Djúp
er líka slík, að það skiptir engu þótt
vegurinn sé ekki fljótfarinn. Auðvit-
að þyrfti að bæta vegi yfir ýmsar
heiðar, til að tengja svæðið enn bet-
ur saman, en ferðamenn eiga þó
margra kosta völ. Jarðgöng undir
Breiðdalsheiði, sem tengja Isafjörð,
Súgandafjörð og Önundarfjörð og
aðra firði þar suður af, eru auðvitað
stórkostleg samgöngubót. Þau verða
að vísu lokuð í sumar á meðan verið
er að Ijúka malbikunarvinnu og
ferðalangar sem vilja aka heiðina
eiga þess kost í síðasta sinn í sumar.“
Upplýslngar í Edlnborgarhúsi
Þegar Þómnn var tekin tali var
undirbúningur fyrir sumarið í fullum
gangi. „Við fáum fjölda fyrirspurna
FERÐAMENN til VestQarða
geta nú faríð í þriggja daga
skipulagða gönguferð frá
Dýraflrði yflr í Lokinhamradal
og Svalvoga. Þessa ieið kalla
Vestfirðingar „Vesturg8tuna“
og verður hán farin í fyrsta
sinn í sumar.
Flestir hafa heyrt talað um
„Laugaveginn" og er þá ekki
átt við þann sem liggur frá
Bankastrætinu í Reykjavík, inn
að Suðurlandsbraut, heldur er
þetta heiti íjallamanna á leið-
inni á milli Land mannalau ga
og Þórsmerkur. Aðrar göngu-
leiðir á hálendinu hafa svo hlot-
ið nöfnin „Aust urstræti" og
„Hverfisgata", svo dæmi séu
nefnd. „Vesturgatan“ á að
sjálfsögðu hvergi að vera nema
um ferðir um Vestfírði og erum
bjartsýn á starf sumarsins. Nú hefur
aðstaða til að sinna ferðamönnum
enn batnað á ísafirði, því ný upplýs-
ingamiðstöð hefur verið opnuð í
Aðalstræti 7, hinu sögufræga Edin-
borgarhúsi. Ahugafólk hefur séð um
endurbyggingu hússins og þar verð-
ur ýmis menningarstarfsemi í fram-
tíðinni, auk upplýsingaþjónustunnar
og ferðaskrifstofunnar Vestur-
ferða."
Gott mannlíf, öflug þjónustufyr-
irtæki og stórbrotin náttúra eru í
sjálfu sér næg ástæða fyrir ferða-
fólk til að heimsækja Vestfirðina,
að mati Þórunnar, en að sjálfsögðu
stendur enn fleira til boða. „Sigling-
ar og gönguferðir eru okkar aðals-
merki. Djúpbáturinn Fagranes siglir
um Djúp og norður á Homstrandir,
auk þess að fara tvisvar sinnum í
lengri ferðir í Reykjafjörð. Fagranes-
ið kemur líka við í Vigur, eyjunni
fögru sem fékk umhverfisverðlaun
Ferðamálaráðs íslands þegar þau
voru veitt fyrsta sinni í fyrra. í Vig-
ur er hægt að njóta veitinga í Viktor-
íuhúsi. Þá er boðið upp á siglingar
í Hesteyri, ferðafólk fer í land og
gengur yfir í Aðalvik, þar sem bátur-
inn bíður. Hrefnuveiðimaðurinn
Konráð Eggertsson rekur líka fyrir-
tækið Kjöi og er með tvo báta á sín-
á sjálfum Vestfjörðunum.
Ganga eftir Vesturgötunni
hefst í Haukadal, Dýrafírði.
Gengið er inn Haukadal og síð-
an inn Lambadai og yfir Lokin-
hamraheiðlna, sem er í 600
metra hæð yfír sjávarmáli. Þá
er gengið niður Lokinhamradal
á áfangastað.
A öðrum degi er gengið frá
Lokinhamradal út í Svaívoga,
þar sem gist er aðra nóttina.
Þessi dagleið er stutt, en mai-g-
ir möguleikar eru á göngum
um nágrennið. Fyrir svefninn
njóta göngugarpar sólarlags-
ins.
A lokadegi göngunnar er
gengið fyrir Hafnamesið að
Haukadal, þar sem gangan
hófst. ■
um snærum. Annar er hraðbáturinn
Anna, sem tekur tíu farþega. Hann
siglir samkvæmt áætlun í Vigur og
um Djúp eftir pöntun. Hinn báturinn
er fiskibáturinn Halldór Sigurðsson
ÍS 14, sem er 30 tonna bátur og
hefur honum verið breytt í farþega-
bát fyrir 40-50 farþega. Kjölur er í
samvinnu við Vesturferðir. Þá reka
hjónin Guðrún Kristj-
ánsdóttir og Hafsteinn
Ingólfsson nítján far-
þega bát, Blika ÍS. Þau
sigla með ferðamenn í
skemmtiferðir um ísa-
fjarðardjúp, Jökulfirði
og Homstrandir.
Islendingar eru fjöl-
mennastir ferðamanna á
Vestfjörðum, en erlendir
ferðamenn, svo sem
Þjóðveijar, hafa einnig
sýnt landsvæðinu vax-
andi áhuga. „Við eigum
ekki eingöngu að líta til
erlendra ferðamanna,
sem em um 140-150
þúsund á ári og þeirrar
staðréyndar að þeir eyði
hér 18 miiljörðum. Auð-
vitað em þeir peningar sem ferða-
þjónustan aflar þjóðarbúinu á þenn-
an hátt mikilvægir; en við megum
ekki gleyma því að Islendingar sjálf-
ir nota 8-10 milljarða króna í sínu
fríi og þessum hópi verður að sinna
vel.“
Göngur, sigllngar og veiðl
Göngugarpar, sem sækja Vest-
firði heim, hafa ávallt verið hrifnir
af Homströndum og þangað em
skipulagðar fjölmargar ferðir í sum-
ar. „Við gleymum þó ekki okkar
nánasta umhverfí, sem býður upp á
fjölmargar, skemmtilegar göngu-
leiðir, til dæmis á milli Önundarfjarð-
ar og Álftafjarðar, eða Þingeyrar
og Álftafjarðar. Frá ísafirði er hægt
að fara fjölmargar styttri ferðir, upp
í Naustahvilft eða að Fossavatni, svo
dæmi séu nefnd. Gönguferðirnar era
því við allra hæfi og nú fæst svo
góður útbúnaður, að veðrið skiptir
engu máli, enda ætla ég nú ekki að
lofa sól og blíðu alla daga. Slíkt
samræmist nú ilia ferðamennsku á
íslandi."
Sægörpum má benda á að á
þriðjudögum og fimmtudögum í
sumar er boðið upp á siglingu um
Djúpið, farþegar spreyta sig í sjó-
stangaveiði og bomar eru fram veit-
ingar um borð. „Möguleikar á styttri
ferðum em nánast óþijótandi. Boðið
er upp á dagsferð um ísafjörð og
Bolungarvík með siglingu út í Vig-
ur, þijá daga vikunnar er boðið upp
á þriggja klukkustunda siglingu um
Jökulfirði, hægt er að rölta í tvo tíma
um ísafjarðarkaupstað í fylgd leið-
sögumanns, fara í hringferð um
Homstrandir, siglt er í Unaðsdal,
þeir sem ekki vilja sigla á Horn-
strandirnar geta flogið
í Reykjafjörð, en þaðan
er hægt að ganga að
rótum Drangajökuls.
Það er líka hægt að
fara í hópferð að foss-
inum Dynjanda í Arn-
arfirði, eða heimsækja
Dýrafjörð og skoða
sögusvið Gísla sögu
Súrssonar og er fátt
eitt nefnt."
Turnhús og
Tjöruhús
Ef ferðalangar era
um kyrrt á ísafirði
geta þeir gert sér
ýmislegt til dundurs
og fróðleiks. Þórunn
segir að flestir gestir
fari í Turnhúsið og Tjömhúsið, 18.
aldar hús í Neðstakaupstaðnum. „í
Tjömhúsinu verða svokölluð Sumar-
kvöld, en í fyrra hófu Vesturferðir,
Byggðasafn Vestfjarða og Listaskóli
Rögnvaldar Ólafssonar samvinnu
um að hleypa dagskrá þessara
kvölda af stokkunum," segir Þómnn.
„Sumarkvöldin verða sjö og hefur
hvert kvöld ákveðið viðfangsefni sem
tengist Vestfjörðum á einn eða ann-
an hátt, flutt er erindi um efnið á
íslensku og ensku og tónlist tengd
viðfangsefninu flutt. Auk þess er
einn safngripur sýndur, notagildi
hans lýst og flutt stutt erindi um
húsin í Neðstakaupstað. Þá eru
kaffiveitingar í hefðbundnum ís-
lenskum stíl.“
Ísafjarðarhátíð
í bæ þar sem íbúamir halda ár-
legt sólarkaffi til að fagna því að
sólin er farin að gægjast yfir fjalls-
toppana á ný eftir dimma vetrar-
mánuði þarf ekki að koma á óvart
að blásið sé tii sérstakrar hátíðar til
að fagna hásumri. Þetta gera ísfirð-
ingar dagana 26.-28. júlí. „Þessi
hátíð er til að lyfta mönnum upp og
fá dálitla tilbreytingu. Boðið verður
upp á siglingar, ýmiss konar tónlist-
arfiutning og götumarkað, svo fátt
eitt sé nefnt,“ segir Þórann. „Við
ætlum líka að halda sérstaka hátíð
um Verslunarmannahelgina, en hún
verður andstæða flestra annarra
hátíða um þá helgi, því hún ber yfir-
skriftina „I ró og næði“. Sú hátíð
verður að mörgu leyti með svipuðu
sniði og Ísafjarðarhátíðin, en yfir-
bragð hennar öllu rólegra, eins og
nafnið gefur til kynna.“
Nú mæti ætla að upplýsinga- og
ferðamálafulitrúinn hefði nefnt flest
það sem í boði er á Vestfjörðum, en
það reynist rangt, því aðeins hefur
verið stiklað á stóru. Ekki hefur
verið tíundað að tónlistarlíf í Ísa-
fjarðarbæ verður með miklum blóma
í sumar sem endranær, og enn bjóð-
ast ótal aðrir möguleikar til afþrey-
ingar. Farin verður „óvissuferð" í
Önundarfjörð þann 24. júlí, sand-
kastalakeppni haldin þar á fjöl-
skylduhátíð þann 3. júlí, fiskmarkað-
ur í Neðstakaupstað á ísafirði 10.
júlí, kraftakeppnin „Vestfjarðavík-
ingurinn" 11.-13. júlí og golfmót era
mörg og margvísleg. Um næstu
helgi, 22. júní, hlaupa Vestfírðingar
og gestir hálfmaraþon í Óshlíðinni.
Það þarf því ekki að efast um orð
Þórannar, þegar hún segir að sífellt
sé verið að hrinda nýjum hugmynd-
um í framkvæmd um alla Vestfirði.
„Þetta er sú atvinnugrein sem við
getum lagt enn meiri áherslu á,“
segir hún. „Við getum selt sérstöðu
náttúmnnar og stefnt að því að gera
Vestfírðina umhverfisvænt svæði,
enda er vaxandi áhugi á svokallaðri
grænni ferðamennsku. Hérna vantar
svo sannarlega ekki heillandi um-
hverfi og Vestfirðingar sjálfir eiga
nóg í pokahominu fyrir ferðamenn,"
segir Þórunn Gestsdóttir, upplýs-
inga- og ferðamálafulltrúi ísafjarð-
arbæjar. ■
Dagskrá
sumarkvölda
SUMARKVÖLD1996 eru 811
fimmtudagskvöld frá 27.
júní til 15. ágúst S Tjöruhús-
inu I Neðstakaupstað á
ísafirði. Þau eru öllum opin
og hefst dagskráin öll kvöld-
in kl. 20.30.
Dagskráin í sumar er með
þeim hætti, að fyrsta kvöld-
ið, 27. júní, verður fjallað
um kynlega kvisti á Vest-
fjörðum. Þann 4. júlí er fjall-
að um stríðsárin, 11. júli er
tileinkaður hreppaflutning-
um og sá 18. kvöldvökum
og húslestrum. 25. júlí verð-
ur fjallað um lífið á reitun-
um; saltfiskvinuslufyrri
tíma. Fyrsta dag ágústmán-
aðar verður túnlist í Tjöru-
húsinu, þann 8. verður sagt
af farskólum og öðrum
skólamálum á Vestfjörðum
liðinna alda og síðasta Sum-
arkvöldið verður í Vigur
þann 15. ágúst. ■
Gengið eftir Vesturgötu
Þórunn
Gestsdóttir.