Morgunblaðið - 16.06.1996, Qupperneq 34
MORGUNBLAÐIÐ
r\ _*>»• *v'if Tfr
34 D SUNNUDAGUR 16. JÚNÍ 1996
Fáðu Moggann
til þín í fríinu
Morgunblaðið þitt sérpakkað
á sumarleyfisstaðinn
Viltu fylgjast með í allt sumar?
Morgunblaðið býður áskrifendum sínum þá þjónustu að fá blaðið sitt sérpakkað
og merkt á sölustað nálægt sumarleyfisstaðnum innanlands.
Hringdu í áskriftardeildina í síma 569 1 1 22 eða sendu okkur útfylltan seðilinn
og þú fylgist með í allt sumar.
- kjarni málsins!
Já takk, ég vil nýta þjónustu Morgunblabsins og fá
blaðib sent á eftirfarandi sölustab á tímabilinu
frá_____________________________til_
Hvert viltu fá blaðið sent? Merktu við.
□ Esso-skálinn, Hvalfirði
□ Ferstikla, Hvalfirði
□ Hyrnan í Borgarnesi
□ Baula, Stafholtst., Borgarfirði
□ Munaöarnes, Borgarfirði
□ Bitinn, Reykholtsd., Borgarfirði
□ Sumarhótelið Bifröst
□ Hreðavatnsskáii
□ Brú í Hrútafirði
□ Staðarskáli, Hrútafirði
□ Varmahlíð, Skagarfirði
□ Illugastaðir
□ Hrísey
□ Grímsey
□ Grenivík
□ Reykjahlíð, Mývatn
□ Laufið, Hallormsstað
□ Söluskálar, Egilsstöðum
□ Skaftárskáli, Kirkjubæjarklaustri
□ Víkurskáli, Vík í Mýrdal
□ Hlíðarlaug, Úthlíð, Biskupstungum
□ Laugarás, Biskupstungum
□ Bjarnabúð, Brautarhóli
Q Verslunin Hásel, Laugarvatni
□ Minni Borg, Grímsnesi
□ Verslunin Grund, Flúðum
□ Árborg, Gnúpverjahreppi
□ Þrastarlundur
□ Ölfusborgir
□ Shellskálinn, Stokkseyri
□ Annað_________________-
NAFN
KENNITALA
SUMARLEYFISSTAÐUR____________________ ■ ' '
PÓSTNÚMER______________________SÍMI ■' ' /
Utanáskriftin er:
Morgunblaðið, áskriftardeild, Kringlunni 1, 103 Reykjavík.
SUMARFRÍ Á ÍSLANDI
Morgunblaðið/Sverrir
Róðf ró reyndum
fjallamönnum
HJA ferðafélögum og verslunum
sem selja ýmsan útilífsfatnað
hafa menn á orði á íslendingar
hafi „fundið fæturna“ um 1990.
Með þessu er átt við, að íslending-
ar áttuðu sig allt í einu á að allir
þessir útlendingar, sem voru á
sífelldu vappi um fjöllin á íslandi,
hefðu eitthvað til síns máls; það
væri ef til vill ekki svo galið að
reyna þetta líka. Islendingar, eins
og aðrar þjóðir, eru líka orðnir
meðvitaðri um nauðsyn hollrar
hreyfingar og með gönguferðum
er hægt að sameina þjálfun og
skemmtiíega útivist í fögru um-
hverfi.
En draumaferðin á fjöll getur
breyst í martröð ef útbúnaðurinn
er lélegur. Til allrar hamingju
átta flestir sig á þessu, en til
glöggvunar þeim fjölmörgu nýju
fjallamönnum sem á hveiju ári
bætast í hópinn, hafa verið gefnar
út ýmsar leiðbeiningar um æski-
legan útbúnað. Skátabúðin, sem
lengi hefur selt alls konar fatnað
og viðlegubúnað, gefur ferðalöng-
um til dæmis ýmis heilræði. Ætli
menn í gönguferð um landið er
mælt með 60-80 lítra bakpoka,
léttu göngutjaldi, fyrirferðarlitl-
um bakpoka, dýnu, góðum
gönguskóm, legghlífum, göngu-
stöfum, höfuðljósi, áttavita og
göngukorti, fyrirferðarlitlu eldun-
artæki, pottasetti, eldsneyti og
eldspýtum, hitabrúsa, hnífapör-
um, diskum og vasahníf, mat (t.d.
þurrmat), ýmsu orkufæði eins og
þurrkuðum ávöxtum, súkkulaði,
hnetum og rúsínum, sóláburði,
sárabindi, plástri og hælsæris-
plástri, tannbursta, tannkremi,
sápu, sjampó og salernispappír.
Heppilegur klæðnaður er vand-
aður nærfatnaður fyrir útivistar-
fólk, flís- eða ullarpeysa, flísbux-
ur eða hnébuxur, mjúkir ullar-
sokkar, stakkur úr Gore-Tex efni
eða annað sambærilegt og hlífð-
arbuxur úr sama efni, húfa og
vettlingar.
Taka þarf með aukafatnað;
nærfatnað, buxur og peysu,
sokka, stuttbuxur, sundfatnað og
handklæði og millifatnað til skipt-
anna.
Vandlð val
á skám
Að sjáifsögðu er misjafnt hvað
menn þurfa að hafa með sér af
farangri eftir lengd ferða, en föt-
in og skórnir þurfa alltaf að vera
í lagi og rétt að leita ráðlegginga
reyndari manna. Við val á
gönguskóm er til dæmis nauðsyn-
legt að hugleiða hvar og hvernig
þeir verða notaðir. Meginreglan
er sú að í styttri ferðum eru létt-
ir og mjúkir skór heppilegastir,
en í lengri ferðum, þar sem allar
vistir og búnaður er borinn á bak-
inu, eru vatnsheldir skór með
góðum stuðningi við ökkla nauð-
synlegir. Þegar skórnir eru mát-
aðir er gott að vera í sömu sokk-
um og nota á á göngunni.
Skórnir gangast til og víkka
með tímanum, þannig að sokkarn-
ir mega ekki vera of þykkir. Þeg-
ar búið er að reima skóna er gott
að ganga rösklega um gólf til að
finna hvernig skórnir passa.
Gakktu upp og niður tröppur og
gættu að því að skórnir sitji vel
og nuddi fæturna hvergi. Taktu
þér góðan tíma til að skoða ýms-
ar tegundir og finna örugglega
réttu stærðina, því ekki er gott
að vakna upp við það á fjöllum
að vanda hefði mátt valið betur.
Nokkur
heilræði
Skátabúðin gefur fjallafólki
líka nokkur heilræði áður en lagt
er í ’ann:
Farðu aldrei í langferð án
þjálfunar.
Ferðastu aldrei éin(n).
Taktu mið af veðri og veðurút-
liti.
Hlustaðu á reynda fjallamenn.
Sparaðu kraftana og leitaðu
skjóls í tæka tíð.
Hafðu ávallt með þér áttavita
og kort.
Snúðu við í tæka tíð. Það er
engin skömm að því.
Búðu þig undir óstöðuga veðr-
áttu og hafðu með þér nauðsyn-
legan fjallabúnað.
Segðu öðrum hvert ferðinni er
heitið og hvenær þú kemur til
baka. ■