Morgunblaðið - 19.06.1996, Blaðsíða 60
MORGUNBLAÐIÐ
60 MIÐVIKUDAGUR 19. JLINÍ 1996
ÞJOÐLEIKHUSIÐ sími 551 1200
Stóra svlðið kl. 20.00:
• TAKTU LAGIÐ LÓA eftir Jim Cartwright
Á morgun örfá sæti laus - fös. 21/6 örfá sæti laus - lau. 22/6 örfá sæti laus - sun.
23/6 nokkur sæti laus. Ath. aðeins þessar 4 sýningar í Reykjavík. Leikferð hefst
með 100. sýningunni á Akureyri fim. 27/6.
Gjafakort í leikhús - sígild og skemmtileg gjöf
Midasalan er opin alla daga nema mánudaga frá kl. 13.00-18.00 og fram að sýningu
sýningardaga. Einnig simaþjónusta frá kl. 10.00 virka daga.
Sími miðasölu 551 1200 - Sími skrifstofu 551 1204.
BORGARLEIKHUSIÐ sími 568 8000
LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR
Litla svið kl. 14.00
• GULLTARAÞOLL eftir Ásu Hlín Svavarsdóttur, Gunnar Gunnarsson
og Helgu Arnalds.
Forsýningar á Listahátíð lau. 22/6 og sunnud. 23/6.
SAMSTARFSVERKEFNI VIÐ LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR
Leikfélag íslands sýnir á Stóra sviði kl. 20.00.
• STONE FREE eftir Jim Cartwright.
Frumsýning fös. 12. júlí, 2. sýn. sun. 14. júlí, 3. sýn. fim. 18. júli.
Forsala aðgöngumiða hafin.
Miðasalan er opin frá kl. 15-20. Lokað á mánudögum. Tekið er á móti miðapöntunum
í síma 568-8000. Skrifstofusími er 568-5500.
Faxnúmer er 568-0383.
Gjafakortin okkar — frábær tækifærisgjöf!
SKUTUSIGLINGANAMSKEIÐ hefjast 21. júní.
Hvert námskeið er 40 klst. Námskeiðin eru annars
vegar fyrir þá, sem vilja læra að beisla vindinn og njóta
frelsisins á sjónum, og hinsvegar fyrir þá, er sækjast
eftir spennunni sem er fylgifiskur kappsiglinga.
Nánari upplýsingar í síma 588 3092.
SIGLINGASKOLINN
SIGLINGASKOLINN,Vatnsholti 8
Meðlimur í Alþjóðasambandi siglingaskóla ISSA.
STÓLPI fyrir Windows er
samhæfður Word og ExceJ.
Sveigjanleiki í fyrirrúmi.
gl KERFISÞROUN HF.
“ Fákafeni 11 - Sími 568 8055
FÓLK í FRÉTTUIUI
Ást við
fyrstu sýn
ANTONIO Banderas og Melanie
Griffith tóku rómantíkina með sér
heim er þau unnu að myndinni „Two
Much“, eða Einum of mikið. Þau
kynntust við gerð þessarar róman-
tísku gamanmyndar sem hefur nú
verið tekin til sýninga hér á landi.
Þetta er fyrsta hlutverk spænska
kærleiksbjarnarins í gamanmynd
síðan hann fluttist til Bandaríkj-
anna, en áður hafði hann sem kunn-
ugt er leikið í nokkrum slíkum fyrir
landa sinn Pedro Almodovar. Næsta
mynd hans er Evíta, þar sem mót-
leikkona hans er Madonna, en að
því loknu tekur hann að sér hlutverk
Zorrós í samnefndri mynd. Tökur á
henni fara fram í sumar.
CHER og geimveran
í „Alien 3“.
Tvífarar
► TÖL VU SÉRFRÆÐIN G AR
mótuðu andlit drekans í mynd-
inni „Dragonheart" þannig að
það líktist sem mest leikaran-
um Sean Connery, sem reynd-
ar leikur drekann í myndinni.
Blaðamenn tímaritsins Ent-
ertainment Week/ykomu einn-
ig auga á sameiginleg ein-
kenni ýmissa frægra fyrir-
menna og leikbrúða.
CONNERY og drekinn
í „Dragonheart“.
DON Knotts og ET úr
samnefndri mynd.
KATIE Couric og góði
bangsinn í „Gremlins“.
GEORGE Burns og Zaus
úr Apaplánetunni.
GENE Simmons og
Willy úr „Free Willy“.
STEVE Buscemi og vondi
bangsinn í „Gremlins“.
TRAVOLTA kærður.
Kæran komin
► LJÓST er orðið að John Tra-
volta fær kæru fyrir að fara í
fússi frá París eftir rifrildi við
leikstjórann Roman Polanski við
gerð myndarinnar „DoubIe“.
Kæran var lögð fram siðastliðinn
miðvikudag og þar segir að Tra-
volta hafi farið fram á miklar
breytingar á handritinu og eins
að hann hafi ekki hlýtt leikstjórn
Polanskis. Tökurmyndarinnar
tefjast af þessum sökum meðan
verið er að koma nýjum leikara,
Steve Martin, inn í hlutverkið.
Ekki fylgir sögunni hvað farið
er fram á sem skaðabætur.
Reuter
Söngfugl
blíður
► MARIAH Carey er söngfugl
blíður sem yljað hefur heims-
byggðinni um hjartarætur með
sætlegum söng og stimamjúkri
framkomu. Hér sést hún á sviði í
Rotterdam, þar sem hún hélt tón-
leika á þjóðhátíðardegi vorra ís-
lendinga, 17. júní. Tónleikarnir
voru liður í tónleikaför Mariuh
um Evrópu og þess má geta að
hún hafði aldrei áður sungið á
hollenskri grund.
Efni og tæki fyrir 111116'•
járngorma innbindingu.
J. RSTVFHDSSON Hf.
Skipholtl 33,105 Reykjovík, sími 553 3535.