Morgunblaðið - 28.06.1996, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 28.06.1996, Blaðsíða 2
2 PÖSTUDAGUR 28. JÍJNÍ 1996 ____________________________________________MORGUNBLAÐH) FRÉTTIR Miklar framkvæmdir í nýrri Súðavík Meirihluti ibúa á öruggu svæði í vetur MIKIAR framkvæmdir standa nú yfir við nýja byggð í Súðavík, þar á meðal þriðja áfanga gatnagerð- ar, auk þess sem allar götur verða malbikaðar og gengið frá gang- stéttam, jafnframt þvi sem ein- býlishús hafa risið þar að undan- förnu. Heildaigreiðslur Ofanflóða- sjóðs vegna þessara framkvæmda nema um hálfum mflljarði króna. „Málin ganga þannig fyrir sig að sveitarfélagið gerir samning við einstaklinga um uppkaup á eldri húsum, eignast húsin og síðan aðstoðar Ofanilóðasjóður einstakl- ingana við að byggja ný. Frá miðj- um aprfl hafa framkvæmdir gengið mjög yel pg eðlilega fyrir sig," segir Agúst Kr. Bjömsson, sveitar stjóri í Súðavík. Hann segir framkvæmdir hafn- ar við um 35 hús af 55 og séu þau á mjög misjöfnu byggingarstigi, allt frá því að aðeins sé búið að steypa grunn, í það að húSin séu nær fullbúin og inn í þau flutt. Tafir vegna flutning'shæfra húsa Hann segir míkla vinnu hafa farið fram í vetur við að meta þau hús sem haagt er að flytja, og hafi m.a. verið skoðað hvort flutningar vairu hagkvæmir og hvaða leiðir væru skástar. Alls er um sex hús að ræða, en búið er að flytja sjö. „Niðurstaða í því máli hefur tafist og seinkað enn frekar þeim einstaklingum sem eiga þessi hús sem taiin eru flutningshæf. Við vonuðum vissulega að þetta gaeti farið af stað f fyrrahaust en ekk- ert gerðist fyrr en breytingar voru gerðar á lögum um Ofanflóðasjóð Moiganblaðið/Árni Sasbei^ MBKLAR framkvæmdir hafa verið í Súöavík aö undanförnu og var grafiö fyrir íjórum húsgrunnum í seinustu vikn og næstu daga verður grafið fyrir tveimur í viðbót. um áramótin," segir Ágúst. Hann segir að öllum fram- kvæmdum við hús einstakiinga Ijúki vart fyrr en næsta sumar, en vonir manna séu þær að um tveir þriðju þeirra 55 ijölskyldna sem um ræðir geti verið í öruggu húsnæði á nýja svæðinu næsta vetur. Agúst segir að húsin sem rísa einkennist af fljótlegum og ein- földum lausnum pg þannig hafi maigir fest kaup á einingahúsum, bæði úr steini og tré. Þau séu gjarnan á miUi 120-190 fermetrar að flaíarmáli, en minnsta húsið sé um 90 fermetrar og hið stærsta um 220 fermetrar. Útlendingar taka ökupróf á íslandi 40 Odýrara hérlendis NOKKUÐ mun vera um það að eriendir ungiingar taki öku- próf á íslandi vegna þess að kostnaður við ökunám er minni hér en í nágrannalönd- iinmil Holger Torp hjá Umferðar ráði vill ekki fullvrða að er- lendir ungiingar komi gagn- gert hingað til lands til aðtaka ökupróf. Hann segir hins veg- ar að það sé ekki óalgengt að eriendir unglingar sem eru þegar staddir á íslandi noti tækifærið á meðan þeir eru hér á landi og taki próflð. Einnig munu vera dæmi þess að íslenskir ungiingar sem eru búsettir eriendis komi heim til Islands í þessum erindagjörð- um. Holger segir að erfltt sé að átta sig á fjjölda þessara ungl- inga og hafði hann engar upp- lýsingar um kostnað við öku- próf í nágrannalöndunum. Hann sagði að ökunámið kost- aði yfirieitt milli 50 og 60 þúsund krúnur hér á landí og benti á að ökuréttindin falytu að vera fvið kostnaðarsamari í nágrannalöndunum ef ís- lenskir unglingar þar sjá hag í þvi að taka sér ferð á hendur tíl íslands tíl að ölast þau. Biðröð Út á bflastæði W1K11 - nrtrfið var i Ármi'ilaskól- anum ígær, þarsemfram fer utankjörstaðaatkvæðagreiðsla vegna forsetakosninganna. I gær kusu 1.716 manns og faöfðu þá 8.964 marmskosiðþarfráþví utankjörfundaratkvæðagreiðsla hófst. Þær upplvsingar fengust að kjörsókn befði lekið kipp í gær. Um níuleytíð í gærkvöldi var biðröð útá bflastæði. Bensíngjald hækkar um 67 aura á lítrann BENSLNGJALD mun hækka um mánaðamótin þegar íjármálaráð- herra fellir niður tímabundna iækkun gjaldsins. Gjald af blýlausu bensíni mun hækka um 67 aura á lítrann. Fj ármáiaráðherra ákvað 9. maí að lækka gjald af bensíni tíma- bundið vegna hækkunar á heíms- markaðsverði pg til að draga úr verðlagsáhrifum þess hér á landi. í fréttatílkynnmgu fiá fjármála- ráðuneytinu segir að heimsmark- aðsverð á bensíni hafi iækkað að undanfomu, efitír að það náði há- marid um miðjan maí, og þvi megi gera ráð fyrn- að nú sé svigrúm tíl verðlækkana hériendis. „Lækkun bensíngjaldsins hefur náð tílgangi smum með þvi að draga úr áhrifum eriendu verð- hækkananna hér á landi,“ segir ráðuneytið og tilkynnir um hækk- un gjaldsins afitur. Morgimblaðíð/Golli * Oánægja Töluverðrar óánægju gæíti meðal margra lesenda Morgunblaðsins í gær vegna birtingar á augiýsingum í blaðinu frá samtökum, sem nefha sig; „Óháðir áhugamenn um forsetakjör 1996“ og J guðs bæn- um ekkL..“. Lesendur höíðu sam- band við blaðið og spurðu hvers vegna slíkar auglýsingar væru birt- ar og töldu að ekki ætti að vera hægt í krafti íjármuna að kaupa rúm fyrir slikt eftii í fjölmiðti. f Morgunblaðinu í dag birtast tvær heilsíðuaugiýsmgar frá „Óháðum áhugamöTinum um forsetakjör 1996“. Forsvarsmenn þeirra samtaka ern eins og fram kom í Morgunblaðinu í gær þeir Sigurður Helgason fyrrverandi for- stjóri og fyrrv. stjómarformaður Flugieiða Bjðrgólfur Guðmunds- son, framkvæmdastjóri og Omar Kristjánsson, framk væmdastjóri Jafnfiramt birtist foiystugrein i Morgunblaðinu í dag, þar sem fjall- að er um birtíngu þessara auglýs- inga, skýrt frá því hvers vegna þær eru birtar og hvaða skilyrði auglýs- endur urðu að uppfylia til þess að fá auglýsingamar birtar. í forystugrein Motgunblaðsins Kjarasamningiir vegna Hvalíjarðar A ekki erindi til sáttasemjara FULLTRUAR VSI gera athuga- semdir við að ágreiningi um gerð nýs samnings fyrir starfsmenn sem starfa við gerð Hvalfjarðarganga skuli hafa verið vísað til ríkissátta- semjara. Samningamenn vinnu- veitenda og verkalýðsfélaganna hittust hjá rikissáttasemjara í gær. Jbað eru kjarasamningar í gildi og þess vegna ekki nein deila í gangi. Það er þar af leiðandi ekki hægt að visa málinu til formtegrar sáttameðferðar hjá ríkissáttasemj- ara. Við höfum hins vegar ekkert á móti því að njðta aðstoðar sátta- semjara í þeim viðræðum sem stað- ið hafa yfir um gerð nýs samn- ings. Það hefur slitnað upp úr þeim viðræðum og vera kann að sátta- semjari geti þokað málinu eitthvað áfram,“ sagði Hannes G. Sigurðs- soiij aðstoðarframkvæmdastjóri VSI. Kíkissáttasemjari óskaði efitir að VSÍ gerði skriflega grein fyrir af- stöðu sinni. Hann mun fá greinar- gerð VSÍ um málið í dag. Óvissa ríkir um framhald viðræðnanna. vegna auglýsinga segir m.a_; „Spyija má hvers vegna slíkar augiýsingar séu yfirieitt birt- ar í Morgunblaðinu. Því er tíl að svara, að um eftú auglýsinga gilda út af fyrir sig sömu regiur pg um ritstjárnarefnL Ritstjórar Moigun- blaðsins, sem jafnframt eru ábyrgðarmenn blaðsins bera því ábytgð á efni auglýsinga ekki síður en ritstjómarefni. Þegar einstakl- ingar óska eftir birtíngu á greinum í Moigunblaðinu er iagt mat á efini greinanna. Þótt í þeim birtist ofit harkaleg gagnrýni á nafngreinda menn eru þær birtar, ef það er mat blaðsins, að þær brjóti ekki f bága við meiðyrðalöggjöfina. Fyrir rúmum einum og hálfum áratug fóru Morgunblaðinu að berast aug- lýsingar, þar sem ekki var um kynningu á vöru eða þjónustu að ræða heldur skoðunum. I langflest- um tilvikum hefúr verið um að ræða viðleitni til þess að koma ákveðnum skoðunum á framfæri, þ.e. baráttu fyrir einhvetjum máls- stað. Sjaldnar hefur verið um að ræða gagnrýni á nafngreinda ein- staklinga, stofnanir, fyrirtæki eða aðra í formi auglýsinga. Þó eru dæmi um slíkt bæði gömul og ný. Efiu slíkra auglýsinga er metíð á sama hátt og efni t.d. aðsendra greina. Ef ekki er um að ræða brot á meiðyiðalpggjöf eru engin eftúsleg rök fyrir því að hafna birt- ingu auglýsinga, þótt í þeim felist gagnrýni á nafngreinda einstakl- inga.“ Síðan segir í foiystugrein Moig- unblaðsins í dag um oíangreindar auglýsingar „1 texta auglýsinga þessara var ekki að matí Morgun- blaðsins um að ræða brot á meið- yrðaioggjöf enda hafa birzt hér í blaðinu síðustu vikur aðsendar greinar, þar sem höfð er uppí mun ^rarkalegn gagnrýni á einstaka for- setaframbjóðendur en í auglýsing- unum. Hins vegar voru þau sam- tök, sem stóðu að baki augiýsing- unum ekki kunn meðal þjóðarinn- ar. Þess vegna tílkynntí Moigun- blaðið þeim aðilum, sem óskuðu cfilir burtingu augiýsinganna að for- senda fyrir birtingu þeirra væri að nöfn forsvarsmanna þessara sam- taka yrðu birt í ftétt í blaðinu sama dag. Þessi nöfn voru birt á bls. 2 í Morgunblaðinu í gær.“ M Kosningabaráttan og/30
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.