Morgunblaðið - 28.06.1996, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 28.06.1996, Blaðsíða 40
. 40 FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 1996 MININIINGAR MORGUNBLAÐIÐ LILJA INGÓLFSDÓTTIR + Lilja Ingólfs- dóttir fæddist á Uppsölum í Eyja- firði 20. október 1923. Hún lést á Sjúkrahúsi Reykja- víkur 18. júní síð- astliðinn. Foreldrar hennar voru Jó- hanna S. Sigurðar- dóttir frá Ardal i Borgarfirði, f. *3.11. 1898. d. 6.5. 1927. og Ingólfur Pálsson frá Uppsöl- um, f. 13.4. 1902. d. 26.9. 1993. Seinni kona Ingólfs var Lilja Jóhann- esdóttir, f. 6.10. 1905, d. 19.12. 1976. og gekk hún Lilju í móð- urstað og reyndist henni sem besta móðir. Systkini Lilju eru Jóhann bóndi á Uppsölum, f. 16.8. 1931, og Bergur trésmið- ur á Akureyri, f. 19.1. 1938. Hinn 7. október 1945 giftist Lilja Hafsteini Hanssyni, f. 24.3. 1925. Böm þeirra em: 1) Sig- urður Ingólfur, f. 28.5. 1945 og á hann fimm syni og fjögur bamabörn. 2) Hans, f. 5.8.1946, kvæntur Friðu Guðjónsdótt- ur og eiga þau fjög- ur böm og eitt bamabarn. 3) Jó- hanna Jóna, f. 25.3. 1951, gift Guðjóni H. Finnbogasyni og eiga þau fjórar dætur og þrjú barnaböra. 4) Ingibjörg, f. 7.4. 1956, gift Hákoni Pálssyni og eiga þau þrjár dætur. Lilja vann síðustu ár í Goða h/f. Útför Lilju Ingólfsdóttur fer fram frá Fossvogskirlqu í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Lilja Ingólfsdóttir er látin. Það kemur manni alltaf á óvart þegar dauðinn kveður dyra. Ég hafði ver- >' ið í afmælisboði ásamt Lillu (en það var hún kölluð) í byijun júní og var . hún hress eins og venjulega enda ekki heyrt um að hún kenndi sér nokkurs meins. Hún og Hafsteinn voru að undirbúa ferð til Vest- mannaeyja sem þau fóru í vikunni á eftir. Þetta var í fyrsta skipti sem Lilla hafði komið til Eyja. Ferðin heppnaðist vel, en skammt er á milli gleði og sorgar því nokkrum dögum eftir að þau komu heim veiktist Lilla og háði stutt en strangt dauðastríð. Það kom mér því á óvart þegar hringt var í mig út á sjó og til- kynnt að hún væri komin fárveik á sjúkrahús og tvísýnt um hvort hún næði því að sigra það stríð. Þetta stríð gat hún ekki sigrað og lést hún að morgni 18. júní. Nú þegar kemur að ferðalokum eru margar minningar sem koma upp í huga mér þegar ég rifja upp þau ár sem ég er búinn að vera í þessari fjöl- skyldu. Það eru tuttugu og tvö ár síðan ég kynntist Lillu. Þá höfðum við, ég og dóttir þeirra hjóna, fellt hugi saman. Á þeim árum bjuggu þau hjón erlendis. Frá því að ég hitti Lillu fyrst þótti mér mikið til hennar koma. Hún var hreinskilin og gat sagt meiningu sína. Hún var mjög hjálpfús og á ég henni mikið að þakka fyrir þá hjálp sem hún veitti mér og mínum. Henni var mjög umhugað um heimili barna sinna og tók þátt í því sem þar gerðist, samgladdist þegar það átti við og samhryggðist þegar það átti við. Ofundaraugum leit hún aldrei á hlutina heldur gladdist með þeim sem gekk vel og átti það jafnt við um vini og nákomna ættingja. I hugann koma ferðalög sem far- in voru þegar þau bjuggu úti í Lúx- emborg. Þaðan eru góðar minningar hvort sem ferðirnar voru langar eða stuttar eins og t.d. farið að versla í Tríer eða í skemtiferð til Parísar. Mig undraði það oft hversu viljug þau voru að ferðast með okkur og sýna okkur marga merka staði hvort sem var í Lúxemborg eða Þýska- landi, Austuríki eða Sviss. Samveru- stundimar voru stopular á þessum árum því langt var að fara en þær voru því ánægjulegri þegar því varð við komið að heimsækja þau. Þegar þau fluttu heim til íslands 1982 þá var styttra að fara í heirn- sókn enda oft komið við á Hrísa- teignum og spjallað yfír kaffi og kræsingum. Nú þegar komið er að leiðarlok- um ber að þakka fyrir samfylgdina. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Eins og blómstrin á vorin um gróandi grund, eins það glóir mót hækkandi sól; eins og laufin á haustin um hélaðan lund er það hjaðnað, þá fýkur í skjól. (M. Joch.) Kæri tengdafaðir, samúð mína áttu alla, styrk þann sem ég get veitt þér mun ég veita þér. Munum það að minningin mun lifa og hún er björt. Guðjón H. Finnbogason. t Ástkær sonur okkar og bróðir, STEFÁN VIÐAR JÓNSSON, lést á barnadeild Borgarspítalans 25. júní. Halldóra Böðvarsdóttir, Jón Ingvarsson og systkini hins látna. t Elskaður eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, sonur, tengdasonur og afi, SIGTRYGGUR SNORRI ÁSTVALDSSON, Skógarósi 7b, verður jarðsunginn frá Fíladelffukirkj- unni, Hátúni 2, í dag, föstudaginn 28. júní, kl. 15.00. Sigríður Esther Birgisdóttir, Snorri Sigtryggsson, Kristbjörg Sigtryggsdóttir, Eyþór Sigtryggsson, Karl Sigtryggsson, Guðrún Sigtryggsdóttir, Þröstur Rfkharðsson, Anna María Sigtryggsdóttir, Bjarki Guðlaugsson, Kristbjörg Lúthersdóttir Elín Pétursdóttir, Birgir Sigurðsson og barnabörn. Nú er hún Lilja amma mín farin. Það er skrítið að hugsa til þess að ég sjái hana ekki aftur, en ég veit að henni líður vel þar sem hún er núna. Ekki gat ég ímyndað mér að amma færi svona fljótt, hún sem var svo hress og kát er hún dreif sig með afa og Leifu til Vestmanna- eyja 4. júní í fyrsta skipti á sinni ævi. Þau keyrðu um alla eyjuna og skemmtu sér svo vel. Engan óraði fyrir því að hún yrði farin frá okk- ur hálfum mánuði síðar. Ég á marg- ar yndislegar minningar um hana ömmu og þær geymi ég ávallt í hjarta mínu. En nú vil ég kveðja þig, elsku amma mín, og veit ég að þú ert að fylgjast með okkur og honum elsku afa minum sem er nú einn á Hrísateignum. Elsku afi minn, þú verður núna bara duglegur að ferðast um landið eins og þið amma voruð vön að gera, en þó að hún sé farin þá verð- ur þú ekki einn því hún amma verð- ur með þér. Amma mín, ég þakka þér fyrir samferðina í þessu lífi. Sof þú rótt, sof þú rótt. Ó, þú döglinga drótt! Ekki dæmi ég verk þin á storð. Góða nótt! Höfum hljótt: öll vor gjömingagnótt verður grafsteinn með hálfkveðið orð!- (M. Joch.) Ég þakka þér fyrir allt sem þú gerðir fyrir mig og minningin um þig mun lifa. Rósa María Guðjónsdóttir. Með þessum fáu orðum langar mig að minnast elskulegrar ömmu minnar. Hveijum datt nú í hug að hún færi svona snögglega? Hún átti svo margt eftir að gera og sjá. Stundum spyr maður sjálfan sig hvort rétt- lætið sé til. Af hveiju fékk hún ekki að fara í ferðina sem þau afi voru búin að hlakka svo til að fara í, nú í sumar og því sá hún ekki garðblómin sín springa út. En svona er nú lífið og við verðum að sætta okkur við það. Amma og afi voru alltaf svo hress og kát þegar maður leit við hjá þeim og bara alltaf þegar við hitt- umst. Ég man hvað ömmu fannst leiðinlegt að þurfa hætta að vinna þegar hún varð sjötug því hún hafði svo mikinn félagsskap og gaman í vinnunni og heilsuna hafði hún enn- þá. Amina var mikill kattavinur og fyrir nokkrum árum fengu amma og afi sér kettling sem heitir Keli og urðum við því öll í fjölskyldunni að taka honum sem frænda og því hversu dekraður hann er, en hann er jú þeirra líf og yndi og það er bara gott. Amma mín, ég veit að allir þeir sem ganga í peysum sem þú hefur prjónað gera það með stolti. Elsku afi og Keli ég gef ykkur allan minn styrk og vona að ykkur eigi eftir að líða vel. Ég veit að elskuleg amma mín er hjá okkur núna og alltaf. Af hveiju? Spurði moldin og leit íhugulu augnaráði í gráan himininn. Af hveiju? Spurði blómið og hijúfraði sig upp að moldinni. Af hverju? Spurði bamið og fór vökrum höndum um lífið. Drýpur líf, drýpur líf á jörð. (Vilmundur Gylfason) Sigurbjörg Guðjónsdóttir. Hún elsku amma mín er dáin, og ég spyr af hveiju hún? Hún sem alltaf var svo hress og kát og var á leið til útlanda nú í júlí í frí með honum afa, af hveiju núna? En ég veit þó að henni líður vel og vel var tekið á móti henni þar sem hún er núna. Þessarar stundar hef ég þó kviðið frá því ég var lítil stelpa, ég hef alla tíð verið voðaleg ömmu- stelpa og hefur því nú orðið djúpt skarð í mínu lífi sem seint verður fyllt, en lífið heldur áfram og verð- ur maður að horfa fram á við og halda fast í allar ljúfar minningar sem ég á um okkur Liljurnar sam- an. Hún amma var með ákaflega gott eyra og var því minn trúnaðar- vinur, sérstaklega áður en ég átti tvo yngri strákana, en þá varð minni tími aflögu eins og gengur og ger- ist. Eftir að við sambýlismaður minn fórum að búa hef ég að mestu séð um einn yndislegan garð hér, og fórum við amma þá að skiptast á blómum úr görðunum okkar og gengum ótal ferðir um sérstaklega hennar garð og röbbuðum saman, og einnig um minn þegar hún kom í kaffi, þetta mun aldrei hverfa mér úr minni. Við amma unnum saman í rúm- lega sex ár og gerðist margt á þeim tíma, t.d. lauk ég námi og gekk með tvo eldri syni mína, og var hún mér ávallt innan handar og fylgdist með að ég ofgerði mér ekki á með- göngunni. Hún var mikil félagsvera og átti því marga góða vini á vinnu- staðnum sem ég veit að munu minn- ast hennar með hlýhug og söknuði. En það sem ég þakka guði fyrir í þessari djúpu sorg er að ég gat setið og haldið í hlýja og heita hönd ömmu minnar og sagði henni hug minn allan síðustu daga hennar, og kvatt hana í ró og næði. Síðasta nóttin hennar var sú erfiðasta sem ég hef upplifað, en þetta hefur ver- ið henni fyrir bestu og hvíli hún í friði. Hún amma mín var jákvæð, hreinskilin, hlýleg og ávallt sam- kvæm sjálfri sér. Ég fæ því ekki með orðum Iýst hve sárt er til þess að hugsa að hún amma mín sé dáin, en það sem huggar mig er að ég veit að ég fæ að hitta hana þótt síðar verði. Elsku amma mín, takk fyrir að vera mér svo trygg og góð. Því mun ég aldrei gleyma, þú munt ávallt lifa í hjarta mínu. Þeir hvíla undir greinum grænum í grasi við fljótin lyp, teyga svalann frá sænum, sumarilminn í blænum, og svo verður sálin skyggn. Þeir sjá það, sem fjöll og fírnindi hylja, fræðast og skilja lögmálsins leyndardóm. Bak við allt sjá þeir voldugan vilja, sem vemdar hvert lótusblóm. (Davíð Stef.) Elsku afí minn, guð veiti þér styrk og þol til að standast þennan mjög svo erfiða tíma og halda áfram með okkur hinum sem elskum þig svo heitt. Lilja Hafdís. Kær vinkona er Iátin eftir stutta en erfiða legu. Lilla mín, fyrir stuttu vorum við hjónin á kvöldgöngu í hverfinu okkar, þegar við komum að garðinum þínum stoppuðum við, þar sáum við alla þá alúð, natni og smekkvísi sem þú varst svo rík af. Eftir að við komum inn til ykkar Hafsteins í kaffi barst talið fljótlega að okkar áhugamáli, Söngfélagi SVR og þeim verkefnum sem biðu okkar við móttöku söngfélaga frá Norðurlöndum næsta sumar. En það fer ekki allt eins og við ætlum okkur, þar verður þín sárt saknað. Lilla mín, þetta var dásamlegt kvöld og nú er það gott innlegg í sjóð minninga, þann dýrmæta sjóð sem við geymum í hjarta okkar. Ég veit það vinkona að ég á eftir að líta oft í þennan sjóð og rifja upp gamlar og nýjar minningar frá skemmtilegum ferðalögum okkar bæði innanlands og utan. Margs er að minnast eftir 35 ára kynni okkar sem aldrei féll skuggi á. Hafsteinn, minn góði vinur og fjölskylda, við Frantz sendum ykkur dýpstu samúðarkveðjur. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (V. Briem.) Sigurbjörg. Það eru margar minningar sem koma upp í hugann er ég minnist þín, elsku amma. Allt frá því ég var barn hjá ykkur í Luxemborg og nú fram á þína síðustu daga. í bernsku minni voruð þið afi alltaf amma og afí í Lux. Ég minn- ist þess svo vej þegar mamma og ég fluttum til íslands. Þá var svo erfítt að fara frá þér þar sem þú, amma, grést svo sárt yfír för okk- ar. Ég var þá svo ung, aðeins fimm ára og skildi ekkert í því af hveiju. Ég skynjaði ekki fjarlægðina sem var að verða á milli okkar, að minnsta kosti ekki strax. í þijú ár bjuggum við hvor í sínu landinu. Það var mér svo mikil gleðifregn sumarið 1982 þegar þið, amma og afí í Lux, fluttust til íslands. Það var ósjaldan þar sem ég fékk að dveljast hjá ykkur afa. Til dæm- is heilt sumar árið 1989 þegar ég hóf sumarstörf hér í Reykjavík. Þá var ég hjá ykkur á Hrísateignum og Kela, kisunni ykkar, sem var þér svo kær. Þó það hafi nú verið þrengra um ykkur þegar ég var mætt á svæðið með farangurinn minn þá létuð þið mig aldrei finna fyrir því að ég væri fyrir. Ég var alltaf velkomin. Elsku arama, þú varst mér svo kær. Nú hefur dæmið snúist við. Ég græt för þína. Fjarlægðin er miklu meiri núna, og þó, ég trúi því að þú vakir yfir okkur og styðj- ir okkur. Ég vil þakka þér fyrir þann tíma sem við áttum saman. Minningin um þig mun lifa í hjarta mínu, elsku amma mín. Elsku afí, Guð gefi þér styrk á þessari erfiðu stundu. Fótmál dauðans fljótt er stigið fram að myrkum grafarreit, mitt er hold til moldar hnigið máske fyrr en af ég veit. Heilsa, máttur, fegurð, fjör flýgur burt sem elding snör. Hvað er lífið? Logi veikur, lítil bóla, hverfull reykur. Margur einn í aldurs blóma undi sæll við glaðan hag, brátt þá fregnin heyrðist hljóma: Heill í gær, en nár i dag. Ó, hve getur undraskjótt yfir skyggt hin dimma nótt! Fyrir dyrum dauðans voða daglega þér ber að skoða. Drottinn, þegar þú mig kalla þessum heimi virðist frá, hvar sem loksins fæ ég falla fótskör þína liðinn á, hlífi sálu hjálpráð þitt, hold í friði geymist mitt, unz það birtist engla líki ummyndað í dýrðar ríki. (B. Halld.) Lísa. Dauðinn er lokaáfangi okkar allra hér á jörð sem enginn fær umflúið. Oftast þykir okkur hann ótímabær og fjarlægur. Þannig er það einnig nú. Áreiðanlegt er að ekki hvarflaði að neinni af okkur, eiginkonum kórfélaga SVR (Stræt- isvagnar Reykjavíkur), er við áttum saman skemmtilega kvöldstund fyr- ir örfáum vikum að þetta væri okk- ar síðasta samverustund með Lillu. Elsku Lilla mín. Við þökkum fyrir að hafa kynnst þér, fyrir allar góðu kærleiksríku gleðistundirnar, þar sem ríkti þessi djúpa væntumþykja og eining sem vandfundin er og hefur einkennt þennan hóp innan kórstarfs SVR en er svo gott að vera hluti af. Eftirfarandi segir allt sem segja þarf: Nú ert þú kvödd í anda blíðum af öllum þeim sem kyntust þér, með ljúfa þökk frá liðnum tíðum, sem lengi' er vert að minst sé hér; og þó að gröfín hylji hold, þitt hrós skal vaka ofar mold. Við trúum því á himna hæðum nú hólpinn lifi andi þinn, og eigi völ á unaðsgæðum, sem ekki þekkir heimurinn. Og alt sem gott hér gjörðir þú hjá guði launað verði nú. (Jón Þórðarson) Lótusblómið okkar er horfið og hefur fest rætur í annarri vídd. Elsku Hafsteinn minn, Guð blessi þig og þína, styrki ykkur og styðji i þessari miklu sorg. Eygló og Reynir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.