Morgunblaðið - 28.06.1996, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 28.06.1996, Blaðsíða 38
38 FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 1996 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ EYÞÓR FANNBERG ARNASON + Eyþór _ Fann- berg Árnason var fæddur í Reykjavík 16. febr- úar 1930. Hann lést á Landspítaianum 16. júní 1996. For- eldrar hans voru Arni Þórðarson frá Rauðnefsstöðum á Rangárvöllum, f. 4. október 1897, d. 2. nóvember 1968, og Sigríður Magnús- dóttir, f. í Reykja- vík 29. ágúst 1896, d. 21. apríl 1983. Eftirlifandi eiginkona Ey- þórs er Anna Ásmundsdóttir, f. í Reykjavík 29. júlí 1931. Börn þeirra eru: 1) Tryggvi, f. 27.3. 1952, maki Kolbrún P. Hannes- dóttir, f. 20.1. 1956. Þau eiga fimm syni. 2) Ingibjörg, f. 30.9. 1955, maki Sæ- mundur Sigurðs- son, f. 11.11. 1955. Þau eiga tvær dæt- ur. 3) Arni, f. 19.8. 1957. 4) Sigríður, f. 23.12. 1960, maki Róbert Karlsson, f. 23.10. 1953. Þau eiga fjögur börn. 5) Ásdís, f. 23.11. 1966, maki Smári M. Smárason, f. 17.6. 1954. Þau eiga tvö börn. Utför Eyþórs fór fram í kyrr- Þey. Hann Eyþór bróðir minn er látinn. Fyrr í þessum júnímánuði bauð ég ti! veislu í tilefni afmælis míns. Frá þinni fjölskyldu, bróðir minn, mættu eiginkona þín, Anna, og börnin ykk- ar öll utan Siggu, sem býr erlendis. Ég spurði eftir þér og fékk þau svör að þú hefðir verið lagður inn á sjúkra- hús til rannsóknar. Meira fékk ég ekki að vita þetta kvöld. Þetta var dagurinn minn og ég átti að fá að njóta hans með vinum og vanda- mönnum sem ég sannarlega gerði. Auðvitað vissi ég að þú gekkst ekki heill til skógar og hafðir ekki gert lengi. En hve alvarlegur sjúk- dómur þinn var orðinn, fékk ég ekki að vita fyrr en eftir þessa helgi. Við Lára systir komum til þín á sjúkra- húsið. Það yljaði okkur að sjá bjarta brosið þitt þegar við gengum inn til þín. Þú varst feginn að sjá okkur og þó þú værir sárþjáður og þreyttur, vildir þú ekkert um það tala. Þú varst alltaf dulur á tilfinningar þínar og líðan. Nokkrum dögum eftir að hafa gengið inn í sjúkrahús til rann- sóknar varstu allur. Upp í hugann strweymdu minn- ingar og minningabrot frá æsku- dögunum okkar á Frakkastíg 20, þar sem við fjögur systkinin nutum ástar t Bróðir okkar, JÓHANN PÁLSSON, Leifsgötu 32, Reykjavík, andaóist í St.Jósefsspítala, Hafnarfirði, 27. júní. Jaröarförin auglýst síðar. Systkini hins látna. t Útför eiginmanns míns, ÓLAFS HELGA GUÐMUNDSSONAR frá Hellatúni, fer fram frá Kálfhgltskirkju laugardaginn 29. júní kl. 14.00. Jarðsett verður í Áskirkjugarði. Fyrir hönd aðstandenda, Þórdís Guðrún Kristjánsdóttir. t Innilegar þakkir færum við öllum þeim, er sýndu okkur samúð og hlýhug í veik- indum og við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, föður okkar, tengda- föður, sonar, tengdasonar og bróður, GÍSLA GUÐJÓNS GUÐJÓNSSONAR skipstjóra, Norðurtúni 9, Sandgerði. Innilegar þakkir til starfsfólks krabba- meinslækningadeildar 11 E á Landspítalanum. Guð blessi ykkur öll. Helga Leona Friðjónsdóttir, Baldvina Karen Gisladóttir, Guðbergur Ingóifur Reynisson, Randý Helga Gisladóttir, Óli Pétur Pedersen, Guðjón Þorkelsson Gíslason, Mikkalma Mekkin Gisladóttir, Mikkalína Finnbjörnsdóttir, Randý Leonsdóttir, Friðjón Sigurjónsson, systkini og aðrir aðstandendur. Lokað Vegna jarðarfarar BJÖRNS GUÐMUNDSSONAR, forstjóra, verður fyrirtæki okkar lokað í dag, föstudaginn 28. júní 1996. Ásbjörn Ólafsson ehf., heiidverslun, Skútuvogi11a. og umhyggju foreldra okkar sem lifðu fyrir það, að láta okkur líða sem best. Þótt húsakostur væri þröngur, var alltaf rúm fyrir alla. Okkar bestu vinir voru alltaf velkomnir á heimilið og oft var glatt á hjalla. Ég minnist þess þegar þú, eini bróðir minn, leidd- ir litlu systur þér við hönd niður í bæinn fyrir jólin til að skoða skreyt- ingarnar. Við klesstum andlitunum að búðargluggunum til að sjá betur. Þetta var heill ævintýraheimur. Stundum fékk ég að fara með þér í bíó og að ég tali nú um þegar þú áttir til að kveikja á útvarpstækinu og dillandi dansmúsikin hljómaði um litlu stofuna heima. Þú hreifst mig út á gólfið, öllu smálegu var rutt frá, síðan dönsuðum við saman og skemmtum okkur hið besta. Þegar ég var tíu ára, sendir þú mér kassa- myndavél í sveitina. Hvað ég var glöð og þakklát fyrir þessa gersemi. Svo mætti lengi telja í minningum frá þessu tímabili ævi okkar. Snemma fórstu að hafa áhuga á tónlist allri og reyndir að fá okkur systurnar til að hlusta á klassíska tónlist sem við vorum frekar tregar til fyrr en þá seinna. Þú áttir ógrynni af hljómplötum með gömlu meistur- unum sem ég veit að þú naust að hlusta á í gegnum árin, ekki síst eftir að þú hættir að vinna og varst meira heima við. Ungur gekkstu að eiga Önnu Ás- mundsdóttur, mikla dugnaðar- og gæðakonu sem gengið hefur með þér veginn yfir fjörutíu ár. Frá börnunum ykkar fimm, er kominn stór hópur mannvænlegra barna. Við systurnar þrjár áttum fímm börn hver, svo fjöl- skyldan í heild er orðin stór. Af okkur systkinunum fjórum, stöndum við Lára eftir. Fyrir átta árum lést systir okkar Guðfinna Magnea, langt um aldur fram. Möggu, eins og við kölluðum hana alltaf, er enn sárt saknað. Hún var hlekkurinn í íjölskyldukeðjunni sem ekki einungis hélt utan um sína allra nánustu, heldur líka um okkur öll hin. Blessuð sé hennar minning. Elsku Eyþór minn, meðan þú hafðir heilsu og getu til, var alltaf gott að getað leitað til þín með eitt og annað sem upp kom hveiju sinni. Þú leystir öll mál með mikilli prýði og heiðar- leik eins og öll önnur störf þín í líf- inu. Elsku Anna og fjölskyldan öll, ég bið góðan Guð að styrkja ykkur í sorginni. Minningin um góðan dreng, lifir með okkur öllum. Hvíl í friði, kæri bróðir og vinur. Þín systir, Þóra. Upphaf kynna okkar Eyþórs Árna- sonar voru þegar við hófum nám í Verslunarskóla íslands árið 1945. Eyþór var sem ungur maður liðtækur í íþróttum, keppnismaður í handbolta og sundi. Ég bjó ekki yfír neinum slíkum eiginleikum. Það var margt annað sem varð þess valdandi að kynni okkar þróuðust með tímanum í vináttu, sem aldrei bar neinn skugga á það sem eftir lifði. Eyþór hafði gaman af skák og stundum fékk hann mig til að tefla við sig. í önnur skipti reyndum við fyrir okkur í brids, en vináttu okkar ræktuðum við fyrst og fremst með samræðum um hin ólíklegustu efni. Skoðanir okkar fóru ekki alltaf saman. Það skipti ekki máli. Við virtum skoðanir hvor annars og áttum létt með að koma auga á jákvæðar hliðar í hveiju máli. Eftir að við festum ráð okkar og stofnuðum heimili varð gott sam- band á milli eiginkvenna okkar. Skemmtilegt sumarleyfi áttum við hjónin saman við Svartahafið. Börn- unum fjölgaði og í framhaldi af því barnabörnum þannig að í mörg horn var að líta á mannmörgum heimilum, en samband okkar Eyþórs var alla tíð jafn náið. Eyþór var ágætur námsmaður, vann samviskusamlega allt sem tekið var fyrir og vinsæll meðal skólasystk- ina. Þegar við settumst í Lærdóms- deild skólans urðum við sessunautar og jafnframt því undirbjuggum við okkur fyrir tímana með því að lesa saman og vinna þau verkefni sem sett voru fyrir. Eins og aðrir lífsglað- ir námsmenn tókum við þátt í félags- lífi skólans. Samverustundir okkar voru því margar. Þegar skólagöngu lýkur verða miklar breytingar fyrir flesta, tilviljanir valda því oft hver starfsvettvangurinn verður og annir við framfærslu fjölskyldu trufla göm- ul tengsl. Því var öðruvísi farið með okkur Eyþór. Að námi loknu hóf Eyþór störf hjá Brunabótafélagi ís- lands sem aðalbókari félagsins. Þeg- ar ekki löngu síðar losnaði starf hjá félaginu hvatti hann mig til að sækja um það. Þannig atvikaðist það að í BRAGI JAKOBSSON + Bragi Jakobsson fæddist í Reykjavík 7. maí 1931. Hann lést á Sjúkrahúsi Reykja- víkur í Fossvogi 21. júní síðastliðinn. Foreldrar hans voru Guðveig Magnús- dóttir, húsfreyja, f. 6. janúar 1897, d. 10. des. 1990, og Jakob Magnússon, hús- gagnasmíðameist- ari, f. 31. október 1899, d. 4. sept. 1982. Systur Braga eru Magnea Hulda, f. 2. febrúar 1927, og Hrafnhildur, f. 1. nóv. 1928. Eftirlifandi eiginkona Braga Jakobssonar er Sigur- björg Nielsen, f. 18. febrúar 1930. Einkadóttir þeirra er Margrét, f. 13. júní 1952. Hún er gift Hjalta Val Helgasyni. Dætur þeirra eru: Sigur- björg Dagmar, í sambúð með Sigurði Erni Jónssyni og eiga þau einn son Braga Þór, Ingunn Anna og Hildur Vala. Bragi vann lengst af hjá Ford-umboð- unum Kr. Krisljáns- syni og Sveini Egils- syni og síðustu árin hjá Toll- sljóraembættinu í Reykjavík. Bragi verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Fyrstu kynni okkar Braga Jakobs- sonar voru árið 1964 þegar Badmin- tondeild KR var stofnuð, en hann var einn af stofnendum. Fljótlega fór Bragi að taka þátt í félagsstörfum og stuttu eftir stofnun deildarinnar tók hann að sér gjalkdkerastarfið og gegndi því í fjölda ára. Það gerði hann með með slíkum sóma, snyrti- mennsku og nákvæmni að athygli vakti. Bragi og Sigurbjörg konan hans tóku ríkan þátt í félagsstarfmu og voru alltaf tilbúin að vera með þegar eitthvað var að gerast. Bragi var sérstakt prúðmenni, bæði í keppni og leik, en hann keppti fyrir KR í fjöldamörg ár, nú síðustu árin í eldri flokkum. Bragi var sæmd- ur gullmerki Badmintonsambands íslands fyrir dómarastörf. Bragi barðist við veikindi sín af slíku æðruleysi og hugrekki að aldr- ei mátti heyra uppgjafartón. Kom þar í ljós hversu heilsteyptur og vel gerður maður Bragi var. Að leiðarlokum viljum við gömlu félagarnir í Badmintondeild KR færa Braga alúðarþakkir fyrir góð kynni og vinsemd. Við vottum þér, Sigur- björg, og allri fjöskyldunni okkar innilegustu samúð. F.h. Badmintondeildar KR, Óskar Guðmundsson. Góður vinur og traustur félagi er fallinn frá. Bragi Jakobsson var ein- hver sá áreiðanlegasti maður sem ég hef kynnst um dagana sama hvað hobnum var falið hann leysti öll störf sín af hendi með miklum sóma. Kynni okkar hófust um 1956 þegar ég hóf meira en þijá áratugi vorum við sam- starfsmenn. Ekki varð það til að draga úr vináttu okkar. Fyrsta verk Eyþórs hvern morgun var að tylla sémiður fáeinar mínút- ur við sknfborð mitt og ræða aðeins við mig. í hádeginu snæddum við í fljótheitum létta máltíð og fengum okkur síðan hressandi gönguferð. Alltaf tveir einir. Ef Eyþór var fjar- verandi vegna leyfis eða af öðrum orsökum hélt ég við göngu í hádeg- inu. En þá varð ég að ganga einsa- mall og ekki leiðir okkar Eyþórs. Enginn gat komið í stað hans sem félaga. Fyrir sjö árum varð Eyþór að hætta störfum af heilsufarsástæð- um. Við héldum góðu sambandi og áfram héldum við okkar göngum og núna á sunnudagsmorgnum. Þegar að því kom að Eyþór hafði ekki leng- ur þrek til að stunda þessar göngu- ferðir var síminn eftir til að halda sambandinu við. Áhugamál hans voru mörg. Hann var mikill unnandi góðrar tónlistar og átti mikið og gott safn af sígildri hljómlist. Hann hafði yndi af kvæð- um og ég minnist þess að í skóla var hann einn fárra sem lásu mikið af ljóðum. Oft benti hann mér á ljóð sem hann hafði lesið og hrifíst af. Mér fannst ég oft finna til fátæktar og hafa ekki til að bera sama hrif- næmi og orkaði ekki að skynja ljóð á sama hátt. En það breytti engu um samband okkar. Samræður okkar náðu yfír svo margt. Eyþór var vandaður maður. Hann var starfsmaður Brunabótafélags ís- lands á fjórða áratug og naut þar óskoraðs trausts. Allir sem áttu því láni að fagna að kynnast honum fundu fljótt hve drengskaparmaður hann var. Ég verð forsjóninni ævin- lega þakklátur fyrir að hafa leitt okkur Eyþór saman. Oft ræddum við saman um okkar barnatrú og hvort nokkuð tæki við eftir að þessari jarð- vist lyki. Ég treysti því að þegar að því kemur fáum við tækifæri til að taka upp þráðinn að nýju og saman ganga Laugaveginn þótt það verði á nýjum og ókönnuðum slóðum. Við Regína sendum Önnu Ás- mundsdóttur, börnum þeirra Eyþórs og barnabörnum hugheilar samúðar- kveðjur. Blessuð sé minning Eyþórs Árnasonar. Þórður H. Jónsson. störf hjá varnarliðinu á Keflavíkur- flugvelli, þá var hann þar fyrir sem yfirmaður launadeildar og hafði ver- ið það í nokkur ár. Á þessum árum hófst vinátta okkar og fjölskyldna okkar sem enn stendur. Við félagarn- ir á Vellinum mynduðum með okkur vinahóp sem m.a. stundaði tafl- mennsku í nokkra áratugi á meðan og eftir að við hættum að vinna þar syðra. Mikið félagslíf var á þeim árum, farið í sumarferðir og á vetrum var haldin árshátíð þar sem konur okkar voru að sjálfsögðu með. Bragi veiktist af berklum og dvaldi á Vífilsstöðum um tíma fyrir 1960 en kom aftur til fyrri starfa þegar heilsa leyfði um ári síðar. Þannig vildi til að við fórum báðir með um árs millibili til starfa hjá Ford umboð- inu Kr. Kristjánssyni um 1960 og héldum áfram að starfa saman næstu árin. Bragi starfaði síðar hjá Sveini Egilssyni hf. Glóbusi og nú síðast hjá Tollstjóra. Bragi var snjall Bad- mintonmaður og spilaði í áratugi með KR þar sem hann tók ennfrem- ur þátt í stjórn Badmintondeildar félagsins. Þau Bragi, Sibba og Mar- grét fluttu hingað út á Nes um 1970 og hafa búið hér síðan. Margrét dótt- ir þeirra og Helgi maður hennar búa hér líka og dætur þeirra ólust hér upp í næsta nágrenni við afa og ömmu. Nokkur ár eru liðin síðan fyrst varð vart við þann sjúkdóm sem að lokum hafði yfirhöndina. Bragi hafði farið í aðgerðir sem vonast var til að hefðu stöðvað sjúkdóminn en hann tók sig upp aftur og nú var ekki við ráðið. Ég hitti þau hjón nú síðast 17. júní á Eiðistorgi og spjall- aði við þau en Ijóst var að Bragi var þá mjög sjúkur þó mig grunaði ekki að þetta væri okkar síðasti fundur. Sibba mín, Margrét og fjölskylda, við félagarnir úr Skákklúbbnum og fjölskyldur vottum ykkur okkar dýpstu samúð um leið og við kveðjum góðan vin og félaga. Sigurgeir Sigurðsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.