Morgunblaðið - 28.06.1996, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 28.06.1996, Blaðsíða 34
34 FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 1996 AÐSENDAR GREIIMAR MORGUNBLAÐIÐ Túlkaþj ónusta fyrir nýbúa TUTTUGASTA öldin hefur breytt ásýnd íslensks þjóðfé- lags meira en nokkurt annað tímabil. Eink- um hafa síðustu ára- tugir reynst vera tími örra breytinga og samfélagsgerðin hef- ur stöðugt færst nær því sem einkennir mannlífið í öðrum vestrænum ríkjum. Þessa sér stað í því að á síðustu árum hafa Ijölþjóðlegir straumar borist hing- að með auknum fjölda nýbúa sem hafa flutt með sér framandi menningu og tungumál. Um sjö þúsund íbúar landsins eru af erlendum uppruna. Þetta er ekki litill hópur; það má bera þennan ijölda saman við sveit- arfélag á borð við Garðabæ. Flestir hafa komið hingað í atvinnuleit. Þá hefur verið tekið á móti hópum flóttamanna, bæði frá Víetnam og Austur-Evrópu. Miðstöð nýbúa Til að koma til móts við þarfir nýbúa ákváðu borgaryfirvöld að setja á fót Upplýsinga- og menning- armiðstöð nýbúa. Starfsemin fór af stað árið 1993 og heyrir undir íþrótta og tómstundaráð Reykjavík- ur. Miðstöðin er til húsa í Faxafeni 12. Auk forstöðumanns vinna þar tveir starfsmenn sem báðir eru raunar nýbú- ar; ískra Savova Lilli- endahl frá Búlgaríu og Robert Stephen Robert- son sem er Bandaríkja- maður. Þau eru bæði íslenskumælandi þrátt fyrir stuttan dvalartíma hér. Fólk af erlendum uppruna getur sótt að- stoð og þjónustu í mið- stöðina og aðsókn hefur verið mikil frá fyrstu tíð. Starfseminni sem þarna fer fram er skipt í nokkra þætti; upplýs- ingaþjónustu, túlka- þjónustu, fræðslu og námskeiða- hald, unglingastarf, barnastarf og menningarstarfsemi. Túlkaþjónust- an er sá þáttur sem hér er til um- fjöllunar. Nýbúar kunna litla ís- lensku í fyrstu og við ákveðnar aðstæður verður fólkið að geta fengið að tjá sig á móðurmáli sínu. Þörfín á þjónustu túlks fyrir nýbúa er því mikil en hefur hins vegar ekki verið sinnt sem skyldi. Auk þess hvílir þessi þáttur á veikum grunni, lagalega séð. Aðstoð og túlkaþjónusta Kristín Njálsdóttir veitir miðstöð nýbúa forstöðu: „Þjónustan hjá okkur er ekki sambærileg við þá sem veitt er í nágrannalöndunum, þau eru komin mun lengra hvað varðar aðstoð við útlendinga. í Noregi er t.d. sjálfstæð stofnun inn- an félagsmálaráðuneytisins sem sér um málefni útlendinga. Þegar flóttamenn koma til landsins eru það sveitarfélögin sem taka á móti fólkinu og fá til þess styrk frá rík- inu. Túlkaþjónusta er svo starfrækt á vegum sveitarfélaganna. Þarna er með öðrum orðum rekin ákveðin stefna. Hér er hins vegar engin stefna til og engin lög um túlka- þjónustu. Það er bara svifið í lausu Þörf nýbúa fyrír túlk hefur stóraukist, segir Oddgeir Eysteinsson, sem hér fjallar um Upp- lýsinga- og menningar- miðstöð nýbúa. lofti. Það er reyndar búið að setja málefni flóttafóíks undir félagmála- ráðuneytið með stofnun flótta- mannaráðs sem sett var á fót í tíð síðustu ríkisstjórnar. Okkar hlut- verk hjá Miðstöð nýbúa er svo að koma til móts við auknar þarfir þessa fólks, m.a. við notkun á túlk- um. En lagabókstafurinn gerir okk- ur erfitt fyrir við það eða öllu held- ur skortur á lögum. Oddgeir Eysteinsson Samkvæmt lögum um heilbrigð- isþjónustu er kveðið á um að skylt sé að láta fólki í té þær upplýs- ingar sem það vanhagar um af hendi hins opinbera. Heymarlaust fólk og útlendingar búa hins vegar við verri stöðu en aðrir í þessu sam- bandi. Það getur ekki komið upplýs- ingum til skila á móðurmáli sínu og á einnig í erfíðleikum við að meðtaka þær. Sumt heyrnarlaust fólk getur lesið af vömm og talað, en málið vandast þegar tungutakið verður sérhæft eins og hjá fólki í heilbrigðisstéttum. Þá gleymist það líka að þetta fólk heyrir ekki þótt það geti talað. En réttur þessa fólks er hvergi skráður, hvort heldur heyrnarlausir eða nýbúar eiga í hlut. Löggjöfin er algerlega opin. Hvað nýbúa varðar er stundum reynt að bjarga hlutum fyrir horn með því að nota ensku en margir þeirra kunna enga ensku, en fólk virðist oft og tíðum eiga erfitt með að skilja það.“ Heilbrigðisþjónusta við nýbúa Það er ástæða til að staldra við heilbrigðisþjónustuna. Hvernig á t.d. að koma nauðsynlegum upplýs- ingum til tælenskra sængurkvenna þegar þær skilja ekki íslensku? Þá verður að fá aðstoð túlks. Eins er það með aðra læknisþjónustu. Hún verður hins vegar dýrari fyrir þetta fólk en aðra ef það á sjálft að borga fyrir túlk. Spurningin er þá hver á að borga. Miðstöð nýbúa hefur und- anfarin ár séð um að útvega túlka, ekki síst fyrir heilbrigðisstofnanir. Fólk innir þessa vinnu oft af hendi ókeypis eða er hreinlega svikið um greiðslu. Vandinn er sá að illa geng- ur að krefja réttan aðila um greiðslu fyrir þjónustuna. Það er því tíma- bært að læknar og aðrar heilbrigðis- stéttir fari að huga að þessum málum þvi það má ljóst vera af mál nýbúa koma æ oftar inn á borí til þeirra. V Garðrósir Allar gerðir á 399 hansarós Afskornar rosir 1. flokkur (stórar og flottar) aðeins kr/stk. 10 stk. kr. 599 En hver er lagalegur réttur þessa erlenda fólks sem kann litla eða enga íslensku? Það kemur fram í máli Kristínar að samkvæmt lögum um atvinnuréttindi útlendinga hefur útlendingur fengið varanlegt dval- arleyfi og atvinnuleyfi hér eftir þriggja ára búsetu í landinu. Hann byrjar að borga skatta og önnur gjöld um leið og hann hefur störf. Hann hlýtur því að hafa öðlast ákveðin réttindi þótt hann sé ekki orðinn íslenskur ríkisborgari. Það er því ljóst að nýbúar hafa sinn rétt. Það er því spurning hvort ekki sé eðlilegt að fara fram á það við stjórnvöld að þau framfylgi upplýs- ingaskyldu sinni og komi til móts við þarfir þessa fólks. Nú standa hins vegar vonir til að úr rætist því frumvarp liggur fyrir Alþingi um réttindi sjúklinga þar sem tekið er á þessu máli. Þar segir m.a. í 5. grein: „Eigi í hlut sjúklingur sem ekki talar íslensku eða notar tákn- mál skal honum tryggð túlkun á upplýsingum samkvæmt þessari grein.“ Einnig segir þar í 7. grein: „Samþykkið [sjúklings] skal eftir því sem kostur er vera skriflegt þar sem fram kemur hvaða upplýsingar voru gefnar sjúklingi og að hann hafi skilið upplýsingarnar." Þá er vikið að því hveijum beri að greiða fyrir túlkaþjónustu: „Skyldan til að gefa upplýsingar er aðallega lögð á herðar læknum en einnig öðrum heilbrigðisstarfsmönnum eftir þvi sem við á.“ Ef þetta verður að lög- um ætti staðan að skýrast hvað túlkaþjónustu varðar innan heil- brigðisþjónustunnar og greiðsíu á henni. Með þessu er altént ljóst að málefni nýbúa hafa borist inn á borð löggjafans. Reglur um túlkaþjónustu Kristín segir hilla undir það að túlkaþjónusta fái sinn sess í lögum og mál þessi komist í fastari skorð- ur. Samt er margs að gæta í sam- bandi við þessa þjónustu. Frá maí- mánuði 1996 er tilhögun túlkaþjón- ustu þannig að Miðstöð nýbúa út- býr reikninga fyrir þjónustuna og sér um að innheimta fyrir hana. Þetta fyrirkomulag miðar að því að tryggja það að túlkar fái greitt fyrir vinnu sína en á því hefur oft verið misbrestur. Þá hefur Miðstöð nýbúa sérstakar siðareglur fyrir túlka sem taka verður tillit til. Þar kemur m.a. fram að túlkur er bund- inn þagnarskyldu varðandi mál sem hann sinnir. Þá er skylt að hann sé óháður aðili sem tekur ekki af- stöðu til málefna skjólstæðings. Dæmi eru um að ættingjar skjól- stæðings sjái um að túlka og einnig að börn hafi túlkað fyrir foreldra en það er mjög óheppilegt. Áður hefur verið minnst á þörfina á túlkaþjónustu í heilbrigðismálum. Skylt er að minnast á önnur tilvik sem vefjast ekki fyrir almenningi en eru til vandræða hjá nýbúum. Þar má nefna bílpróf, gerð skatta- skýrslu og foreldraviðtöl í skóla og leikskóla svo eitthvað sé nefnt. Að framansögðu er Ijóst að þörf nýbúa fyrir túlka hefur stóraukist á íslandi hin síðari ár. Það er einn- ig ljóst að samkvæmt lögum ber yfirvöldum að veita þær upplýs- ingar sem landsmenn kunna að óska og gildir þá einu hvort viðkom- andi hefur skerta heyrn eða er ný- búi. Þegar svo hagar til hlýtur að vera skylt að útvega túlk ef farið er fram á það. Ekki verður séð að dragi úr þessari þörf í framtíðinni nema síður sé_ og í því sambandi má nefna að ísafjarðarbær er að taka við hópi flóttafólks frá Bosníu í samvinnu við Rauða kross ís- lands. Það er í fyrsta sinn sem sveit- arfélag býðst til að taka á móti hópi flóttamanna, hingað til hefur Rauði krossinn gert það í umboði stjórnvalda. Þrátt fyrir aukinn fjölda flóttafólks og útlendinga eru engin lög til um málefni þeirra á íslandi heldur hefur verið farið eft- ir alþjóðalögum. Það er hins vegar spurning hvort ekki sé tímabært að setja íslensk lög um þessi mál- efni. Það verður ekki séð að þróun- in snúist við. Höfundur stundar nám í hagnýtri fjölmidlun.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.