Morgunblaðið - 28.06.1996, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 28.06.1996, Blaðsíða 14
14 FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ LANDIÐ Skrúðgarður til minning- ar um þá sem fórust Flateyri - Stofnað var til styrktar- sjóðs á Flateyri um sl. mánaðamót til minningar um þá sem fórust í snjóflóðinu í fyrrahaust. Styrktar- sjóðnum var gefið heitið Minn- ingarsjóður Flateyrar og er hlut- verk hans að byggja upp og varð- veita minningarskrúðgarð sem ætlað er að vera á svæðinu sem fór undir flóðið. Sigrún Gerða Gísladóttir, hjúkr- unarfoi-stjóri Heilsugæslunnar á Flateyri og einn stjómarmanna sjóðsins, segir að ekki sé enn ákveðið hversu stór garðurinn verður. Byrjað verði á að hreinsa grunnana og tyrfa yfir áður en hafist er handa. „Tillögur að útliti garðsins og stærð eru enn á um- ræðustigi. Þetta er langtímaverk- efni sem tekur líklega nokkur ár. Markmiðið er að breyta rústunum og því sem flóðið fór yfir í fallegan garð til minningar um þá sem fór- ust í snjóflóðinu," segir Sigrún Gerða. Tólf manns em í stjóra sjóðsins og var stofnfé 500.000 krónur. Þegar er sú upphæð orðin rúm 600 þúsund. Gíróseðlar munu liggja frammi í Sparisjóði Onundarfjarð- ar til fjáröflunar. Þegar hafa verið haldnir þrennir tónleikar til fjár- öflunar og er von á að fleiri verði haldnir í framtíðinni auk annarra menningarviðburða, segir Sigrún Gterða. „Fólk er mjög jákvætt gagnvart þessu framtaki og er í mun að fegra og bæta svæðið, því erfitt er að horfa upp á eyðileggingu flóðsins. Allar umræður verða mjög opnar og æskilegt er að sem fiestir verði með í ráðum um fyrir- komulag garðsins," segir Sigrún Gerða. Þegar em komnar þijár um- ræðutillögur að skrúðgarðinum sem lagðar vom fram á stofnfund- inum. Sigrún Gerða lagði áherslu á að ákvarðanir tækju alltaf sinn tíma og betra væri að vinna að uppbyggingu garðsins hægt og markvisst. Morgunblaðið/Egill Egilsson FUNDARMENN virða fyrir sér tillögur að minningarskrúðgarði á Flateyri. 120 ára verslunar og byggðaraf- mæli á Blönduósi Nýr geisla- diskur með harmóníku- tónlist Egilsstöðum - Harmóníkufé- lag Héraðsbúa á Fljótsdalshér- aði hefur gefið út geisladiskinn “Á tauginni". Inniheldur hann 16 lög eftir níu höfunda. Flytj- andi tónlistarinnar er finnski harmóníkusnillingurinn Tatu Kantomaa en hann er aðeins 22 ára. Útsetningar laga eru ýmist í höndum höfunda sjálfra eða Tatu. Upptökur fóru fram í Stúdío Ris í Neskaupstað. Auk geisladisksins er hægt að fá tónlistina á hljóðsnældu. Árið 1993 kom Tatu Kan- tomaa á Landsmót Sambands ísl. harmóníkuleikara sem þá var haldið á Egilsstöðum. Síðan þá hefur Tatu komið tvisvar og dvalið hjá félögum í Harm- óníkufélagið Héraðsbúa. Hann hefur liðsinnt þeim m.a. í laga- keppni, veitt þeim kennslu og stjórnað stórsveit félagsins. Blönduósi - Eitthundrað og tutt- ugu ár eru liðin frá því að verslun og þar með byggð hófst á Blöndu- ósi. Af þessu tilefni verða hátíðar- höld á Blönduósi dagana 3.-7. júlí næstkomandi og er dagskráin afar fjölbreytt. Hátíðin hefst miðvikudaginn 3. júlí með sýningu Þjóðleikhússins á leikritinu „Taktu lagið Lóa“ en formleg setning hátíðarinnar verð- ur 4. júlí á sjálfan afmælisdaginn við Hillebrandtshús sem er eitt elsta hús á Islandi. Við setningar- athöfnina verða boðin upp 20 tölu- sett fyrstadagsumslög með fjórb- lokkarfrímerkjum af Halldóru Bjamadóttir, konu sem markar djúp spor í sögu Blönduóss. Dagskrá föstudagsins einkenn- ist af útihátíðar- og markaðs- stemningu. Vörusýning og mark- aður verður í íþróttamiðstöðinni, grillveisla, leikir hverskonar og leiðsögn verður um náttúruperluna Hrútey. Umhverfisverkefni leik- skólans sem vakið hefur athygli verður til sýnis. Um kvöldið verður dagskrá í umsjá leikfélags Blöndu- óss er ber nafnið Tónlist og tíðar- andi og koma þar fram hljómsveit- ir sem starfað hafa á Blönduósi frá árinu 1966 til dagsins í dag. Á laugardaginn geta hátíðar- gestir m.a. séð Blönduósmynd Sig- ursteins Guðmundssonar og hlýtt á söng Bjarkarkórsins. Á sunnu- daginn verður sérstök afmælis- messa og verður hún utandyra ef veður leyfir. Auk þess sem að framan greinir verður alla dagana ljósmyndasýning á Sveitasetrinu og dansleikir verða bæði á föstu- dags- og laugardagskvöld. Heimil- isiðnaðarsafnið verður opið hátíð- ardaganna og áfram í allt sumar. Að sögn Unnar Kristjánsdóttur framkvæmdastjóra afmælishá- tíðarinnar hefur verið lögð áhersla á að leita samstarfs við félög, fyr- irtæki og einstaklinga um fjöl- breytilega dagskrá þar sem lögð er áhersla á skemmtun, menning- arefni og sögu staðarins. „Afmæl- ishátíð Blönduóss verður fjöl- skylduhátíð og eru allir velkomnir“ sagði Unnur. Formaður afmælis- nefndar er Sigurlaug Hermanns- dóttir formaður bæjarráðs Blöndu- óss. Morgunblaðið/Ámi Helgason KVENFÉLAGSKONUR afhentu tækin. Sesselja Pálsdóttir, Alma Diego og Kristbjörg Haraldsdóttir frá kvenfélaginu ásamt Odd- fríði Traustadóttur heimilisfræðikennara. Gjafir til Gmnnskólans í Stykkishólmi Stykkishólmi - Kvenfélagið Hringurinn ákvað í vetur að gefa Grunnskólanum í Stykkis- hólmi áhöld og tæki í skólaeld- húsið. Gjöfin var að upphæð 100.000 kr. og sá heimilisfræði- kennari skólans, Oddfríður Traustadóttir, um að velja og kaupa áhöldin. Fyrir nokkru var gjöfin form- lega afhent í skólanum. Ótrúlegt var hve mikið hafði fengist fyrir þessa upphæð. Keypt var hræri- vél, örbylgjuofn, tefal-áhöld, 5 stk. af pönnum og pottum ásamt ýmsum öðrum eldhúsáhöldum. Gjöfin kemur að góðum notum í eldhúsinu og geta fleiri nem- endur komist að vinnu í eldhús- inu á næsta skólaári. Golfklúbbur Vatnsleysustrandar Golfskáli tekinn í notkun við Kálftatjörn , Morgunblaðið/Eyjólfur M. Guðmundsson ANDRÉS Guðmundsson dró fána félagsins að húni, golfskálinn í baksýn og gestir. Vogum - Golfklúbbur Vatnsleysu- strandar tók formlega í notkun golfskála við golfvöll félagsins í landi kirkjujarðarinnar að Kálfa- tjörn að Vatnsleysuströnd föstu- daginn 21. júní sl. með því að einn félagi í klúbbnum, Andrés Guð- mundsson, dró fána félagsins að húni á flaggstöng sem klúbbnum var gefin í tilefni dagsins einnig bárust margar gjafír og heillaóskir. Golfklúbburinn hefur komið sér upp 6 holu golfvelli á löndum tveggja hjáleiga, Fjósakoti og Há- túni, frá kirkjujörðinni Kálfatjörn og hefur völlurinn verið hannaður með það fyrir augum að fomar rústir húsa og garða fái að njóta sín. Fyrir þær sakir þykir völlurinn nokkur sérstakur. Það eru vonir klúbbfélaga að á næstu árum takist að stækka völlinn í 9 holur. Framkvæmdir við golfskálann hófstu fyrir ári síðan. Klúbburinn fékk skálann fokheldan frá húsa- smíðameistara en klúbbfélagar sáu um alla vinnu að innan í sjálfboða- vinnu auk vinnu við undirstöður. Við þetta tækifæri færði golf- klúbburinn velunnurum sínum við- urkenningar og voru það á annan tug manna sem fékk viðurkenning- ar sem voru fáni félagsins. Golf- klúbbur Vatnsleysustrandar var stofnaður í maí 1991 og því 5 ára á þessu ári.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.