Morgunblaðið - 28.06.1996, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 28.06.1996, Blaðsíða 36
36 FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 1996 AÐSENDAR GREIIMAR MORGUNBLAÐIÐ Misskilin frelsisást? TRYGGVI Gíslason skólameistari á Akur- eyri sá í skólaslitaræðu sinni í vor ástæðu til þess að vekja athygli á ósamræmi í lögum og reglum um ýmis réttindi og skyldur í þjóðfélag- inu. Þykir skólameistar- anum undarlegt að fólk megi kjósa og stofna til hjónabands 18 ára gamalt en á sama tíma *megi það ekki kaupa og neyta áfengis án þess að brjóta lög. Morgun- blaðið vakti sérstaka athygli á þessum um- mælum og sá síðan ástæðu til þess að taka undir sjónarmið skólameist- arans í leiðara sínum 20. júní. Á fundi með ungu fólki á Ingólfs- torgi í Reykjavík gáfu forsetafram- bjóðendur jákvæð svör um hug sinn tii lækkunar á aldri til áfengiskaupa. Vona ég innilega að þau svör hafi verið sett fram í hita kosningabar- áttu sem hæfði tilefni fundarins. Sem skólastjóri í grunnskóla og talsmaður foreldrasamtakanna Vímu- lausrar æsku iangar mig til að leggja orð í belg og reyna að beina umræð- unni af braut þeirrar einföldunar sem mér finnst hún vera að stefna í. lÁhyggjur mínar og annarra sem láta sig vímumál þjóðarinnar varða beinast ekki að þeim sem kunna með áfengi að fara. Þvert á móti. Hóf- drykkja er æskilegt markmið og sem betur fer kann meirihluti þeirra sem neyta áfengis að nota það í hófi. Það breytir þó ekki þeirri bitru staðreynd að fjöldi þeirra sem misnotar áfengi hér á landi er mikill og hluti þeirra verður áfengissýkinni að bráð. I þeim hópi er fólk á öllum aldri. Þá skiptir máli sú staðreynd að því yngra sem fólk er þegar það hefur neysiu áfengis því meiri líkur eru á að neyslan hafi skaðleg áhrif á líf þess. Þá ber að minna á að fæstir ef nokkrir unglingar nota áfengi í hófi. Við sem störfum í grunnskólanum vitum að hluti eistu nemenda okkar sækir í áfengi — við þeirri þróun er reynt að spoma leynt og ljóst. Stofnun Vímuvama- skólans í Reykjavík markar þar til dæmis mikilvægt spor. Við í Vímulausri æsku heyrum raddir örvæntingarfullra foreldra sem horfa á bak bömum sínum í þoku vímunn- ar. Þeir sem starfa að forvömum hafa bent á að lausn vandans felist fyrst og fremst í aðgerðum á fjöi- mörgum sviðum. Ein þeirra aðgerða er að tempra aðgengi bama að áfengi sem kostur er. Að mínu áliti er það alvarleg aðgerð að hleypa tveimur árgöngum 18 og 19 ára fólks inn í áfengisverslanir landsins á löglegan hátt. Líkur á að hluti þeirra. noti „rétt“ sinn tii að útvega yngri kunningjum sínum áfengi eru nokkrar því miður. Nemendur sem voru nú að útskrifast úr 10. bekk gætu samkvæmt þessu keypt áfengi að tveimur áram liðnum fyrir 8. bekkinga sem þá verða komn- ir í 10. bekk. Þá gæti verið stutt í það að hiuti 10. bekkinga geri yngri skólafélögum sínum hliðstæðan „greiða". Lækkun aldurs til áfeng- iskaupa getur þess vegna auðveldlega haft þá keðjuverkun að aðgengi þeirra yngri verði enn meira en verið hefur. Þetta atriði vegur þungt í huga mín- um og veldur áhyggjum. Þær röksemdir að lækkun aldurs til áfengiskaupa dragi úr starfsemi bruggara finnast mér hæpnar. Nær væri að herða viðurlög gegn þeirri iðju og draga þannig enn úr fram- boði á áfengi fyrir ungmenni. Samanburður á rétti til að stofna hjónaband og kaupa áfengi er nán- ast útúrsnúningur. Hér virðist gleymast að manneskjan er ekki ein- göngu lögð á mælistiku aldurs þegar þroski er annars vegar. Flestir hljóta að vera sammála um að tveir átján ára unglingar sem ganga í hjónaband Það er alvarleg aðgerð, segir Ragnar Gíslason, að hleypa 18 og 19 ára unglingum inn í áfeng- isverslanir. eiga eftir að þroskast og vitkast. Skyldur hjónabands eru miklar enda skilnaðir ungra hjóna algengir. Þó er næsta sjaldgæft að tveir einstakl- ingar á þessum aldri nýti sér þessi „réttindi". Oftast er annar aðilinn nokkuð eldri í sambandinu. Þá finnst mér ekki sanngjarnt að bera saman réttindi fólks til að nota dómgreind sína í kosningum eða rétt- indi til að slæva dómgreind síns með neyslu áfengis. Þroski fólks um 18 ára aldur er eflaust nægur til að það noti dómgreind sína en hvenær er þroski fólks nægur til þess að slæva hana — mér er spum? Höfundur er skóhistjóri Foldaskóla íReykjavík og formaður foreldrasamtakanna Vímulausrar æsku. Um lækkun aldurs til áfengiskaupa Ragnar Gíslason viuaivuiii Jotun viðarvöm er þekkt um öll Norðurlönd fyrirgóða endingu. Hún hefur nú verið notuð á íslandi í 20 ár og reynst einkar vel. DEMLDEKK er þekjandi olíuakrylviðarvöm með frábært veðrunarþol. Fáanleg í yfir 300 liturn. TREBITTer öflug, hálfþekjandi olíuviðarvöm sem hrindir vel frá sér vatni. Fáanleg í yfir 100 litum. Fæst einnig þekjandi í yfir 300 liturn. HÚSASMIÐJAN Súðarvogi 3-5 • Sími 525 3000 Helluhrauni 16 Slmí 565 0100 TREOLJE er olía á gagnvarið timbur og hentar vel á sólpallinn. Fáanleg í sömu litiirn ogTrebitt. Veiðileyfagjald og mikilvægi j sjávarfangs UNDANFARIN misseri hefur umræðan um nýtingu á fiskistofn- um sjávar, einnar af aðal auðlindum okkar íslendinga, verið ofarlega á baugi. Hefur þar borið einna hæst hvernig sókn okkar íslendinga í þessa auðlind skuli vera háttað, hvort beita skuli aflamarkskerfi, banndögum eða öðrum leiðum til að hamla sókn í hana. Tilefni þessa greinarkorns er þó ekki að ræða kosti eða galla þess kerfis sem not- að er til að stjórna fiskveiðum hér við land heldur hins að ræða lítil- lega mál sem snertir okkur íslend- inga jafn mikið og stjórnun sóknar í fiskistofnana þ.e. mikilvægi auð- lindarinnar og gjaldtöku fyrir afnot af þessari sameiginlegu auðlind okkar. Mikilvægi auðiindarinnar Fyrir nokkrum vikum var haldinn opinn fundur þar sem Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra og Sighvatur Björgvinsson alþingis- maður fluttu stutta framsögu um sjávarútvegsmál þar sem veiðileyfa- gjald bar á góma. Þar mátti heyra sjávarútvegsráðherra lýsa andstöðu sinni á því að taka upp veiðileyfa- gjald og í raun blása á þær hug- myndir og rök sem fram hafa verið færð fyrir upptöku slíks gjalds. Á þessum sama fundi héldu tals- menn sjávarútvegs því fram að sjáv- arútvegurinn væri undirstaða alls atvinnulífs í þessu landi og því væri afrakstrinum af honum best komið innan sjávarútvegsins, sjáv- arútvegsfýrirtækin borguðu sitt gjald til samfélagsins í formi skatta. Þessi hugsunarháttur er einfaldlega úreltur, mönnum verður að fara að skiljast að það er ekki ein atvinnu- grein sem er undirstaða alls at- vinnuiífs í þessu landi. Ein atvinnu- grein styður aðra til að ná fram sem mestum afrakstri af sameiginlegri auðlind sem í dag er sú sem vegur mest í okkar þjóðarbúskap. íslend- ingar þurfa bijótast út úr þeim hugsunarhætti að ísland sé einung- is verstöð og verði það um alla framtíð. Það er okkur lífsnauðsyn- legt að byggja upp aðrar atvinnu- greinar til að dreifa þeirri áhættu sem fylgir því að afkoma okkar sé um of háð einni auðlind og svo sann- arlega höfum við tækifæri til þess. Það má einnig benda á að mörg stærstu sjávarútvegsfyrirtækin hér á landi hafa ekki greitt tekjuskatt undanfarin ár og er erfitt að sjá hvernig nota megi skattaleið tii þess að ná fram því markmiði að eigendur auðlindarinnar njóti góðs af henni. Þessar vangaveltur leiða til þeirrar niðurstöðu að eina skyn- samlega og réttláta leiðin til þess að auðlindin verði öllum íslending- um til hagsbóta sé að taka upp veiðileyfagjald. Veiðileyfagjald Þegnar þessa þjóðfélags hafa þann rétt að kjósa sér fulltrúa á Alþingi til að setja þær leikreglur sem eiga að gilda í þessu landi. Nú vill svo til að sett voru lög um auðlindina þar sem fyrsta grein lag- anna kveður á um að hún sé sam- eign allrar þjóðarinnar og beri að umgangast hana sem slíka. Það er réttlætismál að þeir fulltrúar sem kosnir hafa verið framfylgi þeim lögum sem þeir setja. Ein leið til þess að framfylgja fyrstu grein lag- anna er að setja á veiðileyfagjald þar sem ákveðin upphæð sé greidd fyrir afnot af auðlindinni þar sem hún er eign allra og þegar um eign er að ræða þarf sá sem notfærir sér hana að greiða fyrir þá notkun til eiganda hennar. Þar sem þetta gjald er aukinn kostnaður fyrir þau fyrirtæki og einstaklinga sem sækja í auðlindina mætti hugsa sér að gengi yrði fellt einu sinni til að jafna Það er réttlætismál að þeir fulltrúar sem kosnir hafa verið, segir Olafur F. Gunnarsson, fram- fylgi þeim lögum sem þeir setja. út þann kostnaðarauka sem af þessu leiddi. Afrakstrinum sem fengist af veiðileyfagjaldi mætti veija til aðgerða á sviði skattamála með lækkun á tekjuskatti eða virð- isaukaskatti. Með þessu mætti ná fram breytingum sem kæmu öllum þegnum þessa lands til góða og þeir myndu njóta afraksturs af þessari sameiginlegu auðlind. Lokaorð Markmið þessara skrifa er ekki að gera nákvæma hagfræðilega úttekt á þeim hugmyndum sem fram er varpað heldur miklu heldur að vekja aðra leikmenn til umhugs- unar um þetta sameiginlega hags- munamál íslendinga. Umræðan um veiðileyfagjald hefur aukist veru- lega í þjóðfélaginu og fylgjendum þess fer stöðugt fjölgandi. Stjórn- málamenn geta ekki lengur verið hagsmunagæsluaðilar fyrir einstak- ar atvinnugreinar heldur verða þeir að horfa á þjóðarbúið í heild sinni. Það er sanngirniskrafa að þeir sem kosnir eru til forystu framfylgi þeim lögum og reglum sem eru settar, og treysti þannig hagsæld lands og þjóðar. Höfundur er tölvunarfræðingur og stundar MBA-framhaldsnám í Bandaríkjunum. Ungmenni á friðarráðstefnu FJÖGUR ungmenni halda á ráð- stefnu í Bonn, Þýskalandi, í dag, 28. júní. Þessi ráðstefna ber heitið Eurocamp og er í boði þýska fjöl- skyldu- og ungmennaráðuneytisins, borgarstjórnar Bonn-borgar og Reykjavíkurborgar. Ráðstefnan stendur yfir í átta daga eða til 16. júlí nk. Á ráðstefnuna mæta fulltrú- ar frá ellefu Evrópulöndum auk þess frá Mexíkó og Mongólíu. í fréttatilkynningu kemur fram að markmið ráðstefnunnar er að ræða og vinna að friði, mannlegum samskiptum og umburðarlyndi í sameiningu. Ætlast er til að ung- menni frá ýmsum löndum kynnist í leik og starfi og myndi þannig gagn- kvæma vináttu milli landanna. Með- al þess sem ráðstefnugestir taka þátt í er kynning á landi og þjóð sem innifelur kynningu á menningu. Þau munu einnig taka þátt í hin- um ýmsu verkefnum sem við koma mannlegum samskiptum og tjáningu m.a. leikrit, blaðaútgáfa og bein útvarps- og sjónvarpskynning í Bonn. Þátttakendur frá íslandi eru Silja Ingólfsdóttir, Freyja Gunnlaugsdótt- ir, Kristín Ásgeirsdóttir og Jón Einar Sverrisson. Þátttökulöndin eru Aust- urríki, Ítalía, Svíþjóð, Noregur, Pól- land, Rússland, Hvíta-Rússland, Holland, Ungveijaland, Mexíkó, Mongólía, Island og Þýskaland.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.