Morgunblaðið - 28.06.1996, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 28.06.1996, Blaðsíða 26
26 FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 1996 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Grafísk mál- lýska New York borgar GRAFÍSK mállýska New York borgar, nefnist fyrsta einkasýning Guðbjargar Gissurardóttur grafísks hönnuðar, sem opnuð verður i Gall- erí Greip, Hverfisgötu 82 (Vitastígs megin), laugardaginn 29. júní. I kynningu segir: „Með ljósmynd- um, munum og tónlist verður skap- að andrúmsloft hliðargötunnar í New York, þar sem íbúamir sjálfir hafa skapað myndræna list, hver með sínu lagi, í formi skilta, merk- inga og skreytinga. Með sýningunni veltir Guðbjörg meðal annars upp spurningunni hvort grafískir hönn- uðir nútímans séu að verða of háð- ir tölvutækni og mótuðum forskrift- um“. Guðbjörg sem útskrifaðist sem grafískur hönnuður frá Myndlista- og handíðaskóla íslans árið 1994, stundar nú Mastersnám í Com- munication Design, við Pratt Insti- tute í New York. Sýningin verður opin daglega frá kl. 14-18 fram til 10. júlí. ------♦ ♦ ♦----- Sýningu frá Grænlandi að ljúka SÝNINGU á verkum grænlenskra listamanna í listasetrinu Kirkju- hvoli Akranesi, lýkur sunnudaginn 30. júní. Á sýningunni eru meðal annars klippiverk eftir grænlensku lista- konuna Helene Petersen frá Qaq- ortoq ásamt munum unnum úr tré, beini, tálgusteini og selskinni. Þá er einnig fjölda ljósmynda frá Græniandi, grænienskur hunda- sleði, landakort og bækur. Bókastofan er einnig opin, en þar eru verk starfandi höfunda á Akra- nesi. Listasetrið er opið alla daga frá kl. 14-16.30. ---------------- Síðasta tæki- færi að sjá dauðann FÁAR sýningar á Listahátíð í Reykjavík að þessu sinni hafa vakið meiri eftirtekt en þær tvær sem standa yfir í Mokka og Sjónarhóli Hverfisgötu 12 undir yfirskriftinni „Eitt sinn skal hver deyja“, en þeim íýkur báðum um helgina. Sú á Mokka, Dauðinn í islenskum veru- leika, hefur verið sérstaklega íjöl- sótt. Er þetta mesta aðsókn í 38 ára sögu Mokka sem þó hefur ekki hýst færri en 450 myndlistarsýn- ingar í gegnum tíðina. Að gefnu tilefni skal tekið fram að sýning Andres Serranos, Úr lík- húsi, á Sjónarhóli er bönnuð innan 18 ára, en á Mokka er öllum heim- ill aðgangur. Sýningunum er fylgt úr hlaði með 182 blaðsíðna bók frá Mokka-Press sem í er að fínna þverfaglega umfjöllun um dauðann. Kostar hún 1.500 kr. Þýska sinfóníuhljómsveitin í Berlín á Listahátíð Glæstur ferill Þýska sinfóníuhljómsveitin í Berlín leikur undir stjórn Vladimirs Ashkenazy á Listahá- tíð í Laugardalshöllinni á morgun. Rósa Guðrún Erlingsdóttir segir frá sögu hljóm- sveitarinnar, stjómanda hennar og einleikara en á efnisskrá tónleikanna verða þriðja sin- fónía Mendelsohns, Erocia eftir Beethoven o g Colombine eftir Þorkel Sigurbjömsson. SINFÓNÍUHUÓMSVEITIN „Das Deutsche Synphonie-Orchester Berlin“ mun á næsta leikári, 1996/97, fagna 50 ára starfsaf- mæli sínu. Það er ekki ofsögum sagt að hljómsveitin geti verið stolt af glæstum ferli sínum. 15. nóvem- ber 1946 var hljómsveitin stofnuð undir nafninu RIAS-Symphonie- Orchester, sem gefur samvinnu hljómsveitarinnar við bandaríska útvárpsstöð í Berlín til kynna. Við lok þeirrar samvinnu 1956 var nafninu breytt í „Radio Symphonie Orchester Berlin". Til að forðast misskilning við fall Berlínarmúrsins 1989, sem leiddi til stækkunar menningarsenu borgarinnar þar sem skyndilega var til tvennt af öllu, var heiti hljómsveitarinnar breytt aftur í núverandi nafn. í nöfnunum þremur endurspeglast svo að segja saga stjórnmála og menningar þýsku höfuðborgarinnar Berlín. Allt frá byijun hefur hljómsveitin getað státað af kunnum einleikur- um eins og Elisabeth Griimmer, Enrico Maindari, Geza Anda, Di- etrich Fischer-Dieskau og Sergiu Celibidache svo einhver dæmi séu nefnd. Fyrsti stjórnandi hljómsveit- arinnar var Ferenc Fricasy, aðeins 35 ára gamall mótaði hann verk hinnar ungu hljómsveitar. Túlkun hans á Mozart- og Barokk-verkum var þungamiðja samstarfsins og gildir allt til dagsins í dag sem hápunktur listaferils Fricasys. Und- ir hans stjórn æfði hljómsveitin einnig túlkun og uppfærslu nútíma- tónlistar og hefur æ síðan verið þekkt fyrir margbreytileika í upp- setningum sínum á 20. aldar verk- um. 1964 tók Lorin Maazel við af Ferenc Fricasy, undir hans stjórn bættust við uppfærslur á róman- tískum sjaldhöfnum og tónleikar erlendis sem styrktu alþjóðlega við- urkenningu sveitarinnar. Á árunum 1982-1989 undir stjórn Riccardo Chailly var þungamiðja samstarfs- ins lögð á klassískar-rómantískar sinfóníur og hljóðupptökur af upp- setningum síðustu áratuga. Vladimir Ashkenasy Síðan 1989 hefur Vladimir As- hkenasy verið stjórnandi „Deutsche Synphonie-Orchester Berlin". Nægilegt er að líta á 40 ára glæsi- legan feril Ashkenasy sem píanó- leikara og hljómsveitarstjóra til að vita að undir hans stjórn spilar hljómsveitin tónlist eftir sem áður á heimsmælikvarða. Á síðustu þremur leikárum einkenndist sam- vinnan af verkum eins og Mahlers „Wunderhorn Werke“, hljómsveit- arverkum eftir Tschaikowsky og Skrjabin og túlkunum á Sinfóníum Mendelsohns og Schostakowitsch. Stór hluti uppfærslna síðustu ára hefur verið hljóðritaður og er fáan- legur á geisladiskum frá Decca. íslandsferðin „Deutsche Synphonie-Orchester Berlin“ er, undir stjórn Ashkenasy, gestasinfóníuhljómsveit listahátíðar í Reykjavík 1996. Á morgun mun hljómsveitin leika þriðju sinfóníu Mendelsohns, Erociu eftir Beethov- en og Colombine eftir Þorkel Sigur- björnsson. Einleikari á tónleikunum er flautuleikarinn Kornelia Brand- kamp. Síðan 1993 er hún fyrsta sólóflauta hljómsveitarinnar í Berl- ín. Áður starfaði hún sem einleikari hjá „Deutsche Kammerphilharm- onie“ í Frankfurt og hjá útvarpssin- fóníuhljómsveitinni í Hannover. Hún hefur hlotið ýmsar viðurkenn- ingar í Þýskalandi sem og erlendis og á að baki marga tónleika sem einleikari. ÞÝSKA sinfóníuhljómsveitin í Berlín á 50 ára afmæli á næsta starfsári en hljómsveitin heldur tónleika í Laugardalshöll á morgun. Islenskir menning- ardagar í Noregi Suður-amer- ísk gítartón- list í ísafjarð- arkirkju GÍTARDÚETTINN Dou-de-mano heldur tónleika á vegum Tónlist- arfélags Isafjarðar í Isafjarðar- kirkju á laugardag kl. 17. Á efnis- skrá tónleikanna verða eingöngu verk frá Suður-Ameríku. Verk sem öll byggja á þjóðlegri dans- og söngvahefð. Meðal höfunda má nefna Kúbeijann Leo Brouwer, argentíska tónskáldið Astor Piazz- olla og Brasilíumanninn Celso Machado. Gítardúettinn Dou-de-mano var stofnaður síðla árs 1994 og hann skipa gítarleikararnir Hinrik Bjarnason og Rúnar Þórisson. Báð- ir luku þeir einleikara- og kennara- prófi frá Tónskóla Sigursveins árið 1989, en stunduðu að því búnu framhaldsnám erlendis. Hinrik lauk prófi frá tónlistar- í SMÍÐAR & Skart á Skólavörðu- stíg 16a stendur nú yfir til 12. júlí sýning á eldri verkum ívu Sigrúnar Björnsdóttur. íva Sigrún er fædd árið 1970. Hún lauk námi úr grafíkdeild Mynd- lista- og handíðaskóla íslands 1995 og í kennslu- og uppeldisfræði frá Háskóla íslands 1996. Grafíkverkin á sýningunni eru GÍTARDÚETTINN Dou-de- mano heldur tónleika í ísa- fjarðarkirkju á laugardaginn skólanum í Aachen í Þýskalandi árið 1994 en auk náms í klassísk- um gítarleik lagði Rúnar stund á nám í tónlistarfræðum við Lundar- háskóla í Svíþjóð og lauk þaðan prófi 1993. Auk hljóðfæraleiks starfa Hinrik og Rúnar nú við gítarkennslu í Reykjavík og nágrenni. þáttur af vinnu á lokaverkefni henn- ar í MHI, en hafa ekki komið fram áður. Þema sýningarinnar eru Mannlífsmyndir og eru allar mynd- irnar einþrykk. Iva Sigrún hefur tekið þátt í nokkrum samsýningum. Sýningin er opin á verslunartíma alla virka daga frá kl. 11-18 og 11-14 laugardaga. LISTAHÁTÍÐIN Festpillerne i Nord-Norge í Harstad í Norður-Nor- egi, er vettvangur margskonar ís- lenskra lista þessa dagana, því ís- lenskir menningardagar hófust á hátíðinni á miðvikudag og lýkur þeim á morgun. Það er Norræna húsið sem hefur í samstarfi við lista- hátíðina staðið að menningardög- unum. Meðal íslensku dagskrárliðanna er uppfærsla á Óperunni Rhodym- enia Palmata eftir Hjálmar H. Ragn- arsson við kvæðasyrpu Halldórs Laxness í flutningi Frú Emelíu. Sérstakur dagskrárliður á Fest- pillerne í Nord-Norge verður kvik- myndahátíð þar sem tæplega 20 kvikmyndir verða sýndar. Þar af verða 9 íslenskar myndir sýndar; Tár úr steini, Skýjahöllin, Bíódagar, Rokk í Reykjavík, Á köldum klaka, Benjamín dúfa, Karlakórinn Hekla, Hin helgu vé og Hrafninn flýgur. Þá mun Hrafn Gunnlaugsson flytja fyrirlestur um kvikmyndagerð á Is- landi. Auk óperu Hjálmars H. Ragnars- sonar verða þrennir tónleikar fluttir af íslenskum listamönnum. Örn Magnússon píanóleikari og Marta G. Halldórsdóttir sópran munu halda tvenna tónleika. Á þeim fyrri flytja þau íslensk þjóðlög og vísur en á þeim seinni flytja þau verk eftir ís- lensk tónskáld og erlend. Þá munu Sverrir Guðjónsson kontratenór, Sigurður Halldórsson selló og Hjálm- ar H. Ragnarsson orgel og píanó flytja verk eftir Hafliða Hallgríms- son, Jón Leifs og frumflutt verk eft- ir Oliver Kentish tileinkað Sverri. Á Festspillerne verða fjögur bók- menntakvöld og eitt þeirra verður tileinkað íslenskum bókmenntum. Heimir Pálsson mun flytja fyrirlestur um íslenskar bókmenntir eftir 1945 og að því loknu fjalla rithöfundarnir Vigdís Grímsdóttir og Einar Kárason um verk sín og lesa upp úr þeim. Settar hafa verið upp þijár sýn- ingar. Harpa Björnsdóttir sýnir vatnslitamyndir og nefnist sýning hennar Náttúra íslands. Eggert Þór Bernharðsson sagnfræðingur hefur útbúið íslenska sögusýningu og einn- ig verður sýning á ljósmyndum og náttúrulífsbókum eftir Guðmund Pál Ólafsson. ------»■♦ ♦------ Sjónþingi Birgis að ljúka SJÓNÞINGI Birgis Andréssonar lýkur um helgina í Gerðubergi. I framhaldi af Sjónþinginu sjálfu sem fram fór 12. maí voru opnaðar tvær sýningar Birgis; á Sjónarhóli á Hverfisgötu 12, þar sem hann sýn- ir nýleg verk frá síðastliðnum fjór- um árum, og í Gerðubergi, þar sem fólki gefst tækifæri til að rekja túlkun Birgis á túlkun fortíðarinnar í endurtúlkun okkar sjálfra, eins og segir í tilkynningu. Mannlífsmy ndir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.