Morgunblaðið - 28.06.1996, Blaðsíða 6
6 FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Þriggja daga prestastefnu í Digraneskirkju í Kópavogi lauk í gær
Nefnd verði skip-
uð um áherslur
í sálgæslu
SÉRA Þórir Jökull Þorsteinsson, sr. Gunnlaugur Stefánsson og
hr. Olafur Skúlason, biskup íslands, við lok prestastefnu í gær.
Afhentu
upplýs-
ingar um
kynferð-
isofbeldi
, KONUR í samtökunum Stígamót-
| um og aðrar utan samtakanna af-
hentu fulltrúum á Prestastefnu
; skilgreiningar sínar á mismunandi
formi kynferðisofbeldis á Presta-
stefnu í gær. í bréfinu, sem ber
yfirskriftina Til upplýsingar fyrir
presta á Prestastefnu 1996, segir
| að skilgreiningar þessar séu teknar
saman að gefnu tilefni og til að
auðvelda prestum á Prestastefnu
að taka afstöðu í svokölluðu „bisk-
upsmáli".
„Allar tegundir kynferðisofbeld-
is hafa alvarlegar og langvarandi
afleiðingar fyrir þolendur þeirra.
Þunglyndi, léleg sjálfsmynd og
sjálfsmat, erfiðleikar í nánum sam-
skiptum við aðra, einangrun og
sjálfsvígshugsanir og sjálfsvígstil-
raunir eru dæmi um langtíma af-
leiðingar þess. Kynferðisofbeldi er
refsivert athæfi og Sameinuðu
þjóðirnar hafa í samþykktum sínum
lýst yfir að það sé mannréttinda-
brot,“ segir í bréfinu.
*
Arekstrar í
rigningunni
MIKIÐ var um árekstra í
Reykjavík í rigningunni síðdeg-
is í gær. Engin alvarleg meiðsl
urðu á fólki en talsvert eigna-
tjón varð.
Fjögurra bíla árekstur varð
á Hringbraut á móts við BSÍ
um þrjúleytið. Einn bílanna
slapp óskemmdur en einn þurfti
að fjarlægja með kranabíl.
ÞRIGGJA daga prestastefnu var slit-
ið í Digraneskirkju í Kópavogi um
kvöldmatarleytið í gær. Undir liðn-
um önnur mál samþykkti presta-
stefnan tillögu um að brýnt væri að
kirkjan mótaði skýra stefnu til stað-
festrar samvistar samkynhneigðra.
Samþykkt var að beina því til bisk-
ups Islands að skipuð yrði nefnd til
að standa fyrir fræðslu og umræðu
um áherslur í sálgæslu kirkjunnar.
Sr. Gunnar Björnsson o.fl. drógu til
baka tillögu um stuðningsyfirlýsingu
við sr. Flóka Kristinsson enda væri
málið á viðkvæmu stigi. Sr. Flóki
vildi ekki tjá sig um þá niðurstöðu
í gær.
Hins vegar samþykkti presta-
stefnan tillögu til ályktunar frá sr.
Flóka um að full þörf væri á því að
mótaðar væru samræmdar reglur
um þagnarskyldu starfsfólks kirkna
og sóknarnefndarmanna. Presta-
stefnan fól Kirkjuþingi að taka mál-
ið til umfjöllunar og móta reglur
fyrir kirkjuna í heild.
Prestastefnan vísaði til Kirkjuráðs
og Prestafélags íslands tillögu til
ályktunar um að farið yrði yfir mál-
efni prestembættisins og hlutverk
prestsins í kirkjunni, m.a. verði skoð-
aðir starfsmöguleikar hans í þjóðfé-
lagi nútímans, búseta, fjölskyldu-
mál, samskiptareglur við sóknarbörn
og sóknarnefndir, presta og yfir-
stjórn kirkjunnar og hvort presti
verði sett erindisbréf. Niðurstöðu
verði skilað til prestastefnu 1997.
Samþykkt var tillaga frá sr. Jak-
obi Ágústi Hjálmarssyni um eindreg-
inn stuðning prestanna við störf
Pjölskylduþjónustu kirkjunnar.
Prestastefnan hvetur Kirkjuráð til
að tryggja fjárhagsgrundvöll þessar-
ar mikilvægu þjónustu kirkjunnar
við fjölskyldurnar í landinu og nauð-
synleg tækifæri stofnunarinnar til
vaxtar og eflingar. í greinargerð
kemur fram að framlög til íjöl-
skylduþjónustunnar hafi dregist
saman. Kirkjuráði standi vænt-
anlega næst að kosta þjónustuna eða
sjá til þess að henni séu með ákveðn-
um hætti markaðir tekjustofnar.
Prestarnir samþykktu tillögu til
ályktunar frá vígslubiskupunum sr.
Sigurði Sigurðarsyni og sr. Bolla
Gústavssyni um andmæli við því
hvernig æviráðning presta hefði ver-
ið afnumin í lögum frá Alþingi um
réttindi og skyldur opinberra starfs-
manna í vor. Prestastefnan beinir
því til kirkjumálaráðherra að hann
beiti sér fyrir því við Alþingi að
prestar verði undanþegnir reglunni
um fimm ára skipunartíma emb-
ættismanna enda valdi sérstaða
prestþjónustunnnar því að hin al-
mennu rök fyrir fimm ára ráðningar-
tíma opinberra starfsmanna geti
ekki átt við um presta.
Sjónum beint að sálgæslu
Frá sr. Solveigu Láru Guðmunds-
'dóttur o.fl. var samþykkt tillaga til
ályktunar í tengslum við réttarbætur
varðandi samvist samkynhneigðra.
í henni kemur fram að prestastefnan
telji brýnt að kirkjan móti skýra
stefnu til staðfestrar samvistar sam-
kynhneigðra og nefnd sú er skipuð
hafi verið til þess skili áliti hið fyrsta.
Ljóst sé að nokkrir prestar hafi þeg-
ar lýst sig fúsa til að biðja fyrir og
blessa þau sambönd, sem hlotið hafi
staðfesta samvist, og því sé afar
mikilvægt að afstaða kirkjunnar til
málsins í heild liggi fyrir.
Sr. Carlos A. Ferrer o.fl. fluttu
tillögu í tengslum við yfirlitsræðu
biskups. í samþykktri gerð tillög-
unnar kemur fram að prestastefnan
vilji stefna að vandaðri umfjöllun á
kirkjulegum vettvangi um hin erfiðu
og sífellt flóknari mál sem blasi við
í sálgæslu presta. Sérstaklega er
bent á gerendur og þolendur and-
legs-, líkamlegs- og kynferðislegs
ofbeldis og íjölskyldur þeirra og
þann vanda sem skapist þegar mál
tengist þjónum kirkjunnar. Æskilegt
sé að fram fari fagleg vinna á vegum
kirkjunnar og hafi það að markmiði
að styrkja þjóna kirkjunnar í sál-
gæsluþjónustu sinni.
Er því beint til biskups íslands
að skipuð verði nefnd sem standi
fyrir fræðslu og umræðu um áhersl-
ur í sálgæslu kirkjunnar. Nefndina
skipi einn fulltrúi PÍ, einn fulltrúi
biskups íslands og einn fulltrúi
Djáknafélags íslands. Nefndin skili
áliti til prestastefnu árið 1997 og
verði málið tekið þar á dagskrá.
Krafist afsagnar biskups
Undir lok dagskrárliðarins önnur
mál sté sr. Sigfús J. Árnason í pontu
og bar fram fyrirspurn til biskups.
Hann vildi vita hvort rétt væri að
biskup hefði á sáttafundi með Sigr-
únu Pálínu Ingvarsdóttur í Grafar-
vogskirkju sagt að á hans borð hefðu
komið fimm mál þar sem prestar
hefðu verið sakaðir um kynferðis-
lega áreitni. Ef svo væri spyrði hann
hvað gert hefði verið í máli prest-
anna, hvort prestarnir væru starf-
andi prestar og hvað upplýsingarnar
hefðu átt að þýða á sáttafundi hans
sjálfs frammi fyrir sambærilegum
eða verri ásökunum.
Hr. Ólafur Skúlason, biskup ís-
lands, svaraði því til að eftir að hann
hefði fengið staðfestingu á því frá
sambýlismanni og vinkonu Sigrúnu
Pálínu að fundurinn væri trúnaðar-
mál hefði hann skýrt þremenningun-
um frá því að ekki væri einstakt að
svona mál kæmu upp. Hins vegar
sagði hann ekki hvarfla að sér að
skýra frá einstökum málum.
Næst síðastur á mælendaskrá var
sr. Þorgrímur Daníelsson. Hann
sagði stöðu kvenna fyrir utan kirkj-
una lýsa því hversu biskupsmálið
væri alvarlegt. Ekki væri nægilegt
að biskup léti af störfum eftir eitt
og hálft ár. Biskup ætti kirkjunnar
vegna að fara frá þegar í stað. Síð-
astur á mælendaskrá var sr. Halldór
Gunnarsson. Farið var að ósk hans
um að fundurinn yrði lokaður fjölm-
iðlafólki á meðan hann talaði, án
atkvæðagreiðslu. Við upphaf um-
ræðunnar hafði hins vegar verið
samþykkt með atkvæðagreiðslu að
fundurinn yrði fjölmiðlafólki opinn.
Aðalfundur Prestafélags Islands
Hjúskaparlöggjöf fyrir samkynhneigða hefur tekið gildi
i Morgunblaðið/Þorkell
Sigurður Rúnar Sigurðsson og Percy B. Stefánsson og Anna Sigríður Sigurjónsdóttir og Sólveig
Magnea Jónsdóttir gæða sér á brúðkaupstertunni.
um hvernig fer,“
sagði hann. „Það
er svo margt sem
hefur áhrif eins
og ástandið í
kirkjunni al-
mennt. Sumum
finnst ekki rétt
að breyta um
Séra Gunnar formann núna en
Kristjánsson öðrum fínnst það
nauðsynlegt eftir að biskup ákvað
að hætta eftir eitt og hálft ár, að
þá kæmi nýr formaður og annar
tónn, viðhorf og aðrar starfsaðferð-
ir.“
Eðlilegt að bjóða sig fram
„Ég hef í sjálfu sér ekkert um
mótframboðið að segja,“ sagði Geir.
„Það er alveg eðlilegur hlutur að
félagi í Prestafélaginu bjóði sig fram
til forystu í því. En mér líkar það
mjög miður í hvaða samhengi þetta
framboð hefur verið sett og hvemig
það hefur verið borið fram af ýmsum
þeim sem að því standa. Því það er
borið fram í beinu samhengi við þau
mál sem hafa legið undir í allri
umfjöllun á þessari prestastefnu og
hafa ekki verið uppi á yfírborði svo
mjög. Þar með er verið að melda
það að þessi friður, sem biskupinn
talaði um að þyrfti að verða og ráð-
herrann skipaði okkur að búa til,
eigi eingöngu að vera á annan veg-
inn. Það líkar mér illa. Þetta er svona
serbneskur friður.“
HJÚSKAPARLÖGGJÖF fyrir
samkynhneigða, staðfest samvist,
öðlaðist gildi hér á landi í gær -
á alþjóðlegum frelsisdegi lesbía
og homma.
Fyrstu pörin voru vígð sam-
dægurs. Að vígslunum loknum
buðu Samtökin ’78 til móttöku í
anddyri Borgarleikhússins.
Guðrún Elísabet Jónsdóttir og
Valgerður Marteinsdóttir voru
fyrstar samkynhneigðra hér á
iandi til að staðfesta samvist sína.
Eftir athöfnina hjá sýslumannin-
um í Reylyavík héldu þær á Snæ-
fellsnes og voru því ekki viðstadd-
ar móttökuna í Borgarleikhúsinu.
Anna Sigríður Sigurjónsdóttir
í og Sólveig Magnea Jónsdóttir
Fyrstu pörin
gefin saman
voru einnig vígðar hjá sýslu-
manni. Aðspurð hverju þessi op-
inbera viðurkenning breyti fyrir
samband þeirra segir Anna Sig-
ríður: „Þetta breytir auðvitað
heilmiklu, nú líður okkur loksins
eins og fullgildum þegnum. Við
lítum á þetta sem viðurkenningu
samfélagsins á tilveru okkar og
þetta gefur okkur miklu meira
sjálfstraust."
Sólveig Magnea bætti við: „Nú
erum við búnar að gera sáttmála
okkar á milli með öllum þeim
skyidum sem því fylgja og það
er það sem við höfum alltaf vilj-
að. Þessu fylgir ótrúleg frelsistil-
finning og það að vera loksins
orðin sýnileg gefur manni ennþá
meira frelsi.“
Percy B. Stefánsson og Sigurð-
ur Rúnar Sigurðsson segja að eft-
ir átján ára sambúð líði þeim eins
og þeir séu að byrja upp á nýtt
eftir átján réttlaus ár.
„Það sem stóð upp úr í morgun
var að finna fyrir þessu tilfinn-
ingalega frelsi; að mega elska og
segja það upphátt. Það er stærra
fyrir okkur en nokkurn tíma laga-
lega hliðin; skattarnir og allt
það,“ segir Percy.
Tveir í framboði
til formennsku
SÉRA Gunnar
Kristjánsson,
prestur á Reyni-
völlum í Kjós,
hefur ákveðið að
bjóða sig fram
til formennsku í
Prestafélagi ís-
lands gegn séra
Geir Waage sitj- Séra Geir
andi formanni Waage
og sóknarpresti í Reykholti. Gunnar
segir að framboð hans sé vegna
styrs, sem staðið hafí um sitjandi
formann. Geir segir mótframboðið
eðlilegt en að honum líki ekki að
það sé sett í samhengi við þau mál
sem ekki komu upp á yfirborðið á
prestastefnunni.
„Það hafa margir skorað á mig
að gefa kost á mér, sem stafar fyrst
og fremst af því að lengi hefur stað-
ið styr um séra Geir Waage og
ekki eingöngu í vetur, en þá keyrði
um þverbak," sagði Gunnar. „Það
myndaðist eindregin krafa um að
skipt yrði um formann og var þá
leitað til mín og spurt hvort ég
væri tilbúinn til að gefa kost á
mér, sem ég gerði svo að lokurn."
Erfitt að spá um úrslit
Gunnar taldi erfitt að spá um
úrslitin. Ekki væri hægt að segja
að myndast hefðu tvær fylkingar
innan félagsins en að baki Geir
stæði harður kjarni en hann hefði
breiðara fylgi. „Það er erfitt að spá