Morgunblaðið - 28.06.1996, Síða 4
4 FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Stjórn Jámblendifélagsins tekur ákvörðun um stækkun í lok ársins
Nýr raforkusamningiir
gerður við Landsvirkjun
DRÖG að nýjum samningi milli ís-
lenska járnblendifélagsins og
Landsvirkjunar um sölu á rafmagni
liggja fyrir og stefna fyrirtækin að
því að ganga frá honum í haust.
Jón Sveinsson, formaður stjómar
Islenska jámblendifélagsins, segir
að stjóm félagsins muni í lok þessa
árs taka ákvörðun um hvort verk-
smiðjan verði stækkuð og þriðja
ofninum bætt við.
„Það hafa staðið yfír í nokkuð
langan tíma viðræður við Lands-
virkjun um raforkukaup. Það hefur
miðað ágætlega á síðustu fundum
og samningsaðilar hafa ákveðið að
kynna sljómum fyrirtækjanna
árangur viðræðnanna. Hugmynd-
imar vom kynntar í stjóm Lands-
virkjunar á miðvikudag og þær
verða kynntar í stjórn Jámblendi-
félagsins á næsta fundi,“ sagði
Jón.
Jón sagði að Landsvirkjun og
íslenska jámblendifélagið myndu
gera með sér nýjan raforkusamning
óháð því hvort Jámblendifélagið
tæki ákvörðun um að stækka verk-
smiðjuna. Það væm tiltekin atriði
í gamla samningnum sem gerðu það
að verkum að nauðsynlegt væri að
gera nýjan samning. Hann sagði
að stefnt væri að því að nýr orku-
samningur yrði undirritaður í sept-
ember eða október.
Akvarðanir annarra
hafa ekki áhrif
Jón sagði að ákvarðanir annarra
fyrirtækja um að ráðast í byggingu
stóriðju á íslandi myndu ekki hafa
áhrif á ákvarðanir stjómenda Jám-
blendifélagsins um hugsanlega
stækkun verksmiðjunnar. „Við
munum byggja okkar ákvarðanir
m.a. á nýjum orkusamningi. Þegar
við höfum náð slíkum samningi við
Landsvirkjun skiptir það okkur
engu máli hvaða aðra samninga
Landsvirkjun gerir. En meðan ekki
er búið að ganga frá nýjum orku-
samningi em þessir hlutir auðvitað
opnir," sagði Jón.
Stjóm Jámblendifélagsins sam-
þykkti á fundi sínum í vor að láta
kanna hagkvæmni þess að bæta
ofni við verksmiðjuna, en þeir em
tveir í dag. Jón sagði útlit fyrir að
þessi vinna tæki lengri tíma en
vonast hefði verið eftir. Þess vegna
yrði næsti stjómarfundur, sem
hafði verið ákveðinn í ágúst, líklega
ekki haldinn fyrr en í september.
Hann sagði að fyrirhugað væri að
fara almennt yfír stöðu málsins á
fundinum. Stefnt væri að því að
halda_ annan stjómarfund í nóvem-
ber. Akvörðun um hvort farið yrði
út í stækkun verksmiðjunnar yrði
væntanlega tekin einhvem tímann
um áramótin.
Verði ákveðið að bæta við nýjum
ofni við verksmiðjuna gera áætlanir
ráð fyrir að hann verði tekinn í
notkun 1998-99. Ef bætt verður
við nýjum ofni mun Jámblendifé-
lagið auka kaup á raforku frá
Landsvirkjun um 370 GWst á ári,
en fyrirtækið kaupir í dag um 650
GWst.
• •
Olvaður,
réttindalaus
á stolnum bíl
LÖGREGLAN í Reykjavík handtók
17 ára pilt í gærmorgun á stolnum
bíl, réttindalausan og gmnaðan um
ölvun við akstur. Félagi piltsins
komst undan á hlaupum.
Tveir lögreglumenn á ómerktum
bíl veittu bílnum og tveimur piltum
athygli og töldu að þeir gætu
tengst máli sem er í rannsókn.
Þegar þeir ætluðu að stöðva bílinn
reyndi bílstjórinn að stinga af og
eftir nokkra eftirför var bílnum
ekið út af götunni í Norðurfelli og
í gegnum tijábeð. Þar tókst far-
þeganum að stökka út og hlaupa
í burtu. Bílstjórinn hugðist gera
það líka en hann festist í öryggis-
belti og náðist.
Hann reyndist vera á stolnum
bíl og vera ökuréttindalaus. Hann
er auk þess gmnaður um að hafa
verið undir áhrifum áfengis.
Pilturinn var handtekinn og var
hann yfírheyrður í gær. Hann
gekkst við að hafa á miðvikudag
stolið bílnum, sem er töluvert
skemmdur eftir ökuferðina.
íslendingar í 2. sæti á NM í bríds
Rafmagnsveita Reykjavíkur minntist 75 ára afmælis í gær
Svíar sterkastir á
endasprettinum
Faaborg, Danmörku. Morgunblaðið.
ÍSLENDINGAR enduðu í 2. sæti
í opna flokknum á Norðurlanda-
mótinu í brids, sem lauk í gær í
Danmörku. íslenska kvennaliðið
endaði í 5. sæti í kvennaflokki.
Opni flokkurinn var æsispenn-
andi ailt til loka. í næstsíðustu
umferð unnu íslendingar Dani
25-0 og fyrir síðustu umferðina
höfðu Svíar háíft stig yfir íslend-
inga en aðeins þessar þjóðir gátu
unnið mótið. En í síðasta leiknum
unnu Svíar Dani meðan íslending-
ar töpuðu fyrir Finnum og þá var
sigurinn Svía. Þeir enduðu með
193,5 stig, íslendingar fengu 183
stig, Norðmenn 180, Finnar 137,5
Danir 107 og Færeyingar 82,5
stig.
„Þetta var að mörgu leyti gott
mót og við vorum lengst af að spila
mjög vel þótt nokkur slysaspil, eink-
um í leikjunum gegn Svíum, settu
strik í reikninginn. En Svíamir
gáfu lftál færi á sér og því fór sem
fór,“ sagði Bjöm Eysteinsson, fyrir-
liði íslenska liðsins.
Island var að reyna við 3. Norð-
urlandatitilinn í röð en það tókst
ekki. Auk Bjöms vom í liðinu
Guðmundur Páll Amarson, Þorlák-
ur Jónsson, Jón Baldursson og
Sævar Þorbjörnsson. Þeir taka
þátt í haust í Ólympíumótinu í
brids og Björn sagði að þótt sigur
hefði ekki náðst nú vissi spila-
mennska íslendinganna á gott fyr-
ir haustið.
Islenska kvennaliðinu gekk illa
á mótinu enda með litia reynslu í
mótum af þessu tagi. Þær unnu
þó Fínnland 20-10 í síðustu um-
ferðinni og gerðu þar með út um
vonir Finna um bronsverðiaun. ís-
lenska liðið endaði í 5. sæti með
114 stig en Svíar urðu Evrópu-
meistarar, eins og í opna flokknum,
með 201 stig. I öðru sæti urðu
Norðmenn með 187 stig og Danir
urðu í 3. sæti með 164 stig. Finnar
urðu í 4. sæti með 157 stig og
Færeyingar í 6. sæti 62.
íslenska kvennaliðið var skipað
Gunnlaugu Einarsdóttur, Stefaníu
Skarphéðinsdóttur, Hjördísi Sigur-
jónsdóttur og Ragnheiði Nielsen.
Guðmundur Sv. Hermannsson var
fyrirliði.
■ Mikil spenna/45
Kosninga-
skrifstofa
Upplýsingar um forseta-
kosningarnar eru gefhar
á kosningaskrifstofunni
í Borgartúni 20 og í
síma 588 6688
Upplýsingar um kjörskrá
og atkvæðagreiðslu utan
kjörfundar eru gefnar í
síma 553 3209
Orkugreinar fámennar
í Háskólanum
BORGARSTJÓRANUM i Reykja-
vík, Ingibjörgu Sólrúnu Gísla-
dóttur, var í gær afhent fyrsta
eintakið af sögu Rafmagnsveitu
Reykjavíkur í tilefni 75 ára af-
mælis fyrirtækisins Einnig var á
afmælisdaginn tilkynnt um fjár-
framlag frá RR til Háskóla ís-
lands til þess að stofna embætti
prófessors í rafmagnsverkfræði
við skólann. Við þetta tækifæri
benti Sveinbjörn Björnsson há-
skólarektor á að orkumál hefðu
ekki verið í tísku síðastliðinn
áratug, sem gerði að verkum að
fáir nemendur hefðu sýnt slíku
námiáhuga.
Háskólarektor sagði að í kjöl-
farið væri að myndast stórt kyn-
slóðabil í stétt orkuverkfræðinga
og væri ástandið ekki ósvipað
því í iðngreinunum. Þetta er ann-
að prófessorsembættið við Há-
skóla íslands sem stjórn veitu-
stofnana hefur samþykkt að
styrkja og lýtur hitt að hitaveitu-
málum.
A fundinum voru auk háskóla-
rektors og borgarsfjóra Aðai-
steinn Guðjohnsen rafveitustjóri
og AJfreð Þorsteinsson, formað-
ur stjómar veitustofnana. Rætt
var um ný viðhorf í orkumálum
Reykjavíkur og minntist Aðal-
steinn í því sambandi á viðræður
um hlutverk og eignaraðild
Landsvirkjunar, endurskoðun
nefndar í iðnaðarráðuneyti á
orkulögum og orkumálum og
reglur ESB um markað fyrir
raforku sem ísland fellur undir.
Mikið spurt
um gufuafl
lngibjörg Sólrún Gisladóttir
borgarstjóri gat þess einnig að
ekki hefði verið um árabil jafn-
mikið á seyði varðandi orku- og
orkuframleiðslu og sagði að fyr-
irspumir um gufuafl væra miklu
fleiri en áður.
Ljóst verður í september hvort
borgar sig að flyfja raforku um
sæstreng til Hollands og sagði
Ingibjörg Sólrún að nefnd um
Icenet-verkefnið væri nú að
kanna hagkvæmni þess að leiða
600 megavattstundir um streng-
inn, í stað 1.100-1.500 megavatt-
stunda. Hefði það reynst of stórt
I sniðum og vart réttlætanlegt
# Morgunblaðið/Ásdís
SAGA RR, I straumsamband, er eftir Sumarliða B. ísleifsson
sagnfræðing, og verður afhent öllum starfsmönnum Rafmagns-
veitu Reykjavíkur. Hér tekur borgarstjóri við fyrsta eintakinu
frá Aðalsteini Guðjohnsen rafveitustjóra. Alfreð Þorsteinsson,
formaður stjórnar veitustofnana, fylgist með.
RAFMAGNSVEITAN styrkir stofnun prófessorsembættis við
Háskóla íslands til að sinna rannsóknum og kennslu á sviði
orkumála. Hér þakkar Sveinbjöm Bjömsson háskólarektor Al-
freð Þorsteinssyni fyrir framlag RR.
frá sjónarhóli umhverfísvemdar.
Spurt var hvort útflutningur
um sæstreng og framleiðsla á
Nesjavöllum gætu orðið að vem-
leika á sama tíma og sagði Aðal-
steinn Guðjohnsen að Icenet-
verkefnið yrði aldrei að vera-
leika fyrr en árið 2005 eða 2006
ef af því yrði á annað borð.
Nefndi hann einnig streng til
Skotlands, eftir Englandi ogþað-
an til Hollands.
Þá Iagði Ingibjörg Sólrún
áherslu á að arðsemi væri lykil-
atriði yrði raforkuútflutningur
að veruleika og nefndi að kapal-
verksmiðja i Reykjavík væri for-
senda þess að ráðist yrði í verk-
efnið. Benti Aðalsteinn á að þótt
gerð sæstrengs vegna Icenet-
verkefnisins lyki á nokkmm
ámm mætti flytja framleiðsluna
ur landi því þar væm næg verk-
efni til Jialda henni áfram.