Morgunblaðið - 28.06.1996, Blaðsíða 8
8 FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Stýrt eftir stjörnunum
þab sannast mundi ab sá nær hæst / sem sinni
ættjörb stendur næst / og stýrir eftir stjörnum þein,
/ c_i_:_ u
Þú ferð létt með þetta góði, hún er svo ansi stór og skær.
Lentu í vopnuðu ráni í Tékklandi
Oneitanlega skelfi-
leg lífsreynsla
GUÐRÚN Gísladóttir leikkona og
Viðar Eggertsson fyrrverandi leik-
hússtjóri eru nú komin heilu og
höldnu aftur til Dresden eftir að
hafa lent í vopnuðu ráni í Tékk-
landi á þriðjudagskvöld.
Guðrún og Viðar voru stödd á
leiklistarhátíð í Dresden þegar þau
ákváðu að bregða sér í dagsferð til
Theresienstadt í Tékklandi sl.
þriðjudag. Þau voru að skoða muni
í forngripaverslun þegar þrír menn
vopnaðir vélbyssum réðust inn í
verslunina og bundu þau og kefl-
uðu. Þeir ógnuðu eiganda búðarinn-
ar og höfðu á brott með sér mál-
verk, gamlar byssur og peninga.
„Þetta var óneitanlega skelfileg
lífsreynsla," sagði Viðar í samtali
við Morgunblaðið. „Þetta kom okk-
ur algjörlega í opna skjöldu, því
maður á aldrei von á að svona lag-
að komi fyrir mann sjálfan. Það líkt-
ist mest atriði í lélegri Hollywood-
mynd þegar mennimir ruddust inn
með alvæpni, skipuðu okkur að
leggjast á gólfið, bundu hendur
okkar fyrir aftan bak og kefluðu
okkur."
Eftir að ræningjamir höfðu horf-
ið á brott með ránsfenginn tóku við
sjö klukkustunda langar yfirheyrsl-
ur hjá tékknesku lögreglunni, en
að sögn Viðars voru vinnubrögð
hennar afar frumstæð. Fyrsta einn
og hálfan klukkutímann eftir að
Viðar tilkynnti ránið skipti enginn
sér af Islendingunum né líðan
þeirra. Tjáskiptin við lögregluna
gengu erfíðlega, því þarlendir
töluðu aðeins tékknesku og rúss-
nesku. Guðrún og Viðar voru hvort
um sig látin skrifa langa skýrslu á
íslensku um atburðinn og leika hann
aftur á ránsstaðnum fyrir framan
myndbandstökuvél.
Grunur um svik
Viðar segir að upp hafi komið
grunsemdir um að ránið hefði verið
sviðsett af eiganda búðarinnar til
að svíkja fé út úr tryggingum. Svo
sérkennilega vildi til að Viðar og
Guðrún, sem vom hljóð og höfðu
hægt um sig, vom bæði bundin og
kefluð, en ekki búðareigandinn, sem
þó kveinaði hástöfum meðan á rán-
inu stóð. „Ræningjamirgengu fum-
laust til verks, eins og þeir vissu
nákvæmlega hvað þeir ætluðu að
taka og hvar það væri geymt. Við
lágum strax undir grun um að vera
samsek, en lögreglan komst fljótt
að raun um að við værum bara al-
saklausir ferðalangar", sagði Viðar.
Ræningjarnir höfðu á brott með
sér myndavél Guðrúnar og kredit-
kort þeirra beggja. I fyrstu vildi
lögreglan ekki leyfa þeim að
hringja, en Guðrúnu tókst þó að
lokum að ná sambandi við kredit-
kortafyrirtækin og láta loka kortun-
um. Að sögn Viðars hafði lögreglan
engan skilning á mikilvægi þess að
loka kreditkortunum, en hann seg-
ist hafa fengið upplýsingar um að
reynt hafi verið að taka út af öðm
kortinu eftir að því var lokað.
Veruleg lífshætta
Það varð Guðrúnu og Viðari til
happs að skömmu áður en þau fóru
inn í fornmunaverslunina höfðu þau
orðið sér úti um símanúmer hjá
Helenu Kadekovu, sem er lektor í
norrænu við Háskólann í Prag og
talar íslensku. Helena og Þórir
Gunnarsson, ræðismaður íslands í
Prag, keyrðu til Theresienstadt
seint um kvöldið og komu þeim til
aðstoðar.
„Þegar útséð var orðið um að við
kæmumst til Dresden um nóttina
tók Þórir okkur með sér til Prag
og kom okkur þar fyrir á hóteli,"
sagði Viðar. „Hann annaðist okkur
ótrúlega vel allan tímann og sleppti
ekki af okkur hendinni fyrr en við
vomm komin með lestarmiða til
Dresden í hendumar. Sendiherra
íslands í Bonn hefur einnig haft
samband við okkur og boðið okkur
aðstoð. Þegar beint er að manni
vélbyssu upplifír maður það tví-
mælalaust sem verulega lífshættu.
Við erum að reyna að ná okkur
eftir áfallið núna og eigum von á
lækni von bráðar."
Framkvæmd friðargæslu í Júgóslavíu
Samfélag þjóðanna
er óðum að læra
STEINAR Berg Björns-
son skrapp heim til ís-
lands í stutt frí frá
fyrrum Júgóslavíu þar sem
hann hefur haft á hendi
framkvæmdastjómina á frið-
argæsluliði SÞ að undan-
förnu. Honum segist svo frá:
„Þegar við lokuðum end-
anlega starfseminni í Sómal-
íu á síðasta ári fór ég frá
Nairobi til Zagrep og tók við
daglegri framkvæmdastjórn
fyrir óbreytta hlutann af
rekstri Friðargæsluliðsins
sem þá var í Júgóslavíu, en
þar voru um 40 þúsund her-
menn og 5000 óbreyttir. í
framhaldi af Dayton-sam-
komulaginu tók NATO við
friðagæsluhlutverkinu í Bos-
níu-Herzegovinu.
Sameinuðu þjóðimar
komu á fót nýrri friðar-
gæslusveit á austurlanda-
mærum Króatíu, sem á að annast
yfirtöku Króatíu á landsvæði sem
kallað er Austur-Slavonía. Einnig
komu SÞ upp starfsemi í Bosníu,
sem er alþjóðlegt lögreglulið, um
1.700 lögreglumenn víðs vegar að
úr heiminum. Þeim er einnig falið
að annast ýmiss konar samræm-
ingu og samstarf við NATO og
aðrar stofnanir Sameinuðu þjóð-
anna á svæðinu. Síðan var komið
upp lítilli friðareftirlitssveit stutt
frá Dubrovnik, og eftir sem áður
er líka friðargæslusveit á vegum
SÞ , um 1.000 manna herlið, í
Makedoníu.
Frá því NATO tók við 20. des-
ember var okkar starfsemi aðallega
að senda burt liðið sem þarna var,
annaðhvort heim eða yfir til NATO.
Síðan hreinlega að loka starfsem-
inni, hafandi í huga að SÞ voru
síðan 1991 búnar að vera þarna
með starfsemi sem hefur kostað
um 5 þúsund milljónir dollara. “
- Og þú hefur staðið í þessu
og haft fjármálsstjómina á hendi?
„Frá því í fyrrahaust. Nú er það
verkefni okkar að loka þessu og
að annast að hluta til sameiginlega
stjórnun fram til 1. júlí í sumar.
Þá verður hægt að einbeitt sér að
því að ganga frá.“
- Þetta er mikið verkefni. Þú
hefur ekkert komist frá, ekki getað
svo mikið sem skroppið heim og
ekki haft konuna með.
„Þetta er skammtímaverkefni
og ekki gert ráð fyrir að menn séu
þarna með fjölskyldur. Þetta er
mjög knýjandi starf. Hlutimir
breytast mjög fljótt þarna og það
er pressa á því að Ijúka þessum
fyrri kafla og ganga frá þessu.
Þetta alþjóðasamfélag þjóða, sem
Sameinuðu þjóðirnar eru, er tæki
til að taka á vandamálum þegar
þess er þörf. Það er okkar hlutyerk
að taka að okkur það sem Öryggis-
ráðið og Allshetjarþingið felur okk-
ur að gera. Þar var ákveðið að SÞ
reyndu að stilla til friðar í fyrrum
Júgóslavíu.
Við erum á því að nokkuð mörg
þúsund manns hafi verið forðað frá
tortímingu með veru liðsins þarna.
Það hefur þó tekist að halda þess-
um hörmungum innan ákveðinna
marka. Vera SÞ þarna gerði síðan
næsta áfanga mögulegan, sem var
þetta Dayton-sam-
komulag og í framhaldi
þessi viðvera NATO.
Þetta verður allt að
skoðast í samhengi.
Gert var ráð fyrir að
þetta starf NATO yrði í
eitt ár. Það þarf eflaust
lengri tíma. Þeir eru
þama með yfir 50 þúsund manna
herlið og SÞ em enn með nokkra
starfsemi sem fyrr segir.“
- Hvað tekur svo við, fyrir SÞ
og fyrir þig sjálfan?
„A þessu stigi málsins er óráðið
hvað tekur við. Ánægjulegi hlutinn
af þessu er að samfélag þjóðanna
er staðráðið í því að gera allt sem
Steinar Berg Björnsson
► Steinar Berg Björnsson, er
Reykvíkingur. Að loknu prófi í
viðskiptafræði við HÍ 1962 starf-
aði hann við sljórnsýslu- og hag-
sýslustofnun fjármálaráðuneyt-
isins og síðan við fjárlagadeild
SÞ i New York. Varð þá deildar-
stjóri hjá UNIDO í Vínarborgtii
1973. Hann var fjármálastjóri
Rafmagnsveitu Reykjavíkur,
framkvæmdastjóri Pharmaco
hf. og síðast Lýsis hf. og Hyd-
rols. Sneri aftur til SÞ í NY
1986. Síðan 1990 hefur hann
verið við friðargæslu, fyrst í
Bagdad, síðan sem fram-
kvæmdastjóri friðagæsluliðsins
í Gólanhæðum, í Líbanon, i Só-
malíu og nú síðast friðargæslu-
liðs SÞ í fyrrum Júgóslavíu.
Áhugavert
hvernig ýmsir
heimshlutar
nálgast við-
fangsefnin
í þess valdi stendur til að koma
þarna á ástandi sem stríðandi aðil-
ar geta sætt sig við og það er þá
Öryggisráðsins og aðildarríkja SÞ
að ákveða hvort og þá á hvern
hátt SÞ eiga að taka þátt í því.
Hvort NATO eða Sameinuðu þjóð-
irnar verða áfram er óráðið. Hvað
mig sjálfan snertir þá hefi ég ekki
hugmynd um hvað tekur við. Það
tekur fram í byrjun næsta árs að
ijúka við þennan kapítula. “
- Af hverju ertu að þessu, þetta
er ekki létt verk ? Ertu reiðubúinn
til að halda áfram að fara til verstu
átakasvæða?
„Ég reyni að takast á við það
sem mér er falið. Þetta er mjög
áhugaverð og flókin stjórnun.
Margir þættir sem erfitt er að sam-
eina. Starfsfólk og þátttakendur
koma frá aðskiljanlegum hlutum
heims, frá mismunandi löndum,
menningu og trúarbrögðum. Það
er mjög áhugavert hvernig mis-
munandi hlutar heimsbyggðarinn-
ar nálgast vandamálin. Faglega er
þetta geysilega áhugavert verk-
efni. Það eru ákveðin forréttindi
að fá að taka þátt í því.
Heimurinn er að breytast mjög
hratt. Samfélag þjóðanna er enn
að reyna að finna nýtt skipulag,
sem getur komið í staðinn fyrir
þetta valdajafnvægi sem kalda
stríðið sá heiminum fyrir í 40 ár.
Ég held að samfélag þjóðanna,
hvort sem það eru Sameinuðu þjóð-
________ irnar eða NATO, sé
mjög hratt að læra og
reyna að fmna aðferð til
að takast á við þessi
vandamál. Ekki er
spuming um að þetta
er að skila miklum ár-
angri. Maður sér þarna
samvinnu sem er að
skapast. í Sómalíu sá maður Ind-
veija og Pakistana taka höndum
saman í sameiginlegum friðar-
gæsluverkefnum og svo þarna
NATÓþjóðimar Rússa og Úkraínu-
menn taka höndum saman um að
stilla til friðar. Auðvitað er þetta
árangur. Og það er mjög gaman
að vera hluti af þessu átaki. “