Morgunblaðið - 28.06.1996, Side 12
12 FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 1996
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
< ' >í ■ .■■ ■ ^
Morgunblaðið/Kristján
Knatt-
spyrnuleikir
þeirra yngstu
UM 120 ungar knattspyrnuhetj-
ur í Þór og KA á aldrinum 5-8
ára voru saman komnar á fé-
lagssvæði Þórs við Hamar í
gærmorgun. Þar fóru fram ár-
legir æfingaleikir félaganna í
7. flokki og gekk mikið á. Áhug-
inn skein úr hverju andliti enda
ekki á hveijum degi sem þau
yngstu fá spila „alvöru“ leiki.
Bæði strákar og stelpur sýndu
góða takta enda eru þarna á
ferðinni framtíðarleikmenn
beggja félaganna.
Kynning í
Gallerí Allra-
Handa
KYNNING á verkum Elínar Ás-
valdsdóttur verður í Gallerí Allra-
Handa í Kaupvangsstræti á Ak-
ureyri. Hún verður opnuð í dag,
28. júní og stendur til 15. júlí
næstkomandi.
Á sýningunni eru verk af ýmsu
tagi, hekl, keramik, gler, eyrna-
lokkar og olíumálun.
Elín er fædd í Reykjavík árið
1972. Hún hefur dvalið í Banda-
ríkjunum síðastliðin þijú ár bæði
við módelstörf og háskólanám,
m.a. í keramikgerð.
Hætt við sölu
hlutabréfa
ÞORLEIFUR Ananíasson, fulltrúi
starfsmanna Útgerðarféiags Ak-
ureyringa, afhenti áskorun, sem
236 starfsmenn félagsins hafa
skrifað undir, við upphaf bæjar-
ráðsfundar í gær þar sem því er
beint til meirihluta bæjarstjórnar
að hætta við sölu á hlutabréfum
í ÚA, sem eru í eigu bæjarins.
„Við teljum að hagsmunum fyr-
irtækisins og atvinnuöryggi
starfsmanna sé best borgið með
áframhaldandi meiriþlutaeign Ak-
ureyrarbæjar í Útgerðarfélagi
Akureyringa hf.“ segir í áskorun-
inni.
Auglýsing um innlausnarverð
verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ*) ÁKR. 10.000,00
I977-2.fi. 10.09.96- 10.09.97 kr. 1.206.648,60
1978-2.fl. 10.09.96- 10.09.97 kr. 770.845,70
1979-2.fl. 15.09.96- 15.09.97 kr. 502.528,10
INNLAUSNARVERÐ)
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL ÁKR. 10.000,00
1985-1. fl.A 10.07.96 - 10.01.97 kr. 75.512,10
1985-I.fl.B 10.07.96 - 10.01.97 kr. 34.682,00**
1986-1 .fl.A 3 ár 10.07.96- 10.01.97 kr. 52.049,50
1986-1 .fl.A 4 ár 10.07.96 kr. 60.242,00
1986-1.fl.A 6 ár 10.07.96 kr. 63.221,50
1986-1.fl.B 10.07.96 - 10.01.97 kr. 25.579,20**
1986-2.fl.A 4 ár 01.07.96-01.01.97 kr. 49.152,00
1986-2.fl.A 6 ár 01.07.96 kr. 51.486,50
1987-1.fl.A 2 ár 10.07.96 - 10.01.97 kr. 40.551,60
1987-1.fl.A 4 ár 10.07.96 - 10.01.97 kr. 40.551,60
*) Innlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbætur.
**) Við innlausn fylgi ógjaldfallnir vaxtamiðar spariskírteinis.
Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu
Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þar jafnframt
frammi nánari upplýsingar um skírteinin.
Reykjavík, 28. júní 1996
SEÐLABANKIÍSLANDS
Endurbætur og breytingar á ráðhúsinu
Afgreiðsla bæjar-
skrifstofu á jarðhæð
I HAUST verður ráðist í umfangs-
miklar breytingar og endurbætur á
jarðhæð ráðhússins á Akureyri, auk
þess sem byggð verður um 240 fer-
metra viðbygging til vesturs með um
170 fermetra kjallara. Heildarkostn-
aður framkvæmdanna er áætlaður
rúmar 77,5 milljónir króna og þar
af er hönnunarkostnaður rúmar 8,5
milljónir króna. í ráðhúsinu á Geisla-
götu 9 eru m.a. bæjarskrifstofurnar,
skrifstofur ýmissa tæknideilda og
fundaraðstaða bæjarstjórnar.
Á fundi framkvæmdanefndar ný-
lega var veitt heimild til að ganga
til samninga við Arkitektastofu
Svans Eirfkssonar efh. um hönnun
fyrirhugaðra breytinga og endur-
bóta. Gísli Bragi Hjartarson, formað-
ur framkvæmdanefndar, segir að
nauðsynlegt sé að koma neðstu hæð
ráðhússins í gagnið sem fyrst en hún
hefur staðið ónotuð síðan Slökkvilið
Akureyrar flutti sig um set. í fram-
haldinu verður afgreiðsla bæjarskrif-
stofunnar flutt á 1. hæð.
Hönnunarvinnu vegna fyrsta
áfanga, þ.e. endurbóta jarðhæðar og
viðbyggingar, skal lokið fyrir 5. sept-
ember nk. og í framhaldinu verður
verkið boðið út. í öðrum áfanga verð-
ur ráðist í breytingar og endurbætur
á hinum þremur hæðum ráðhússins
og skal hönnunarvinnu vegna verks-
ins lokið fyrir 1. júlí á næsta ári.
Einnig viðbygging
til austurs
Við afgreiðslu málsins í fram-
kvæmdanefnd lét Heimir Ingimars-
son bóka að hann tæki þátt I af-
greiðslunni en hann taldi kostnaðar-
hlutfall hönnunar þ.e. 11% af fram-
kvæmdakostnaði, of hátt. Gísli Bragi
sagðist ósammála Heimi og hann
telur ekkert óeðlilegt við kostnað
vegna hönnunar.
Viðbygging til austurs svo og
tengigangur yfir í aðalbygginguna
er þriðji áfangi fyrirhugaðra breyt-
inga og endurbóta ráðhússins. Ágúst
Berg, húsameistari bæjarins, segir í
þeirri nýbyggingu verði stjórnun og
þjónusta bæjarins, aðstaða fyrir bæj-
arráð og bæjarfulltrúa, eldhús og
mötuneyti og ýmislegt fleira. Húsið
verður á tveimur hæðum og er
grunnflöturinn um 485 fermetrar.
Efri hæðin verður um 365 fermetr-
ar, þar sem bæjarstjórnarsalurinn,
um 120 fermetrar, gengur upp í
gegnum efri hæðina.
Morgunblaðið/Morgunblaðið
Nótaskipið Oddeyrin EA
til heimahafnar
NÓTASKIPIÐ Oddeyrin EA, sem
Oddeyri hf., dótturfyrirtæki
Samherja keypti fyrir skömmu
úr Grindavík kom til heimahafn-
ar á Akureyri í gærmorgun.
Skipið sem áður hét Albert GK
hefir verið málað í litum Sam-
heija og er hið glæsilegasta á
að líta. Skipinu fylgir loðnu-, síld-
ar- og rækjukvóti og samkvæmt
því sem Morgunblaðið kemst
næst, heldur skipið til loðnuveiða
um helgina, undir stjórn Eggerts
Þorfinnssonar skipstjóra. Á síð-
asta ári var skipið með um 20.000
tonna loðnukvóta, 2.700 tonna
síldarkvóta og um 70 tonna
rækjukvóta. Skipið ber hins veg-
ar um 750 tonn af loðnu. Oddeyr-
in EA er 335 brúttólesta stálskip
smíðað í Noregi árið 1967. Byggt
var yfir skipið árið 1976 og það
lengt sama ár og svo aftur árið
1978.
Umhverfis-
tónleikar
UMHVERFISTÓNLEIKAR verða
haldnir á Ráðhústorgi á morgun,
laugardaginn 29. júní kl. 16. Þeir
eru haldnir í tengslum við átakið
„Flöggum hreinu landi 17. júní“ sem
Úmhverfissjóður verslunarinnar og
Ungmennafélag Islands stóðu að.
Hljómsveitin Endurvinnslan verð-
ur í fararbroddi á tónleikunum, en
hún vekur athygli á mikilvægi um-
hverfisverndar á ferð sinni um land-
ið. Sumarlistaskólinn verður jafn-
framt með uppákomu á torginu sem
nefnist „Sjö stúlkur og sjö stólar".
Alls tóku um 10 þúsund manns
þátt í umhverfsátakinu, en ung-
mennafélög víða um land efndu til
hreinsunardaga og jafnvel heil bæj-
arfélög.
Sumarhátíö
framsóknar
ÁRLEG sumarhátíð kjördæmissam-
bands framsóknarmanna á Norður-
landi eystra verður haldin í Stóra-
ijóðri í Vaglaskógi um helgina.
Á laugardag kl. 11 verður farin
skoðunarferð um skóginn undir leið-
sögn skógarvarðar. Gróðursett verð-
ur að Illugastöðum kl. 14 og að því
loknu farið í sund á staðnum. Leikir
fyrir börn á öllum aldri verða í skóg-
inum síðdegis, kl. 19 hefst grillveisla.
---------» ♦ ♦---
Utgáfu Islensks
máls seinkar
AF óviðráðanlegum ástæðum hefur
útkomu bókar sem inniheldur þætti
Gísla Jónssonar um íslenskt mál
seinkað. Gert er ráð fyrir að bókin
komi út um miðjan júlí og verður
hún þá send áskrifendum jafnskjótt.
Bókin er gefin út í tilefni af 50 ára
stúdentsafmæli Gísla 17. júní síðast-
liðinn og 70 ára afmæli hans á liðnu
hausti.