Morgunblaðið - 28.06.1996, Page 16
16 FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 1996
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Nettölva til
sölu íhaust
London. Reuter.
TÆKI, sem hannað er í Bretlandi
og á að veita ódýran og einfaldan
aðgang að alnetinu (internetinu) um
venjulegt sjónvarpstæki, verður sett
á markað í haust.
Tækið nefnist Acorn NetStation
og er kallað fyrsta nettölva (NC)
heims, sem verði seld almenningi.
Tækið á að kosta 399 pund eða
um 40.000 krónur og verður mark-
aðssett í Bretlandi 11. október. Sala
mun hefjast um svipað leyti í Banda-
ríkjunum og á meginlandi Evrópu.
NC-tæki eru vasaútgáfa af tölv-
um, býður upp á tengingu við alnet-
ið og e-tölvupóstkerfi, en getur ekki
getur ekki geymt upplýsingar eins
og PC-tölvur.
„NetStöðin“ er svartur kassi sem
er hafður ofan á sjónvarpstæki og
fá netnotendur aðgang að netinu
með því ýta á hnapp eða nota fjar-
stýringu.
Olivetti á rétt innan við 50% í
Acorn-tölvufyrirtækinu, sem fram-
leiðir NetStation. Smíðin hefur notið
stuðnings Oracle í Bandaríkjunum
— brautryðjanda í gerð NC.
-----»-♦.■».-.
Innflutningur
eykstlangt
umfram
útflutning
ÞJÓÐHAGSSTOFNUN áætlar að
vöruskiptajöfnuður landsmanna
verði hagstæður um 3,6 milljarða á
þessu ári samanborið við 13,4 millj-
arða í fyrra. Innflutningur hefur
vaxið verulega að undanförnu og var
um 21% meiri fyrstu fjóra mánuði
ársins en á sama tímabili í fyrra.
Almennur innflutningur jókst heldur
minna, eða um 19%.
Fram kemur í nýjasta hefti Hag-
vísa Þjóðhagsstofnunar að innflutn-
ingur fólksbíla jókst langmest fyrstu
fjóra mánuðina, eða um 50%. Inn-
flutningur matar- og drykkjarvöru
jókst um 21% og innflutningur ann-
arra neysluvara jókst um 15%.
Stofnunin áætlar að vöruinnflutn-
ingur verði 14,2% meiri á föstu verði
á þessu ári en í fyrra og að vöruút-
flutningur aukist um 5,5%.
SIGURÐUR Helgason, forstjóri Flugleiða, í hópi starfsmanna í merkinu.
Flugleiðir stefna að
10% veltuaukningu á ári
SIGURÐUR Helgason, forstjóri
Flugieiða hf., kynnti á fundi á
Reykjavíkurflugvelli í gær með um
800 starfsmönnum nýja stefnumörk-
un og framtíðarsýn félagsins. Þar
kom fram að stefnt er að því að
auka arðsemi jafnt og þétt og að
árið 2000 verði hagnaður af reglu-
legri starfsemi fyrir skatta 5,5% af
veltu. Gengur vinna við endurskipu-
lagningu starfseminnar undir nafn-
inu 5 'A þessu til áréttingar.
Félagið hefur jafnframt sett sér
það markmið að vaxa um 10% á ári
frá og með 1997 og gerir ráð fyrir
að veltan verði komin yfír 27 millj-
arða króna árið 2000. Aætlanir um
vöxt þýða í raun að félagið bætir
þotu við flugflotann annað hvert ár
auk fjölda nýrra starfsmanna.
í frétt frá Flugleiðum kemur fram
að megininntakið í máli Sigurðar á
fundinum hafi verið að félaginu hafi
miðað mjög vel í rekstrinum á undan-
förnum árum. Það hefði endumýjað
flugflotann, hótel, bílaleigu og önnur
tæki og búnað auk allra þjónustu-
þátta fyrir um 20 milljarða króna.
Jafnframt hefði náðst veruleg hag-
ræðing í rekstrinum með sparnaði
og aukinni framleiðni. Þessi mikli
UM 500 starfsmenn Flugleiða hf. mynduðu merki félagsins á
flughlaðinu við flugskýlið á Reykjavíkurflugvelli eftir kynning-
arfundinn í gær.
árangur hefði tryggt að fyrirtækið
komst án stóráfalla í gegnum erfíð-
leika í alþjóðaflugrekstri. Sigurður
Helgason sagði að nú snúi félagið
sér að því að tryggja viðunandi arð-
semi í öllum greinum ferðaþjónustu.
Aukið hlutfall
pakkaferða
Félagið skiigreinir sig ekki lengur
eingöngu sem flugfélag heldur sem
ferðaþjónustufyrirtæki. Það endur-
speglar áherslur fyrirtækisins á að
efla aðra þætti starfseminnar, svo
sem hótel, bílaleigu og ferðaskrif-
stofurekstur til jafns við flugið. Jafn-
framt vill félagið auka hlutfall þeirra
sæta sem seld eru í pakkaferðum á
kostnað þeirra sem seld eru á lægstu
gjöldum í stórum upplögum til alþjóð-
legra miðlara.
Sigurður Helgason sagði í samtali
við Morgunblaðið að fyrirtækið ætl-
aði sér taka meiri þátt í uppbyggingu
á ferðaþjónustu á Islandi og fara nær
viðskiptavinum erlendis. „Við ætlum
að selja meira með sætunum en ekki
sætin ein og sér eins og við höfum
gert mikið erlendis. Jafnframt gerum
við ráð fyrir að flugið til og frá ís-
landi muni aukast um 5-6% á næstu
árum. Við ætlum að taka þátt í því,
en til viðbótar að gera það arðbær-
ara.“
Þá benti Sigurður á að í náinni
framtíð mætti búast við því að flug-
félög erlendis rynnu saman í stórar
samsteypur. Flugleiðir þyrftu því að
búa sig undir erfiðari samkeppni. Til
að geta tekið þátt í fyrirsjáanlegri
aukningu þyrfti að bæta við einni
vél annað hvert ár og verið væri að
leggja drög að því.
Flugleiðir hafa notið aðstoðar
ráðagjafarfyrirtækisins Andersen
Consulting við endurskipulagningu
og stefnumörkun. Nýtt skipulag tók
gildi 1. maí sem felur í sér að starf-
seminni er skipt upp í ákveðna ferla.
Sérstakt framleiðslusvið sér um
framleiðslu á allri vöru og þjónustu,
markaðssvið mótar þjónustuna en
sölusviðið selur hana.
Verð frá:
149.900!
Staðgreitt
Poweibook 190/190cs
Nuferðu
fyrir ferðina!
Tölva týrír þá sem eru á ferö og flugi
og vilja nýta tímann betur.
®.Apple-umboðið
Skipholti 21 • Sími 511 5111 • Heimasíðan: http://www. apple. is