Morgunblaðið - 28.06.1996, Qupperneq 18
18 FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 1996
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
URVERINU
Fjögnr skip komin
með meira en
5.000 tonn af síld
FJÖGUR skip eru nú komin yfir
5.000 tonn af síld úr norsk-
íslenzka síldarstofninum. Veið-
amar hafa gengið illa að undan-
förnu og vantar um 25.000 tonn
upp á að heiidarkvóta sé náð. Því
hefur nokkru magni verið endur-
úthlutað og samkvæmt því eru
kvótahæstu skipin með rúmlega
5.800 tonna kvóta.
Um miðja vikuna var staðan
sú, að Sigurður VE var kominn
með 5.281 tonn, mest íslenzku
skipanna, en Víkingur AK var
með nánast sama afla, 5.275
tonn. Næstu skip eru svo Jón
Kjartansson SU með 5.153 tonn
og Hákon ÞH með 5.039 tonn.
Þessi skip eiga mjög lítið eftir af
kvóta, minna en sem svarar til
hálfrar burðargetu þeirra og því
óvíst að þau fari meira til síld-
veiða. Heimilt að framselja eftir-
stöðvar af kvóta skipanna, svo
fremi sem þær eru ekki ná ekki
hálfri burðargetu þeirra. Loðnu-
skipin eru öll á búa sig til loðnu-
veiða, en smærri nótaskipin reyna
líklega áfram við síldina.
Hér fer á eftir yfirlit Fiskistofu
yfir kvóta og afla síldarskipanna.
Nafn skipanna kemur fremst, þá
síðasta úthlutun, en þá var 18.000
tonnum deilt niður á þau skip, sem
landað höfðu helmingi eða meiru
af aflaheimildum sínum. Þá kem-
ur heildar kvóti hvers skips, loks
afli og að endingu það, sem hvert
þeirra á eftir af kvótanum.
Nafn 3. úthl. Heildarúthl. Afli* Kvótastaða
Júpiter ÞH-61 488 4976 4.932 44
Jón Kjartansson SU-111 549 5616 5.153 463
Sigurður Ólafsson SF-44 0 2206 0 2.206
Sigurður VE-15 567 5812 5.281 531
Víkingur Ak-100 567 5812 5.275 537
Beitir NK-123 504 5141 4.052 1.089
Júlli Dan GK-197 284 2834 2.334 500
Hrungnir GK-50 0 2497 1.140 1.357
Glófaxi II VE-301 0 2212 207 2.005
Sæborg GK-457 0 2517 60 2.457
Þórður Jónasson EA-350 322 3237 2.802 435
Bergur Vigfús GK-53 290 2894 2.673 221
Glófaxi VE-300 286 2858 1.699 1.159
Sigla SI-60 290 2894 2.617 277
Sighvatur GK-57 0 2442 856 1.586
Flosi ÍS-15 0 2442 74 2.368
Víkurberg GK-1 304 3046 2.580 466
Sunnuberg GK-199 336 3382 2.579 803
Háberg GK-299 319 3201 2.647 554
Gígja VE-340 330 3315 3.151 164
Örn KE-13 326 3273 2.883 390
Auðunn ÍS-110 0 2341 0 2.341
Guðmundur Ólafur ÓF-91 307 3075 2.860 215
Sæljón SU-104 0 2572 0 2.572
Svanur RE-45 316 3174 2.781 393
Amþór EA-16 307 3075 2.713 362
Bergur VE-44 290 2904 2.575 329
Heimaey VE-1 287 2869 2.746 123
Dagfari GK-70 288 2882 2.581 301
Albert GK-81 324 3257 2.783 474
Faxi RE-241 317 3180 2.914 266
Súlan EA-300 346 3484 3.052 432
Sighv. Bjamas. VE-181 321 3223 2.925 298
Kap VE-4 336 3378 3.240 138
Húnaröst SF-550 323 3247 2.902 345
Guðrún Þorkelsd. SU-211 327 3284 2.883 401
Guðmundur VE-29 379 3834 3.675 159
Börkur NK-122 493 5031 4.692 339
Gullberg VE-292 353 3559 3.445 114
Huginn VE-55 353 3559 3.445 114
Höfrangur AK-91 349 3520 3.471 49
Amey KE-50 323 3247 2.888 359
Þórshamar GK-75 313 3143 2.713 430
Bjarni Ólafsson AK-70 417 4229 3.551 678
Björg Jónsdóttir ÞH-321 375 3791 3226 565
Grindvíkingur GK-606 417 4229 3.868 361
Hólmaborg SU-11 547 5592 4.962 630
Amarnúpur ÞH-272 354 3568 3.141 427
ísleifur VE-63 377 3817 3.460 357
Hákon ÞH-250 524 5359 5.039 320
Þorsteinn EA-810 509 5200 4.766 434
Jóna Eðvalds SF-20 322 3233 2.428 805
Elliði GK-445 378 3827 2.599 ' 1.228
Jón Sigurðsson GK-162 459 4670 4.191 479
Antares VE-18 400 4051 4.000 51
Sighvatur Bjamas. VE-81 510 5206 4.898 308
Samtals: 18.003 201.221 164.408 36.809
Allar tölur í tonnum
•Afli samkvæmt upplýsingum frá löndunarhöfnum og skipstjórum.
orötvnXifoííiíi
- kjarni málsins!
Reuter
WARREN Christopher, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, skoðar afleiðingar sprengingarinnar sem
varð að minnsta kosti 19 manns að bana og særði rúmlega 100 alvarlega í bækistöð
bandaríska hersins í austurhluta Saudi-Arabíu.
Vilja úthýsa vestrænum
áhrifum í Saudi-Arabíu
HKtr,: i
GÍGURINN sem myndaðist við sprenginguna var
ellefu metra djúpur og 28 metra víður.
Reuter
Dubai. Reuter.
ÞAÐ er stefna tilræðismannanna,
sem urðu að minnsta kosti 19
manns að bana með bílsprengju í
Saudi-Arabíu á þriðjudagskvöld, að
reka alla vestræna hermenn á brott
frá konungdæminu, segja frétta-
skýrendur.
Sprengjan sprakk við fjölbýlishús
í bækistöð bandaríkjahers í bænum
Khobar í austurhluta Saudi-Arabíu,
og var þetta í annað sinn á tæplega
hálfu ári sem ráðist er gegn banda-
rískum hermönnum í landinu.
Bandaríkjamenn blasa við
Terence Taylor, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri Alþjóða herfræði-
rannsóknastofnunarinnar í London,
sagði að árásir á útlendinga, þá
sérstaklega Bandaríkjamenn, væri
helsta markmið þessara andstæð-
inga erlendra áhrifa í Saudi-Arabíu.
Bandaríkjamennirnir séu augljós-
asta dæmið um slíkt, og því blasi
þeir við sem skotmark.
„Skilaboðin til ráðamanna eru
að þeir megi ekki vera of mikið í
vasanum á útlendingum, og er þá
sérstaklega átt við Bandaríkja-
menn,“ sagði Taylor.
Samtök múslima sem kenna sig
við píslarvottinn Abdullah al-Huza-
ifi hafa lýst sig ábyrg fyrir tilræð-
inu og hóta fleiri árásum ef stjórn
Saudi-Arabíu rekur ekki á brott
alla bandaríska hermenn „sem her-
sitja heilagt land Sauda.
Háðir erlendum her
Hersveitum bandamanna var
heimilað að setja upp bækistöðvar
í Saudi-Arabíu 1990 til þess að
vernda olíulindir landsins og reka
íraka á brott frá Kúveit. Sfðan þá
hefur vestrænn her, ásamt kaup-
sýslu, verið augljósasta merkið um
erlend áhrif í landinu.
Gífurlegur olíuauður Saudi-
Araba, sem eru mestu olíuframleið-
eindur og útflytjendur heims, hefur
gert þá að umfangsmiklum vopna-
kaupendum, og leitt til þess að þeir
eru að miklu leyti háðir erlendum
her í varnarmálum. Segja frétta-
skýrendur að alls séu í landinu um
fimm þúsund flugmenn bandaríkja-
hers, auk hundruða ráðgjafa og
þjálfara. Er markmiðið með veru
Bandaríkjahers að aftra því að írak-
ar láti til skarar skríða og fyrir-
byggja vopnaskak af hálfu írana.
Stór hluti herliðsins hefur það hlut-
verk að gæta flugbannsvæðis yfir
suðurhluta íráks.
Öfgamenn líta svo á, að öll nær-
vera hermanna, sem ekki eru músl-
imar, sé lítilsvirðing við ríkið, sem
er stjórnað samkvæmt ströngum
reglum Islam. Vestræn áhrif eru
sterk, en hvergi augljós. í versla-
namiðstöðvum eru vestrænar vörur
auglýstar og seldar, og Saudar líta
á bíla og jeppa frá Bandaríkjunum
sem stöðutákn. Erlend tónlist,
skyndibitar, og ritskoðaðir, enskir
fjölmiðlar eru fáanlegir.
Konur verða að lúta strönguin
lögum um klæðaburð, og hvergi er
fylgt jafn stranglega og í Saudi-
Arabíu, þeim lögum Islam sem
kveða á um að morðingjar, nauðg-
arar og aðrir sem hafa verið fundn-
ir sekir um alvarlega glæpi, skuli
hálshöggnir á almannafæri. Algengt
er að fólk sé svipt útlimum fyrir að
stela, og konur mega ekki aka.
Vilja islamskt ríki
Vestræn áhrif eru lítt sjáanleg í
stjórnmálum innanlands. Ríkis-
stjómir á Vesturlöndum fögnuðu
þeirri ákvörðun Fahds konungs að
tilnefna ráðgjafa (shura) fyrir ríkis-
stjórnina, en Saudi-Arabía lýtur þó
algerlega valdi konungsins.
Það virðist samt ekki vaka fyrir
hermdaverkamönnunum að auka
frelsi í stjórnmálum. „Markmið
þeirra er að stofnað verði islamskt
ríki í Saudi-Arabíu, og að vestræn
áhrif verði gerð útlæg frá þessum
heimshluta," segir stjómmálaskýr-
andi í Kúveit.
Tyrkir fella Kúrda í írak
Tunceli í Tyrklandi. Reuter.
ÞÚSUNDIR tyrkneskra hermanna
nutu stuðnings flughers þegar
þeir réðust inn í norðurhluta íraks
í gær og felldu þar fimm kúrdíska
uppreisnarmenn, að sögn emb-
ættismanna í tyrkneska hemum.
Var þetta umfangsmesta hern-
aðaraðgerð Tyrkja á landamærum
ríkjanna á undanförnum íjórum
mánuðum. Að sögn embættis-
manna kann að verða fjölgað í
röðum hermanna.
Tólf tyrkneskar hersveitir, sem
hver um sig telur fimm til sex
hundruð menn, og þyrlur og flug-
vélar réðust gegn stærstu herbúð-
um skæruliða Kúrda, sem hafa
aðsetur nyrst í írak, og berjast
fyrir sjálfstæði í suð-austur Tyrk-
landi.
Tyrkir hafa á undanförnum
árum oft ráðist yfir landamærin
gegn Kúrdum. í fyrra fóru þeir
með 30 þúsund manna lið í sex
vikna herför, en voru gagnrýndir
harðlega af stjórnvöldum á Vest-
urlöndum.