Morgunblaðið - 28.06.1996, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 1996 2 7
Auglýsing
Verkin tala!
Forsetaframbjóðandi leggur orð sín og gjörðir undir dóm þjóðarinnar. Það er
málefnalegt og rétt að leyfa verkum hans að tala áður en sá dómur gengur.
Með því að rifja upp verk Ólafs Ragnars Grímssonar, vilja Óháðir áhugamenn um
forsetakjör, auðvelda kjósendum að gera upp hug sinn í komandi kosningum.
Þegar Ólafur Ragnar
Grímsson var
fjármálaráðherra, fékk
útgáfufyrirtækið Svart á
hvítu, sem var m.a. í
eigu kosningastjóra
Ólafs, að gera upp
söluskattsskuld sína
með verðlausum
pappírum. Frá öðru
fyrirtæki, sem átti í
ágreiningi um skuld
sína, neitaði Ólafur að
taka við bankatryggingu
og lét loka því
fyrirvaralaust.
- f
Ólafur Ragnar Grímsson,
fjármálaráðherra, gerði
„tímamótasamning“ við
BHMR, sem hann stóð ekki
við. Málið fór fyrir dómstóla.
Áður en dómur gekk sagði
Óiafur: „Það kemur ekki til
greina að setja
bráðabirgðalög á niðurstöður
dóms.“ Eftir að ríkið tapaði
málinu, stóð hann að
setningu slíkra
bráðabirgðalaga.
Þessi lög Ólafs dœmdi
Hœstiréttur síðar sem
stjórnarskrárbrot
Eftir Rúmeníuför 1984 sagði Ólafur Ragnar að Ceausescu væri
„heiðursmaður“ og ennfremur:
„Fórum við nokkrir ípersónulega heimsókn til hans ogfengum
þar góðar og virðulegar móttökur. “
Eftir fall Ceausescu 1990 sagðist Ólafur Ragnar hafa verið
„sjokkeraður“ í heimsókninni til Rúmeníu. og ennfremur:
„...e'g kynntistþarna meiri harðstjórn og meiri
persónudýrkun en ég hélt að vœri í raun til. “
Verkin tala,
dæmum eftir þeim.
ÓHÁÐIR ÁHUGAMENN UM FORSETAKJÖR 1996