Morgunblaðið - 28.06.1996, Side 28
28 FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Glattá
hjalla í Ar-
bæjarsafni
UM HELGINA verður Árbæjarsafn
opið frá kl. 10-18. Á laugardeginum
verður teymt undir börnum frá kl.
14-15. Leiðsögn verður um leik-
fangasýninguna fyrir yngstu safn-
gestina og farið verður í gamla leiki
fyrir framan Læknisbústaðinn frá
Kleppi kl. 15. Hægt verður að
spreyta sig á léttum spurningaleik
en dregið verður úr réttum svörum
1. júlí og fá vinningshafar sendan
glaðning frá safninu.
Á sunnudeginum verður hins
vegar dagskráin „Glatt á hjalla“ en
þá munu eldri borgarar í Gerðu-
bergi kynna handverk fyrri tíma.
Gestum gefst kostur á að skoða
útskurð, tógvinnu og roðskógerð í
Árbænum. Þar munu einnig verða
í boði nýbakaðar lummur og harm-
óníkuleikur. Handavinna og gull-
smíði verða í Suðurgötu 7, en við
Nýlendu verða hnýtt net og bók-
bindari að störfum í Miðhúsi. Bazar
verður á Kornhúsloftinu en þar mun
einnig verða leikið á ýmis hljóðfæri
og kór eldri borgara í Gerðubergi
tekur lagið.
Dans og leikur verður á svæðinu
kl. 15. Einnig er hægt að fylgjast
með mjöltum á gamla mátann í
Árbænum kl. 17.
-----♦ ♦ ♦-----
Sýningu
Karls Kvaran
að ljúka
TVÆR sýningar hafa staðið yfir í
Norræna húsinu í júnímánuði í
tengslum við Listahátíð í Reykjavík.
Félag íslenskra myndlistarmanna
og Norræna húsið stóðu sameigin-
lega að sýningu á málverkum eftir
Karl Kvaran og eru þau frá 1985-
1989, sem var síðasta tímabilið í
lífi og á listferli málarans.
Sýningunni lýkur á sunnudag og
er hún opin frá kl. 13-19.
Fyrirlestur um glerlist
í anddyri og kaffístofu hefur Pia
Rakel Sverrisdóttir sýnt glerlista-
verk undir heitinu Jöklar og hraun.
Pia Rakel heldur fyrirlestur i fund-
arsal Norræna hússins á sunnudag
30. júní kl. 16.
Hún ætlar að segja frá vinnuað-
ferðum sínum og lýsa því hvernig
breyta má venjulegu gleri í lista-
verk með sandblæstri eða hitun í
keramikofni og fleiri aðferðum.
Sýningu Piu Rakelar lýkur einnig
á sunnudag.
SUMAR liggja þar sem síst mætti við þeim búast. Mannsand-
lit í grasinu.
KÖTTUR Sigurjóns. Ein af vættunum sem Páll valdi á
sýninguna.
Vættir í verkum
tveggja manna
Mynd af Hallgerði Langbrók er höggvin
í stein fyrír utan Listasafn Sigurjóns.
Þóroddur Bjamason sá hana og ýmsa
drauga og dýr í heimsókn sinni í safnið
FYRIR utan Listasafn Siguijóns
í Laugarnesi má sjá margskonar
verur og vættir gægjast úr marg-
litum steinum sem sumir liggja
þar sem síst mætti við þeim bú-
ast en aðrir í öndvegi á grasflöt-
um framan við safnið. Listamað-
urinn sem kallar fram þessar
verur heitir Páll Guðmundsson
frá Húsafelli en hann segir að
myndirnar búi í steinunum og
hans hlutverk sé að gera þær
sýnilegar með hamri sínum og
meitli. Vættirnar eru margar
rammíslenskar eins og Marbend-
illinn og Maður í skötulíki sem
staðsettur er þar sem kletta-
fjaran byijar á bakvið safnið.
Framandleg íslenskri náttúru eru
verkin „Api“ og „Örn og ljón“.
Ekki eru eingöngu þjóðsagnaver-
ur eða dýr í steinunum. Mynd
Hallgerðar Langbrókar er fyrir
utan safnið og er það viðeigandi
því talið er að Hallgerður hafi
búið á Laugarnestanga og munn-
mæli herma að hún hvíli í kirkju-
garðinum á Laugarnesi. Stund-
um er lítið átt við steinana og
til dæmis hélt blaðamaður að í
verkinu Hnefí hefði listamaður-
inn látið nægja að gefa steininum
nafn.
Æska, elli og
dauði í hring
Páll notar líparít, flikruberg
og rauðagijót í verkin. Þau eru
öll ný og vann hann þau eftir
að hafa kynnt sér verk Siguijóns
og valið þau sem samræmdust
hans hugmynd um sýninguna.
Morgunblaðið/Golli
MANNSINS ævi ,eftir Sigurjón Ólafsson, í miðju. Umhverf-
is er Mannnsins ævi eftir Pál, æskan, ellin og dauðinn.
Verk Siguijóns eru jafnt úr steini
og tré. Á efri hæð safnsins má
líta eins konar innsetningu þar
sem höggmynd Siguijóns,
Mannsins ævi, stendur í miðju
og umhverfis það eru steinar sem
Páll hefur unnið um mannsins
ævi. Æskan er táknuð með litlum
úthöggnum höndum og fótum
og ellin með gömlum manni.
Dauðinn er í líki hauskúpu.
Á neðri hæð kallast á vættir
beggja listamannanna. Köttur
Siguijóns og Ugla Páls, Naut og
fuglar við Dreka og dýr.
Það er ekki laust við að maður
trúi því að vættir búi í steinum
eftir að hafa heimsótt sýninguna
og nánd þeirra í verkum beggja
listamannanna er rík.
Leikfélag Reykjavíkur
Largo desolato
eftir Havel
sýnt í haust
EINS og flestir vita er Vaclav
Havel ekki einungis andófsmaður
sem sat í fjölda ára í fangelsi og
varð svo forseti Tékklands, heldur
einnig leikritaskáld. Hann var
ungur maður er fyrstu leikrit hans
voru frumsýnd í Prag og æ síðan
hefur hann verið tengdur leikhús-
jöfrinum Samuel Beckett og leik-
ritum hans.
Largo desolato er skrifað 1984
eftir fimm ára fangelsisvist og
þrælkunarvinnu og var frumsýnt
í Vínarborg í upphafi árs 1985. í
leikritinu er sagt frá heimspekingi
nokkrum er misst hefur stjórn á
lífi sínu, fær engan frið við störf
sín, meðal annars vegna afskipta-
semi annarra.
Laro desolato er einstaklega
áhrifamikið verk þar sem á yfir-
borði er óborganlegt skop en djúp-
ur harmur býr undir. Hér er skáld-
ið hvorki að fjalia beinlínis um
eigið líf né umhverfi og samfélag
lands síns. Verkið hefur víðtækar
skírskotanir í okkar eigin þver-
sagnakennda heim.
Leikendur verða Ari Matthías-
son, Árni Pétur Guðjónsson, Björn
Ingi Hilmarsson, Ellert A. Ingi-
mundarson, Jón Hjartarson, María
Ellingsen, Ragnheiður Arnardótt-
ir, Theódór Júlíusson, Valgerður
Teikningar
og olíumál-
verk í sýning-
arsölum MÍR
AÐSTANDENDUR Largo desolato.
Dan og Þorsteinn Gunnarsson.
Höfundur leikmyndar og búninga
er Helga I. Stefánsdóttir og leik-
stjóri er Brynja Benediktsdóttir.
Þýðendur eru Baldur Sigurðsson
og Olga María Fransdóttir auk
Brynju Benediktsdóttur.
Frumsýnt verður á Litla sviði
Borgarleikhússins í lok september
næstkomandi.
SÝNING á teikningum og olíumál-
verkum rússneska listamannsins
Mansúr Sattarovs verður opnuð í
sýningarsölum MÍR, Vatnsstíg 10
í Reykjavík á laugardag kl. 15.
Mansúr Mannúrovits Sattarov er
fæddur 1948 í borginni Kazan við
Volgu. Hann stundaði nám við
myndlistarskóla í borginni Úfa í
Úralhéraði og lauk þaðan burtfarar-
prófi, en síðustu tvo áratugina hef-
ur hann verið búsettur í Moskvu.
Mansúr er þekktur í heimalandi
sínu fyrir landslagsmyndir, einkum
frá norðlægum slóðum, sem og
portrettmyndir. Á sýningunni í
MÍR-salnum eru um 20 teikningar
og 15 olíumálverk (tempera), lands-
lagsmyndir, uppstillingar og port-
rettmyndir, m.a. af frú Vigdísi
Finnbogadóttur, forseta Islands.
Aðgangur að sýningunni er
ókeypis.