Morgunblaðið - 28.06.1996, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ1996 29
LISTIR
Textílsýn-
ingu Heidi
að ljúka
TEXTÍLSÝNINGU Heidi Kristiansen
á fjórðu hæð í Perlunni lýkur á
sunnudag. Sýningin er opin til kl.
23 á kvöldin, opin á sama tíma og
veitingabúðin á fjórðu hæð.
Heidi sýnir 18 myndteppi unnin
með applíkasjóns- og quilttækninni
en það eru ævafornar og mikið notað-
ar aðferðir bæði til listsköpunar og
í nytjahluti. Þar að auki verða síð-
ust.u sýningarhelgina sýndar margar
smámyndir unnar með sömu tækni
og myndefnið. Myndefnið er sótt í
íslenska náttúru og umhverfi og
verkin eru öll unnin á árunum 1995-
1996. Verkin eru hugsuð sem hluti
af heildstæðri sýningu sem sérstak-
lega er gerð með Perluna í huga.
Efnisval er fjölbreytt, allt frá galla-
buxnaefni og yfir í silki, roð og heima-
gerðan ullarflóka og selskinn og verk-
in eru máluð, teiknuð, klippt og saum-
uð með margþættum aðferðum.
-----------» --------
Augnablik (!)
MARGRET Schopka frá Köln í
Þýskalandi opnar_ sýningu á verkum
sínum í Listhúsi Ófeigs, Skólavörðu-
stíg 5, á laugardag kl. 14.
„Viðfangsefni hennar er mann-
eskjan, varnarlaus, einmana, særð.
A sýningunni Augnablik (!) eru 16
myndir, akrýl á dúk, þar sem lista-
konan hefur skafið og krafsað af
hvert lagið af öðru. Þannig speglast
innri mynd manneskjunar í hijúfu
yfirborði verksins," segir í kynningu.
Margret stundaði nám í myndlist
í Hamborg á árunum 1979-84. Hún
hefur haldið margar einkasýningar
og tekið þátt í fjölda samsýninga
víða um Þýskaland.
Sýningin er opin alla virka daga
kl. 10-18, á laugardögum kl. 11-14,
lokað á sunnudögum. Sýningin
stendur til 13. júlí.
-----»-»-4-----
Sýningu Rögnu
lýkur í
Gallerí Fold
SÝNINGU á vatnslitamyndum
Rögnu Sigrúnardóttur í Gallerí Fold
við Rauðarárstíg lýkur á sunnudag.
Ragna hefur um nokkurt skeið
verið búsett í Bandaríkjunum og
er yfirskrift sýningarinnar: „Ég
hugsa til ömmu í stofunni í Stiga-
hlíðinni . . . en hér er ég um-
kringd tijám“.
Galleríið er opið daglega frá kl.
10-18 nema laugardaga frá kl.
10-17 og sunnudaga frá kl. 14-17.
Vímuefnanotkun
unglinga er eitt alvarlegasta
vandamál þjóðfélagsins í dag.
Foreldrar standa ráðþrota
og vita ekki hvernig á að bregðast
vlð þessari miklu ógn.
Bandalag kvenna
í Reykjavík selur á morgun
merki sitt „Blómið“ til
fjáröflunar foreldrafræðslu um
skaðsemi vímuefnaneyslu,
afleiðingar hennar og vímefnavarnir.
Við treystum meðborgurum okkar til að
bregðast vel við og kaupa merkið til styrktar þessu átaki.
Hvert lítið blóm er skref.
Landsbanki
Islands
Banki allra landsmanna
B.K.R. Bandalag kvenna í Reykjavik
þakkar eftirtöldum aðilum stuðning við
birtingu þessarar auglýsingar:
Joí
THORVALDSENS
BAZAR
SPARISIOÐUR
REYKJAVÍKUR OG NÁGRENNIS
Sjómannafélag Reykjavíkur
Vélstjórafélag íslands
Skipstjóra- og
stýrimannafélagið Aldan
Kvenfélagasamband
íslands
Kvenréttindafélag íslands
Þeim sem vilja styrkja framtakið „Foreldrafræðslu gegn vímuefnum", er vinsamlegast bent á
reikning átaksins í Landsbankanum nr. 0101-05-180253.
Afgreiddu þín mál á öruggan hátt
Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram l.til 19. júlí. Komdu í Þjónustumiðstöð
ríkisverðbréfa og tryggðu þér áfram góð kjör með nýjum spariskírteinum eða
öðrum ríkisverðbréfum.
• Öruggustu verðbréf þjóðarinnar.
• Varsla spariskírteina.
• Yfirlit yfir eign og verðmæti skírteinanna.
• Tilkynning þegar líður að lokagjalddaga.
• Föst og örugg ávöxtun út lánstímann.
• Aðstoð við sölu skírteina fyrir gjalddaga.
• Kaup og sala eldri flokka spariskírteina.
• Ráðgjöf gegnum síma.
• Upplýsingar um verðmæti skírteina
á hverjum tíma.
• Kaup á skírteinum í reglulegri áskrift.
• Aðstoð við endurfjármögnun
á spariskírteinum.
• Sérfræðingar í ríkisverðbréfum.
Hafðu samband við sérfræðinga okkar :
í ríkisverðbréfum og tryggðu þér ný
spariskírteini í stað þeirra sem nú eru *
til innlausnar.
ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ
RÍKISVERÐBRÉFA
Hverfisgötu 6,2. hæð, sími 562 6040, fax 562 6068.
Spariskírteini rtkissjóðs - framtíð byggð á öryggi