Morgunblaðið - 28.06.1996, Qupperneq 31
30 FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ1996
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ1996 31
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík.
FRAMKVÆMDASTJÓRl: Haligrímur B. Geirsson.
RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
KOSNINGABAR-
ÁTTAN OG
AUGLÝSINGAR
NOTKUN auglýsinga hefur aukizt jafnt og þétt í kosningum
hér á landi en sennilega hefur þeim aldrei verið beitt í
jafnríkum mæli og í forsetakosningunum nú. Gera má ráð fyr-
ir, að auglýsingar verði framvegis mikill þáttur í stjórnmálabar-
áttunni. Auglýsingar hafa verið notaðar í sveitarstjórnarkosn-
ingum, þingkosningum og prófkjörsbaráttu innan einstakra
flokka. Vaxandi notkun þeirra bendir til, að stjórnmálaflokkar
og einstakir frambjóðendur telji, að þær hafi áhrif á kjósendur.
Auglýsingar kosta hins vegar mikið fé og það er auðvitað
áhyggjuefni, ef svo er komið hér sem víða annars staðar, að
þjóðfélagsþegnar treysti sér ekki í framboð til opinberra trúnað-
arstarfa af fjárhagsástæðum. í aðdraganda forsetakosninga
kom fram, að einstaklingar, sem nefndir höfðu verið til fram-
boðs töldu sig ekki hafa fjárhagslegt bolmagn til þess. Það er
líka umhugsunarefni, hvort máttur auglýsinganna sé orðinn
svo mikill, að með því að eyða nægilega miklum fjármunum í
þær geti menn keypt sér aðgang að sveitarstjórnum, Alþingi
eða jafnvel Bessastöðum.
Víða erlendis og þá ekki sízt í Bandaríkjunum hefur auglýs-
ingum ekki aðeins verið beitt í þágu einstakra frambjóðenda
heldur gegn öðrum frambjóðendum. Sumir telja, að slíkar aug-
lýsingar geti haft mikil áhrif. Dæmi um auglýsingar af þessu
tagi birtust í Morgunblaðinu í gær, þar sem birtar voru auglýs-
ingar, sem beindust gegn einum fjögurra frambjóðenda til for-
setakjörs.
Spyrja má hvers vegna slíkar auglýsingar séu yfirleitt birtar
í Morgunblaðinu. Því er til að svara, að um efni auglýsinga
gilda út af fyrir sig sömu reglur og um ritstjórnarefni. Ritstjór-
ar Morgunblaðsins, sem jafnframt eru ábyrgðarmenn blaðsins,
bera því ábyrgð á efni auglýsinga ekki síður en ritstjórnar-
efni. Þegar einstaklingar óska eftir birtingu á greinum í Morg-
unblaðinu er lagt mat á efni greinanna. Þótt í þeim birtist oft
harkaleg gagnrýni á nafngreinda menn, eru þær birtar, ef það
er mat blaðsins, að þær brjóti ekki í bága við meiðyrðalöggjöf-
ina. Fyrir rúmum einum og hálfum áratug fóru Morgunblaðinu
að berast auglýsingar, þar sem ekki var um kynningu á vöru
eða þjónustu að ræða heldur skoðunum. í langflestum tilvikum
hefur verið um að ræða viðleitni til þess að koma ákveðnum
skoðunum á framfæri, þ.e. baráttu fyrir einhverjum málstað.
Sjaldnar hefur verið um að ræða gagnrýni á nafngreinda ein-
staklinga, stofnanir, fyrirtæki eða aðra í formi auglýsinga. Þó
eru dæmi um slíkt, bæði gömul og ný. Efni slíkra auglýsinga
er metið á sama hátt og efni t.d. aðsendra greina. Ef ekki er
um að ræða brot á meiðyrðalöggjöf eru engin efnisleg rök fyr-
ir því að hafna birtingu auglýsinga, þótt í þeim felist gagnrýni
á nafngreinda einstaklinga.
í Morgunblaðinu í gær birtust tvær heilsíðuauglýsingar frá
samtökum, sem nefna sig „óháða áhugamenn um forsetakjör
1996“ og ein minni auglýsing frá samtökum sem nefna sig „í
guðs bænum ekki...“. I texta auglýsinga þessara var ekki að
mati Morgunblaðsins um að ræða brot á meiðyrðalöggjöf enda
hafa birzt hér í blaðinu síðustu vikur aðsendar greinar þar sem
höfð er uppi mun harkalegri gagnrýni á einstaka forsetafram-
bjóðendur en í auglýsingunum.
Hins vegar voru þau samtök, sem stóðu að baki auglýsingun-
um ekki kunn meðal þjóðarinnar. Þess vegna tilkynnti Morgun-
blaðið þeim aðilum, sem óskuðu eftir birtingu auglýsinganna,
að forsenda fyrir birtingu þeirra væri að nöfn forsvarsmanna
þessara samtaka yrðu birt í frétt í blaðinu sama dag. Þessi
nöfn voru birt á bls. 2 í Mörgunblaðinu í gær.
Það gildir einu, hvort um er að ræða almennt ritstjórnar-
efni, aðsendar greinar eða auglýsingar af ofangreindu tagi, til
þess að hafna birtingu verður viðkomandi fjölmiðill að hafa
efnisleg rök. Þau voru ekki fyrir hendi í þessu tilviki. Og ekki
heldur í sambandi við þær auglýsingar, sem birtast í Morgun-
blaðinu í dag.
Hitt er svo annað mál, að það stuðlar ekki að geðfelldri
kosningabaráttu að beita auglýsingum sem þessum gegn ein-
stökum frambjóðendum, hveijir sem þeir eru, hveiju sinni.
Þvert á móti eiga slíkar auglýsingar þátt í að fara með kosn-
ingabaráttu niður á plan, sem fáir hafa áhuga á. Og ekki er
víst, að þær hafi þau áhrif, sem að er stefnt.
Það breytir hins vegar ekki því, að ffölmiðlar hljóta að teygja
sig býsna langt til þess að vernda tjáningarfrelsi landsmanna.
Almenningur á Islandi hefur líklega greiðari aðgang að fjölmiðl-
um, hvort sem um er að ræða dagblöð eða ljósvakamiðla en
almennt tíðkast í öðrum löndum. Þessi aðstaða til þess að tjá
skoðanir sínar, hugsanir, tilfinningar og hugmyndir er afar
mikilvæg. I langflestum tilvikum er hún til góðs. Fyrir kemur
að þetta frelsi er notað úr hófi fram. En þau fáu dæmi mega
ekki verða til þess, að þrengt verði að tjáningarfrelsinu.
LOÐNUVERTÍÐIN
Jarðvísindamenn frá Orkustofnun hafa unnið að verkefnum í Mið-Ameríku í 30 ár
BYRJAÐ er á framkvæmdum við byggingu nýrrar loðnuverksmiðju SR-mjöls hf. í Helguvík. Framkvæmdir ganga vel og er reiknað með að
hægt verði að prufukeyra verksmiðjuna fyrir áramót, að sögn Hlyns Jónssonar, framkvæmdasljóra fjármálasviðs SR-mjöls. Heildarkostnaður
við byggingu verksmiðjunnar er áætlaður 700 til 750 milljónir og á hún að verða komin í gagnið fyrir næstu loðnuvertíð. Verksmiðjan verð-
ur aðeins stærri en upphaflegar áætlanir gerðu ráð fyrir, verður hún með tveimur lofthitaþurrkurum og afkastagetan um 800 tonn á sólarhring.
Gott útlit við upphaf loðnuvertíðar og flotinn er að halda á miðin
Afkastageta verksmiðja
aukin um 2.500-3.0001
UM ALLT land keppast menn nú við að búa
skip sín á loðnuvertíðina sem byrjar á mánu-
* A
daginn. I samantekt Omars Friðrikssonar
kemur fram að sumar- og haustvertíðin leggst
vel í menn, Víða um land standa yfír endur-
bætur eða stækkun fiskimjölsverksmiðja sem
mun auka afkastagetu þeirra verulega á
næstu vetrarvertíð.
IFYRRA hófust loðnuveiðarnar í
júlíbyijun úti af vestanverðu
Norðurlandi og norður af Vest-
fjörðun, Mikið var um smáa
loðnu á miðunum og versnaði ástand-
ið eftir því sem á leið. Lítið fannst
af loðnu fram eftir hausti og var
afli tregur allt til áramóta. Heildar-
afli íslenskra skipa á sumar- og
haustvertíð í fyrra var um 175 þús.
tonn.
„Útlitið núna er gott og kvótinn
mikill og menn eru bjartsýnir," segir
Sveinn Jónsson, hjá Félagi íslenskra
fiskimjölsframleiðenda.
Stöðugt verð á mjöli
„Markaðshorfur eru ágætar,“ seg-
ir Sveinn. „Það er nokkuð stöðugt
verð á mjöli en verð á lýsi hefur
lækkað nokkuð á undanförnum vik-
um og útlitið þar ekki mjög bjart.
Vegna aðgerða umhverfisverndar-
sinna virðast kaupendur vera farnir
að minnka notkun á lýsi. Þessa gæt-
ir ekki enn á heimsmarkaði en menn
hafa áhyggjur af þessu,“ segir hann.
Ákvörðun heildarafla af loðnu á
vertíðinni 1996/97 verður ekki tekin
fyrr en stærð veiðistofnsins hefur
verið mæld í haust eða vetur en upp-
hafskvóti fyrir íslenska flotann hefur
verið ákveðinn 737.000
lestir og miðað við þær
forsendur sem sú ákvörð-
un byggir á, verður leyfður
heildarafli íslenskra skipa
á öllu árinu 1.278.000
lestir.
Hlynur Jónsson, framkvæmda-
stjóri hjá SR-mjöli hf., segir ekkert
benda til annars en að framundan
sé góð vertíð. I verksmiðjum SR-
mjöls hafa verið móttekin yfir
200.000 tonn af hráefni á fyrri hluta
ársins, sem er nær 50 þús. tonna
aukning miðað við sama tíma í fyrra.
„Ef haustvertíðin verður þokkaleg
stefnir í metár. Menn hafa orðið var-
ir við mikið magn loðnu í sjónum á
síldveiðunum og rekist á lóðningar
um allan sjó en hvort hún verður
dreifð þegar til kastanna kemur vita
menn ekki. Það virðist því vera nóg
af loðnu og kvótinn er mjög rúmur.
Ég vona að haustvertíðin bregðist
ekki þriðja árið í röð,“ segir hann.
Miklar framkvæmdir við endurnýj-
un eða byggingu fiskimjölsverk-
smiðja standa nú yfir eða
er nýlokið á a.m.k. 15
stöðum á landinu, skv.
upplýsingum sem blaðið
aflaði sér. Framkvæmdir
við nýja verksmiðju SR-
mjöls í Helguvík er hafin.
Afkastageta hennar verður um 800
tonn á sólarhring og er ætlunin að
hún verði tilbúin fyrir næstu vetrar-
vertíð. Framkvæmdir eru einnig
hafnar við stækkun verksmiðju
Faxamjöls í Örfirisey. Afkastageta
þeirrar verksmiðju margfaldast við
stækkun, eða úr 120 tonnum á sólar-
hring í um 470-520 tonn.
Unnið er að verulegum endurbót-
um á fiskimjölsverksmiðju Haraldar
Böðvarssonar hf. á Akranesi og mun
afkastageta verksmiðjunnar aukast
við það úr tæplega 600 tonnum á
sólarhring í um 1.000 tonn.
Undirbúin stækkun
verksmiðjunnar á Vopnafirði
Á Vopnafirði er í undirbúningi
stækkun mjölverksmiðju Tanga um
þessar mundir, afkasta-
geta hennar eykst úr 350
tonnum í 500 tonn á sólar-
hring. Á árinu verður einn-
ig komið fyrir nýjum loft-
þurrkurum sem taka á í
notkun í sumar í fiski-
mjölsverksmiðju Síldarvinnslunnar
hf. á Norðfirði og fleiri endurbætur
eru gerðar á búnaði og mun þá fram-
leiðsla hágæðamjöls geta hafist. Gert
er ráð fyrir að verðmæti mjölsins
aukist um 10-15% með tilkomu nýju
þurrkaranna og afköst hennar aukist
um 20-25%.
í Þorlákshöfn er nýtt félag Hafn-
armjöls hf. sem stofnað var í sam-
vinnu við eigendur Vestdalsmjöls nú
að endurreisa fiskimjölsverksmiðju
sem var áður í eigu Hafsíldar. Skv.
upplýsingum sem fengust hjá Hafn-
armjöli í gær á verksmiðjan að vera
tilbúin í rekstur á næstu vetrarvertíð
og vera rekin með um 500 tonna
afköstum á sólarhring.
Bygging nýrra verksmiðja og end-
urbætur á eldri verksmiðjum sem
eiga að vera komnar í gagnið á
næstu vetrarvertíð munu geta aukið
afkastagetu mjölverksmiðja samtals
um 2.500-3.000 tonn á sólarhring.
Heildarafköst verksmiðja á landinu
í dag eru talsvert yfir 10 þús. tonnum
á sólarhring.
Stóraukin afköst
loðnuverksmiðja
Afköst mjölverksmiðja hafa aukist
verulega á seinustu tveim árum.
Fiskimjölsverksmiðja Vinnslustöðv-
arinnar í Vestmannaeyjum var ný-
lega endurnýjuð og settir upp nýir
gufuþurrkarar. Loftþurrkari hefur
verið settur upp í Grindavík til viðbót-
ar við gufuþurrkara. Á Eskifirði og
Seyðisfirði eru starfandi
nýjar verksmiðjur eða end-
urbættar og ný loðnuverk-
smiðja Loðnuvinnslunnar
hf. á Fáskrúðsfirði var
farin að skila fullum af-
köstum á seinustu vertíð.
Verksmiðjan á að geta unnið 1.000
tonn af hráefni á sólarhring. Einnig
var afkastageta fískimjölsverksmiðj-
unnar Óslands hf. á Höfn tvöfölduð
og getur nú unnið úr 600 tonnum
' af hráefni á sólarhring.
ISLENSKIR jarðvísindamenn
frá Orkustofnun ruddu að
nokkru leyti brautina í upp-
hafi jarðhitarannsókna í E1
Salvador á árunum 1965-75, en þar
er nú búið að virkja tvö háhita-
svæði til rafmagnsframleiðslu. Á
öðru svæðinu, sem heitir Ahuachap-
an, er búið að reisa 95 megawatta
orkuver sem í dag framleiðir 45
megawött, og á hinu háhitasvæð-
inu, sem heitir Berlín, er tilrauna-
orkuver sem framleiðir 10 megaw-
ött, en til stendur að stækka það á
næstunni upp í 60 megawött. ís-
lenskir vísindamenn sáu um yfir-
borðsrannsóknir á háhitasvæðunum
og eins stýrðu þeir fyrstu borunum
sem gerðar voru í Ahuachapan, en
um var að ræða þróunarverkefni á
vegum Sameinuðu þjóðanna.
Að sögn Gríms Björnssonar, jarð-
eðlisfræðings hjá jarðhitadeild
Orkustofnunar, eru vatnsaflsvirkj-
anir í ám í E1 Salvador, en þar skipt-
ast á þurrkatímabil og regntímabil
og því vantar oft orku á þurrkatím-
um. Árið 1992 styrktu norsku og
sænsku þróunarstofnanirnar ríki
Mið-Ameríku í því að koma upp
sameiginlegu raforkukerfi vegna
þess að oft er rennsli í ám í einu
landinu en ekki öðru og fyrsta
skrefið í þessu var að halda nám-
skeið til að fræða heimamenn.
„Þá vildu þeir endilega fá jarð-
hitanámskeið og lá þá beinast við
að fá íslendinga til að sjá um það.
Ég fór þá til E1 Salvador ásamt
Guðna Áxelssyni jarðeðlisfræðingi
og síðan kom verkfræðistofan
Vatnaskil að málinu haustið 1992.
Við vorum með námskeið þarna og
í framhaldinu höfum við fengið
marga stúdenta frá E1 Salvador í
þjálfun hingað til lands í Jarðhita-
skóla Sameinuðu þjóðanna.
Núna er svo komið í E1 Salvador
að þar ætla menn sér að stækka
jarðhitavirkjanirnar geysilega og
þá sérstaklega á jarðhitasvæðinu í
Berlín. Það er því framundan að
fara í heilmiklar fjárfestingar í E1
Salvador og heimamennirnir sjálfir
er nú að taka sín fyrstu skref á
þessu sviði,“ sagði Grímur.
Engin markaðsvinna
Hann sagði að ekki hefði verið um
neina markaðsvinnu að ræða varð-
andi þá ráðgjöf sem veitt hefur verið
af hálfu íslendinga í E1 Salvador,
heldur hefði verið óskað eftir henni
af fyrrverandi nemendum Jarðhita-
skólans.
„Það er einmitt dálítið óvenjulegt
við okkar vinnu þarna í Mið-Ameríku
að við höfum verið sóttir þangað til
starfa. Aðalvandamálið núna er að
þessi vinna er borguð af Þróunar-
banka Mið-Ameríku og ísland er
ekki aðili að þeim banka. Við höfum
því alltaf farið inn sem leppar fransks
fyrirtækis.
Aðalhindrunin fyrir því að íslend-
ingar komist þarna inn í vinnu er
sú að þeir mega ekki vera með í því
að bjóða í verkin, sem oftast eru
boðin út í lokuðum útboðum, þar sem
þeir eru ekki aðilar að þessum þróun-
arbanka. Frakkar eru hins vegar
aðilar að þessum banka og stofnun
þar í landi, sem er sambærileg við
Orkustofnun, hefur stofnað sjálf-
stætt hliðarfyrirtæki svipað og Ork-
int og það hefur ráðið okkur til
starfa," sagði Grímur.
Á þessu ári hefur Benedikt Stein-
grímsson jarðeðlisfræðingur unnið
að rannsóknum í E1 Salvador auk
Gríms og dvöldust þeir þar í þijár
vikur í apríl og maí. Alþjóðakjarn-
orkumálastofnunin í Vín frétti af
veru þeirra í landinu og leiddi það
til þess að óvænt verkefni féll þeim
í skaut. Það felst í því að geislavirk
efni eru notuð til þess að kanna
hvernig vökvinn streymir neðanjarð-
ar og er Benedikt nú í E1 Salvador
að vinna úr slíkum gögnum.
„Eins og oft er í svona þróunarað-
stoð þá eru mönnum gefin alls kyns
rannsóknartæki og útbúnaður sem
settur er upp, en þegar allt er komið
á sinn stað þá kann enginn heima-
manna að nota tækin. Nú sitja þeir
í E1 Salvador til dæmis uppi með
Lýsisnotkun
minni vegna
umhverfis-
verndarsinna
Upphafskvóti
íslenska flot-
ans er 737
þús. lestir
GRÍMUR Björnsson og Benedikt Steingrímsson í E1 Salvador ásamt fjórum fyrrverandi nemendum
Jarðhitaskóla Sameinuðu þjóðanna. Á myndinni eru talið f.v.: Benedikt, Guido G. Molina, Manuel Mon-
terrosa, Luz Antonina de Luna, Grímur og Francisco E. Montalvo.
Vel kynntir
brautryðjendur
í E1 Salvador
Vísindamenn frá Orkustofnun hafa unnið að
undirbúningsrannsóknum vegna virkjana á
jarðhitasvæðum í E1 Salvador með hléum
undanfarin 30 ár. GrímurBjömssonjarðeðlis-
fræðingur segir í viðtali við Hall Þorsteinsson
að miklir möguleikar tengdir hönnun orkuvera
í þessum heimshluta geti opnast gerist íslend-
ingar hluthafar í Þróunarbanka Mið-Ameríku
jarðskjálftamælinet á
Berlínarsvæðinu og hafa
þeir óskað eftir því að
fá íslendinga til sín til
að kenna sér að reka
netið. Það verða vænt-
anlega jarðskjálftafræð-
ingar Veðurstofunnar
sem taka það að sér,“
sagði Grímur.
Hann sagði að ekki
hefði verið um stórar
upphæðir að ræða fyrir
þau verkefni sem íslend-
ingar hafa unnið að í
E1 Salvador, en ef þeir
fengju að bjóða í verk,
og þá kannski sérstak-
lega hönnun orkuvera
og einhveija vinnu því
tengda, þá væri um að
ræða margfælt hærri upphæðir.
„Það þarf því nauðsynlega að
kanna hvort ekki sé heppilegt að
ísland gerist aðili að
Þróunarbanka Mið-
Ameríku, en ég hef grun
um að hann sé umsvifa-
mestur í fjármögnun
orkuframkvæmda
þarna. Við munum aldr-
ei geta neitt í verksölu
í löndum Mið-Ameríku
fyrr en við eru orðnir
aðilar að bankanum, en
ég tel okkur eiga tals-
verða möguleika því við
erum vel kynntir í þess-
um löndum.“
Verkefni fyrir
50-100
milljónir dollara
Á næstunni verður að
sögn Gríms ráðist í að
bora 40 boruholur i E1 Salvador milli
áðurnefndra tveggja jarðhitasvæða
og segir hann að það verk sem fram-
GRÍMUR Björns-
son jarðeðlisfræð-
ingur hjá Orku-
stofnun.
ORKUVERIÐ í Berlín sem á margan hátt svipar til Nesjavallavirkj-
unar. Þar eru nú framleidd 10 megawött en fyrirhugað er að
stækka virkjunina í 60 megawött.
Morgunblaðið/ Kristinn
BORAÐ eftir heitu vatni í ná-
grenni orkuversins í Ahu-
achapan á svæði sem heitir
Chippilapa.
undan sé muni að öllum líkindum
kosta 50-100 milljónir dollara.
„Vinnan sem ég var í núna fólst
í því að setja upp reiknilíkön af jarð-
hitasvæðunum í E1 Salvador til að
meta ástandið í framtíðinni, en þarna
eru þeir að reyna að koma sér upp
svipuðu tölvuumhverfi og við notum
á Orkustofnun. Segja má að þetta
sé bein afleiðing af kennslunni hér
í Jarðhitaskólanum, því þetta tölvu-
umhverfi er það sem stúdentarnir
hafa lært á,“ sagði hann.
Grímur sagði að þrátt fyrir að
ýmsar breytingar hefðu orðið hjá
Orkustofnun undanfarin ár hefði svo-
kallaður jarðhitahópur stofnunarinn-
ar lifað tiltölulega ótruflaður miðað
við víða annars staðar í heiminum.
Lækkun olíuverðs hefði til dæmis
nánast þurrkað út jarðhitahópinn í
Ameríku.
„Kannski er hluti skýringarinnar
á því að farið er að sækja í okkur
aftur einfaldlega sá að það eru svo
fáir orðnir eftir á þessu sviði. Öfugt
við hjá mörgum öðrum þjóðum er
okkar reynsla sú að við erum búnir
að þefa af svo geysilega mörgum
jarðhitasvæðum, á meðan t.d. þessir
menn í E1 Salvador þekkja bara þessi
tvö svæði.
E1 Salvador hefur breyst alveg
geysilega síðan 1992 en þá var sam-
inn friður í landinu og ótrúlegar þær
breytingar sem orðið hafa í kjölfarið.
Allir vegir og rafmagnsveitur hafa
til dæmis batnað verulega á þessu
tímabili og raforkumarkaðurinn hef-
ur verið að stækka um 10% á ári.
Þeir eru því hreinlega tilneyddir til
að gera eitthvað núna, en þeir fengu
smá slaka í 2-3 ár vegna þess að
olíukóngur frá Texas reisti 95
megawatta díselrafstöð í landinu,
sennilega til að brenna olíu sem ekki
má brenna í Bandaríkjunum. Þar
með hægði á öllum jarðhitafram-
kvæmdurm á sama tíma, en nú er
mikill þrýstingur á að byija á nýjan
leik,“ sagði Grímur Björnsson.