Morgunblaðið - 28.06.1996, Page 44
44 FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
+ Örn Eiríksson
fæddist á Akur-
eyri 28. janúar 1926.
Hann lést í Reykja-
vík 15. júní síðastlið-
inn og fór útför hans
fram frá Dómkirkj-
unni 24. júni.
í formála minninga-
greina um Orn Ei-
ríksson á bls. 32 í
Morgunblaðinu á
sunndag féll niður
nafn Ernu Kristjáns-
dóttur, systur Arnar,
í upptalningu systk-
inanna. Hlutaðeig-
endur eru innilega beðnir af-
sökunar á þessum leiðu mis-
tökum.
Afí Bassi.
Við viljum þakka þér fyrir allar
þær góðu og skemmtilegu sam-
verustundir sem við áttum saman
með kvæði sem þér þótti svo fal-
legt.
Snert hörpu mína himínboma dís
svo hlusti engiar guðs í paradís.
Við götu mína fann ég flalarstúf
og festi á hann streng og rauðan skúf.
(Ðavíð Stef. frá FagraskógL)
HQdur og Kristín Björk
Eiríksdætur.
Góður vinur minn, Öm Eiríks-
son, er fallinn frá.
Bassa Eiríks, eins og vinir hans
kölluðu hann, þekkti
ég og umgekkst frá
bamæsku. Þegar
slík hetja fellur frá
rifjast upp í trega-
fullum söknuði
minningar,
skemmtilegar og
Ijóslifandi í tímans
iðu. Mér er til dæm-
is í fersku minni
þegar Bassi, sem
hafði gaman af því
að gefa fólki titla,
sæmdi mig heiðurst-
itli og nafnbót sem
ég hef borið stoltur
æ síðan. Þegar ég starfaði í
bögglaþjónustu Flugleiða hér á
sumrum áður urðu mér á þau
skemmtilegu mistök að innrita og
ábyrgjast flutning á pakka til Kol-
beinseyjar. Bassa þótti þetta sér-
lega gott framtak og sæmdi mig
jafnskjótt nafnbótinni „Hreppstjór-
inn frá Kolbeinsey".
Það kemur margt fleira upp í
hugann þegar husgað er til baka.
Fallegt er að minnast einlægrar
hlýju og ástar sem ríkti alla tíð
milli Bryndísar og Bassa og hversu
samhent og samstiga þau hafa
siglt gegnum lífsins ólgusjó.
Fyrir um það bil ári vorum við
Siggi, sonur þeirra, að fara í bfltúr
og Bassi varð samferða okkur út
og sagðist þurfa að skreppa í smá
bfltúr einnig. Að gamni okkar elt-
um við Bassa. Hann Iagði við
Tjamargötu og labbaði áleiðis að
Tjöminni. Það var fallegt kvöld í
Reykjavík og Bassi staðnæmdist
við gamla Iðnó og horfði yfir. Mér
verður hugsað til þess núna þegar
þessar Iínur era ritaðar að oft hef-
ur þessi minn vinur horft yfir lífíð.
Hann hefur hugsað til Dísu sinnar,
um Eirík farsælan dósent við Há-
skóla íslands, Pétur nýorðinn flug-
stjóra, Sigga nýorðinn prest og öll
bamabömin. Bassi stóð við Tjöm-
ina og horfði yfir. Yfír farsælt og
hamingjusamt líf. Stuttu síðar varð
Öm veikur og þau veikindi hafa
nú fært hann að altari himnaföður-
ins. Dísa stóð sem klettur með
Bassa sínum í veikindunum. Og
þó hann væri afar veikur var stutt
í brosið hans enda vildi Bassi hafa
hlutina létta og eðlilega allt sitt
líf. Allir menn vora jafnir í augum
hans.
Eg kveð þig, félagi og vinur, og
þakka þér fyrir líf þitt og fyrir-
mynd.
Hirtu hvorki um lof né last
né lyginnar streymandi iðukast.
Vertu heill - ekld hálfur.
Bliknaðu ekld, þó blási hvasst,
og bregðist þér heilar álfur,
en knýðu vængina og flugið fast,
og fljúgðu til himins sjálfur.
Ég fagna með þeim sme fljúga hátt.
Fagurt er loftið og draumablátt,
og hættunni hetjur gleyma.
Gefðu þeim, faðir, meiri mátt,
lát magn þitt um bijóstin streyma,
svo þeir geti flogið djarft og dátt
um draumanna undraheima.
(Davíð Stef.)
Ari Gísli Bragason.
• Fleiri minningargreinar um
Örn Eiríkason bíða birtingar og
munu birtast í hlaðinu næstu
daga.
MIMNIIMGAR
ÖRN
EIRÍKSSON
BMDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
B-landsliðið náði
góðum árangri
B-landsliðið, sem skipað er Páli
Valdimarssyni, Ragnari Magússyni,
Þresti Ingimarssyni og Þórði Björns-
syni náði góðum árangri í sveita-
keppni í Hollandi um síðustu helgi.
Sveitín hlaut 227 stig og varð í 9.-10.
sæti af 120 sveitum. Sigursveitin var
bresk og hlaut samtals 251 stig.
Skammt var í 5. sætið því sveitimar
sem urðu í 5.-8. sæti voru allar með
229 stig.
Þessar mögra fréttir verða að
duga en ferðin mun hafa orðið nokk-
uð endaslepp þar sem einn spilarinn
varð fyrir því óláni að fá matareitran
ytra og komst ekki heim á tilsettum
tíma.
Góð þátttaka í sumarbrids
GÓÐ þátttaka hefur verið í Sum-
arbrids 1996 þrátt fyrir annatíma
hjá fótboltaaðdáendum. Mánudaginn
25. júní spiluðu 28 pör tölvureiknað-
an Mitchell-tvímenning með forgefn-
um spilum. Meðalskor var 270 og
efstu pör urðu:
NS
SigurðurB.Þorsteinss.-SverrirArmannss. 353
Sigfus Þórðarson - Gunnar Þórðarson 349
ísakÖrnSigurðsson-BjömSvavarBjömsson 340
BjömAmareon-HaukurHarðarson 319
AV
KristjánKristjánsson-GarðarGarðarsson 307
Sigrún Pétursdóttir—Halla Ólafsdóttir 295
GuðmundurBaldursson-JensJensson 291
Friðrik Egilsson - Ingimundur Guðmundsson 291
Þess má geta að skorið í NS átt-
ina var óvenju gott. Sigurður og
Sverrir náðu 2. hæsta skorinu í sum-
ar, 65,37%. Sigfús og Gunnar urðu
að sætta sig við 2. sætið með 64,63%
sem er 8. besta skorið í sumar. ísak
og Svavar náðu 18. hæsta skorið í
sumar (62,96%) en urðu að bíta í
það súra epli að enda í 3. sæti.
A þriðjudaginn 4. júní mættu 30
pör til leiks. Spilaður var tölvureikn-
aður Mitchell-tvímenningur með for-
gefnum spilum. Meðalskor var 420
og efstu pör urðu:
NS
GuðmundurBaldursson - GuðbjömÞórðarson 514
MagnúsIngimarsson-GuðlaugurNielsen 491
Erla Siguijónsdóttir - Esther Jakobsdóttir+ 483
Jón V. Jónmundss. - Vilhjálmur Sigurðss. jr. 482
Magnús Aspelund - Steingrimur Jónasson 529
Jón SteinarGunnlaugss. - Björgvin Vígiundss. 484
Sigrún Pétursdóttir - Margrét Margeirsdóttir 470
Hanna Friðriksdóttir - Helgi Samúelsson 468
Þröstur og Þórður enn efstir
í Hornafjarðarleiknum
Þeir 2 spilarar sem fá flest brons-
stig á samliggjandi fjögurra daga
tímabili í sumar fá að launum ókeyp-
is þátttökugjald á Homafjarðarmótið
í tvímenningi sem spilað verður síð-
ustu helgina í september, ferðir fram
og til baka, gistingu og uppihald.
Þessi verðlaun era gefin af Bridsfé-
lagi Homafjarðar og Hótel Höfn.
Eins og staðan er í dag fara Þröstur
Ingimarsson og Þórður Bjömsson til
Homafjarðar í haust. Þeir skoraðu
66 stig á tímabilinu 12.-16. júní.
Hver fer fram úr þeim á leiðinni til
Homafjarðar?
Sumarbrids í textavarpið
Með góðfúslegu leyfi frá BR hefur
Sumarbrids fengið leyfi til að nota
síðu 246 og verður staðan eftir hvert
kvöld sett inn á textavarpið að spila-
mennsku Iokinni.
Spilamennskan í Sumarbrids 1996
hefst kl. 19 sex daga vikunnar (ekki
laugardaga) og er spilað í húsnæði
Bridssambandsins í Þönglabakka 1,
3. hæð. Á sunnudagskvöldum verður
spilaður Monrad-Barómeter ef þátt-
taka fæst, en annars hefðbundinn
Barómeter. Aðra daga er Mitchell-
tvímenningur. Spilin era alltaf for-
gefin. Keppnisstjórar era Sveinn R.
Eiríksson og Matthías G. Þorvalds-
son og taka þeir vel á móti öllum
spilurum.
A TVINNUAUGL ÝSINGAR
Kennarar
Kennara vantar í eina stöðu við almenna
kennslu við Svalbarðsskóla í Þistilfirði.
Umsóknarfrestur til 12. júlí 1996.
Nánari upplýsingar gefur skólastjóri
í síma 562 1806.
Skólanefnd.
Sérfræðiráðgjöf
Alþjóðlegt fyrirtæki leitar að einstaklingi með
ítarlega þekkingu á hvernig fullvinna megi
hálfunnin hrogn (hrognkelsi, loðnu) í kavíar
í dósum (og hugsanlega einnig hvernig fram-
leiða eigi rækjur í pækli) og getur aðstoðað
okkur við að velja rétt hráefni, réttan tækja-
búnað og réttar aðferðir.
Vinsamlegast sendið æviágrip til afgreiðslu
Mbl., merkt: „R - 4316“.
Sma auglýsingor
Litaljósritun
Opið frá ki. 13.30-18.00.
Ljósfell,
Laugavegí 168,
Brautarholtsmegin.
SAMBAND ÍSLENZKRA
KRISTNIBOÐSFÉLAGA
Háaieitisbraut 58-60
Almenna kristilega mótið
í Vatnaskógi hefst í dag, föstu-
dag, kl. 21.30.
Samkomur og samverustundir
með fjölbreyttri dagskrá verða
alla helgina. Mótmu lýkur með
kristniboðssamkomu á sunnu-
dag kl. 14.00. Tjaldstæði og
svefnpokapláss. Mótið er opið
öllum, sem vilja eiga góða helgi
í fögru umhverfi.
(Munið að kjósa áðurl)
Kristniboðssambandið.
Þingvellir - þjóðgarður
Laugardagur 29. júní:
Kl. 13.30 Öxarárfoss -
Skógarkot
Gönguferð um Fögrubrekku að
Öxarárfossi og þaðan í eyðibýlið
Skógarkot. Hugað að búsetu og
náttúrufari. Hefst og endar i
þjónustumiðstöð. Tekur um það
; bil 3r/z klst.
Munið að taka með ykkur nesti
og góðan skófatnað.
Sunnudagur 30. júní:
Kl. 11.00 Leikur er barna
yndi.
Barnastund í Hvannagjá.
Söngur, leikír, náttúruskoðun.
Kl. 14.00 Guðsþjónusta
í Þingvallakirkju.
Sr. Jón Ragnarsson þjónar fyrir
altari.
Kl. 15.15 Þinghelgarganga.
Rölt um hinn forna þingstað og
næsta nágrenni Þingvallabæjar.
Hefst við kirkju og tekur um
Vh klst.
Allar nánari upplýsingar um
dagskrá þjóðgarðsins fást
í þjónustumiðstöð.
FERÐAFÉLAG
® ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 - SÍMI 568-2533
Dagsferðir Ferðafélagsins:
Laugardaginn 29. júnf kl. 10.30:
„Leggjabrjótur" (gömul þjóð-
leið). Gengið frá Svartagili, Ping-
vallasveit, í Botnsdal (um 6 klst.).
Verð kr. 1.200.
Sunnudaginn 30. júní:
1) Kl. 08.00 Þórsmörk - dags-
ferð. Verð kr. 2.700.
2) Kl. 10.30 Reykjavegur 5. ferð.
Gengið frá Kaldárseli í Bláfjöll.
Verð kr. 1.000.
Miðvikudaginn 3. juli kl. 08.00:
Þórsmörk - dagsferö. Kynnið ykk-
ur hagstætt verð á sumarleyfi í
Pórsmörk.
Brottför frá Umferöarmiðstöðinni,
austanmegin, og Mörkinni 6.
Ferðafélag (slands.
FERÐAFELAG
# ÍSLANOS
MÖRKINNI 6 - SlMI 568-2533
Þórsmörk um helgina
28.-30. júní
Fjölskylduhelgi og
Fimmvörðuháls
1. Fjölskylduhelgi í Þórsmörk
Brottför föstud. kl. 20.00. Fjöl-
breytt dagskrá fyrir alla. Léttar
gönguferðir, ratleikur, grill,
kvöldvaka. Góð gisting í skála
eða tjöldum í Langadal.
2. Fimmvörðuháls - Þórsmörk
Bróttför föstud. kl. 20.00. Ný
Fimmvörðuhálsganga í tengsl-
um við fjölskylduhelgarferðina.
Gengið verður úr Þórsmörk yfir
hálsinn og komið niöur Hrúta-
fellsheiði vestan Síogár. Farið í
Seljavallalaug eftir gönguna.
Tilboðsverð i ofangreindar
ferðir. Tilvalið fyrir börn, ung-
menni og foreldra að fjölmenna
í skemmtilega ferð um helgina.
Kosningaútvarp á laugardags-
kvöldinu!
Ferðafélag íslands.
Auglýsing
frá yfirkjörstjórn Norðuriands-
kjördæmis eystra vegna forseta-
kosninga 1996
Talning atkvæða úr Norðurlandskjördæmi
eystra í forsetakosningunum 29. júní 1996
fer fram í Oddeyrarskólanum á Akureyri að
loknum kjörfundi. Aðsetur yfirkjörstjórnar á
kjördag verður á sama stað.
Sími yfirkjörstjórnar er 462 2886.
Akureyri, 26. júní 1996.
Yfirkjörstjórn
Norðurlandskjördæmis eystra.
Ólafur Birgir Árnason, form.,
Inga Þöll Þórgnýsdóttir,
Jóhann Sigurjónsson,
Guðmundur Þór Benediktsson,
Unnur Þorsteinsdóttir.
Útboð
Bæjarsjóður Stykkishólms óskar eftir tilboð-
um í byggingu íbúða fyrir aldraða.
Um er að ræða viðbyggingu við Dvalarheim-
ili aldraðra við Skólastíg 14a. Viðbyggingin
er um 320 fm að grunnfleti á tveimur hæð-
um. Útboðið nær til uppsteypu húss ásamt
frágangi á þaki og gluggum.
Útboðsgögn verða seld á kr. 8.000 á skrif-
stofu Stykkishólmsbæjar, Skólastíg 11, 340
Stykkishólmi.
Tilboðin verða opnuð mánudaginn 15. júlí
1996, kl. 11.00 á skrifstofu Stykkishólmsbæj-
ar, að viðstöddum þeim bjóðendum sem
þess óska.
Bæjarstjóri.