Morgunblaðið - 28.06.1996, Page 50
50 FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF•FORSETAKJÖR
I DAG
Tek ekki þátt 1
lágkúrunni
Frá Sveinbjörgu Guðmundsdóttur:
ÉG HEF yfirleitt lesið þau skrif
sem birst hafa í Morgunblaðinu
og fjalla um komandi forsetakosn-
ingar og þau forsetaefni sem í
framboði eru. Þar hefur aðallega
tvennt vakið athygli mína.
Margt hefur þar birst um eið-
stafi Ólafs Ragnars Grímssonar í
tilteknu dómsmáli og hann talinn
trúlaus maður vegna þess að hann
vildi ekki vinna eið við nafn Guðs.
Um trú hans eða trúleysi ætla ég
ekki að dæma, en í þessum skrif-
um kom fram að í sama máli, að
ég held, hafi þess einnig verið
krafíst að Guðrún Helgadóttir
þingmaður staðfesti framburð sinn
með eiði. Hún hafði aðspurð sagst
hafa sína barnatrú en farið fram
á að svetja við drengskap sinn,
en henni synjað um þá ósk. Þetta
vekur furðu mína. I Gamla testa-
mentinu má víða lesa um svardaga
ísraelsmanna því þeir sóru iðulega
við nafn Guðs, slíkt tíðkaðist und-
ir Móselögmálinu. En Kristur, sem
við kennum okkur við sem kristin
þjóð, kom og uppfyllti Móselög-
málið og leiðrétti þar margt. I
Matteusarguðspjalli, íjallræðunni,
segir hann: „Enn hafið þér heyrt,
að sagt var við forfeðurna: Þú
skalt ekki ekki vinna rangan eið,
en þú skalt halda eiða þína við
Drottinn. En ég segi yður: Þér
eigið alls ekki að sveija, hvorki
við himinn, því að hann er hásæti
Guðs, né við jörðina, því að hún
er skör fóta hans.“ (Matt 5:33-34.)
Þessi orð eru staðfest í Jakobsbréf-
inu.
Ég á sterka trú á Guð og son
hans, Jesú Krist, og ef ég yrði að
staðfesta framburð minn þætti
mér hart að verða neydd til þess
að sverja við nafn Guðs, sem ég
tigna, tilbið og ber mikla lotningu
fyrir. Það væri andstætt trú minni.
Annað sem vakið hefur athygli
mína í áðurnefndum skrifum um
forsetakosningarnar er það skítk-
ast sem þar birtist og beinist eink-
um að einu forsetaefni. Mig furðar
að þeim sem láta slíkt frá sér fara
skuli ekki Ijóst að þeir lítillækka
og niðurlægja fyrst og fremst
sjálfa sig. Þeir sem ekki geta unn-
ið fólki sínu brautargengi án þess
að rakka aðra niður ættu að mínu
mati að láta það vera. Þessi níð-
skrif hafa þó hjálpað mér að taka
ákvörðun og velja milli þess mæta
fólks sem í framboði er, því ég vil
ekki fylla þann flokk eða fylkja
liði með þeim sem slíka lágkúru
stunda.
Með þökk fyrir birtinguna.
SVEINBJÖRG GUÐMUNDSDÓTTIR,
Hlíðarhjalla 44, Kópavogi.
„Svo mælti Gunnar Dal
um Ólaf Ragnar
Frá Guðjóni Leifi Gunnarssyni:
BÓKIN Að lifa er að elska er frá-
sögn unnip úr viðtölum Hans
Kristjáns Árnasonar við einn af
ástsælustu hugsuðum þjóðarinn-
ar, Gunnar Dal. Það vakti eftir-
tekt undirritaðs að þar sem heim-
spekingurinn vitnar sífellt til
margra merkustu manna mann-
kynssögunnar máli sínu til stuðn-
ings bregður hann í tvígang upp
frásögn sem tengist Ólafi Ragn-
ari Grímssyni forsetaframbjóð-
anda. Á blaðsíðu 24 er kaflafyrir-
sögnin „Reykjavíkurfundurinn og
Ólafur Ragnar Grímsson". Þar
telur Gunnar að tveir atburðir
íslandssögunnar hafi öðrum
fremur markað spor sitt í mann-
kynssöguna. Sá fyrri er fundur
Leifs heppna á Ameríku og hinn
síðari er leiðtogafundur þeirra
Reagans og Gorbatsjovs í Reykja-
vík. En hvernig stóð á því að fund-
urinn fór fram á íslandi? Á þess-
um tíma var Ólafur Raganr með
tillögur um friðun Norður-Atl-
antshafs og Norðurlanda sem
hann ku hafa sent Gorbatsjov
skömmu áður en ákvörðun um
staðsetningu fundarins var tekin.
Gunnar vill meina að Gorbatsjov
hafi litið á þær tillögur sem stuðn-
ing við sínar eigin og þannig hafi
staðsetning fundarins á íslandi
verið ákveðin. Því lítur Gunnar
svo á að maðurinn á bak við leið-
togafundinn í Reykjavík sé Ólafur
Ragnar Grímsson, núverandi for-
setaf rambj óðandi.
Læsi og ólæsi íslendinga er
annað mál sem tekið er fyrir í
bókinni og í samnefndum kafla
vitnar Gunnar til orða Marks Twa-
ins þar sem hann segir: „Það er
enginn munur á manni sem ekki
kann að lesa bækur og manni sem
ekki les bækur.“ Menn eru nú á
dögum margir hveijir svo önnum
kafnir að lítill eða enginn tími
gefst fyrir bókalestur. Sem dæmi
um svo önnum kafinn mann nefn-
ir Gunnar Ólaf Ragnar Grímsson,
þáverandi prófessor, ráðherra, al-
þingismann og flokksformann,
sem hann segir þó vera einn gáfað-
asta mann sem hann hafi haft
spurnir af og bætir síðan við að
líklega sé Ólafur einn fárra undan-
tekninga þessarar reglu þar sem
þegar til hans sjáist í útsendingum
sjónvarps frá Alþingi sé hann alla-
jafna niðursokkinn í lestur breskra
gáfumannablaða, tímarita og dag-
blaða. Þannig reyni hann að nota
tímann þegar færi gefist til að
viðhalda og auka á víðsýni sína
og þekkingu.
GUÐJÓN LEIFUR GUNNARSSON,
Víðigrund 59, Kópavogi.
Alþýðubandalagsmenn
styðja Pétur Hafstein
Frá Jónínu Margréti Jónsdóttur og
Snjáfríði Jónsdóttur:
VEGNA misskilnings í umræðum um
forsetaframboð Péturs Hafstein, vilj-
um við koma því á framfæri, að það
' eru ekki aðeins sjálfstæðismenn sem
styðja Pétur. Við vitum að meirihluti
þess fólks sem hvatti hann í upphafi
til forsetaframboðs voru stuðnings-
menn annarra flokka. Við höfum
verið stuðningsmenn Alþýðubanda-
lagsins til þessa og þó að margt
hefði mátt betur fara í þeim flokki,
komum við líklega til með að vera
það áfram. Hitt er annað mál að við
höfum ekki áhuga á að kjósa mann
sem hefur tekist að gera flokkinn
nánast að engu. Ekki er ætlunin að
fara út í persónulegt skítkast í garð
ákveðinna frambjóðanda enda eng-
um til sóma. í þessum kosningum
erum við að kjósa mann, ekki flokk.
Við teljum að Pétur Hafstein hafí
heiðarleika, styrk og traust til þess
að verða forseti Islands. Þess vegna
styðjum við hann.
JÓNÍNA MARGRÉT JÓNSDÓTTIR,
Blönduhlíð 23, Reykjavík,
SNJÁFRÍÐUR JÓNSDÓTTIR,
Framnesvegi 27, Reykjavík.
Ættarmót
Helgina 28.-30. júní nk. verður haldið niðjamót afkomenda
Borgars Bjarnasonar f. 19. janúar 1865, d. 22. maí 1910
og Guðnýjar Pálsdóttur f. 21. maí 1858, d. 10. janúar
1925. Þau giftust 7. nóvember 1886 og bjuggu fyrst á
Skarði á Snæfjallaströnd og síðar í Borgarshúsi við Beija-
dalsá. Þau eignuðust átta börn og eru afkomendur þeirra
komnir á þriðja hundraðið. Ættarmótið hefst á föstudags-
kvöld í Árbliki, Dalasýslu og verður sameiginlegur kvöld-
verður á laugardag. Mótinu lýkur svo á sunnudag. Fólk
er beðið að láta vita um þátttöku í síma 554-4849.
Farsi
„ SJjdrnin, seg'/r&Js kaJft'timarsi/r'
okkar seu of LasUf/r."
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Netfang: lauga@mbl.is
Léleg þjónusta
FYRIR nokkru fór ég á
bensínstöð Shell í
Skógarhlíð, Loftleiða-
megin. Klukkan var á
slaginu 23.30, ekki mín-
útu seinna, og mig vant-
aði olíu á bílinn minn.
Pilturinn sem var á vakt
kom gangandi að dyr-
unum í versluninni í
sömu andrá og ég opnaði
hana. Ég ætlaði að biðja
hann að setja olíu á bílinn
minn, en hann sagði það
væri búið að loka og ýtti
mér út úr versluninni og
læsti á eftir mér.
Á sama tíma og Shell-
stöðvarnar eru með aug-
lýsingaherferð um að
starfsfólk þeirra taki svo
vel á móti viðskiptavin-
um sínum fær maður
svona viðmót.
Ég vildi bara vekja
athygli á þessu því það
samræmist ekki loforð-
um þeirra í fjölmiðlum.
Elsa G. Jóhannesdóttlr
Gæludýr
Saknað!
FRESSIÐ okkar, hann
Grímfía, fór að heiman
úr Norðurmýrinni seint í
apríl og hefur ekki skilað
sér síðan. Hann er svart-
ur, fremur smágerður af
fressi að vera og nokkuð
loðinn. Hann er tveggja
ára og var með rauða
hálsól þegar hann fór.
Hann er eyrnamerktur
og ber markið: R-5007.
Ef einhver athugull hefur
komið auga á kött sem
svipar til þessa þá væri
gott ef sá hinn sami
gæti hringt í okkur.
Grímur og Soffía
551-0981.
Kettlingur
ÁTTA vikna fallega,
blíða og góða læðu vant-
ar heimili. Vinsamlega
talið inn á símsvara í
númerinu 551-9243 ef
enginn er heima.
Kettlingar
FALLEGIR 10 vikna
kettlingar fást gefins á
gott heimili. Upplýsingar
í síma 567-2168.
Tapað/fundið
Lyklar fundust
LYKLAR á kippu fund-
ust á Borgarholtsbraut
sl. miðvikudagsmorgun.
Upplýsingar í síma
554-4338.
Með morgunkaffinu
ÞAÐ sem þú þarft á að
halda núna er svolítil hreyf-
ing og ferskt loft í lungun.
Það vill svo skemmtilega til
að mig vantar einmitt mann
núna til að vinna í garðinum
hjá mér.
Víkverji skrifar...
TALSVERÐAR umræður urðu á
dögunum um áfengiskaupa-
aldur ungs fólks og hvort ekki væri
eðlilegt að skyldur og réttindi fylgd-
ust að. Þá heyrðist m.a. það sjónar-
mið, hvort eðlilegt væri að menn
mættu kjósa, væru ennfremur kjör-
gengir, mættu stofna til hjúskapar,
Ijölkyldu, skulda og annars sem
fylgir réttindum fullorðins fólks, en
ekki kaupa áfengi. Þama er vissu-
lega misræmi, sem ekki virðist fara
saman við mannlega skynsemi og
er brýnt að það verði leiðrétt.
Víkveiji er með þessu ekki að
taka afstöðu til málsins, nema að
því leyti að honum finnst misræmið
til vanza. Honum er sama á hvorn
veginn það verður leiðrétt, hvort
sjálfræðisaldur verður hækkaður í
20 ár eða áfengiskaupaaldur lækk-
aður í 18 ár. En þetta misræmi
gengur ekki gagnvart ungu fólki.
Skyldur og réttindi verða að fylgj-
ast að.
xxx
NÝLEGA brautskráðist ungur
maður sem stúdent frá einum
af menntaskólum borgarinnar. Svo
sem nú er venja í framhaldsskólum
fór þorri hópsins í svokallað út-
skriftarferðalag og var haldið á
sólarströnd. Ferðin var skemmtileg
og heim komu nýstúdentarnir brún-
ir og sællegir eftir dvölina á bað-
ströndum Miðjarðarhafsins. Var
töluverður munur á hópnum, sem
utan fór en þeim sem kom heim
eins og nærri má geta eftir inniveru
langs og strangs upplestrarfrís.
En þegar krakkarnir komust í
fríhöfnina á Keflavíkurflugvelli,
komust þau áþreifanlega í tæri við
misrétti sem lagasmiðirnir á Alþingi
bera ábyrgð á. Þótt krakkamir séu
allir á sama aldri, rétt um tvítugt,
kom í ljós, að aðeins hluti hópsins
mátti kaupa áfenga drykki. Ferðin
var farin rétt um mánaðamótin
maí-júní og því voru það aðeins
þeir, sem fæddir voru fyrir þessi
tímamörk, sem máttu kaupa áfeng-
ið, en ekki hinir, sem fæddir eru
síðar á árinu. Reglur sem þessar
skapa óánægju og unga fólkinu
finnst þetta ekki vera réttlæti.
I tilfelli unga mannsins, sem Vík-
veiji gerði hér að umtalsefni, þá
skildu aðeins fjórar vikur milli þess
að hann fengi að kaupa áfengi í
fríhöfninni. Hins vegar gat hann
keypt allt það áfengi, sem hann
lysti á ströndinni við Miðjarðarhaf-
ið, þar var ekki spurt um aldur.
Hér er um fáranlegar reglur að
ræða. Auðvitað eiga reglurnar að
segja að allir þeir, sem nái tvítugs-
aldri á árinu megi kaupa áfengi.
Fáranlegt er að gera upp á milli
tveggja jafnaldra hvað þessi rétt-
indi snertir.
XXX
*
Amorgun er komið að þeim stóra
degi að þjóðin gengur til for-
setakjörs og eru, eins og allir vita,
fjórir í framboði. Kosningabaráttan
hefur verið æði ströng og áreiðan-
lega eru einhveijir, sem eru orðnir
liálfjireyttir á allri kynningunni.
Forsetakjör er að því leyti til ólíkt
annarri kosningabaráttu, að það
vill verða mun persónulegra, enda
verið að velja einn forseta meðal
frambjóðenda og sigurvegarinn er
aðeins einn. En hvað sem því líður
þá opna kjördeildir í fyrramálið og
aðfaranótt sunnudagsins ætti að
verða ljóst, hver verður bóndinn á
Bessastöðum næstu fjögur ár. Von-
andi mega landsmenn vænta spenn-
andi kosninganætur.